Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2003, Page 48
52
Helgorbloö 30 V LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 2003
Óstöðvandi sigurganga keppnis-
bílsins Mitsubishi Evolution
öllum bílum Mitsubishi-liðsins
sem tók þátt í Dakar-rallinu, að
sögn Stephane Jacoby, forstjóra
Mitsubishi í Evrópu, í samtali við
DV. Vélin er sex strokka V-vél, 3,5
lítrar að rúmtaki. Gerðarheiti
hennar er 6G74 og hún er 24
ventla, með ECI-fjölinnsprautun
eldsneytis. Smámunur er þó á
tæknilegri útfærslu hennar í
Evolution-bílnum frá því sem er í
Pajero og pallbílnum L200. Bæði
situr hún 10 sm lægra og 30 sm aft-
ar í burðarvirki bílsins miðað við
Pajero. Þannig verða þyngdarhlut-
föllin önnur og betri fyrir
hraðakstur á ósléttu landi og
þyngdarpunkturinn er lægri.
Þessu til viðbótar hafa loftinnsogs-
og útblástursportin verið gerð
öðruvísi þannig að vinnslan verð-
ur meiri. Afl vélarinnar í
Evolution er í kringum 270 hestöfl
en breytileg á þann hátt að að-
stoðarökumaður hefur það á valdi
sínu að forrita stjórntölvu vélar-
innar eftir aðstæðum hverju sinni
og auka afl hennar, eða þá að
draga úr því og draga þar með úr
eldsneytisþörfinni.
Gírkassinn er nýr, annar en í
Pajero- og L300-keppnisbílunum.
Hann er sex gíra rafskiptur. Felg-
urnar eru sérhannaðar og dekkin
sömuleiðis, en þau eru frá BF
Goodrich. í bílnum (og hinum
keppnisbílunum líka) er búnaður
til að auka eða draga úr loftþrýst-
ingnum í dekkjunum eftir aðstæð-
um. Fjöðrunarkerfið er sérkafli út
af fyrir sig. Fjöðnmin er mjög
slaglöng - hvert hjólanna fjaðrar
sjálfstætt og eru tvöfaldar spymur
bæði framan og aftan og demparar
eru sömuleiðis tvöfaldir, af
Donerre-gerð og stillanlegir. Heml-
amir eru loftkældir diskar að aft-
an og framan og stýrið er af tann-
stangargerð með hjálparátaki, sem
sannarlega er þörf á. -SÁ
Milli sérleiða var gist í tjaldbúðum í eyðimörkinni, en þar gafst tími til
viðgerða. Keppnislið Mitsubishi var vel búið tækjum og tólum, en alls
fylgdu um 20 bílar keppnisliðinu.
•0- kynntur sem hugmyndabíU á bíla-
sýningunni í Frankfurt og Genfar-
sýningunni sl. haust. Hann var
einnig sýndur á bílasýningunum í
París það sama haust, en þar var
hann einmitt sýndur sem hreinn
kappakstursbíU en ekki bíU til al-
mennra nota.
Frumgerðir bílsins voru prufu-
keyrðar í Marokkó sl. sumar, þeg-
ar hitar voru eins og þeir gerast
mestir í þeim heimshluta. í lok
þessa reynsluaksturstíma tók
Stephane Peterhansel þátt í rall-
ralijeppans. Hann er byggður á
reynslunni af Pajero-jeppanum en
er talsvert öðruvísi í útliti, með
önnur hlutfoll milli lengdar,
breiddar og þyngdar. Síðast en
ekki síst klýfur hann loftið betur -
loftmótstaða hans er minni.
Ef við berum Evolution saman
við Pajero þá er fyrrnefndi billinn
11,3 sm lengri, lengd mUli hjóla er
18 sm meiri og hann er tæpum 4
sm breiðari en Pajero og miUi
hjóla er hann 22 sm breiðari.
Að grunni tU er vélin sú sama í
Bíllinn sem Hiroshi Masukho,
sigurvegari Dakar-rallsins, ók tU
sigurs sl. sunnudag, nefnist Mitsu-
bishi Evolution. Þetta er nýhann-
aður bUl, sérstaklega fyrir akstur í
torfærum, eins konar eyðimerk-
jk. urtryllitæki eða Desert GT, eins og
þeir segja hjá Mitsubishi. Tveir
Evolutionbílar voru sendir í Dak-
ar-rallið að þessu sinni og lenti
hinn blUinn í þriðja sætinu, eins
og fram kemur á öðrum stað hér á
síðunni. Evolution-bíllinn var
keppni sem nefnist 2002 Marlboro
UAE Desert ChaUenge á þessum
nýja bU og sigraði örugglega. Sá
sigur og nú sigursætið og þriðja
sætið í Dakar-rallinu hefur þvi
sannarlega komið þessum bU á
kortið ef svo má segja. Evolution-
billinn glænýi er búinn að taka
rallheiminn með trompi.
Framþróaður Pajero
Evolution-bíllinn er í rauninni
eins konar framþróun Pajero-
Þetta var stór-
kostleg keppni
- segir sigurvegarinn, Hiroshi Masuoka,
í viðtali við DV
Mitsubishi staðfesti enn á ný stöðu
sína sem forystuaðUi í alþjóðlegu raUi
í Dakar-raUinu sem lauk sl. sunnudag.
Fjórar áhafhir á Mitsubishi-bUum röð-
uðu sér í fjögur efstu sætin og Japan-
inn Hiroshi Masuoka hreppti efsta
sætið ásamt aðstoðarökumanni sín-
um, Þjóðverjanum Andreas Schulz.
Þetta er í áttunda sinn sem Mitsu-
bishi-bUl sigrar í Dakar-rallkeppninni.
DV var á staðnum þegar Masuoka
innsiglaði sigurinn á sunnudagsmorg-
un i síðasta áfanga keppninnar við
baðstrandarbæinn Sharm E1 SheUíh á
suðurodda Sinaiskaga í Egyptalandi
og ók Mitsubishi Evolution-bU þeirra
félaga á verðlaunapaUinn, þar sem
þeim var vel fagnað og samgönguráð-
herra Egyptalands afhenti þeim sigur-
launin. Þetta er í annað sinn sem Ma-
suoka er sigurvegari í þessu einu erf-
iðasta raUi veraldar - 19 daga akst-
urstöm á vegleysum Sahara og
Sinaiskaga í steikjandi hita og ryki
svo að á stundum sér ekki út úr aug-
um. Sömuleiðis er þetta í annað sinn
sem Andreas Schulz stendur á verð-
launapaUi Dakar-rallsins sem sigur-
vegari. Það gerði hann árið 2001 sem
aöstoðarökumaður raUökukonunnar
knáu, Juttu Kleinschmidt.
Stórkostleg keppni
DV náði tali af Masuoka í hátíðar-
kvöldverði á vegum Mitsubishi sem
fram fór sl. sunnudagskvöld i bedúina-
tjaldi í klettaskoru úti í eyðimörkinni,
um 20 km frá Sharm E1 Sheikh. Masu-
oka var spurður hvemig honum væri
innanbrjósts eftir sigurinn: „Auðvitað
gleðst ég mjög yfir sigrinum. Þetta er
búin að vera stórkostleg keppni. Hrað-
inn var mikiU, ekki síst í Túnis og
Líbíu, þar sem aðstæður vom ágætar.
Lengstum var ekið á bUinu 160-180
km/klst og við Stephane Peterhansel
öttum kappi á fyrri helmingi keppn-
innar en á þeim siðari dró ég úr hrað-
anum bæði tU að hlífa bílnum og eins
tU að vera viðbúinn ef eitthvað kæmi
upp á hjá Stephane."
Gott gengi Mitsubishi
Eins og kom fram í frétt DV frá
Sharm E1 Sheik á mánudag hafði
Mitsubishiökumaðurinn Stephane
Peterhansel haft forystu í raUinu frá
upphafi en í næstsíðasta áfanganum
lenti bUl hans á stórum steini í ryk-
mekki í ffamúrakstri og við árekstur-
inn brotnaði hjól undan bUnum og
vonir um sigur urðu að engu. Skipt
var um hjólið og hjólabúnaðurinn var
lagaður en Peterhansel var eftir
óhappið í vandamálum vegna vatns-
kassaleka sem tafði hann enn frekar.
Engu að síður tókst Peterhansel sem,
eins og Masuoka, ók Evolution-bU, að
hreppa þriðja sætið og má það teljast
umtalsvert afrek í ljósi fyrmefhdra erf-
iðleika. í öðru sæti urðu Jean-Pierre
Fontenay og aðstoðarökumaður hans,
GUles Picard, en þeú óku Mitsubishi
Pajero. í ijórða sæti urðu Carlos Sousa
og Henri Magne á Mitsubishi L200.
Loks má geta þess að Mitsubishi Pajero
varð einnig í 10. sæti þannig að fimm
Mitsubishi-bUar voru í 10 efstu sætum
keppninnar að þessu sinni.
Finn tíl með Peterhansel
Masuoka sagði í samtalinu við DV
að auðvitað fyndi hann tU með félaga
sínum, Peterhansel, vegna ofannefhdr-
ar óheppni hans undir lok keppninnar,
en Peterhansel hefði verið búinn að
spjara sig frábærlega vel. Það hefði
samt verið mjög mikUvægt fyrir Mitsu-
bishi að sigra í keppninni og að hann
vonaðist tU að sigurganga fyrirtækis-
ins væri langt ffá því að vera á enda
runnin. „Ég hlakka tU að etja kappi við
Peterhansel fljótlega aftur,“ sagði Ma-
suoka.
Aðspurður um EvolutionbUinn
sagði hann að þetta væri frábært
keppnistæki. BUlinn hefði verið þróað-
ur á síðasta ári og þeirri vinnu hefði
lokið að mestu i ágústmánuði í fyrra.
Að því loknu hefðu þeir prófað bUana í
Marokkó í tvær vikur samfleytt. í
þeirri lotu hefðu einstakir eiginleikar
hins nýja fjöðrunarkerfis í bUnum
sannað sig. „Við munum halda áffam
aö þróa þennan bU frekar og kannski
sigrum við aftur á næsta ári, það er
aldrei að vita,“ sagði Hiroshi Masuoka
að lokum. -SÁ
f*.
Meðalhemlunarvegalengd fjögurra
mismunandi dekkja á þurrum ís
Frábær naglalaus vetrardekk
í snjó og hálku. Aftur og aftur
heyrum við ótrúlegar
reynslusögur frá ökumönnum...
BUZZAK-ABS JJ
BLIZZAK-VL. jt
' L ' '
NAGLADEKK-VL
NAGLADEKK-ABS
VETRARDEKK MEÐ KORNUM-ABS
VETRARDEKK MEÐ KORNUM-VL.
ÓNEGLD VETRARDEKK-ABS
ÓNEGLD VETRARDEKK-VL.
70 m 90 m 110 m 140 m
Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins:
Tilraun með hemlunarvegalengd á mismunandi
vetrardekkjum. Nánari upplýsingar;
http://www.rabygg.is/skjol/veg/prohemlvegl.pdf
©ORMSSON
ZÍMUUESTOnEBLizzA
Línuritið hér til hliðar sýnir að
Bridgestone BLIZZAK loftbóludekkin
komu vel út í íslenskri könnun og hana
má t.d. skoða á www.ormsson.is
Dekkjaþjónusta Bridgestone í Lágmúla 9.
Hagstætt verð á skiptingum ogdekkjum
LAGMULA 9 SIMI 530 2837