Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2003, Qupperneq 4
4
LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR 2003
DV
Fréttir
Viðskiptavinir DV geta notað SMS-þjónustu við smáauglýsingapöntun:
Númerið 1919 fyrir not-
endur allra símafyrirtækja
SmartSMS ríður á vaðið á ís-
landi með með eitt stutt númer
fyrir SMS-þjónustur. Nú þurfa
þeir landsmenn sem taka þátt í
SMS-þjónustum á vegum Smart-
auglýsinga aðeins að muna núm-
erið 1919 þegar þeir taka þátt i
þjónustunni. Þjónustan er fyrir
alla, sama hvaða símafyrirtæki
þeir skipta við. Númerið verður
tekið í notkun i dag, laugardag.
„Þetta er gríðarlegt skref fram á
við hér á íslandi að við fáum að
hafa eitt númer, okkar eigið núm-
er óháð hvaða símfyrirtæki við-
skiptavinir okkar eru að senda
SMS frá. Þetta er mjög gott mál og
öllum fyrir bestu þá sérstaklega
okkar viðskiptavinum sem skipta
hundruð þúsunda á hverjum mán-
uði,“ sagði Halldór Viðar Sanne,
framkvæmdastjóri Smart-auglýs-
inga. Nú er bara að taka upp sím-
ann og prófa eina SmartSMS/DV
Smáauglýsingar DV einnig gegnum SMS
Úr smáauglýsingadeild DV í Skaftahlíö 24.
þjónustu og senda á númerið sem
allir ættu að muna framvegis,
1919.
DV býður einnig þá þjónustu að
hægt verður að gerast áskrifandi
að smáauglýsingum í símanum.
Þeir dálkar sem byrjað verður
með eru Einkamál, Atvinna og
Húsnæði en fleiri nýjungar munu
líta dagsins ljós á næstu dögum.
Til að panta auglýsingu í síman-
um slær notandi t.d. inn: Einka-
mál.
Hann sendir síðan SMS-skeytiö
DV KVK á númerið 1919 og fær frá
smáauglýsingadeildinni til baka
upplýsingar um einkamála smá-
auglýsingar DV sem birtast í blað-
inu. Móttaka hvers skeytis kostar
49 krónur. Til að afskrá þjónust-
una þarf að senda SMS-skeytið DV
KVK STOPP á númerið 1919. -GG
íslenska friðargæslan:
Erum í viðbragðsstöðu
„Það veit enginn hvað gerist en
við erum i viðbragðsstöðu fyrir
hjálpar- og uppbyggingarstarf í kjöl-
far hugsanlegra átaka í írak,“ segir
Finnbogi Rútur Arnarson, umsjón-
armaður íslensku friðargæslunnar
hjá utanríkisráðuneytinu, þegar
hann er spurður um stöðu íslensku
friðargæslunnar ef til stríðs kemur
í írak. „Við eru með fólk á við-
bragðslista og getum brugðist við
óskum um aðstoð með tiltölulega
stuttum fyrirvara.“
Finnbogi segir að íslenska friðar-
gæslan sé með verkefni í Bosníu,
Kosovo, Makedóníu og á Sri Lanka.
„Friðargæsluliðar í Bosníu starfa
með Öryggissamvinnustofnun Evr-
ópu (ÖSE), Evrópusambandinu og
SFOR, Stabilisation Force. Evrópu-
sambandið tók við löggæsluhlut-
verki í landinu af Sameinuðu þjóð-
unum um síðustu áramót. Friðar-
gæslan er einnig með mjög stórt
verkefni i Pristina eftir að hún tók
við allri flugumsjón i borginni í jan-
úar en hún mun taka við allri stjórn
flugvallarins 3. mars næstkom-
andi.“
Flugumsjón í Pristina
Finnbogi segir að þess utan sé
friðargæslan með verkfræðinga á
sínum vegum sem vinna með
Það veit enginn hvað gerist
Finnbogi Rútur Arnarson, umsjónarmaöur íslensku friöargæsiunnar hjá utan-
ríkisráöuneytinu, segir aö þaö séu aö jafnaöi tuttugu og fimm íslendingar aö
störfum erlendis á vegum friöargæslunnar.
Kosovo Force í Pristina, en KFOR
er herafli þeirra ríkja sem halda
uppi lögum og reglu í héraðinu á
vegum NATO. „Við vinnum líka
með Sameinuðu þjóðunum í Kosovo
þar sem Margrét Heinreksdóttir
stjórnar skrifstofu UNIFEM, auk
þess sem Hrafn Grétarsson lögreglu-
maður starfar með sérsveit SÞ í
Pristina. Friðargæslan er með tvo
menn í samnorrænu verkefni á Sri
Lanka sem nefnist Sri Lanka Mon-
itoring Mission, SLMM, og felst í
því að halda uppi vopnahléseftirliti
á milli stjórnarhersins og skæruliða
Tamíla.“
Einn á leið til Afganistans
„Stærsta verkefnið um þessár
mundir er tvímælalaust umsjón
með flugvellinum í Pristina. Innan
tíðar fer maður frá okkur til
Afganistans til að stjórna uppbygg-
ingarstarfi og við erum einnig með
í undirbúningi samstarfssamning
við World Food Program."
Að sögn Finnboga eru að jafnaði
tuttugu og fimm íslendingar
erlendis á vegum friðargæslunnar.
„Utanríkisráðuneytið mun fljótlega
auglýsa eftir þátttakendum á nám-
skeið vegna viðbragðslistans og ör-
yggisnámskeið í samvinnu við rík-
islögreglustjóra fyrir þá sem eru
þegar á viðbragðslista íslensku frið-
argæslunnar." -Kip
TF-LÍF í ókyrrð:
Sótti hjarta-
sjúkling í
Stykkishólm
Læknir á sjúkrahúsinu í Stykk-
ishólmi hafði samband við stjórn-
stöð Landhelgisgæslunnar um
hálftíu í gærmorgun vegna hjart-
veiks manns sem þurfti að kom-
ast tafarlaust á sjúkrahús í
Reykjayík.
TF-LÍF fór í loftið frá Reykja-
víkurflugvelli rétt fyrir kl. tíu og
var komin til Stykkishólms kl.
10.26. Þaðan var haldið af stað kl.
11 og lent á Reykjavíkurflugvelli
upp úr hálftólf. Sjúkrabíll flutti
sjúklinginn á Landspitala Há-
skólasjúkrahús við Hringbraut.
Flugið tókst vel en ókyrrð var í
lofti yfir Snæfellsnesi, skýjað og
éljagangur.
Ekki er vitað um liðan sjúk-
lingsins að svo stöddu. -JBP
Vegagerðin:
Fækkun
starfsmanna
vegna útboða
Vegagerðin hefur kynnt breyt-
ingar á starfseminni á höfuðbog-
arsvæðinu sem fela í sér að verk-
efnum verður í auknum mæli
stefnt í útboð.
Þessar breytingar munu leiða
til fækkunar starfsmanna um
tæplega 20 manns en þær munu
koma til framkvæmda næsta vet-
ur og sumarið 2004.
Fundað var með starfsmönnum
um þessar breytingar í starfsstöð
Vegagerðarinnar í Grafarvogi í
fyrradag.
Helgi Hallgrímsson vegamála-
stjóri sagði DV að þessar breyt-
ingar vörðuðu aðallega ýmis
þjónustuverkefni, birgðahald og
fleira. Verði það aðallega véla-
menn sem missa vinnu hjá Vega-
gerðinni vegna breytinganna.
-hlh
Haf narf j arðarbær:
í.ir
Flugsæti á broslegu verði
Menningarsamningur upp
á 14,5 milljónir króna
Netsmellur - alltaf ódýrast á Netinu
Verð á mann frá 19.800* kr.
þegar bókað er á WWW.icelandair.is
*lnnifalið: Flug og flugvallarskattar
lCELANDAIR
Hafnaríjarðarbær hefur gert samn-
inga við 13 félög eða félagasamtök um
menningarstarfsemi og eru samning-
amir til þriggja ára. Þeir eiga að
nokkru leyti að tryggja tjárhagslegt ör-
yggi til handa viðkomandi félögum og
félagasamtökum. Á móti koma ákvæði
sem tryggja Hafhfirðingum þá menn-
ingarþjónustu sem um ræðir hjá
hverju félagi um sig sem og þátttöku
þeirra í viðburðum á vegum Hafnar-
fjarðarbæjar.
Félögin eru Lúðrasveit Hafnarfjarö-
ar, Kammersveit Hafnarfjarðar,
Ljósaklif, Leikfélag Hafnarfjaröar,
Sveinssafn, Karlakórinn Þrestir,
Kvennakór Hafnarfjarðar, Söngsveit
Hafnarfjarðar, Kammerkór Hafiiar-.
fjarðar, Kór Öldutúnsskóla, Kór Flens-
borgarskólans, Kór eldri Þrasta og
Gaflarakórinn.
Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafh-
arfirði, segir að samingurinn sé upp á
14,5 milljónir króna til þriggja ára sem
er frá 200 til 500 þúsund krónur á hóp
á ári, en fjórir hópar séu nýir frá fyrri
úthlutunum.
Fjárhagslegt öryggi tryggt
Skrifaö undir samninga til þriggja ára sem tryggja eiga fjár-
hagslegt öryggi til handa félögum og félagasamtökum.
„Þetta hefur ekki verið í fóstu formi
eins og nú, var áður inni í fjárhags-
áætlun til einstaka kóra eða félaga. Það
er almenn ánægja með að þetta skuli
vera komið í þennan fasta farveg. Von-
andi höfum tækifæri til að auka við
þennan stuðning
þegar flárhagsstaða
bæjarins batnar.
Fyrirmyndin eru
þeir rekstrarsamn-
ingar sem við höf-
um gert við íþrótta-
og æskulýðsfélögin í
bænum. Þetta er tví-
hliöa samningur.
Við tryggjum þeim
framlag næstu þrjú
árin en í staðinn
taka þessir hópar
með einhverjum
hætti þátt í menn-
ingarstarfi og öðr-
um uppákomum í
Hafnarfirði. Við
erum að fara af stað
með listadaga i júní-
mánuði sem nefnast „Bjartir dagar",
sem einhverjir þeirra taka þátt í. Svo
eru það dagar eins og 17. júní, sumar-
dagurinn fyrsti, aðventuhátíðir o.fl.
Það að koma fram er líka auglýsing fyr-
ir þá,“ segir Lúðvik Geirsson. -GG
DV-MYND HARI