Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2003, Blaðsíða 48
52
Helgorbloö H>V LAUGARDAGUR ö. FEBRÚAR 2003
Daivegur 16a • 201 Kópavogur • Pósthólf 564 • Sími: 544 4656
Fax: 544 4657 • Netfang: mhg@mhg.is
5IMJDKEÐJUR
Fyrir flestar gerðir vinnuvéla og vörubifreiða
HVERFISGATA 103 REYKJAVÍK. 200 OG 300 FM HÚSNÆÐI.
Cæti hentað fyrir:
* Verslun
Heildsölu
* Veitingarekstur
* Ýmiss konar þjónustustarfsemi
Næg bílastæði Áberandi staðsetning
Upplýsingar í síma: 892 1270 eða 892 1271
- >
J-
>
>
TOYOTA
Rafdrifnir
handlyftarar
Lyftigeta
1,3 - 2,4 tonn
: X* a
\ \a9er
Ekki iáta Þ&r leiðast-,
TAKTU SPOUI!
* +
BONUSVIDEO
Lei9an í þinu hverfi
ÞARFASTI
ÞJÓNNINN!
Dalvegur 6-8 • 200 Kópavogur • Sími 535 3500 • Fax 535 3501
arnisi@kraftvelar.is • www.kraftvelar.is
)' KRAFTVÉLAR
Umsjón
Sævar Bjamason
Skákþing Reykjavíkur:
Sex skákmenn jafnir og efstir
Sex skákmenn urðu efstir og
jafnir á Skákþingi Reykjavíkur.
Þeir eru Jón Viktor Gunnarsson,
Stefán Kristjánsson, Sigurbjörn J.
Björnsson, Björn Þorfinnsson,
Bragi Þorfinnsson og Bergsteinn
Einarsson. Sexmenningarnir
þurfa því að há úrslitakeppni um
titilinn skákmeistari Reykjavíkur.
Þeir hlutu allir 8 v. en það er
óvenju lágt vinningshlutfall.
Skýringin er líklegast sú að
menn tefldu mikið innbyrðis og
enginn náði að komast fram úr
hinum þótt tækifæri gæfust og
sérstaklega í síðustu umferð. Fyr-
ir hana voru Stefán Kristjánsson,
Bragi Þorfinnsson og Bergsteinn
Einarsson efstir með 7,5 v. En það
merkilega geröist að skákum
þeirra lauk öllum með jafntefli.
Stefán fórnaði „óvart“ til jafnteflis
gegn hinum bráðefnilega Sigurði
Páli Steindórssyni og þeir Berg-
steinn og Bragi börðust grimmt og
náði Bragi yfirhöndinni í
æsispennandi viðureign. En þegar
Bragi var að máta með hrók féll
hann á tíma! Þar fór titillinn fyrir
lítið en Bragi vann þó í fyrra.
Allir þessir skákmenn eru ung-
ir að árum og leggja hart að sér í
skákinni. Fjórir þeirra voru í sig-
ursveit íslands sem vann Ólymp-
íumót 16 ára og yngri sem vann
frækilegan sigur á Kanaríeyjum
1995. Þar urðu þeir fyrir ofan allar
helstu skákþjóðirnar og nú í dag
virðist vera að rætast úr þessum
strákum. Þeir hafa náö upp mikl-
um baráttuanda og skákstyrkleik-
inn eykst. Framtíðin er því björt.
Hvernig aukakeppninni verður
hagað hefur ekki verið ákveðiö en
þaö er eiginlega ófært að láta þessa
aðila tefla á nýju móti um titilinn
skákmeistari Reykjavíkur 2003.
Þeir ættu að tefla atskákmót um
titilinn, líkt og gert hefur verið í
heimsmeistarakeppni FIDE undan-
farin ár. Skákirnar eru hvort eð er
tefldar í atskákformi í lokin á
sjálfu mótinu svo mér sýnist þetta
vera réttlátast. En erfitt er að fá
menn til að skipta um skoðun í
skákmálefnum. Það gerist ekki
nema ákveðnir aðilar taki sig til og
haldi mót. Forystumenn skákhreyf-
ingarinnar eru ansi ósveigjanlegir
og tefla þeir sjálfir þó frekar lítið!
En þeir vita þetta betur! En lítum
að lokum á röð efstu manna:
1.-6. Jón Viktor Gunnarsson
(2405), Stefán Kristjánsson (2430),
Sigurbjörn Björnsson (2290), Bragi
Þorfinnsson (2405), Björn Þor-
finnsson (2315) og Bergsteinn Ein-
arsson (2235) 8 v. 7. Magnús Öm
Úlfarsson (2365) 7,5 v. 8.-12. Sævar
Bjarnason (2300), Sigurður Páll
Steindórsson (2175), Guðni Stefán
Pétursson (1880), Dagur Arngríms-
son (2180) og Eiríkur Björnsson
(1995) 7 v. 13.-18. Þorvarður Fann-
ar Ólafsson (2090), Björn Þor-
steinsson (2185), Ingvar Þór Jó-
hannesson (2215), Guðmundur
Kjartansson (2080), Ögmundur
Kristinsson (2055) og Skúli Hauk-
ur Sigurðarson (1700) 6,5 v.
Einvígi Hannesar Hlífars
og Movesians
Dagana 10.-15. febrúar nk.
stendur Taflfélagið Hellir í sam-
vinnu við Olís fyrir einvígi milli
Hannesar Hlífars Stefánssonar,
fjórfalds íslandsmeistara, og ofur-
stórmeistarans Sergei Movsesjan.
Það verður haldið i höfuöstöðvum
Olís, Sundagarði 2. Notuð verða
hin svokölluðu FIDE-tímamörk og
er það í fyrsta sinn sem það er
gert hér á landi en þau þykja
bjóða upp á mikla spennu og tíma-
hrak.
Sannkölluð skákhátíð fer fram á
mótsstað i kringum sjálft einvígið!
Má þar nefna að Helgi Áss Grét-
arsson ætlar sér að reyna að slá
íslandsmetið í blindskákarfjöltefli
og tefla við 11 keppendur í einu!
Fjölskyldumót fer fram, ungir og
upprennandi meistarar, Bragi
Þorfmnsson og Arnar E. Gunnars-
son mæta öflugu tölvuforriti. Auk
þess verða skákskýringar.
Þau sem taka þátt í blindskák-
arfjölteflinu viö Helga Áss eru:
Guðlaug Þorsteinsdóttir, Hall-
gerður Helga Þorsteinsdóttir, Elsa
María Þorfinnsdóttir, Helgi
Brynjarsson, Arnar Sigurðsson,
Hjörvar Steinn Grétarsson,
DagurKári Jónsson, Sæbjörn Guð-
finnsson, Gunnar Nikulásson,
Helgi Heiðar Stefánsson og Stefán
Þormar Guömundsson
Svo er Skákskólinn að fara með
skemmtilegan hóp til Moskvu,
blandaðan fullorðnum og ungum
og upprennandi skákmönnum.
Mótið er sterkt stórmeistaramót,
Aeroflot open, og vel til þess fund-
ið að fara á þetta mót. Þama eru
Helgi Ólafsson, Þröstur Þórhalls-
son, Jón Viktor Gunnarsson,
Björn Þorfinnsson, Páll Agnar
Þórarinsson, Snorri Bergsson,
Dagur Arngrímsson, Guðmundur
Kjartansson, Guðni Stefán Péturs-
son, Sigurjón Þorkelsson, Björn
ívar Karlsson, Ingvar Ásmunds-
son og Birkir Örn Hreinsson.
Þarna eru mér til ánægju nokkrir
Vestmannaeyingar! Einnig eru
með í fór, keppendum til halds og
trausts, þau Guðrún Þórðardóttir,
eiginkona Ingvars Ásmundssonar,
og Þorkell Sigurjónsson frá Vest-
mannaeyjum, faðir hins aldna
unglings, Sigurjóns Þorkelssonar
Lítum nú á stutta og skrýtna
skák frá Gíbraltarkletti á milli 2
þekktra stórmeistara!.
Hvítt: Jonathan Speelman (2583).
Svart: Juan Bellon Lopez (2428).
Enski Sikileyjarleikurinn
Catalan Bay Gibraltar (3), 30.1. 2003
1. Rf3 c5 2. e4 g6 3. Bc4 Bg7 4.
0-0 e6 5. Hel Dc7 6. c3 Rc6 7.
Ra3 Re5? Slæmur verður þessi
leikur að teljast, gefur leikvinn-
ing. 8. Rxe5 Bxe5 9. d4 cxd4
Svartur hefur auðvitað haldið að
hvítur myndi ekki þora að gefa
peðið en þvílíkur misskilningur!
10. cxd4 Bxh2+ 11. Khl Bd6 12.
Rb5 Db8 13. e5 Bc7 14. d5! Og
ekki gengur 14. exd5 vegna 15.
Dxd5 og mátar eða eitthvað enn
verra! 14. -Bxe5
ii # 41 A A A
§§j JL k
Ai
J0£ ML ■
A A A A
2 1 W 2 ''á?
Og eftir næsta leik hvíts veröur
biskupinn einn að hírast langt frá
sínu skíri, öngvum til gagns, bara
leiðinda! 15. d6! Bg7 16. Rc7+
Kf8 17. Bg5 a6
En ekki eru allir biskupar dug-
lausir!18. Bxe6!! Ef 18. dxe6 þá 19.
d7 Bxd7 20. Dd6 og ýmislegt skelfi-
legt er á ferðinni! Eða 18. dxe6 þá
kemur 19. Df3+ og ekki langt í
mát! 18. -RfB 19. Bb3 1-0 mát er í
nokkrum leikjum eftir 20. Bxf6
fylgt af 21. Dd5!
Ótrúleg ferð Love til Lundúna
Hvorki hún né Bretar munu
fljótt gleyma heimsókn Courtney
Love til Lundúna fyrir skömmu.
Love er helst þekkt fyrir að vera
ekkja Kurts Cobains og fyrrum
söngkona hljómsveitarinnar Hole.
Ferð hennar byrjaði á því að
hún var handtekin strax við kom-
una í London en hún hafði valdið
nokkrum usla um borð í Virgin-
flugvélinni sem flutti hana til
London frá Los Angeles. Hún
hreytti vist fúkyrðum að flug-
freyju sem bannaði vini hennar
aðgang á 1. farrými.
Hún VEir handtekin og farið með
hana á lögreglustöð þar sem hún
mátti dúsa langt fram á kvöld.
Henni var þó loks sleppt án ákæru
en með áminningu frá yfirvöldum.
Love var stödd í London til að
koma fram á góðgerðartónleikum
fyrir hið sögufræga Old Vic-leik-
Dagtegt líf?
Bretar voru sjokkeraöir af framkomu
Love sem sjálfsagt kippir sér ekki
mikiö upp viö viöbrögöin.
hús og voru margar stórstjörnum-
ar viðstaddar. Kaldhæðnislega
nokk, var einn gestanna í salnum
Sir Richard Branson, stofnanda
V irgin-flugfélagsins.
Þegar kom að sjóvinu sjálfu kom
hún fram á sviðið í Andrésar And-
ar-búningi sem hún fjarlægði smá
saman á meðan hún söng dúett
með Elton John. Lagið var The
Bitch is Back. Þegar laginu lauk
var hún klædd undirfotunum ein-
um saman.
En allt er gott sem endar vel. Að
tónleikunum loknum tókst tal með
þeim Love og Branson og var ekki
annað að sjá að þama færu mestu
mátar. Branson sagði að Love
hefði beðið hann afsökunar á
framferði sínu og mun flugfélagið
hafa samþykkt að fljúga með hana
aftur á heimaslóðir í Los Angeles.