Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2003, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2003, Page 11
LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR 2003 11 Skoðun ! MlfiHM mm Nú er frost á Fróni Kjartan Gunnar Kjartansson blaöamaður Laugardagspistill Þorrablót eru óneitanlega svolítið skondin uppákoma: Þessi árvissi samfagnaður í borg og bæ og um all- ar sveitir á vegum stórfjölskyldna, félagascimtaka, fyrirtækja, átthaga- félaga, sveitunga og Islendinga á er- lendri grund um allan heim. Þorraprótókollur Enginn er maður með mönnum, eða kannski réttara sagt, enginn er sannur íslendingur, nema hann blóti þorra, ár hvert, á góðra vina fundi, kunni utan að og geti sungið Þorraþrælinn eftir Kristján Jónsson fjallaskáld, getið sungið hnökra- laust minni karla, Táp og fjör og frískir menn, eða minni kvenna, Fósturlandsins Freyja, allt eftir þvi hvoru kyninu maður tilheyrir, og geti belgt sig út af þjóðlegum kræs- ingum sem unga fólkið kallar skemmdan mat. Svo er ekki verra að geta drukkið með íslenskt brennivín á svipaðan hátt og ódann- aðir Rússar þamba vodka. Manndómsraunin Hjá frumstæðum þjóðum hafa lengi tíðkast manndómsraunir af ýmsu tagi sem lagðar eru fyrir ung- linga er þeir komast í tölu fullorð- inna. En íslenskur unglingur verð- ur ekki fuilorðinn fyrr en hann get- ur hesthúsað súra punga af hrútum með bros á vör, smjattað á sviðnum kindaandlitum og tekið dragúldinn hákarl fram yfir Nóa-konfekt. Þá fyrst verður hann fullveðja og snn- ur íslendingur. Það að fúlsa við þorramat og kunna ekki að skemmta sér á þorrablótum er því besta dæmið um ungæðishátt. Andóf unga fólksins Ég hef stundum velt því fyrir mér hvort ekki sé komið að því að unga fólkið stræki á þessa manndóms- raun. Hvort alþjóðavæðingin með alla sína skyndibita sé ekki í þann veginn að leggja af þorrablótin og þessar þjóðlegu kræsingar. Fyrir nokkrum árum virtist and- óf æskunnar gegn manndómsraun- inni með svæsnara móti. Unga fólk- ið talaði með lítilsvirðingu um skemmdan mat og andófið gekk svo langt að matreiðslumeistarar veltu fyrir sér og gerðu tilraunir með málamiðlun, einhvers konar þorrapitsu, við lítinn fögnuð beggja deiluaðila. Nú hefur hins vegar lítið borið á umræðu um skemmdan mat. Þeir sem fremstir stóðu í andófinu um árið eru líklega famir að kjamsa á sviðakjömmum og þorrablótin hafa sjaldan verið vinsælli. Uppruni þorrablóta En þó þorrinn sé blótaður um all- ar jarðir virðast hugmyndir al- mennings um uppruna og sögu blót- anna töluvert á reiki. Því er t.d oft haldið fram að séra Halldór Gröndal hafi „fundið upp“ þorrablótið er hann var forstjóri Naustsins á sjötta og sjöunda áratugnum. Því fer víðs fjarri. í hinum stórmerku ritum dr. Árna Björnssonar þjóðháttafræð- ings um sögu daganna kemur m.a. fram að fyrst sé minnst á þorrablót í Flateyjarbók. Þar segir frá kóngin- um Þorra, blótmanni miklum, sem hélt þorrablót á hverjum vetri. Dótt- ir hans var Góa en meðal annarra persóna í þessari sögu eru Ægir, Logi, Kári, Frosti og Snær. Hér er þvi um að ræða persónugerð nátt- úrufyrirbæri eða vetrar- og veðra- vætti. En íslenskur unglingur verður ekki fullorðinn fyrr en hann getur hest- húsað súra punga af hrútum með bros á vör, smjattað á sviðnum kindaandlitum og tekið dragúldinn hákarl fram yfir Nóa-konfekt. Þá fyrst verður hann fullveðja og sannur íslendingur. Með kristnitöku lögðust af blót heiðinna vætta og þar með þorra- blót þótt þorrinn hafi líklega verið blótaður á laun víða um land og ýmsir siðir, tengdir þorra, haldist við. Þorra heilsað Þorrinn er fjórði mánuður vetrar samkvæmt gamla tímatalinu og hefst á bóndadegi, fóstudegi í þrett- ándu viku vetrar, þ.e. á tímabilinu 19.-25. janúar. Samkvæmt Þjóðsög- um Jóns Ámasonar var útbreidd venja, og talið eins gott, að heilsa þorra með virktum. Á bóndadegi áttu bændur að fagna þorra með því að fara fyrstir á fætur, fara í skyrtuna og aðra buxnaskálmina en draga hina á eftir sér. Bóndinn átti að opna bæinn, svona til fara, hoppa á öðrum fæti kringum bæinn og bjóða þorrann velkominn. Síðan áttu velmegandi bændur að bjóða sveitungum sínum í þorrafagnað. Þorrablót í seinni tíð Þorrablót eru svo aftur tekin upp á 19. öld, og ráða þar mestu um róm- antísk þjóðemisviðhorf á tímum sjálfstæðisbaráttunnar. Þar riðu Hafnarstúdentar á vaðið enda sér- fræðingar í sjálfstæðisbaráttu og samkvæmishaldi. Var fyrsta slíka blótið haldið í Kaupmannahöfn 24. janúar 1873. Næsta blót var haldið á Akureyri þjóðhátíðarárið 1874 og Fomleifafélagið hélt þorrablót í Reykjavík 1880. Ámi Björnsson get- ur þess að ýmsir málsvarar guðsótta og góðra siða hafi á þess- um ámm andmælt þessum heiðna sið og talið hann óviðeigandi. Þegar komið var undir aldamót var farið halda almenn þorrablót til sveita, fyrst á Fljótsdalshéraði og síðan í Eyjafirði, en á Vesturlandi hefjast blótin ekki fyrr en upp úr 1920. Rétt fyrir og um miðja 20. öld taka átthagafélög í Reykjavík að halda þorrablót og skömmu síðar býður Halldór Gröndal upp á þorramatinn í Naustinu. Þó Halldór hafi ekki „fundið upp“ þorrann hafði þorramaturinn í Naustinu feikilega mikil, ef ekki úrslitaáhrif, á núverandi vinsældir þorrablóta. Þjóðarréttir og þjóðarstolt Þorrablótin og tilheyrandi veislu- fóng era fyrir löngu orðin að ein- hvers konar þjóðemistákni, svona næstum því eins og íslenski fáninn eða þjóðsöngurinn. t þeim efnum stöndum við íslend- ingar í harðri keppni við framandi þjóðir um það hverjir geti étið ókræsilegustu réttina. Asíuþjóðir kunna lagið á því að vekja viðbjóð okkar Vesturlandabúa með ýmsum sprelllifandi réttum. En það er ekki mikil hætta á þvi að íslenski þorra- maturinn sé étinn lifandi. Þar erum við alveg hinum megin á spýtimni, miðað við Asíubúana. Þorramatur- inn er þvert á móti svo kirfilega dauður, og hefur verið það svo lengi, að öllum öðrum en okkur ís- lendingum býður við. Þorrinn og þjóðfrelsisbarátta Reyndar er svo komið að Danir, frjálslyndasta þjóð norðan Alpa- fjalla, bannar innflutning á þessum kræsingum okkar. Ástæðan fyrir því er auðvitað pólitísk. Danir vita sem er að þorrablótin vora tekin upp að nýju í Kaupmannahöfn og voru þá eitt af leynivopnum okkar í sjálfstæðisbaráttunni. Þeim finnst auðvitað óþarfi að íslendingar þar í borg núi þeim þessu um nasir með átveislu og tilheyrandi drykkjuskap einu sinni á ári hverju. En þetta danska innflutnings- bann spillir ekki fyrir. Þvert á móti er það gráupplagt. Þegar hnigur húm að þorra getur íslendingafélag- ið í Kaupmannahöfn hafið undir- búning blótsins með sínu vana- bundna nöldri í dönskum ráðuneyt- um. Málið þróast svo yfir í um- kvörtun til íslenskra ráðamanna og breytist næst í árvisst fjölmiðlamál og milliríkjadeilu. íslendingar í Kaupmannahöfn geta þá stoltir gengið til blótsins eftir að hafa enn einu sinni staðið í kærkominni sjálfstæðisbaráttu við Dani.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.