Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2003, Blaðsíða 61

Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2003, Blaðsíða 61
LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR 2003 Helgarblað DV 65 m Egill Ólafsson Egill Ólafsson, söngvari og leikari, Grettisgötu 8, Reykjavík, verður fimmtugur á morgun, 9. febrúar. Starfsferill Egill fæddist í Reykjavík. Hann stundaði nám við MH og við Tónlistarskólann i Reykjavík árin 1970-76. Auk þess hefur Egill tekið þátt í fjölda námskeiða bæði í söng og leiklist erlendis og hér heima, m.a. hjá Per Raben, Oren Brown, Jukka Linkola o.fl. Egill lék og söng með hljómsveitinni Stuðmönnum 1975-76 og aftur frá 1982-2003 með hléum, með Spilverki þjóðanna 1975-77 og Þursaflokknum 1978-82, Tamlasveitinni 1993-97 og Triói Björns Thoroddsen 1996-2000. Hann hefur leikið um það bil fimmtíu hlutverk í íslenskum kvikmyndum, sjónvarpsmyndum og sviðsverkum. Hann hefur verið á sviðinu bæði í Þjóðleikhúsinu og Borgarleikhúsinu, hjá íslensku Óperunni og P- leikhúsinu, síöast var hann í burðarhlutverki á sviði í Kysstu mig Kata hjá Borgarleikhúsinu. Samtals hefur Egill sungið og leikið inn á nær eitt hundrað útgefnar hljómplötur og diska, auk þess hef- ur hann samið leikhústónlist við nær tuttugu leiksýn- ingar, þar af tónlist í söngleikina Gretti, Evu Lunu og síðast Come Dance With Me, sem sýnt var á Off off Broadway New York 1996. Egill situr í stjórn Samtaka um byggingu tónlistarhúss, hefur setið í stjórn FTT og verið varamaður í Menningarmálanefnd Reykjavíkur- borgar. Egill hlaut Listamannalaun 1979, viðurkenn- ingu úr Menningarsjóði Þjóðleikhússins 1997, íslensk tónlistarverðlaun 1999 og auk þess ótal viðurkenning- ar Stjörnmessu Dagblaðsins á sínum tima. Fjölskylda Kona Egils er Tinna Gunnlaugsdóttir, f. 18.6. 1954, leikkona og forseti Bandalags íslenskra listamanna. Hún er dóttir dr. Gunnlaugs Þórðarsonar hrl. og Her- dísar Þorvaldsdóttur leikkonu. Börn Egils og Tinnu eru Ólafur, leikari, f. 12.10. 1977; Gunnlaugur, listdansari við Konunglegu Óper- una í Stokkhólmi, f. 26.3. 1979; Ellen Erla, f. 18.10. 1988. Systkini Egils eru Ragnheiður Ólafsdóttir, f. 26.6. 1957, verslunarstjóri í Reykjavík, og Hinrik Ólafsson, leikari og leiðsögumaður í Reykjavík, f. 11.4. 1963. Foreldrar Egils eru Ólafur Ásmundsson Egilsson, f. 20.6. 1924, fv. sjómaður og múrari í Reykjavík, og fv. kona hans, Margrét Erla Guðmundsdóttir, f. 7.7. 1932, fv. kaupkona. Ætt Ólafur er sonur Egils, skipstjóra í Reykjavík, bróður Ólínu, ömmu Gunnlaugs Guðmundssonar stjörnuspek- ings. Egill var sonur Ólafs, útvegsb. í Njarðvík, Jafets- sonar, og Elínar Þorsteinsdóttur frá Ytri-Njarðvík. Móðir Ólafs var Ragnheiður Stefánsdóttir, b. í Varma- dal, Filippussonar, b. þar Stefánssonar. Móðir Stefáns var Kristín Einarsdóttir frá Miðkrika, systir Ingibjarg- ar, ömmu Jóns Inga listmálara, föður Guðmundar Hauks tónlistarmanns. Móðir Ragnheiðar var Sigríð- ur, systir Guðna, afa Eggerts G. Þorsteinssonar, for- stjóra Tryggingastofnunarinnar. Sigríður var dóttir Jóns, b. Grímsstöðum, Pálssonar, og Ragnheiðar, syst- ur Runólfs, langafa Sigurðar A. Magnússonar. Ragn- heiður var dóttir Jóns b. í Háarima, Guðnasonar af Víkingslækjarætt. Margrét Erla er dóttir Guðmundar, vélstjóra á Eyr- arbakka, Jóhannssonar, smiðs á Eyrarbakka, bróður Eggerts, afa Eggerts G. Þorsteinssonar, ráðherra, Þor- steins fiskimálastjóra og Guðrúnar, ömmu Þorsteins Eggertssonar textahöfundar. Jóhann var sonur Gísla, b. í Steinkoti, Gíslasonar, og Gróu Eggertsdóttur, frá Haga i Holtum. Móðir Gróu var Þorbjörg Brandsdótt- ir, af Víkingslækjarætt. Móðir Guðmundar vélstjóra var Ingibjörg Rögnvaldsdóttir frá Ásum í Hreppum. Móðir Ingibjargar var Guðbjörg, systir Guðrúnar, ömmu Vilhjálms frá Skáholti. Guðbjörg var dóttir Guðmundar, b. á Löngumýri i Hreppum, bróður Ög- mundar, föður Salvarar, langömmu Tómasar Guð- mundssonar en Salvör var einnig amma Bjarna, langafa Errós, og amma Salvarar, langömmu Björns Th. Björnssonar. Móðir Margrétar Erlu var Bríet Ólafsdóttir, í Króki á Álftanesi, Þorvarðarsonar, b. á Hliði, Jónssonar, b. á Sogni, Ásbjörnssonar. Móðir Þorvarðar var Sólveig Þórðardóttir, systir Einars á Þurá, langafa Vals Gíslasonar leikara, fóður Vals bankastjóra. Móðir Ólafs var Birgit, systir Halldórs, afa Halldórs Laxness. Birgit var dóttir Jóns, b. á Núp- um, bróður Sólveigar og Einars. Móðir Bríetar var Guðbjörg Guðmundsdóttir, frá Norðurkoti í Vogum. Móðir Guðbjargar var Birget, systir Guðmundar, afa Ingveldar, ömmu Ragnars Kjartanssonar, fóður Kjart- ans Ragnarssonar leikara og leikritahöfundar. Birget var dóttir Ólafs, b. í Hvammi í Ölfusi, Ásbjörnssonar, og Inghildar Þórðardóttur, systur Sólveigar, Einars og Jóns. Móðir Inghildar var Ingveldur, systir Gísla, langafa Vilborgar, ömmu Vigdísar forseta, Ingveldur var dótt- ir Guðna, ættföður Reykjakotsættarinnar, Jónssonar. Höfuðstafir nr. 64______ Undanfarið hafa væntanlegar framkvæmdir fyrir austan verið i brennidepli. Riíjaðist upp af því tilefni kveðskapur eftir Rögnvald Rögnvaldsson á Akureyri. Þegar til stóð að reisa álver í Eyjafirði setti hann sam- an þetta kvæði sem hægt er að syngja við þekkt lag: Álver við EyjaJjörð upphefst mín þakkargjöró kerskálinn kœr. Þú ert mitt helgast hús hér vil ég þrœla fús þó eitrist menn og mús mold, loft og sær. Sortnar brátt sólin mín svona því nauðsyn brýn álverió er. Fjallkonan fölnuö er far vel, ég gleymi þér Alusviss eitt og sér allt reynist mér. Þau tíðindi hafa orðið í Húnavatnssýslum, að þar fundu löggæslumenn við húsleit einhver lifandis býsn af plöntunni hennar Maríu Jónu sem framtakssamur náungi hafði ræktað við ákjósanlegustu skilyrði með ljósabúnaði og öllu tilheyrandi. Húsið þar sem þessi út- vegur var stundaður hafði ræktandinn keypt nýlega af dóms- og kirkjumálaráðuneytinu. Þar var áður prests- setur. Af þessu tilefni orti Einar Kolbeinsson og sendi inn á leirlistann undir fyrirsögninni; Atvinnutækifæri á landsbyggðinni: Öórum viö skjótum nú reffyrir rass, þó reglunum varla sœmi, og ræktum af kostgœfni hágæöahass í Húnavatnsprófastsdæmi. Hallmundur Kristinsson bætti við: Oft er betra aö einhver passi aö allir hlutir gangi smurt. Er í Bólstað allt í hassi eftir aö ég flutti burt. Enn er kempan ekki breytt og aldrei veröur hún lúin, þó framundan sé 41 og 59 búin. Umsjón Ragnar Ingi Aðalsteinsson ria@ismcnnt.is Að lokum er hér lítil afmælisvísa. í janúar sl„ þegar ég hélt upp á það að eiga eftir ár í sextugt, fékk ég SMS-boð gegnum farsímann. Sagt er að þessi SMS-samskiptamáti hvetji fólk til að stytta mál sitt og nota skammstafanir og ekki er laust við að greina megi slík einkenni á þessu skeyti. Höfundur er Aðalsteinn Ingi Ragnarsson: Nú veröur gaman hér noröur í rassi. Viö neitum ei fregninni hálfsögöu: Allt er aö fyllast af húnvetnsku hassi - heimageröu, að sjálfsögöu. Og Skarphéðinn Ásbjörnsson, sem áður bjó í þessu sama húsi, bætti við:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.