Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2003, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2003, Síða 6
6 LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR 2003 I>V Fréttir Fjölmiðlamenn telja almennt að aflétta eigi auglýsingabanni á áfengi: Vínauglýsingar eru án landamæra Fjölmiðlaflóran á Islandi fylgist spennt með umræðunni um áfengisauglýsingar. Ljóst er að ef þær yrðu leyfðar á íslandi eins og í Svíþjóð yrði til matarhola sem um munaði. Auglýsinga- menn giska á að áfengisauglýsingar mundu veita hundruðum milljóna króna inn í landið og innlendir bjór- framleiðendur mundu eílaust óhikað hampa vöru sinni enn frekar í auglýs- ingum. Takmarkanir hugsanlegar „Ég get ekki úttalað mig um hvað gert yrði í birtingu áfengisauglýsinga ef þær yrðu leyfðar hér á landi. Útvarps- ráð hefur sitt að segja um það hvað við gerum hér í auglýsingabirtingum. Við höfum lagt áherslu á að útvarpslög, sem taka til alira útvarps- og sjónvarps- stöðva, nái til Ríkisútvarpsins varðandi auglýsingar og við ættum þar að sitja við sama borð og aðrir. Útvarpsráð hef- ur viljað viljað setja meiri takmarkanir á okkur héma en gerist annars staðar. Sem dæmi má nefna sýningartíma á auglýsingum bíóa þar sem brot úr of- beldismyndum birtast. Menn hafa Styrmlr Gunnarsson. ákveðnar meiningar um að þetta megi ekki sýna á tíma þegar búast má við að böm horfi á. Ef einhveijar almennar reglur yrðu settar um hvenær kvölds mætti birta áfengisauglýsingar þá höf- um við útvarpsráð sem getur sett enn frekari takmarkanir gagnvart okkur. Það er óvíst hvaða sjónarmið væm uppi ef svona mál kæmi til meðferðar," sagði Markús Öm Antonsson útvarpsstjóri. Morgunblaðið með leiðara Styrmir Gunnarsson, ritstjóri Morg- unblaðsins, sagði að leiðari Morgun- blaðsins á laugardag útskýrði afstöðu blaðsins til áfengisauglýsinga. Morgim- blaðsmenn hafa um áraraðir haft þá stefnu að tjá sig aðeins í sínu blaði en ekki í öðrum fjölmiðlum. Auglýsingar án landamæra Steinar J. Lúðvíksson, aðalritstjóri útgáfufyrirtækisins Fróða, sagði í gær að ,g hann mundi fagna —* því ef leyft yrði að p J birta áfengisauglýs- ingar. „Mín skoðun »*5áÉttÍ 1 er sú aö bannið haldi I ekki í nútímanum, Slgmundur Em- einfaldlega vegna ir Rúnarsson. þess að auglýsingar era hafnar yfir öll landamæri. Ef þú bannar auglýsingar á áfengi hér, þá þarftu að slökkva á ensku knattspymunni, heimsmeistara- mótum, formúluakstri og öðra. Alls staðar eru áfengisauglýsingar á sveimi. Það hlýtur aö verða að gæta jafnræðis, það er meginregla í islenskum lögum," sagði Steinar. Hann segist andvigur birtingu tóbaksauglýsinga, um þaö sé þegjandi samkomulag að vinna gegn óhohustu reykinga. „Ég held að íslendingar séu famir að líta bæði á léttvín og bjór öðrum aug- um en áður. Þetta er orðin neysluvara rétt eins og kóka kóla og appelsín," sagði Steinar. Hann segir alla útgefend- ur vera að fara krókaleiðir fram hjá banni við áfengisauglýsingum með léttölsauglýsingum, kynningum á víni og öðra slíku. ÁTVR geri þetta líka í kynningum sínum á Netinu. „Þetta er vissulega mikið peninga- Markús Om Antonsson. Stelnar J. Lúðvíksson. Víniö er alls staðar Vi'nauglýsingar berast inn á hvert heimili á landinu - / erlendum blööum og í erlendu sjónvarpi. mál fyrir útgefendur en fyrst og fremst lít ég á þetta sem samkeppnismál, að ís- lenskir fjölmiðlar sitji við sama borö og erlendir fjölmiðlar af ýmsu tagi sem ís- lendingar eiga greiðan aðgang að,“ sagði Steinar. Að banna það sem má Sigmundur Emir Rúnarsson, rit- stjóri DV, sagði í gær aö hann hefði æv- inlega verið talsmaður jafnræðis í þessum efnum. Löglegar vörur hljóti að mega auglýsa. „I reynd má spyrja í þessu samhengi; hvernig er hægt að banna það sem má? Ég vil benda á að ríkisvaldið heimilar áfengisauglýsing- ar hér á landi, þó aðeins ef blöð og tímarit era prentuð erlendis og sent er út frá sjónvarpsviðburðum erlendis. Þetta er ekki einasta argasti tvískinn- ungur heldur og brot á jafnræðisreglu. Þar fyrir utan er ekkert sem segir að tengsl séu á milli vínauglýsinga og auk- innar neyslu. Miklu fremur er talið að vínauglýsingar stýri neyslu á milli teg- unda en auki hana. Ég er sömu skoðun- ar hvað tóbak snertir. Vilji ríkisvaldið ekki að fólk reyki á að banna reyking- ar með lögum en ekki með leyndinni," sagði Sigmundur Emir. -JBP Blekkingavefur teygir anga sína til íslands Þessa dagana berast inn um póst- lúgur landans til- boð um að taka þátt í ástralska lottóinu. Ekki er vitað hverj- ir standa á bak við þessar sendingar eins og hún Andrea Ævarsdóttir fékk að kynnast þegar hún reyndi að afla sér upplýsinga um sendandann sem kallar sig Milli- onaires Dollars Club. í bréfi sem Gylliboö Andrea Ævarsdóttir meö tilboösbréfiö frá Millonaires Dollars Club. Andrea brosandi. Strax við fyrstu skoðun á bréfinu læddist einhver granur að henni um að ekki væri allt með felldu varðandi þetta „kostatilboð". Eftir smávegis rann- sóknarvinnu komst hún að því að nánast engar upplýsingar er að finna um þetta fyr- irtæki. „Þessir aö- Framkvæmdir í landi Þjórsártúns við Þjórsá Enn er ágreiningur um verömat á landinu sem fer undir vega- og brúargerö á þjóövegi 1 og leysa mun af hólmi gömlu Þjórsárbrúna. Sérkennileg staða vegna eignarnáms: Vegagerðin sættir sig ekki við niðurstöðu matsnefndar hún fékk er henni tilkynnt að hún hafi komist í gegnum fyrstu þijú ferlin af fjórum til að hljóta 1. vinning í ástralska lottóinu. Það eina sem hún þurfi að gera til að klára fjórða stig sé að fylla út með- fylgjandi eyðublað, greiða ákveðna lág- marksupphæð og þá gefist henni kost- ur á því að vinna um 2.500.000 dali. „Ég vissi ekki til að ég hefði tekið þátt í fyrstu þremur ferlunum," segir ilar gefa ekki upp neitt heimilisfang, ekkert símanúmer. Það eina sem stendur bak við þetta er pósthólf í Ástralíu og faxnúmer á Nýja- Sjálandi" segir Andrea og bætir við að á Netinu sé að finna ótal greinar þar sem fólk er varað við þessari svikastarfsemi og einnig hafa margir rikissaksóknarar í Bandaríkjunum gefið út viðvörun þar sem fólk er varað við að eiga samskipti við Millionaires Dollars Club. -æd Mjög sérkennileg staða er komin upp varöandi spildu úr jörðinni Þjórsártúni í Ásahreppi, eign Krist- bjargar Hrólfsdóttur, sem Vega- gerðin tók eignarnámi í haust. Eft- ir að hafa fengið niðurstöðu um matsverð frá Matsnefnd eignar- námsbóta hyggst Vegagerðin ekki sætta sig við niðurstöðu nefndar- innar. Að sögn lögmanns landeig- anda er talið að hér sér um eins- dæmi að ræöa að gerandi eöa svo- kallaður „eignarnemi" sætti sig ekki við niðurstöðu matsnefndar. Vegagerðin hyggst nú afla sér mats dómkvaddra matsmanna. Karl Ax- elsson, lögmaður landeiganda, telur að þar sem Vegageröin hafi þegar tekiö umráð eignarnumins verð- mætis, geti hún ekki skotið málinu til dómstóla. í haust beitti Vegagerðin eignar- námi þar sem samningar um land undir nýjan veg og brú yfir Þjórsá á þjóðvegi 1 á Suðurlandi náðust ekki, en Vegagerðin bauð 2.850.000 fyrir landið. Kom þá upp ágreining- ur um fjárhæð bóta og vísaði Vega- geröin þeim ágreiningi til Mats- nefndar eignarnámsbóta. í lok september fékk Vegagerðin úrskurð sem fól í sér heimild sam- kvæmt eignarnámslögum til að fá umráð landsins og í raun eignar- haldið þótt bæturnar væru þá ófrá- gengnar. Úrskurður Matsnefndar eignar- námsbóta um verðmat landspild- unnar kom síðan þann 7. janúar. Samkvæmt honum ber Vegagerð- inni að greiða landeigandanum 11.111.000 krónur auk 1.380.457 króna i kostnað vegna málarekst- ursins. Þar að auki á Vegageröin að greiða 720.000 krónur í ríkissjóð vegna kostnaðar við störf nefndar- innar. Samtals eru þetta 12.491.457 krónur. Vegagerðin býður á móti 2.295.000 krónur í bætur fyrir hið eignarnumda land auk 1.380.457 krónur í málskostnað og hyggst afla álits dómkvaddra matsmanna. Þá verður leitað úrlausnar dómstóla ef nauösyn krefur. -HKr. Borgarbyggðar 2003: Brýnt að leysa vanda Varma- landsskóla Til framkvæmda og fjárfestinga eru áætlaðar um 110 milljónir króna á árinu 2003. Þar vega þyngst áform um að leysa húsnæðisvanda grunn- skólans á Varmalandi, en mikil fjölgun nemenda við skólann kallar á stærra húsnæði. Fjölgun nemenda á Varmalandi er tilkomin vegna þeirra miklu uppbyggingar sem ver- ið hefur í tengslum við Viðskiptahá- skólann á Bifröst. Þá hefur sveitar- félagið keypt eignh- og lóöir af Kaupfélagi Borgfirðinga í gamla bæjarhlutanum í Borgamesi en þar er fyrirhugað að skipuleggja íbúðar- hverfi. Samkvæmt nýsamþykktri fjár- hagsáætlun Borgarbyggðar fyrir áriö 2003 er gert ráð fyrir að skatt- tekjur ársins 2003 nemi 662 milljón- um króna sem er um 8% hækkun á milli ára. Útsvarstekjur era áætlað- ar 427 milljónir króna, fasteigna- skattar 81 milljón króna, framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga 145 millj- ónir króna og lóðaleiga 9 miljónir. Aðrar tekjur er áætlaðar um 240 milljónir króna. Heildarkostnaður við rekstur mála- flokka nemur tæpum 780 milljónum króna og þar af er kostnaður við rekstur leikskóla og grunnskóla tæpar 450 miljónir. Veltufé frá rekstri er rúmar 76 milljónir. Rekstraráætlunin einkennist annars vegar af hækkun launakostnaðar en hins vegar af því að áætlunin gerir ráð fyrir að fylgt verði ýtrustu aðhaldssemi i rekstri sveitarfélagsins. Samkvæmt fjárhagsáætluninni era lántökur á árinu 2003 áætlaöar um 170 milljónir króna en að afborganir eldri lána nemi um 97 milljónum króna og skuldbreyting skammtimaskulda rúm- um 40 milljónum. -GG bttpJ/simnet. is/bomedecorl928/ Skoðið heimasíðuna okkar og kíkið á tilboðin Allt á að seljast SíSasti dagur útsölunnar er laugardagur! *u70% afsláttur A horni Laugavcgar og Klapparstigs

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.