Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2003, Síða 8
8
Útlönd
LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR 2003
DV
Tony Blair.
Tony Blair boðar
hertar aðgerðir í
innflytjendamálum
Tony Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, sagði í gær að hann teldi að
hægt væri að takmarka innflytjenda-
streymið til Bretlands um allt að
helming fyrir haustið. „Ég hefði vilj-
að sjá það lækka um 30 til 40% á
næstu mánuðum," sagði Blair, en
aukin óánægja er meðal Breta með
gífurlegan straum innflytjenda til
landsins á ári hverju.
Árið í fyrra var metár en þá sóttu
meira en 100 þúsund manns um land-
vistarleyfi á Bretlandi eftir að fjöld-
inn haföi farið í rúmlega 92 þúsund
árið áður. „Hæfilegur fjöldi væri
nærri 45 þúsundum," sagði Blair,
sem reynir að slá á óánægju landa
sinna og auka dvínandi vinsældir.
Állinn Alfreð
áfram í baðinu
Yfirvöld í borg-
inni Bochum í
Þýskalandi hafa
úrskurðað að áll-
inn Alfreð geti
búið áfram í
baðkarinu hjá
Richter-fjölskyld-
unni eins og
hann hefúr gert
síöustu 33 árin en dýraverndarsam-
tök í bænum höfðu farið frcun á að
honum yrði sleppt í náttúrlegt um-
hverfi sitt.
Það var heimilisfaðirinn, Paul
Richter, sem upphaflega fangaði Al-
freð árið 1970 til þess að hafa hann í
matinn en börnin hans tóku strax
ástfóstri við álinn þar sem hann
beið dauða sins í baðkari fjölskyld-
unnar og varð það til þess að hann
fékk að halda lífi.
„Ég efast um að Alfreð myndi lifa
það af í náttúrunni og eftir öll þessi
ár hjá okkur er hann orðinn eins og
einn af fjölskyldunni," sagði Paul
eftir að úrskurður yfirvalda lá fyrir.
„Þau settu aðeins þau skilyrði að
Alfreö fengi nóg að éta og gæti
skriðið í skjól ef hann vildi. Viö
settum því rörbút ofan i baðkarið
hjá honum en hann er mjög tortygg-
inn og vill ekkert enn með rörið
hafa. Hélt fyrst að það væri eitthvað
til þess að smakka á,“ sagði Paul.
Yfirmenn vopnaeftirlitsins til íraks í dag:
Stuttar fréttir
Hans Blix varar við
of mikilli bjartsýni
Hans Blix, yfirmaður vopnaeftirlits
SÞ í írak, sagði í gær að svo virtist
sem írakar ætluðu nú loksins að láta
umdan kröfum Öryggisráðsins um
nánara samstarf við vopnaeftirlitið,
eftir að Bush Bandaríkjaforseti lýsti
því yfir í gær að tíminn til afvopnun-
ar væri að renna út.
Þetta kom fram á blaðamannafundi
sem Blix boðaði til í Vínarborg í gær
eftir að írösk stjómvöld höfðu leyft
einum vísindamanna sinna að ræða
við vopnaeftirlitsmenn í einrúmi í
fyrsta skipti síðan eftirlitið hófst.
Hann varaði þó við of mikilli bjart-
sýni og sagðist vilja sjá miklu meiri
samstarfsvilja þegar hann fundaði
með íröskum embættismönnum núna
um helgina, en þá munu þeir Blix og
Mohammed ElBaradei, samstarfsmað-
ur hans, gera síðustu tilraun til þess
að koma vitinu fyrir íraska ráðamenn
áður en þeir gefa endurskoðaða
Blix og EIBaradei
Væntanlegir til Bagdad í dag.
skýrslu sina um stöðuna í vopnaeftir-
litinu í Öryggisráðinu þann 14. febrú-
ar nk.
Fundurinn með vísindamanninum
fór fram á hóteli vopnaeftirlitsins í
Bagdad og stóð i rúmar þrjár klukku-
stundir.
Að sögn Hossams Mohammeds Am-
ins, sem er helsti tengiliður íraka við
vopnaeftirlitið, gaf umræddur vís-
indamaður sig sjálfviljugur fram en
að sögn talsmanna vopnaeftirlitisins
taka þeir þeirri fullyrðingu meö fyrir-
vara og segjast sjálfir vilja ákveða
hverja þeir tali við, samkvæmt álykt-
un Öryggisráðsins.
Blix hefur tekið undir hótanir Bush
Bandaríkjaforseta og sagt að tíminn
sé að renna út og að einhver árangur
verði að nást í þriggja daga heimsókn
hans til Bagdad.
Ónefndur háttsettur embættismað-
ur í Bagdad sagði í gær að hann ætti
frekar von á því að Saddam myndi
fallast á kröfur Öryggisráðsins um að
nota U-2 eftirlitsvélar við vopnaleitina
og einnig að ræöa við fleiri vísinda-
menn án skilyrða.
r 1» m
■ - |
Étu/bá í 1
REUTERSMYND
Leidd tll slátrunar
Múslímar um allan heim halda í næstu viku árlega Eid al-Adha-trúarhátíö en þá er til siös aö slátra kind aö hætti spá-
mannsins Ibrahams, í þeim tilgangi aö leita fyrirgefningar almættisins. Undirbúningur hátíöarinnar er nú í fullum gangi
og hér á myndinni sjáum viö eldri Palestínumann leiöa kind sína til Ali Bakka-moskunnar í bænum Hebron á Vestur-
bakkanum þar sem henni veröur slátraö aö gömlum siö.
Varað við árásum
Bandarík stjórn-
völd lýstu í gær yf-
ir auknu hættu-
ástandi vegna ótta
um yfirvofandi
hryðjuverk gegn
hagsmunum
Bandaríkjanna
bæði heima og er-
lendis og var hættustig fært upp úr
gulu í appelsínugult sem er næst-
hæsta stig. John Ashcroft dómsmála-
ráðherra sagði í ávarpi að hættu-
ástandinu væri lýst þar sem „auknar
líkur“ væru á að al-Qaeda-samtökin
létu til skarar skríða á næstunni en
ekki væri vitað hvar eða hvenær.
Hann sagöi að íbúðabyggingar, hótel
og aðrar lítt varðar byggingar væru í
sérstakri hættu.
Gervitungl í nýju hlutverki
Ef áætlanir Evrópsku geimvísinda-
stofnunarinnar, ESA, ganga eftir,
gætu gömul og úr sér gengin gervi-
tungl fengið ný hlutverk sem endur-
sendar fyrir stafrænt fjarskiptakerfi í
bifreiðum sem sendi frá sér útvarps-
bylgjur sem innihaldi upplýsingar
um umferð og veður auk tónlistar og
annars skemmtiefhis. Þetta gæti
hugsanlega framlengt notagildi
þeirra um nokkur ár og flýtt ráðgerð-
um um að koma upp stafrænu upp-
lýsingakerfi sem næði um alla Evr-
ópu. Tæknimenn ESA hafa þegar haf-
ið tilraunasendingar og vinna nú að
því að hanna ódýrt bilaloftnet sem
nær sendingum gervitunglanna.
Olíuverð hækkar aftur
Olíuverð hækk-
aði aftur í gær eftir
að Bush Banda-
ríkjaforseti haföi
lýst þvi yfir að tím-
inn til að afvopnast
væri að renna út
hjá Saddam
Hussein í írak. Ótt-
ast er að stríð í
írak, áttunda
stærsta olíuútflutningsríki heims,
kunni að hafa alvarlegar afleiðingar
á olíuútflutning frá Mið-Austurlönd-
um og því fari birgðir minnkandi
sem leiði til enn frekari verðhækk-
ana. Birgðir eru einnig minni þar
sem óvenjumikil notkun hefur verið
á olíu til húshitunar í miklum vetr-
arkuldanum í Evrópu.
Sprengdu sig í loft upp
Þrír liðsmenn skæruliðahreyfmgar
Tamíla tígranna á Sri Lanka
sprengdu sig í loft upp á báti sínum í
gær eftir að friðargæsluliðar SÞ
höfðu komið að þeim við vopnasmygl
úti fyrir norðurströnd Jafftia.
Samninganefndir stjómvalda og
skæruliða voru á sama tima aö hefja
nýja samningaloti í Berlín en í sam-
eiginlegri yfirlýsingu þeirra segir aö
atvikið verði ekki látið hafa áhrif á
viðræðumar, sem stýrt er af Norð-
mönnum, þar sem ekki hafi verið um
skipulagðar aðgerðir að ræða.
Þetta er mitt líf
Námskeið og
stuðningshópar
fyrir konur.
Meðal viðfangsefna er:
Meðvirkni og mörk
Andlegt obeldi
Hefnd og fyrirgefning
Erfitt fólk
Næsta námskeið verður haldið fimmtudaginn
13. febrúar kl. 17.30-19.30 í Síðumúla 33,
annarri hæð til hægri.
Verð kr. 3000. Námskeiðsgögn innifalin.
Nánari upplýsingar í símum 552-7999 og 694-7997.
Ásta Kristrún Ólafsdóttir BA, CCDP
Ráðgjafi.
Þróunarlöndin hafa aldrei eytt
meira fjármagni til vopnakaupa
í nýrri skýrslu sem unnin var fyrir
bandaríska utanríkisráðuneytið kem-
ur fram að þróunarríkin hafi aldrei
eytt eins miklu til vopnakaupa og und-
anfarin ár, sérstaklega lönd í Suður-
Asíu.
Skýrslan nær yfir vopnaviðskipti í
heiminum á ámnum 1999 og 2000 og
kemur þar fram að þróunaríkin hafi á
umræddu tímabili eytt metupphæð til
vopnakaupa, eða um 245 milljörðum
dollara, sem er 3% aukning frá árinu
1998 en 18% aukning frá árinu 1989.
Þar skera Indland og Pakistan sig
úr, með 5% aukningu hvort ríki frá ár-
inu 1989, sem rakið er til gífurlegrar
hemaðaruppbyggingar vegna aukinn-
ar spennu milli rikjanna í deilunni
um Kasmír.
Á heimsvísu hefur hlutur Suður-
Asíu meira en tvöfaldast á sama tima-
bili, úr 0,85% í 2%, sem er það mesta í
heiminum og er það að mestu rakið til
Vopnunum heilsaö
Breskir hermenn raöa hér upp aö-
keyptum vopnum en Bretar eru meö-
al þeirra þjóöa í heiminum sem
mest kaupa af vopnum.
umræddrar hemaöaruppbyggingar
Indveija og Pakistana.
í skýrslunni kemur einnig fram að
heildarútgjöld til vamar- og hermála í
heiminum séu óheyrilega há og í engu
samræmi við þá slökum og efnahags-
samdrátt sem víða hefur orðið frá lok-
um kalda striðsins og algjörs hmns
vopnamarkaðarins í Austur-Evrópu.
Á árinu 1999 voru Sádi-Arabar,
Tyrkir, Japanar, Kínverjar og Bretar
stærstu vopnainnflytjendur í heimin-
um, með um 37% af heildardæminu,
en slógu þó ekki Bandaríkjamönnum
við, en þeir tróna á toppnum ef mið er
tekið af þeirra eigin framleiðslu.
1 heildina var 852 milljörðum doil-
ara eytt til vopnakaupa i heiminum á
árinu 1999, sem er 2% aukning milli
ára, en miðað við einstök svæði voru
þjóðir Vestur-Evrópu þar stórtækastar
með um 29% heildarinnar.