Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2003, Qupperneq 35
FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 2003
35
dv ______________________Sport
3avid Beckham fagnar her mark
sínu gegn Tyrkjum t gærRvöld
;em gulltryggöi sigur enska Bðs
is. 3-0. Beckham fekk sitt aooði
jula spjald r keppninni tii þéssa
iefknum og verður i banrti þegar
Engiendingar mæta Slovökum i
Sautján leikir fóru fram í undankeppni EM 2004 í gærkvöld:
England á toppinn
- táningurinn Rooney byrjaði gegn Tyrkjum og stóð sig frábærlega í 2-0 sigri
Englendingar komust á toppinn í
7. riðli með því að leggja Tyrki að
velli, 2-0, á Leikvangi ljósanna í
Sunderland í gærkvöld og þögguðu
þar með niður í röddum þeim sem
hvað mest gagnrýndu enska liðið
fyrir dapra frammistöðu gegn
Liechtenstein á laugardaginn.
Mörk á síðustu flmmtán mínút-
unum frá Darius Vassell og David
Beckham úr vítaspyrnu tryggðu
sanngjarnan sigur en það sem vakti
þó mesta athygli var að Sven Göran
Eriksson ákvað að láta hinn sautján
ára gamla Wayne Rooney byrja inn
á. Rooney þakkaði traustið, stóð sig
frábærlega og Eriksson sparaði ekki
hrósyrðin á framherjann unga að
leik loknum.
„Hann spilaði frábærlega og það
dylst engum að hér er á ferðinni
leikmaður með sérstaka hæfileika.
Við vissum það svo sem fyrir leik-
inn en þessi leikur tók af allan vafa
um það hvort hann sé tilbúinn að
spila með enska landsliðinu," sagði
Eriksson um Rooney og bætti við:
„Þetta voru frábær úrslit og mjög
sanngjöm aö mínu mati. Við
unnum góðan sigur á frábæru liði,
erum á toppi riðilsins og eigum aUt
undir okkur sjálfum - betra gæti
það ekki verið.“
Skipbrot hjá Dönum
Danir biðu skipbrot á Parken í
gærkvöld þegar þeir töpuðu fyrir
Bosníumönnum, 2-0. Úrslit leiksins
réðust strax á fyrsta hálftíma leiks-
ins þegar Bosníumenn skoruðu
bæði mörk sín. Þessi úrslit kættu
Norðmenn mikið enda tylltu þeir
sér í toppsæti 2. riðils með sigri á
Lúxemborg, 2-0.
Morten Olsen, þjálfari Dana, var
niðurbrotinn maður eftir leikinn en
tók alla ábyrgð á tapinu.
„Ég tek þetta tap á minar herðar.
Ég stillti liðinu ekki rétt upp og við
vorum ekki vel undirbúnir fyrir
leikinn, hvorki líkamlega né and-
lega. Það skal þó ekki tekið af Bosn-
íumönnum að þeir spiluðu mjög vel
og áttu sigurinn fylliiega skilið,“
sagði Olsen eftir leikinn.
Nils Johan Semb, landsliðsþjálf-
ari Noregs, hélt þó jarðsambandi
eftir sigurinn gegn Lúxemborg og
sagði að þessi úrslit hefðu enga þýð-
ingu fyrir riðilinn.
„Við eigum enn eftir að spila við
Dani í Kaupmannahöfn og ef við
töpum þar þá missum við toppsæt-
ið. Það er því eins gott fyrir okkur
að halda okkur á jörðinni og ein-
beita okkur að næsta leik. Við tök-
um einn leik fyrir í einu,“ sagði
Semb varkár í leikslok.
Santini óánægður
Jacques Santini, landsliðsþjálfari
Frakka, var lítið hrifinn af spila-
Litháar halda áfram að koma á
óvart í fimmta riðli undankeppni
EM. Þeir lögðu Skota, 1-0, í Kaunas
I gærkvöld, fjórum dögum eftir að
hafa náð jafntefli gegn Þjóðverjum í
Þýskalandi.
Það var framherjinn Tomas Raza-
nauskas sem skoraði sigurmarkið í
leiknum, úr vítaspymu á 73. mín-
útu, og hleypti þar með riðlinum
upp í loft.
Skotar vom mun betri aðilinn í
leiknum en Litháar börðust eins og
ljón og fengu nokkuð umdeilda víta-
spyrnu sem tryggði þeim sigurinn.
Litháar eru nú komnir með sjö stig
í riðlinum, jafnmörg og Skotar og
Þjóðverjar, og hafa skilið íslendinga
og Færeyinga eftir í kjallara riðils-
ins. Þessi úrslit gera það þó að
verkum að ísland á veika von um að
ná öðru sætinu í riðlinum.
mennsku sinna manna sem fóru
með sigur af hólmi, 2-1, i viðureign
sinni gegn Israel sem fór fram í Pal-
ermo á Sikiley.
Frakkar lentu undir 1-0 strax eft-
ir tvær mínútur en þeim tókst að
komast yfir áður en fyrri hálfleikur
var úti og voru nær því að auka
muninn heldur en ísraelar að jafna
það sem eftir lifði leiks.
„Við náðum okkur aldrei á strik.
Skipulagið á liðinu var í rugli hvort
heldur sem var sóknar- eða vamar-
lega og ég get bara ekki verið bjart-
sýnn eftir þessa frammistöðu. Þetta
verður mjög erfitt ár,“ sagði Santini
svartsýnn eftir leikinn en hann þarf
þó kannski ekki sökkva sér i þung-
lyndi því staða liðsins er mjög góð
svo ekki sé meira sagt. Frakkar em
efstir í 1. riðli með fullt hús stiga
eftir fimm leiki, níu stigum á undan
næsta liði, nokkuð öruggir með sæti
á EM í Portúgal. -ósk
Það var ekki sama sigurbrosið á
Berti Vogts eftir leikinn í gær og á
laugardaginn eftir sigurinn á ís-
lendingum enda misstu Skotar af
gullnu tækifæri til að hreiðra um
sig á toppi riðilsins.
„Litháar voru mjög, mjög heppnir
i kvöld. Við spiluðum vel og allir
mínir leikmenn börðust eins og
ljón. Ég get því ekki ásakað þá en ég
verð að viðurkenna að ég er mjög
svekktur. Við eigum samt enn
möguleika á að ná öðru sætinu. Við
þurfum að vinna Færeyjar og Lit-
háen á heimavelli til þess að það
gerist en ég hefði gjarnan viijað fá
eitt stig út úr þessum leik. Við sköp-
uðum okkur ekki mörg færi í leikn-
um og því hefði jafntefli sennilega
verið sanngjöm úrslit,“ sagði Berti
Vogts, landsliðsþjálfari Skota, eftir
leikinn. -ósk
Undankeppni
111HDI2004
1. riðill
Slóvenia-Kýpur.............4-1
1- 0 Siljak (4.), 1-1 Konstantinou (11.),
2- 1 Siljak (14.), 3-1 Zahovic, víti (39.),
4-1 Ceh (43.).
Ísrael-Frakkland...........1-2
1-0 Afek (2.), 1-1 Trezeguet (23.), 1-2
Zidane (45.).
Staðan:
Frakkland 5 5 0 0 19-2 15
Slóvenía 3 2 0 1 7-6 6
ísrael 31114-3 4
Kýpur 4 112 5-8 4
Malta 5 0 0 5 1-17 0
2. riðill
Lúxemborg-Noregur .........0-2
0-1 Rushfeldt (58.), 0-2 Solskjær (74.).
Danmörk-Bosnla.............0-2
0-1 Barbarez (22.), 0-2 Baljic (28.).
Staóan:
Noregur 4 3 1 0 7-2 10
Danmörk 4 2 119-6 7
Rúmenía 4 2 0 2 12-6 6
Bosnía 4 2 0 2 4-5 6
Lúxemborg 4 0 0 4 0-13 0
3. riðill
Tékkland-Austurríki........4-0
1-0 Nedved (19.), 2-0 KoUer (32.), 3-0
Jankulovski, víti (57.), 4-0 KoUer (62.).
Moldóva-Holland............1-2
1-0 Boret (16.), 1-1 Van Nistelrooy
(37.), 1-2 van Bommel (84.).
Staöan:
Tékkland 4 3 1 0 9-1 10
HoUand 4 3 1 0 9-2 10
Austurríki 4 2 0 2 4-7 6
Hv.-Rússl. 4 1 0 3 2-8 3
Moldóva 4 0 0 4 2-8 0
4. riðill
Pólland-San Marínó..........5-0
1-0 Szymkowiak (3.), 2-0 Kosowski
(27.), 3-0 Kuzba (55.), 4-0 Karwan
(80.), 5-0 Kuzba (90.).
Ungverjaland-Sviþjóð .......1-2
0-1 AUback (34.), 1-1 Lisztes (65.), 1-2
AUback (67.).
Staðan:
PóUand 42117-1 7
Lettland 3 2 1 0 2-0 7
Ungverjal. 4 12 15-3 5
Svíþjóð 3 1 2 0 3-2 5
San Marínó 4 0 0 4 0-11 0
5. riðill
Litháen-Skotland............1-0
1-0 Razanauskas, vlti (73.).
Staóan:
Þýskaland 3 2 1 0 5-2 7
SkoUand 4 2 1 1 6-4 7
Litháen 5 2 1 2 4-6 7
ísland 3 1 0 2 4-4 3
Færeyjar 3 0 1 2 3-6 1
6. riðill
Norður-írland-Grikkland .... 0-2
0-1 Charisteas (3.), 0-2 Charisteas (56.).
Spánn-Armenia...............3-0
1-0 Tristan (61.), 2-0 Helguera (67.),
3-0 Joaquin (90.)
Staóan:
Spánn 4 3 1 0 10-2 10
Úkraína 4 1 3 0 6-4 6
Grikkland 4 2 0 2 4-4 6
Armenía 4 1 1 2 3-7 4
N. írland 4 0 1 3 0-6 1
7. riðill
England-Tyrkland.............2-0
1-0 VasseU (76.), 2-0 Beckham, viti (90.).
Slóvakía-Liechtenstein ......4-0
1-0 Reiter (18.), 2-0 Nemeth (51.), 3-0
Nemeth (64.), 4-0 Janocko (90.).
Staóan:
England 4 3 1 0 8-3 10
Tyrkland 4 3 0 1 10-3 9
Slóvakía 4 2 0 2 7-5 6
Makedónía 4 0 2 2 4-7 2
Liechtenst. 4 0 1 3 1-12 1
8. riðill
EisUand Búlgaria .. . 0-0
Króatía-Andorra . . .
1-0 Rapaic, víti (11.), 2-0 Rapaic (43.).
Staóan:
Búlgaria 4 3 1 0 6-1 10
Króatía 4 2 1 1 6-2 7
Belgía 5 2 1 2 2-6 7
Eistland 3 0 2 1 0-1 2
Andorra 3 0 0 3 1-5 0
10. riðill
Albania-frland . . . 0-0
Georgia-Sviss . 0-0
Staóan: Sviss 4 2 2 0 7-3 8
Rússland 3 2 0 1 9-6 6
Albanía 4 12 1 5-6 5
írland 4 11 2 5-7 4
Georgía 3 1 0 2 2-6 1
Óvænt úrslit í fimmta riðli EM:
Lögðu Skota
- Litháar halda áfram aö koma á óvart