Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2003, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2003, Page 2
Stuttar fréttir urskoðun og á meðan geta ríkis- stofhanir keypt farseðla þar sem besta verðið býðst og eru dæmi um tugþúsunda króna sparnað á hvern farseðil. Textavarpið greindi frá. -Kip Haldið tii haga Með meirihluta í umfjöllun um skoðanakönnun blaðsins á bls. 10 í gær læddist sú villa inn í textann að ríkisstjóm- in héldi ekki meirihluta sínum á Alþingi. Það er hins vegar rangt þar sem stjórnarflokkarnir fá samtals 32 þingmenn af 63 sam- kvæmt niðurstöðum könnunar- innar, hafa því eins manns meiri- hluta. -hlh LAUGARDAGUR 5. APRÍL 2003 Fréttir DV Samfylkingin kynnir stefnuskrá sína á vorþingi: DV MYND EÖL HJón á vorþlngi Ingibjörg Sólrún segir aö vor sé í lofti, bæöi í náttúrunni og pólitíkinni. Og í vor standi samfylkingarfólk andspænis sögulegu tækifæri sem sé miklu stærra en flestir geri sérgrein fyrir. Þaö sé sögulegt hlutverk pess aö landa þeim sigri sem flokkurinn standi frammi fyrir. Samfylkingin ætlar að hækka skattleysismörk og bamabætur; lækka virðisaukaskatt af matvælum og öðrum vörum í lægra skattþrepi um helming, eða niður í 7%; verja þremur milljörðum króna til hækk- unar barnabóta; verja þremur millj- örðum til að koma á afkomutrygg- ingu fyrir lífeyrisþega og lágtekju- fólk; fella niður stimpil- og þinglýs- ingargjöld vegna húsnæðiskaupa; byggja og kaupa 2.400 leiguíbúöir; auka fjárfestingar í mannauði og menntun um þrjá milijarða og taka upp viðræður við hagsmunasamtök um endurskoðun á skatta-, bóta- og almannatryggingakerfmu með það að markmiði að lækka enn frekar skattbyrði. Stigiö á bremsuna Þetta er meöal þess sem fram kom í stefnuræðu Ingibjargar Sól- rúnar Gísladóttur, talsmanns Samfylkingarinnar, við setningu vorþings flokksins í gær og drögum að stefnuáherslum flokks- ins sem lögð hafa verið fram. í ræðu sinni sagði Ingibjörg Sólrún að það hlyti að sæta tíðindum að „stjórnarflokkar stígi á bensíngjöf í útgjaldaloforðum fyrir kosningar en stjórnarand- stöðuflokkur á bremsuna.“ Hún sagði að um 10 þúsund ein- staklingar byggju við fátækt hér á landi og minnti á biðlista eftir heilbrigðisþjónustu og félagslegu húsnæði. Þetta væri ekki það sem fólk vildi: „Fólk hefur hjartað á réttum stað; leiðin að því liggur ekki í gegnum budduna eins og sjálfstæðismenn virðast sannfærð- ir um. Samábyrgð væri grundvöll- ur tillagna Samfylkingarinnar. Áhrif breytinganna Persónuafsláttur verður hækkað- ur um ríflega 4 þúsund krónur á mánuði, eða um 50 þúsund krónur á ári, samkvæmt drögunum. Það kostar ríflega 9 milljarða króna á ári. Fyrri áfangi hækkunarinnar á að koma til framkvæmda um næstu ára- mót en síðari áfangi í tengslum við endurskoðun skattkerfisins. í drögum að stefnuskrá segir að hækkun barnabóta muni skila barnafjölskyldum í landinu að með- altali um 75 þúsund krónum á ári. Boðað er að fjórðungur af endur- greiðslu námslána verði frádráttar- bær frá skatti i sjö ár eftir að námi lýkur og nái breytingin til sextán þúsund einstaklinga og fjölskyldna. Niðurfelling gjalda vegna húsnæðis- kaupa lækki útgjöld lántakenda á meðalíbúð um 200 þúsund krónur. Menntun og jafnrétti Ingibjörg Sólrún sagöi að reynslan sýndi að þegar menntunarstig þjóða hækkaði um 1% gæti það leitt til 3% hagvaxtar en talsverðar brotalamir væru á menntakerfinu. Samfylking- in boðar því að fjárfestingar í mannauði og menntun verði aukin um þrjá milljaröa. Þá sagðist hún staðráðin í að beita sér af sama afli fyrir jafnrétti kynj- anna í störfum og launum hjá ríkinu og hún hefði gert hjá Reykjavíkur- borg. Hún myndi meðal annars kanna tafarlaust kynbundinn launa- mun hjá ríkinu og minnka hann um helming. Undir lok ræðu sinnar sagði Ingi- björg Sólrún að vald Sjálfstæðis- flokksins væri alls staðar undirliggj- andi og löngu væri tímabært að jafn- oki hans yrði til. Kannanir sýndu að Samfylkingin ætti ein flokka góða möguleika á því: „Það er langt síðan betra tækifæri hefur gefist til að marka þáttaskil í alþingiskosning- um.“ -ÓTG Framkvæmdum flýtt Á eitt hund- raðasta fundi bæjarstjórnar Fjarðabyggðar var staðfest samþykkt bæj- arráðs að ljúka framkvæmdum við þegar byggða áfanga í grunnskólunum í Nes- kaupstað og á Eskifirði. Mbl. greindi frá. Styrkir félagasamtök Umhverfisráð- herra hefur af- greitt styrkum- sóknir frá frjáls- um félagasamtök- um á umhverfis- sviði. Veittir voru almennir rekstrarstyrkir að upphæö 4,7 milljónir króna og 2,7 milljónir til verkefna á vegum félagasamtaka. Visir.is greindi frá. Leki í bát Leki kom að netabátnum Áma Óla KE þegar hann var á landleið í gær. Skipverjar óskuðu eftir aö- stoð Slökkviliðs Sandgerðis og var sjó dælt úr vélarrúmi og lest ér báturinn lagðist að bryggju. Mbl greindi frá. Skjálftahrina í Bláfjöllum Hrina smærri jaröskjálfta hófst um fimmleytið í gærmorgun á skíðasvæði höfuðborgarbúa viö Bláfjallaskála. Skjálftamir mæld- Noröurljós: Verið að semja um endurfjármögnun Á fundi hjá Norðurljósum í gær- morgun var kynnt vinna sem nú er í gangi varðandi endurfjármögnun fé- lagsins við breska banka auk hluta- fjáraukningar. Að sögn Ragnars Birg- issonar, aðstoðarforstjóra Norður- ljósa, er vonast til aö þessari endur- fjármögnun verði lokið eigi síðar en í maí. „Við áttum mjög gott ár í fyrra miö- að viö aðstæður. Við sendum árs- reikninga okkai’ til Kauphallar ís- lands um daginn. Þar kemur fram að tekjur okkar jukust um 11% sem er um hálfur milljarður króna. Framlegð eykst líka um 50% eða rúmlega það. Þá er nettóhagnaður upp á 283 millj- ónir króna eftir skatta. Heildarskuld- ir okkar hafa lækkað um 2,1 millj- arð.“ Ragnar segir að endurfjármögnun fyrirtækisins miöist við heildarpakk- ann. Inni í því sé aukning hlutafjár og endurfiármögnun núverandi lána. Ekki liggur þó fyrir á þessari stundu hvaða aðilar það eru sem koma inn með nýtt fé í fyrirtækið. -HKr. DVJilYND E.ÖL Fékk óvæntan glaöning Birgitta Rún Birgisdóttir, 18 ára Keflavíkurmær, fékk óvæntan glaöning frá DV í gær en þá var henni afhent 14 tommu sjónvarp frá Sjónvarpsmiöstööinni ásamt þriggja mánaöa áskrift aö DV. Þaö er Kittý Guömundsdóttir, starfs- maöur í þjónustuveri DV, sem afhendir henni vinninginn. Birgitta var meöal áhorfenda á kappleik Keflavíkur og KR á miövikudagskvöld og var svo heppin aö hringur var dreginn um hana á myndinni. Lesendur DV mega eiga von á slík- um glaöningi enda eru Ijósmyndarar blaösins víöförlir og aldrei aö vita hver veröur næstur. Þaö borgar sig aö fylgjast meö. Á innfelldu myndinni sést Birgitta í hópi stuöningsmanna Keflavíkurliösins. HVA... 3YÐUR ENGINN BETUR? ust um tvö stig á Richter sam- kvæmt sjálfvirkum mælum. Farseðlakaup í uppnámi Tilboð lágfargjaldafélaga hafa sett rammasamning ríkisins um farseðlakaup í uppnám. Samning- urinn um kaup ríkisins er í end- Skattalækkanir og aukin framlög í menntun Evróvisjón: Birgitta talin líkleg Söngvakeppni evrópskra sjón- varpsstöðva verður haldin í Riga í Lettlandi þann 24. maí næst- komandi og spekingar innan tón- listargeirans ytra eru þegar farn- ir að birta spár yfir hvaða lög eru líkleg til árangurs. Norskir vefmiðlar eru meðal þeirra sem hafa þegar tekið að spá í spilin og fær Birgitta Haukdal, kepp- andi okkar íslendinga, ágæta dóma hjá frændum sínum. Lagið sem Birgitta flytur, Open Your Heart, er sagt vera kraftmikið, skemmtilegt og líklegt til árang- urs, auk þess sem fögrum orðum er farið um söngkonuna sjálfa. Norðmennimir binda líka tals- verðar vonir við sitt eigið fram- lag, hjartaknúsarann Jostein Hasselgard. Pilturinn sá hefur notið talsverðra vinsælda heima fyrir siöan lagið sem hann mun flytja í Lettlandi, I’m Not Afraid to Move On, var fyrst sett í spil- un. Framlög Þýskalands, Tyrk- lands og írlands eru einnig nefnd til sögunnar yfir þau lög sem lík- leg eru til sigurs. -áb Snjókrosskeppni aflýst Þriðja umferð íslandsmótsins í DV-Sport snjókrossinu, sem fram átti að fara í Skálafelli í dag, 5. apríl, hefur verið aflýst vegna veðurútlits. Að sögn Marinós Sveinssonar keppnisstjóra er von- ast til að þriðja umferð verði keyrð í Skálafelli laugardaginn 12. apríl samkvæmt dagskrá. All- ar upplýsingar um það verður að finna á www.snocross.is. Einnig fellur vegna þessa niður snjó- krosssýningin sem átti að verða í Skautahöllinni í Laugardal föstu- dagskvöld 4. apríl vegna þessa.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.