Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2003, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2003, Síða 8
8 Útlönd LAUGARDAGUR 5. APRÍL 2003 DV Z STRÍD VID Atburðarásin í gær 00.25 Aö minnsta kosti sextán öflugar sprengingar heyrast í miö- borg Bagdad. Flestar þeirra sprungu í nágrenni forsetahalla Saddams og við stjómsýslubyggingar. 00.45 Skoðanakönnun í Argentínu sýnir að viðhorf fólks til Saddams er mun jákvæðara en til Bush Banda- ríkjaforseta. Um 25% gáfu Saddam atkvæði sitt en um 16% nefndu Bush. 01.40 Bandarískur hermaður skotinn til bana fyrir mistök af eigin mönn- um þar sem hann var að kanna íraskt skriðdrekaflak. 02.35 Bandarísk stjómvöld ákveða að kanna viðhorf íbúa Bagdad til bandamanna með því að senda sér- sveitir inn í borgina til aðstoðar fólkinu. 02.45 Talsmenn bandaríska hersins segja að 320 írakar hafl til þessa fallið í aðgerðunum við hertöku Bag- dad-flugvallar. 03.30 Stjórnandi aðgerða við Bagdad- flugvöll segir að bandarískar her- sveitir hafl náð yflrhöndinni í bar- daganum um flugvöllinn. 04.00 Báðar deildir bandaríska þingsins samþykkja 80 milljarða doll- ara aukafjárveitingu vegna stríðsins í írak. Ákveðið eymamerkt fjármagn tii uppbyggingar í írak renni ekki til franskra, þýskra, rússneskra og sýr- lenskra fyrirtækja. 04.20 Talsmaður leyniþjónustu bandaríska hersins segir að banda- rískar hersveitir hafi náð 80% flug- vallarins í Bagdad á sitt vald. 05.00 Heimildir segja að írakar ráði enn yfir aðalsamgönguleiðinni frá Bagdad-flugvelli til borgarinnar. 06.10 Vestrænir fréttamenn segja að írakar hafi hafið gagnsókn með stórskotaliði við Bagdad-flugvöll. 07.10 Naji Sabri, utanríkisráðherra íraks, segir í viðtali að Saddam Iraksforseti sé á lífi, við góða heilsu og hafi fundað með ráðhemim sínum í fyrradag. 08.17 Breskir hermenn segjast hafa skotið átta íraska hermenn tU bana í útjaðri Basra. 08.25 Fulltrúar hjálparstarfs SÞ koma tU Suður-íraks i fyrsta skipti eftir að stríðið hófst. 09.30 Al-Sahaf, upplýsingamálaráð- herra íraks, les yfirlýsingu í íraska sjónvarpinu sem sögð er frá Saddam forseta. „Við höfum sigurinn í hendi okkar,“ sagði i yfirlýsingunni. 10.30 Blair, forsætisráðherra Bret- lands, sendir írösku þjóðinni skriflega yfirlýsingu þar sem hann heitir henni hjálp við uppbygginguna eftir stríð og að ný stjóm landsins verðiírösk. 10.50 Talsmaður bandaríska hersins segir að um 2500 liðsmenn Lýðveld- isvarðar Saddams hafi í nótt gefist upp fyrir bandarískri hersveit sem sótti inn í Bagdad meðfram Tigris- ánni. 11.34 Tilkynnt að þrír hermenn bandamanna og ófrísk írösk kona hafi faUið í sjálfsmorðsárás í fyrra- dag norð-vestur af Bagdad. 12.54 Háttsettir foringjar í Banda- ríkjaher tilkynna að fundist hafi þús- undir kassa sem innihéldu hvitt duft í glösum og vökva í nágrenni Lati- fiya skammt suöur af Bagdad. 13.00 Dominique de VUlepin, utan- ríkisráðherra Frakklands, krefst þess að SÞ taki þegar við yfirstjóm mála í írak eftir að bandrísk stjórnvöld neit- uðu að gera nánari grein fyrir áætl- unum sínum. 15.15 TUkynnt að mikUI reykur stígi upp frá olíusvæðunum í ná- grenni Kirkuk í norðurhluta íraks. 15.25 Fyrsti farmur hjálpargagna á vegum SÞ kominn tU íraks frá Tyrk- landi í 23 bUa flutningalest. 16.40 Saddam Hussein íraksforeti flytur sjónvarpsávarp þar sem hann hvetur þjóðina tU að beijast gegn innrásarliðinu sem stefni tU Bagdad. Saddam Hussein ávarpaöi þjóö sína í íraska sjónvarpinu í gær: Hvattí íbúa Bagdad tíl þess að sýna fulla hörku Saddam Hussein íraksforseti ávarpaði þjóð sína í íraska sjón- varpinu í fyrsta skipti í langan tíma í gær og hvatti íbúa höfuðborgar- innar Bagdad tU þess að berjast gegn innrásarliði bandamanna sem nú sæti um borgina þeirra. Saddam, sem var klæddur ein- kennisbúningi hersins, virtist viö góða heUsu og ekki að sjá að meiösli háðu honum, en getgátur voru uppi um það að hann hefði meiðst eða jafnvel fallið í fyrstu loft- árásum bandamanna á Bagdad í upphafi ógnarsóknarinnar fyrir hálfum mánuði. „Takið á móti þeim af fullri hörku og sýnið þeim hvers við er- um megnug. Sigurinn verður ykkar,“ sagði Saddam og hvatti þjóðina tU dáða. Ekki þykir fulljóst hvar eða hvenær ávarpið var tekið upp en Er Saddam á lífi? Þessi mynd af Saddam Hussein var birt í íraska sjónvarpinu í gær og sögö tekin af honum nýlega viö liöskönnun í Bagdad. þar sem Saddam vísaði tU aðgerða bandamanna við Bagdad og aðrar borgir þykir ljóst að það hefur ver- ið tekiö upp eftir að herir banda- manna komust í gegnum vamarlín- ur íraka fyrir helgina. Einn talsmanna leyniþjónustu bandaríska hersins sagði í gær að þar sem Saddam hefði vitnað í at- vikið þar sem íraskur bóndi er sagður hafa skotið niður banda- ríska Apache-þyrlu með riffli sínum þann 24. mars sl. hafi hann örugg- lega sloppið lifandi þegar stór- árásinni var beint gegn honum og sonum hans þann 20. mars. Ávarpið var sýnt rétt eftir að tals- menn Bandaríkjahers höfðu tU- kynnt að hersveitir þeirra hefðu náð fuUum yfírráðum yfir Saddam- flugveUi í útjaðri Bagdad eftir að hafa brotist í gegnum varnir íraka í fyrrinótt. REUTÍR&MYND Breskir hermenn á eftirlitssiglingu Breskir hermenn eru hér á eftirlitssiglingu á Shatt ai-Arab siglingaleiöinni suöur af Basra en í gær var tveggja grunsamlegra íraskra báta leitaö á siglingaleiöinni eftir aö grunur vaknaöi um aö áhafnirnar væru aö koma fyrir djúpsprengjum. Þrír hermenn bandamanna og ófrísk írösk kona létust í sjálfsmorðsárás Þær fréttir bárust frá írak í gær að þrír hermenn bandamanna og ófrísk írösk kona hefðu látið lífið þegar sjálfsmorðsliði sprengdi sig í loft upp I bU sínum við eftirlitsstöð banda- manna norðvestur af höfuöborginni Bagdad í fyrrakvöld. Að sögn talsmanns yfirstjórnar bandaríska hersins, sem aðsetur hef- ur í Katar, gerðist þetta um sexleytið í fyrraköld í um tuttugu kílómetra fjarlægð frá Haditha-stíflunni og um 120 kUómetra frá sýrlensku landa- mærunum. „Ófríska konan var farþegi í bUn- um og þegar hann nam staðar við eft- irlitsstööina steig hún út úr bílnum og fór að öskra af hræðslu. Á sama tíma varð öflug sprenging inni í bUnum og sprakk hann í loft upp með þeim af- leiðingum að þrír hermenn, sem nálg- uðust bUinn, létu lífið auk þess sem tveir aðrir slösuðust Ula,“ sagði tals- maðurinn. Á verði Hermenn bandamanna óttast mjög sjálfsmorösárásir íraka. Konan mun einnig hafa látið lífið samstundis og sömuleiðis sjálfsmorðs- liðinn sem ók bílnum en ekki er vitað hvernig eða hvort konan tengdist honum. Þetta gerðist á svæði þar sem fá- menn hersveit bandamanna fer með gæslu en sérsveitir Bandaríkjamanna eru við störf í næsta nágrenni. „Við lítum á þetta sem örþrifaráð deyjandi ráðstjómar í írak sem veit að lífdagar hennar eru senn taldir. Þetta er gott dæmi um það hvemig þeir fara með fólkið sitt,“ sagði einn foringja her- liðsins á staðnum. Þetta er önnur sjálfsmorðsárásin sem gerð er í írak síðan stríðið hófst en sú fyrri var gerð við bandaríska eftirlitsstöð í nágrenni borgarinnar Najaf með þeim afleiðingum að fjórir bandarískir hermenn létu lífið. Saddam Hussein íraksforseti heiðr- aði minningu þessa sjálfsmorðsliða eftir árásina og færði fjölskyldu hans væna fjárfúlgu. írösk stjómvöld hafa síðan hótað áframhaldandi sjálfsmorösárásum og hefur það valdið mUdum ótta meðal hermanna bandamanna. Blair heitir íröhum aðstoð Breskir hermenn munu á næstu dög- um dreifa tugum þúsunda dreifim- iða meðal íbúa íraks með yfirlýs- ingu frá Tony Bla- ir, forsætisráð- herra Bretlands, þar sem hann heitir írösku þjóð- inni aðstoð við uppbyggingu lands- ins eftir að Saddam hefur verið hrakinn frá völdum. Eldur í bílatlutningaskipi Eldur kom í gær upp í lest lí- beríska bílaflutningaskipsins Ori- ental Highway þar sem það var á siglingu á Ermarsundi með um 500 þýska bUa innanborðs. Skipið var á leið tU Portúgals frá Þýskalandi og var statt úti fyrir ströndum Essex í Bretlandi þegar eldurinn kom upp. Breskt björgunarlið aðstoðaði við slökkvistarfið og gekk það fljótt fyrir og skemmdust aðeins tólf bU- ar í eldinum, að sögn talsmanns slökkvUiðsins í Essex. Mugabe sakaður um ofsóknir ■ Stjórn Fram- farastofhunar Suður-Afriku- ríkja, SADC, ákvað i gær að senda starfshóp tU Simbabwe tfi þess aö ramisaka ásakanir stjómar- andstöðunnar um pólitiskt ofbeldi og pyntingar. Hóp- urinn mun væntanlegur tU lands- ins í næstu viku og ræðir þar við forystumenn stjómmálaflokka, samtaka bænda, mannréttindahópa og kirkjudeUda. SADC, sem fer með slíkt eftirlit meðal Suður-Afríkurikja, hefur verið ásakað fyrir linkind og um að beita Mugabe, forseta Simbabwe, ekki nægUegum þrýst- ingi vegna meints pólitísks ofbeld- is. Fangelsun stjómarandstöðuleið- togans, Gibsons Sibanda og ásakan- ir um að honum hafi verið mis- þyrmt varð tU þess að stjóm SADC ákvað að rannsaka málið. Fundu grunsamlegt hvítt duft Bandaríska herstjómin tUkynnti í gær að fundist hefðu þúsundir kassa ftUlir af glerhylkjum með hvítu óþekktu dufti og vökva í grunsamlegu húsnæði í nágrenni Bagdad. Einnig hafi fundist skjöl á arab- ísku sem segi frá því hvemig heyja skuli efnavopnahemað og leiðbein- ingar um notun atropines sem not- að er sem mótefni Mun meiri smithætta aTalsmaður Al- þjóða heUbrigðis- málastofnunarinn- gær að eftir fyrstu rannsóknir sér- fræðinga stofnun- arinnar í Guang- dong-héraði í Kína virtist sem smithætta SARS- flensunnar væri mun meiri en ætl- að var í fyrstu. í fimm tilfeUum af 24, sem sér- fræðingamir rannsökuðu fyrsta daginn, hefði komið í ljós að hinir sjúku hefðu ekki smitast vegna ná- lægðar við fólk sem bar smitið. Bush og Blair hittast aftur Talsmaður Hvíta hússins tilkynnti í gær að þeir Tony Blair, forsætis- ráðherra Bret- lands og George W. Bush Banda- ríkjaforseti myndu hittast á fundi á Norður-írlandi á mánudaginn tU þess að ræða íraks-málið og dvelja þar fram á þriðjudag. Þeir hittust nýlega á sumarsetri Bandaríkjafor- seta á Camp David.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.