Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2003, Blaðsíða 22
22
Helgarblacf 30 "V LAUGARDAGUR 5. APRÍL 2003
... kíkt í snyrtibudduna
Glossý varalitur
J„Mamma hefur lengi verið aðdándi Dior-
' varanna og ég hef svona smám saman verið að
kaupa mér meira og meira af þeim. Þessi brúni
'aralitur heitir Addict og er númer 454. Það besta við
ín er að maður þarf engan varlitablýant með honum
mn rennur ekkert út fyrir þó hann sé glossý. Maður
i einu sinni spegil til þess að setja hann á sig.“
Dior sldn nr. 200
„Ég hef aldrei notað meik fyrr en ég kynntist þessu
meiki frá Dior og það var viss frelsun. Það er mjög
þunnt og náttúrulegt, freknurnar á manni sjást alveg
í gegn. Ég fékk prufu af þvi úti í búð, féll alveg fyr-
ir því og hef notað það í svona mánuð.“
Maskari fyrir löng augnhár
„Ég hef alltaf verið með mjög löng
augnhár og þurft að nota maskara
einfaldlega til þess að koma i veg fyr-
ir að augnhárin flækist saman. Ég hef
notað maskara frá Lanóme í 15 ár og fundist hann æði. Nú er ég
hins vegar nýbúin að skipta yfir í Maxi Meyes frá Dior og er mjög
ánægð með hann. Ég hef alltaf verið hrifin af augnskuggunum frá Dior
en þeir tolla vel á manni, hrynja ekki og dreifast vel, þannig mér fannst
óhætt að prófa líka maskarann frá þeim.“
Glitrandi bleikur ldnnalitur
„Ég ætlaði eiginlega að kaupa mér sólarpúður
þegar mér var bent á þennan kinnalit og þá skellti
ég mér á hann í staðinn. Hann heitir Lose powder
blush nr. 835 frá Dior. Hann gefur frísklegt og fallegt
útlit, áiferðm er eins og púður og hann er smá glitr-
andi.
Orb stardust frá Loréal
„Vinkona mín gaf mér þennan lit fyrir nokkrum árum
þegar hún kom frá Ameríku. Ég kláraði hann upp, en
það var í fyrsta skipti sem ég klára einhverja snyrti-
vöru. Ég keypti mér litinn aftur þegar ég fór til
Kanada en hann er ófánlegur hér á landi. Þessi litur er
blanda af gráum, brúnum og silfurgylltum og maður er
alltaf flottur með hann. Ekki spillir heldur hversu fljót-
legt það er að setja hann á sig.“
Iman Bowie er 48 ára fyrirsæta sem prýðir auglýsingalierferð H&M um þessar mundir. Venjulega hefur tísku-
fvrirtækið verið með mun yngri konur sem fvrirsætur í lierferðum sínum.
Sönqkonan Guðbjörq Maqnúsdóttir seq-
ist alltaf mála siq ístíl við fatnaðinn sem
hún klæðist oq er þvísnqrtibudda hennar
mjöq litrík, bæði hvað varðar varaliti oq
auqnskuqqa. Guðbjörq sqnqur þessa daq-
ana í Eurovision-sqninqunni á Broadwaq
þarsem farið er qfir þekktustu vinninqs-
löqin fEurovisionkeppninni auk þess sem
nokkur íslensk löq fqlqja. Mikill annatími
er annars fram undan hjá Guðbjörqu því
að ófá brúðhjónin hafa falast eftir sönq
hennar fbrúðkaup sfn ísumar.
Konur á besta aldri eru að verða vinsælli módel en verið hefur. Tískufqr-
irtækin virðast vera að átta siq á þvíað það eru eldri konursem eiqa
hvað mesta peninqa til þess að eqða í föt oq qlinqur. Reqna þau þvíað
höfða til þessa hóps með fqrirsætum sem eru á þeirra eiqin aldri f stað
þess að dressa upp kornunqar stelpur sem varla eru orðnar kqnþroska.
Fullvaxta fvrirsætur
Ekki er langt siðan tískubransinn hljóp á eftir ung-
lingsstúlkum í leit að hrukkulausu útliti. Þessar fyrir-
sætur hafa margar varla verið orðnar kynþroska þeg-
ar þær hafa verið málaöar og dressaðar upp fyrir
„catwalkið". Þessi þróun virðist nú vera að breytast
því i ár má sjá fleiri tiskuherferðir þar sem eldri fyr-
irsætur leika aðalhlutverkið. Það virðist því með öðr-
um orðum vera orðið leyfilegt að verða miðaldra og
eldast.
Gömul módel grafin upp
Norska Dagbladet fjallaði nýlega um þessa þróun og
þar er sagt að tískufyrirtækin vilji reyna að höfða
meira til eldri kvenna með eldri fyrirsætum - því það
eru eldri konur sem eiga meiri peninga en þær yngri
til þess að eyða í fót og útlit. Það má segja að þessi þró-
un hafi byrjað í fyrra þegar tískuhúsin í Mílanó og
París grófu upp gömul módel frá sjöunda og áttunda
áratugnum og notuðu í sýningar sínar. Tískuvörufyr-
irtækið Hennes&Maurits hefur einnig gefið tóninn í
þessari þróun en það notaði 59 ára gamla konu,
Lauren Hutton, sem fyrirsætu í auglýsingaherferð
sína og vorstúlkan hjá þeim í ár er engin önnur en
Iman Bowie sem er að verða 48 ára. Margir muna eft-
ir henni frá áttunda áratugnum en þá var hún á há-
tindi frægðar sinnar. Nú hefur H&M togað hana fram
í dagsljósið á ný og prýðir hún auglýsingaspjöld keðj-
unnar þetta vorið.
Fulltrúar síns aldurshöps?
Gaultier er eitt af þeim tískuhúsum sem hafa reynd-
ar notað eldri fyrirsætur í mörg ár. Dolce & Gabbana
hefur einnig verið með eldri fyrirsætur og dró einmitt
nýlega konu að nafni Cindy Joseph upp á svið, en hún
hefur starfað sem fórðunarfræðingur í 20 ár. Reyndar
má segja að flestar þessar eldri fyrirsætur séu ekki
akkúrat raunverulegir fulltrúar síns aldurshóps að út-
liti, eins og sést bara með Iman sem lítur ekki beint út
fyrir að vera 48 ára. Signy Fardal, ritstjóri Elle í Nor-
egi, segir í viðtali við Dagbladet að venjulega liti fyr-
irsætur yfirhöfuð ekki út fyrir að vera á þeim aldri
sem þær eru á. Hún setur spurningarmerki við það
hversu lengi þetta muni vara en bendir jafnframt á að
konur á fertugsaldri séu nú mun unglegri en fertugar
konur fyrir 20 árum. -snæ
Fleiri tískufyrirtæki hafa horfið frá því að nota
óþroskaðar stelpur í auglýsingum sínum og nota í
staðinn fullorðnar konur sem fvrirsætur.