Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2003, Síða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2003, Síða 25
LAUGARDAGUR 5. APRÍL 2003 Helga rblaö I>V 25 ■ m DV-myndir Sigurður Jökull Úlfar segir kjúklingaréttinn hér á síðunni frábæran að því leyti að hann sé góður jafnt heitur sem kaldur. Kjúklingarúllan er nánast sú sama og hann verður með í matreiðslukeppni á Akureyri um helgina, nema þar er not- að kálfakjöt. í fyllingunni í kjúklingarúllu Úlfars eru m.a. sólþurrkaðir tómatar, parmesan-ostur, ólífur, furuhnetur, kapers, ætiþistlar og hvítlaukur. Allt sett í matvinnsluvél og mauk- að lítillega. Kjúklingur tekur mjög vel á móti bragði frá hvers kyns kryddi sem aftur býður upp á óendanlegar aðferðir við matreiðsluna. Sætar kartöflur passa mjög vel með kjúklingarúllunni hans Úlfars en hann leggur leggur hér síðustu hönd á sæta kartöflumús. chAteait de RIOS* tirvi mKmtxo4t* 2000 i'hAtkai’ «>»■: moít" ! ííiví iNfOi&ottriíNt \999 Gæðavín á góðu verði frá Gháteau de Rions - er val Guðlaugar Baldursdóttur hjá Vínvali Það má segja að vínin hér til hliðar séu íslensk í aðra röndina því þau eru gerð af Jóni Ármanns- syni víngerðarmanni í Bordeaux með dyggri að- stoð eiginkonu hans, Guðlaugar Baldursdóttur, sem hér kynnir þessu ágætu vin. Cháteau de Rions-víngerðin er í hjarta hins virta vínhéraðs Bordeaux í suðvesturhluta Frakk- lands. Vínin frá Cháteau de Rions eru fjölbreytt og ólík að gerð, bera vott um vönduð vinnubrögð Jóns sem byggir á gömlum og góðum hefðum í bland við nútimatækni. Vínin hafa gæðastimpil- inn Appellation díOrigine Controlée, skammstaf- að AOC. Til að hljóta þá náð veröa vínin að gang- ast undir strangt eftirlit og prófanir fagmanna. Cháteau de Rions 1999 Spéciale Réserve er topp- rauðvín Jóns. í vínið eru sérvaldar Cabernet Sauvignon og Merlot þrúgur sem fást af öldnum vínviði sem gefur af sér gæðaþrúgur. Við víngerð- ina var nostrað og ekkert til sparað til að gera vínið sem bestu úr garði. Vínið lá og tók út þroska sinn á eikartunnum af vönduöustu gerð áður en það var sett á flöskur. Fallegur dimmrauður hjúpur er yfir víninu og sætkenndur eikarilmur. Vart veröur einkenna rauðra berja, kanils og neguls. Eikar- og þrúgukeimur er í góðu jafnvægi. Vínið fyllir vel í munni en bragðið er margslungið og blæbrigðaríkt og eftirbragðið einnig. Þetta er vín sem sver sig sannarlega í ætt eðalvína frá Bordeaux. Það fellur vel með kjúklingaréttinum hér að ofan en er einnig frá- bært með páskalambinu. Þá hentar það vel með bæði nautakjöti eða önd. Þetta prýðisgóða rauðvín fæst í ÁTVR og kostar flaskan 1.580 krónur. Handbragð Jóns er einnig á hvítvín- inu að þessu sinni, Cháteau de Rions 2000, Spéciale Réserve. Þrúgur þessa vandaða hvítvíns, Sauvignon Blanc og Sémillon, eru valdar af kostgæfni úr ákveðnum vlngörð- um Cháteau de Rions. Vínið er sleg- ið gullnum litblæ, er mjög ilmríkt og lyktar sterkt af framandi aldinum í bland við ristaða vanillu. Eikarein- kenni koma berlega í ljós, enda vínið láta gerjast og taka út þroska á nýjum eikartunnum af bestu gerð. Kröftugt og veigamikið bragðið hefur mikla og góða fyllingu. Eftirbragð varir lengi. Fyrir þá sem kjósa fremur hvítvín með ljósu kjöti er þetta vín tilvalið með kjúkling- um eða svínakjöti. Þá er það einstak- lega ljúft með reyktum laxi og flestu fiskmeti. Cháteau de Rions 2000, Spéciale Réserve hvítvín fæst í ÁTVR og kostar flaskan 1.450 krónur. Umsjón Haukur Lárus Hauksson V

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.