Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2003, Page 32
32
Helgcirblað 33"V LAUGARDAGUR 5. APRÍL 2003
Enski boltinn fer á fulla ferð að nýju um helgina eft-
ir hléð sem gert var vegna landsleikja í undankeppni
EM. Manchester United hefur ekki sagt sitt síðasta orð
í titilslagnum og er liðið ekki nema tveimur stigum á
eftir toppliði Arsenal. Þá er ekki hægt að útiloka
Newcastle sem hefur verið á miklu skriði að undan-
tbmu og er aðeins fimm stigum á eftir Arsenal. Af þess-
um þremur liðum er það Newcastle sem á auðveldasta
leikjaplanið eftir, ef svo má segja. Eftir leikinn gegn
Manchester United, sem fram fer um næstu helgi, eru
mótherjar Newcastle í síðustu umferðunum eingöngu
lið í neðri hluta deildarinnar. Arsenal og Manchester
mætast síðan iimbyrðis að tveimur vikum liðnum í leik
sem gæti ráðið úrslitum. Það er því ljóst að allt getur
gerst á lokasprettinum.
Sannkallaður stórleikur
Stórleikur helgarinnar í enska boltanum er án nokk-
urs vafa viðureign Manchester United og Liverpool sem
fram fer á Old Trafford í Manchester um hádegisbilið í
dag. Þeir síðamefndu hafa haft gott tak á heimamönn-
um síðustu ár og hafa aðeins tapað einu sinni fyrir
Manchester United í síðustu átta skipti sem þessi lið
hafa att kappi. Þessi eini leikur var fyrri deildarleikur
liðanna á Anfield sem fór fram í nóvember sl. Þar var
það framherjinn Diego Forlan sem reyndist hetja dags-
ins eftir að hafa skorað bæði mörkin í 2-1 sigri United.
Sá dagur var ekki jafngóður fyrir markvörð Liverpool,
Jersey Dudek, en bæði þessi mörk mátti skrifa á reikn-
ing Pólverjans.
En þó er skemmst að minnast úrslitaleiks þessara
liða í deildabikarnum nú ekki alls fyrir löngu þar sem
Liverpool, og þá sér í lagi Dudek, sem varði eins og ber-
serkur, náði fram hefndum og sigraði, 2-0. Leikmenn
United eru líklegast ólmir í að hefna ófaranna síðan á
Þúsaldarvellinum en til að Liverpool eigi möguleika á
sæti i meistaradeild Evrópu á næsta ári má liðið ekki
verða fyrir fleiri skakkaföllum.
Leikmenn United hafa gert mikið að því að fagna inörkum undanfarið en í dag mætir liðið einni sterkustu vörn
Bretlandseyja. Manehester hreinlega verður að vinna leikinn til að eiga möguleika á titlinum.
Erum of aftarlega
Gerard Houllier, framkvæmdastjóri
Liverpool, hefur verið gagnrýndur fyrir
að spiia „varfærnislegan" fótbolta þar
sem mesta áherslan er lögð á sterkan
vamarleik og snarpar skyndisóknir.
Svo virðist sem ekki séu allir sammála
Frakkanum því Micheal Owen sagði nú
í vikunni að það væri kominn tími tii
að næsta skref Liverpool yrði fram á
við, í bókstaflegri merkingu.
„Viö verðum að færa okkur framar á
völlinn. Varnarlega erum við mjög góð-
ir en til að komast í hóp þeirra allra
bestu verðum viö að batna sóknarlega.
Tímabilið í ár hefur reynst vera skref
aftur á bak miðað við síðustu ár en við
leikmennimir erum staðráðnir í að
snúa dæminu við. Ég hef mikla trú á að
okkur takist það að lokum,“ sagði
Owen.
Bæði lið sakna lyldlmanna
Óvíst er um þátttöku Micheals
Owens í leiknum í dag þar sem hann
hlaut þungt högg á bakið í leiknum
gegn Tyrkjum í undankeppni EM á
miðvikudaginn. Það verður skarð fyrir
skildi hjá Liverpool verði Owen ekki
orðinn leikfær.
„Ég fékk þungt högg á bakið í fyrri
hálfleik og stífnaði allur upp. Ég hefði
sennilega átt að fara strax út af en vildi
reyna að halda áfram. Ég féll síðan á
bakið í síðari hálfleik og þá var von-
laust fyrir mig að halda áfram,“ sagði
Owen sem fór loks út af á 57. mínútu.
Hann sagði að þetta væri í fyrsta skipti
Mikið inun mæða á hinuni pólska markverði Liverpool, Jerzey Dudek, um hclgina.Bæði sem hann hefði orðið fyrir bakmeiðsl-
mörk Mauehester í fyrri leik liðanna á lcitíðinni má skrifa á kostnað liaiis. úm á ferlinum.
„Það verður bara að koma í ljós
United vill toppsætið
Leikmenn Manchester fengu að kynnast þeirri til-
fmningu sem fylgir því að sitja á toppi deiidarinnar
fyrir tveimur vikum. Þá trónaði liðið á toppnum í sól-
arhring eöa þar um bil vegna þess að Arsenal átti ekki
leik fyrr en sólarhring seinna. Það var í fyrsta skipti í
nákvæmlega ár sem United nær toppsætinu og vilja
leikmenn liðsins að ölium líkindum upplifa það aftur.
Þeir eiga möguleika á því, sökum þess að leikurinn
gegn Liverpool byrjar um hádegsibilið á meðan Arsenal
keppir ekki fyrr en nokkrum klukkustundum síðar.
Heimamenn í United eru ósigraðir í
síðustu 11 deiidarleikjum, hafa unnið
níu leiki og gert tvö jafntefli frá því að
liðið beið lægri hlut fyrir Middles-
brough á annan í jólum. Liverpool virð-
ast einnig smám saman vera að ná sér
á strik að nýju eftir einkar magurt
skeið þar á undan. Það hefur unnið þrjá
deildarleiki í röð og aðeins tapað einum
leik af síðustu níu.
hvort ég verð búinn að jafna mig fyrir leikinn gegn
United. Þegar maður fær högg á fótinn tekur það oftast
nokkra daga að jafna sig en þarna fékk ég sams konar
högg á bakið. Ég hef ekki hugmynd um hvað það tekur
langan tíma að jafna sig,“ sagði Owen á fimmtudaginn.
Líklegastur tO að leysa Owen af, verði hann ekki búinn
að ná sér í tíma, er Tékkinn Milan Baros en hann var
einn besti maðurinn á vellinum þegar Tékkar völtuðu
yfir Austurríki, 4-0, á miðvikudaginn. Stephane
Henchoz er enn frá vegna meiðsla en Frakkinn ungi,
Djimni Traore, mun leysa hann af hólmi og leika við
hlið Sami Hyypia í hjarta vamarinnar.
Fjarvera fyrirliðans Roys Keane og Argentínumanns-
ins Juans Sebastians Veron síðustu vikurnar hefur
ekki haft þau áhrif á spilamennsku Manchester-liðsins
sem spekúlantar bjuggust við. Þvert á móti er liðið að
spila sinn besta bolta þessa stundina það sem af er ár-
inu. Þó er víst að Alex Ferguson, framkvæmdastjóri
United, vill geta notið krafta þessara tveggja gríðarlega
sterku leikmanna á lokasprettinum. Keane er þegar
orðinn leikfær og Veron er einnig á góðum batavegi.
Það er því allt eins hugsanlegt að þeir báðir verði í leik-
mannahópnum um helgina.
Stærsti leikur ársins
Phil Neville, varnarmaður United, segir viðureignir
Manchester og Liverpool vera þær stærstu á hverju
tímabili. „Ef eingöngu er litið á fjandskapinn á miili lið-
anna þá verður þetta aö teljast stærsti leikur ársins. Ef
undan er skilinn leikurinn í nóvember þá höfum við
ekki verið að ná okkur á strik gegn þeim og viö verðum
að spila betur til að ná í þrjú stig á morgun (í dag),“ seg-
ir Neville og bætir við að ef United vinni alla leiki sem
eftir eru á tímabilinu muni þeir vinna titilinn.
„Það hýtur að vera markmið okkar, svo að við höfum
ekki einu sinni efni á að gera jafntefli," segir Neville.
Fyrri leikir skipta engu
Jersey Dudek, markvörður Liverpool, breyttist úr
skúrk í hetju eftir úrslitaleik deildabikarsins í mars.
Þar lék hann eins og sá sem valdið hefði og bætti fyrir
hörmulega frammistöðu sína í deildarleik liðanna á An-
field í nóvember, þar sem skrifa mátti bæði mörk Diego
Forlans á hans reikning.
„Ég held að úrslitaleikurinn í deildabikarnum muni
ekki hafa nein áhrif á ieikinn á laugardaginn. Ég ætla
alla vega ekki að hugsa neitt um hann. Sá dagur var frá-
bær fyrir mig og Liverpool en hann er hluti af fortíð-
inni,“ segir Dudek og ítrekar aö þetta hafi hann einnig
gert fyrir bikarúrslitaleikinn með góðum árangri. „Ég
veit að ég átti vondan dag í fyrri leiknum á Anfield en
fyrir úrslitaleikinn í bikarnum ákvað ég að útiloka
þann leik aigjörlega úr huga mínum. Það sama mun
verða upp á teningnum á morgun (í dag),“ segir Dudek
að lokum.
-vig