Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2003, Qupperneq 42

Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2003, Qupperneq 42
 HelQorblctö 3Z>"V LAUGARDAGUR 5. APRÍL 2003 Einu sinni voru hundar ekki leyfðir á íslandi nema í sveit. Nú eru liundar tískuvara og stöðutákn fvrir után að vera besti vinur mannsins. Hvað er svona merkilegt við ísland? Island er undarleqt land. Það er norðan marka hins bqgqileqa heims en samt er veð- urfar þar svipað oq ílöndum sem liqqja miklu sunnar, efnahaqur betri oq lijðræðið eldra en ímörqum öðrum löndum. íslendinqar ræktu fulltrúalqðræði fqrir meira en 1000 árum þótt þeir hafi síðan qlatað sjálfstæði sínu um aldir. Þeir eru friðsamir að eðlisfari oq hér hefur aldrei verið her. Meðalaldur er með þvíhæsta sem qerist íheiminum oq landið er tiltöluleqa hreintoq ómenqað. Þetta hljómar eins oq sæluriki en er það raunveruleqa svo? Lítum aðeins nánar á málið. Það má segja með sanni um ísland að það sé lítið og stórt í senn. Það er lítið í þeim skilningi að þar býr fátt fólk eða ríflega 280 þúsund manns, 282.849 ef við viljum vera nákvæm, sem er lítið meira en í meðalstórri evrópskri borg sem enginn hefur nokkru sinni heyrt um utan héraðs. Á hinn bóginn má segja með nokkrum rétti að ís- land sé talsvert stórt. Það er nefnilega 103 þúsund ferkílómetrar að stærð sem gerir það talsvert stærra en mörg lönd Evrópu, svo dæmi sé tekið. ís- land er stærra en Holland, stærra en Belgía og Lúx- emborg og tvisvar sinnum stærra en Danmörk sem þó réð íslandi um aldir. Þegar þessi staðreynd leggst við fólksfæðina gefur augaleið að ísland er strjálbýlt. Hver íbúi landsins hefur til umráða rúm- lega einn fjórða úr ferkílómetra eða 0,364 ef viljum vera nákvæm og við hljótum að vilja það. Með jafnri dreifingu íbúanna um landið væri því líklega alltaf að minnsta kosti hálfur kílómetri í næsta mann. En málið er ekki svona einfalt. Stór hluti lands- ins er illa byggileg öræfi sem eru að mestu ósnert af völdum manna. íslendingar hafa nefnilega ákveð- ið að þjappa sér saman á suðvesturhorni landsins en í Reykjavík og 30 kílómetra radíus umhverfis hana búa um 65% íbúanna meðan afgangurinn er dreifður um landið. Þeir eru nefnilega félagsverur, rétt eins og aðrir íbúar hnattarins, og þeim leiöist ef þeir eru einir. Konur og karlar Ef við skoðum hvernig mannfjöldinn á íslandi dreifist koma undarlegir hlutir í ljós. í heildina tek- ið eru örlítið fleiri karlar en konur á íslandi öllu og munar um það bil 350 körlum sem þannig eru dæmdir til einlífis af tölfræöi. Sé hins vegar litið á höfuðborgarsvæðið, Reykjavík og nágrenni, sér- staklega kemur allt annað í ljós. Þar eru konur all- miklu fleiri en karlar, nánar tiltekið 2.500 fleiri. Þetta þýðir á mannamáli að íslenskar konur vilja greinilega vera þar sem fjöriö er. Þær sækja í fjöld- ann og borgarljósin. Þetta þýðir líka á mannamáli að ef maður er piparsveinn á íslandi, en vill ekki vera einn, er ágætt að vera piparsveinn í Reykjavík og vinna á hagstæðum markaði. í flestum öðrum kjördæmum á landinu vill maður ekki vera pipar- sveinn því þetta þýðir að á Vestfjörðum, til dæmis, eru aðeins 8.144 íbúar og þar eru nærri 200 fleiri karlar en konur. Af þessu mætti draga þá ályktun að lífið snerist ekki bara um tölfræði og fisk heldur líka um ást, og sennilega er það ástin sem rekur menn til Reykja- víkur og skapar það sem stjórnmálamenn kalla ójafnvægi í byggð landsins og þykjast hafa ógurleg- ar áhyggjur af. En það ræður enginn við ástina. Reykjavík og Róm Það er vinsæl alþýðusögn að Róm og Reykjavík séu jafnstórar að flatarmáli. Kannski er þetta af- leiðing af aldalangri búsetu í sveit þar sem hver maður vildi eiga sitt óðal, sitt tún og bithaga. Reykjavík er nákvæmlega það sem hverjum og einum sýnist hún vera. Margir íslendingar sjá í henni stórborg en í augum annarra er hún undar- lega skipulagt sveitaþorp. Einkenni þorpsins sjást meðal annars í því að allir þekkja alla og þess vegna finnst mörgum útlendingum Reykjavík illa merkt og erfitt að komast leiðar sinnar í henni en okkur finnst það ekki þurfa því við rötum öll um borgina okkar. Þegar kemur að skiðulagi er Reykjavík samsett lir nokkrum dreifðum úthverfum en þar er eigin- lega engin miðborg eins og sést í gömlum evrópsk- um borgum þar sem þjappa þurfti byggðinni og víg- girða hana. Sérstaka ísland Gárungar segja að á íslandi sé allt bannað sem ekki er sérstaklega leyft. Þetta er mikið að breytast. Fyrir fáum árum var þrennt sem gerði íslenskt borgarsamfélag frábrugð- ið mörgum öðrum. Hundahald var bannað. Það var ekkert sjónvarp á fimmtudögum og bjór var ólög- legur. Þetta er allt horfið í dag og undarleg og sjald- séð hundakyn eftirsótt stöðutákn í ákveðnum þjóð- félagshópum en bjór var ekki leyfður á íslandi fyrr en 1989, í mars, en fyrsti dagur þess mánaðar hefur æ siðan sérstöðu meðal þeirra sem finnst gaman að skemmta sér. ísland er, samanborið við mörg önnur lönd, afar öruggt fyrir ferðamenn og íbúa. Glæpir eru fátíðir, rán sjaldgæf og vasaþjófar nær óþekktir. Betlarar eru óþekkt fyrirbæri og það er reyndar bannað með lögum að betla. Það er líka bannað með lögum aö syngja og spila á götum úti í Reykjavík án þess aö hafa til þess sérstakt leyfi lögregluyfirvalda og það, ásamt veðrinu, er ástæöan fyrir því að götulista- menn sjást eiginlega aldrei á almannafæri nema borgin eigi afmæli eða eitthvað álíka. Böm og gamalmenni Á íslandi lifir fólk að meðaltali lengur í víða ann- ars staðar í heiminum. Þjóðin er samt líkt samsett og aðrar þjóðir á norðlægum slóðum hvaö varðar aldursdreifingu. Barnahópar eftirstríðsáranna eru orðnir ríflega miðaldra og fæðingum hefur fækkað síðan um 1970. Mörgum finnst ógnvekjandi að sjá
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.