Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2003, Qupperneq 54
58
Helgct rttlac? 13 V LAUCARDAGUR 5. APRfL 2003
UTBOÐ
F.h. Fasteignastofu Reykjavíkurborgar er leitað eftir tilboðum í
endurgerð lóðar við leikskólann Arnarborg.
Helstu verkþættir eru jarðvegsskipti, lögn á hellum og malbiki,
gróðursetning, grasþakning og uppsetning á leiktækjum og smíðavinna |
- enn fremur lagning regnvatns- snjóbræðslulagna og lýsing lóðarinnar.
Heildarstærð endurgerðrar lóðar 1.850 m2
Helstu magntölur:
Grúsarfylling 284m3
Hellulagnir 127 m2
Malbik 464 m2
Grasþakning 564 m2
Gróðursetning 450 m2
Jarðvegslagnir 120 m
Snjóbræðsla 370 m
Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar frá og með 8. apríl gegn 5.000 kr.
skilatryggingu.
Opnun tilboða á sama stað 15. apríl 2003, kl. 11.00.
FAS31/3
F.h. Gatnamálastjórans í Reykjavík er óskað eftir tilboðum í steyptar
gangstéttir og ræktun 2003, útboð I.
Verkið felst í gerð steyptra gangstétta ásamt ræktun í ýmsum hverfum í
austurhluta borgarinnar.
Heildarflatarmál gangstétta er u.þ.b. 5.400 m2.
Heildarflatarmál ræktunar er u.þ.b. 11.000 m2.
Lokaskiladagur verksins er 1. september 2003.
Útboðsgögn fást afhent á skrifstofu okkar frá og með 8. apríl nk. gegn
5.000 kr. skilatryggingu.
Opnun tilboða: 15. apríl 2003, kl. 14.00 á sama stað.
GAT32
F.h. Gatnamálastofu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í gerð malbi-
kaðra gangstíga í austanverðri borginni.
Verkið nefnist: Gangstígar 2003 - Útboð I
Helstu magntölur eru:
Flatarmál gangstíga u.þ.b. 8.500 m2.
Ræktun u.þ.b. 9.300 m2.
Lokaskiladagur verksins er 15. sept. 2003.
Útboðsgögn fást afhent á skrifstofu okkar frá og með 8. apríl nk gegn
10.000 kr. skilatryggingu.
Opnun tilboða 16. apríl 2003, kl. 11.00 á sama stað.
GAT 33
F.h. Fasteignastofu Reykjavíkurborgar er leitað eftir tilboðum í utan-
hússklæðningu í Bláhömrum 2 og 4.
Um er að ræða burðarprófíla, festingar og klæðningu utan á eldra akríl-
múrkerfi.
Helstu magntölur eru:
Stálklæðning, slétt, 2ja og 3ja mm heithúðuð og lituð: 540m2
Bárulöguð alusink-klæðning, lituð: 840m2
Útboðsgögn fást afhent á skrifstofu okkar frá og með 8. apríl nk. gegn
10.000 kr. skilatryggingu.
Opnun tilboða á sama stað 16. apríl 2003, kl. 14.00.
FAS34
F.h. Fasteignastofu Reykjavíkurborgar og Reykjavíkurhafnar er
óskað eftir tilboðum í málningarvinnu utanhúss og í porti á
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17.
Helstu verkþættir eru:
Nýmálun steyptra veggja: 2900m2
Endurmálun steyptra veggja: 1600m2
Málun klæðninga: 200 m2
Málun glugga: 5500 m
Málun hurða: 80 stk
Endurmálun þakkanta: 190 m
Málun þakflata: 2400 m2
Verktími: Vinna við málun utanhúss skal hefjast eigi síðar en 2. maí
2003.
Málun utanhúss skal að fullu lokið eigi síðar 10. júní 2003.
Vinna við málun í porti og á þökum skal hefjast eigi fyrr en 1. júní 2003.
Verkinu skal vera að fullu lokið eigi síðar en 27. júní 2003.
Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar gegn 5000 kr. skilatryggingu.
Opnun tilboða 22. apríl 2003, kl. 14.00 á sama stað
FAS35
F.h. Reykjavíkurhafnar er leitað eftir tilboði í púkkun lands í
Kleppsvík, Sundahöfn. Heildarstærð 35.000 m2.
Áætlaður verktími 3 mánuðir.
Útboðsgögn fást afhent á skrifstofu okkar.
Opnun tilboða 16. apríl 2003, kl. 15.00 á sama stað.
RVH 36/3
F.h. Fasteignastofu Reykjavíkurborgar er leitað eftir tilboðum í
endurgerð lóðar við leikskólann Foldakot.
[ verkinu felst endurgerð leikskólalóðar. Helstu verkþættir eru jarðveg-
sskipti, lögn á hellum og malbiki, gróðursetning, grasþakning og
uppsetning á leiktækjum. Enn fremur lagning regnvatns- og
snjóbræðslulagna og lýsing lóðarinnar. Heildarstærð endurgerðrar
lóðar 3.198 m2
Helstu magntölur:
Jarðvegsskipti
Hellulagnir
Malbik
Grasþakning
Gróðurbeð
Jarðvegslagnir
Snjóbræðsla
334m2
160m2
85 m2
823m2
157m2
90m
750m
Útboðsgögn fást afhent á skrifstofu okkar frá og með 8. apríl nk. gegn
5.000 kr. skilatryggingu.
Opnun tilboða: 15. apríl 2003, kl. 15.00 á sama stað.
FAS 37/2
INNKA UPASTOFNUN
REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3-101 Revkjavík - Sfmi 570 5800
Fax 562 2616 - Netfang isr^rhus.rvk.is
Skákþátturinn
Umsjón
Sævar Bjamason
Skák í skólum
Það hefur verið óvenjulega
hljótt á íslenska skáksviðinu að
undanförnu. Eftir stóratburði
fyrr í vetur er eðlilegt að um
hægist um hríð. Þó hafa verið
haldin skólaskákmót í vikunni.
Skólameistaramót Reykjavíkur,
einstaklingskeppni, var haldin og
þeir Dagur Arngrímsson, Haga-
skóla, og Helgi Brynjarsson,
Hlíðaskóla, urðu skólaskákmeist-
arar Reykjavíkur í eldri og yngri
flokki. Keppendur voru svipaðir
að fjölda og undanfarin ár og sú
áhersla sem lögð hefur verið á
börn og unglinga er ekki enn far-
in að skila sér.
Þvi miður er ekki mikil skák-
starfsemi í flestum skólum á höf-
uðborgarsvæðinu, með nokkrum
undantekningum þó. Það vantar
einhvern aðila til að halda utan
um krakkana allan veturinn og
fá þá til að taka þátt í alvörumót-
um en ekki bara tefla sér til gam-
ans í skólanum. Það þarf að
skipuleggja þetta starf frá grunni
ef árangur á að nást. Það er
einnig mikilvægt að fá krakkana
til að mæta í skákfélögin reglu-
lega og iðka skáklistina undir
leiðsögn hæfra skákmanna. Segja
má að öll starfsemi sem ekki er
samfella í skili litlu nema tíma-
bundnum áhuga.
Það vantar aflvaka í skákhreyf-
ingunni til að fylgja þessu eftir.
Það gerist vonandi innan tíðar og
víst er að það eru efni til að
fylgja skákmálunum eftir en þau
á e.t.v. eftir að þróa betur. Nú um
helgina fer fram íslandsmót
framhaldsskólasveita og teflt
verður í húsakynnum TR í Faxa-
feni 12.
Þeir Stefán Kristjánsson og
Ingvar Þ. Jóhannesson, Taflfélag-
inu Hróknum, eru nú báðir á
skákmótum í Gausdal í Noregi.
Stefán teflir í stórmeistaraflokki
og Ingvar í alþjóðameistara-
flokki.
Fróðlegt verður að sjá hvernig
þeim tekst til en teflt er í lokuð-
um 12 manna flokkum. Þeir félag-
ar gerðu báðir jafntefli í 1. um-
ferð - Stefán við Heikki
Westerinen stórmeistara frá
Finnlandi.
Stórmótið í Dos Hermanes á
Spáni er nú á lokaskeiði og lýkur
því um helgina. Þarna eru tefldar
kappskákir með fullum umhugs-
unartíma og það er um helming-
ur keppenda sem möguleika hef-
ur á sigri á mótinu. Heimamað-
urinn Vallejo Pons er efstur eftir
7 umferðir og hefur teflt vel.
Hann á góða möguleika á að vera
með þeim efstu því það eru að-
eins 2 umferðir eftir þegar þetta
er ritað. Þeir Dreev og Shirov
eiga einnig ágæta möguleika -
margreyndir á skáksviðinu og
með gjörólíkan skákstíl.
Rustemov er einn af þessum
„nýju“ Rússum sem ég þekki
ekki nógu vel til enn þá. Rússinn
Epishin er einnig öflugur skák-
maður en hann er þó 1 v. á eftir
efsta manni. Þessir 6 skákmenn
eru í algjörum sérflokki á mót-
inu. Yngsta stórmeistara heims,
Karjakin, gengur ekki sem skyldi
og annaðhvort harðnar hann eða
eflist við þessar raunir.
Staðan eftir sjö umferðir er
þessi: 1. Francisco Vallejo Pons
(2629) 5 v. 2-5. Alexey Dreev
(2690), Alexei Shirov (2723), Alex-
ander Khalifman (2702) og Alex-
ander Rustemov (2604) 4,5 v. 6.
Vladimir Epishin (2626) 4 v. 7.
Miguel Illescas Cordoba (2595) 2,5
v. 8-9. Sergey Karjakin (2547) og
Daniel Campora (2505), 2 v. 10.
Sergei Tiviakov (2635), 1,5 v.
Það er kominn timi til að
kynna sér taflmennsku
Rustemovs!
Hvítt: Miguel Illescas Cordoba (2505)
Svart: Alexander Rustemov (2604)
Frönsk vörn.
Dos Hermanas, Spáni (7), 03.04. 2003.
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Bb4 4.
Dg4 Rf6 5. Dxg7 Hg8 6. Dh6 c5!?
Þetta er allt saman þekkt en
þetta afbrigði var vinsælt síðast
um 1970. En síðasti leikur Rúss-
ans var nýjung - hér var nær
undantekningarlaust leikið 6.
dxe4. Ekkert er nýtt undir sól-
inni! 7. e5? Sennilega var betra
að leika hér 7. exd5 exd5 8. a3 og
hvitur stendur eitthvað betur. En
nú jafnar svartur auðveldlega taf-
lið. 7. - cxd4 8. a3 BfB 9. Dxf6
Dxf6 10. exf6 dxc3 11. Re2 Rd7
Eftir miklar sviptingar er nú
komið upp endatafl þar sem
svartur stendur betur vegna mið-
borðspeða sinna. 12. Rxc3 a6 13.
Be3 Rxf6 14. Ra4 Rd7 15. 0-0-0
b5 16. Rb6 Hb8 17. Rxc8 Hxc8
Þetta er sérlega lærdómsrík staða
þar sem svartur stendur betur
þrátt fyrir að hvítur hafi bisk-
upaparið í opinni stöðu. Hvítur
hefði betur leikið hér 18. g3 og
ekki veikt e4-reitinn svona illi-
lega. 18. f4 Bc5 19. Bxc5 Rxc5
20. g3 Ke7 21. Be2 f5! 22. Hhgl
Re4 23. Hg2
Svarta staðan er greinilega
betri: sterkur riddari á e4, hrókar
svarts standa betur og svo getur
svartur komið kóngi sínuifi í bar-
dagann eins og þeir eiga að gera í
flestum endatöflum á meðan sá
hvíti getur lítið aðhafst. 23. -
Kd6 24. Hdgl Hg6 25. Bh5 Hg7
26. Bf3 a5. Hvítur bauð svörtum
að þráleika en það er engin
ástæða til þess. 27. g4 Hgc7 28.
gxf5 exf5 29. Kbl b4 30. a4 Hc4.
Það er hægt að sækja þó i enda-
tafli sé. Biskup hvíts er mesti
vandræðagripur og ekki hægt að
skipta upp á honum og riddara
svarts vegna þess að þá fær svart-
ur samstæð miðborðspeð aftur en
peð hvíts eru illa tvístruð um
borðið. 31. Bdl Hd4 32. Hg7 Rf2
33. Bh5 Hxf4 34. Hxh7 Re4 35.
Be2 Hf2 36. Bd3 Rc5 37. Bb5
Re4 38. Bd3 Ke5 39. h4 b3! Opn-
ar línur að hvíta kónginum og
svartur ætlar sér í innrás með
hrókana. Eftir 40. cxb3 Kd4 hefur
svartur töglin og hagldirnar. 40.
c3 Hd2 41. Ba6
Þvingar svartan til að leika lag-
legum leik. Hvítur má ekki drepa
hrókinn vegna mats í borðinu. Og
eftir að hrókurinn hörfar tvöfald-
ar svartur hrókana á 2. reitaröð-
inni og mátar fljótlega. 41. - Hg8
0-1
Seinni skákin er mun líflegri -
allavega er hvassara teflt.
Hvítt: Alexei Dreev (2690)
Svart: Sergei Tiviakov (2635)
Drottningarindversk vörn.
Dos Hermanas, Spáni. (7), 03.04. 2003
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 b6 4.
a3 Bb7 5. Rc3 d5 6. cxd5 Rxd5
7. Bd2 Rd7 8. Rxd5 Bxd5 Þetta
hefur verið mikið tískuafbrigði
undanfarinn áratug. Ávallt koma
fram ný afbrigði eins og vera skal
í eins frjórri grein og skákin er.
9. Dc2 c5 10. e4 Bb7 11. d5 exd5
12. exd5 Bd6 13. 0-0-0 0-0 14.
Bb5 h6 15. Bc3 Rf6 Svartur fer
að verða tilbúinn til að taka peð-
ið á d5. En það er auðvelt aö gera
við því. 16. Bc6 Hb8 17. h4 Rg4
18. Kbl Bc8 19. Hdel g6
Báðir aðilar hafa verið að
myndast við að koma liðsafla sín-
um í sókn. En hér lumar hvítur á
fallegum og öflugum leik! Og
skyndilega er hvítur með mylj-
andi sókn. 20. He6! Bxe6 21.
dxe6 f5 Þetta er þvingað en hvít-
ur getur auðveldlega haldið sókn-
inni áfram. 22. h5! gxh5 23.
Hxh5 De7 24. Rh4 Dxe6 25.
Rxf5 Be5?
Svartur hefði átt að reyna 25.
Hxf5 en staðan er töpuð vegna op-
innar kóngsstöðu svarts. En nú
kemur skemmtileg glenna! 26.
Bd5! 1-0 Eftir 26. Dxd5 kemur
fjölskylduskákin 27. Re7+.