Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2003, Blaðsíða 69

Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2003, Blaðsíða 69
LAUGARDAGUR 5. APRÍL 2003 Helgctrblací 73 Sigtryggur Bjarnason landpóstur, Steindal, Tjörnesi, Suður-Þingeyjarsýslu, er 70 ára í dag Sigtryggur Bjarnason landpóstur, St’eindal, Tjörnesi, Suður-Þingeyjarsýslu, er sjötugur í dag. Starfsferill Sigtryggur fæddist á Húsavík en ólst upp í foðurgarði í Syðri-Tungu á Tjörnesi í Suður-Þingeyjarsýslu. Hann byrjaði, sem títt var í þá tíð, að vinna strax og geta var til. Aðeins átta ára var hann farinn að bera upp kol með föður sínum úr Hringversnámum og níu ára fylgdi hann honum til viðhaldsstarfa á símalínunni yfir Tunguheiði. Honum var þá ætlað að bera hluta útbúnaðarins, a.m.k. ferðasímann. Var hann með í þessum 'viðgerðarferðum, sem að sjálfsögðu voru farnar gangandi, fram á fullorðinsár eða þangað til síminn yfir heiðina var aflagður. Sigtryggur gekk í barnaskólann í sveitinni, sem var þá farskóli, en farskóli var á Tjörnesi fram yfir 1970. Veturinn 1950, þegar Sigtryggur var á átjánda árinu, var hann hjá Jóni Þorbergssyni á Laxamýri og fékk þar tilsögn í sauðfjárrækt en Jón var lærður í þeim fræðum í Skotlandi. Sigtryggur hóf síðan sjálfstæðan búskap í Tungugerði á Tjörnesi og stofnaði nýbýlið Steindal. Þar byggði hann allt upp frá grunni og braut mikið land til ræktunar. Hann vann þó alltaf allmikið utan búsins, gerði út eigin bát til hrognkelsaveiða í rúm fjörutíu ár og reri til fiskjar á sumrin eftir því sem tími vannst til. Á haustin vann hann í sláturhúsi KÞ og síðan var vinna við uppskipun og margt fleira. Sigtryggur hefur einnig verið landpóstur í fjörutíu og fimm ár og er enn að færa sveitungum sínum póstinn. Að öðru leyti er hann hættur launavinnu og einnig búskap ef frá er talið að heyja og hafa hesta í hagagöngu. Hann býr enn á jörð sinni í Steindal og þó ekki sé bústofninn finnur hann sér alltaf nóg til að hafa fyrir stafni. Fjölskylda Sigtryggur kvæntist 1955 Guðnýju Stefánsdóttur, f. 9.4. 1934, d. 11.5. 1977, húsfreyju og bónda. Hún var dóttir Stefáns Tómassonar bónda og Fjólu Hólmgeirsdóttur húsfreyju. Börn Sigtryggs og Guðnýjar eru Stefán Bjarni Sigtryggsson, f. 2.5. 1956, pökkunarstjóri, búsettur á Húsavík, kvæntur Lilju Jónsdóttur fiskverkakonu og eru börn þeirra Guðný og Jón Gunnar en dóttir hans er Lilja Björg; Ingibjörg Sigtryggsdóttir, f. 11.5. 1957, sjúkraliði, búsett á ísafirði, gift Atla Rúnari Stefánssyni flugvirkja; Fjóla Sigrún Sigtryggsdóttir, f. 5.4. 1963, aðstoðarmaður í Póstdreifingu, búsett í Kópavogi, sambýlismaður hennar er Guðmundur Aðalsteinsson vélsmiður og er sonur þeirra Johan Jan-Erik Viljakainen. Hún er einmitt fertug í dag; Emil Jón Sigtryggsson, f. 9.12. 1967, tæknifræðingur, búsettur í Norður-Dakota í Bandarikjunum, kvæntur Louise Sigtryggsson hjúkrunarfræðingi. Systkini Sigtryggs eru Þorsteinn Bjarnason, f. 18.3. 1932, búsettur á Húsavík; Elísabet Anna Bjarnadóttir, f. 27.8. 1937, húsfreyja á Mánárbakka á Tjömesi; Jóhanna Björg Bjarnadóttir, f. 27.3.1939, d. 2000; Árný Bjarnadóttir, f. 1.1. 1944, ræstitæknir, búsett á Akureyri; Ingibjörg Jóhanna Bjarnadóttir, f. 1934, d. 1935; Ingvar Bjarnason, d. í bernsku. Foreldrar Sigtryggs: Bjarni Þorsteinsson, f. 16.12. 1895, d. 18.3. 1977, bóndi í Syðri-Tungu á Tjörnesi og eftirlitsmaður Landsíma íslands, og Emilía Sigtryggsdóttir, f. 23.8. 1898, d. 4.5.1985, húsfreyja. Höfuóstafir nr. 73 Einhvern tíma snemma á tuttugustu öldinni fékk tóbakskaupmaður í Reykjavík, sem hét R.P. Levi, einhvern ónefndan hagyrðing til að setja saman fyr- ir sig auglýsingu. Hún leit þannig út: Reyktu, tyggöu, taktu nef í tóbakiö meó sœldarþef í. Svo aó þig ei komi kveff, kauptu tóbakiö hjá Leví. \ Þetta var áður en tóbaksauglýsingar voru bannað- ar. Símon Dalaskáld hefur að líkindum verið með hraðkvæðustu mönnum sem uppi hafa verið. Um hann orti Matthías Jochumsson: •c.; < Guðrún Sigríður Bjarnadóttir fyrrv. húsfreyja og organisti í Lækjamóti í Fáskrúðsfirði er 90 ára í dag Nú er Símonfallinn frá, frœga skáldiö Dala. Stuölafótum fór hann á fljótar en aórir tala. Guðrún Sigríður Bjarnadóttir, Hlíðargötu 62, Fá- skrúðsfirði, er níræð í dag. Starfsferill Guðrún Sigríður fæddist á Ósmel i Reyöarfirði en ólst upp í Berunesi og síðan í Skálavík í Fáskrúðsfirði en þangað flutti hún með foreldrum sínum 1922. Hún fór snemma að vinna fyrir sér, réð sig í vist m.a. í Reykjavík, á Sauðanesi á Langanesi og Kolfreyjustað í Fáskrúðsfirði. Guðrún lærði á orgel, fyrst hjá Láru Pálsdóttur og siðar Páli ísólfssyni. Hún var aðeins 15 ára er hún hóf að leika á orgel við messur í Fáskrúðsfjarðarkirkju. Hún var síðan oranisti við þá kirkju í fimmtíu ár og auk þess sóknarnefndarformaður til margra ára. Guðrún stofnaði, ásamt eiginmanni sínum, nýbýlið Lækjamót í Fáskrúðsfirði 1936 þar sem þau voru síðan búsett. Hún flutti til Hafnarfjarðar 1986 en hefur síð- ustu tvö árin dvalið á hjúkrunarheimilinu Uppsölum á Fáskrúðsfírði. Fjölskylda Guðrún giftist 26.10. 1935 Hirti Guðmundssyni, f. 12.8.1907, d. 6.9.1986, bónda. Foreldrar hans voru Guð- mundur Jónasson, bóndi á Austurhóli í Hornafirði, og Guðbjörg Sigurðardóttir, húsfreyja í Austurhóli, siðar Ámagerði í Fáskrúðsfirði. Sr. Á. Geroge fyrrv. skólastjóri Landakotsskóla Sr. Á. George, fyrrv. skólastjóri Landakotsskóla, Há- vallagötu 16, er sjötíu og fimm ára í dag. StarfsferiU Sr. Georg fæddist i Wylré í Hollandi og ólst þar upp. Hann stundaði nám við menntaskólann í Schimmert, stundaði undirbúningsnám fyrir klausturheit við klausturskólann í Meerssen, stundaði nám i heim- speki og guðfræði í háskólann í Oirschot og var vígð- ur til prests 11.3. 1956. Georg var sendur til íslands í nóvember 1956 og hef- ur verið búsettur hér síðan. Börn Guðrúnar og Hjart- ar eru Ragnheiður, f. 21.3. 1936; Guðbjörg, f. 29.3. 1937; Sigríður, f. 29.3. 1937, d. 5.8. 1993; Lára, f. 15.7. 1938; Aðalbjörg Hrefna, f. 27.6. 1940, d. 19.2. 1941; Aðalbjörg, f. 18.7. 1942; Valdís, f. 10.5. 1946, d. 25.8. 1999. Þá ólu þau upp fjögur fósturbörn. Albróðir Guðrúnar: Finn- ur Bjarnason, f. 22.2. 1909, d. 4.2 .1993. Hálfbræður Guðrúnar, samfeðra: Rögnvaldur Bjarnason, f. 3.1. 1932, d. 26.11. 2002; Birgir Bjarnason, f. 22.9. 1935, d. 1957. Foreldrar Guðrúnar voru Bjarni Sigurðsson, bóndi og útvegsmaður í Skálavík i Fáskrúðsfirði, og Ragn- heiður Finnsdóttir Malmquist húsfreyja. Ætt Bjarni var sonur Sigurðar Þorsteinssonar, bónda á Berunesi við Reyðarfjörð, og Guðrúnar Bjarnadóttur. Ragnheiður var dóttir Finns Malmquist Jóhannes- sonar, bónda og útgerðarmanns i Starmýri í Álftafirði, og Sigríðar Guðmundsdóttur. Sr Georg var kennari við Landakotsskóla í Reykjavík 1958-62 og skólastjóri skól- ans 1962-98. Þá hefur hann verið staðgengill kaþólska biskupsins í Reykjavik frá 1968. Fjölskylda Foreldrar Sr. Georges voru Leonardus George, f. 1890, d. 1967, og k.h., Ger- trud George-Bertrand, f. 1888, d. 1984. í tilefni afmælisins tekur sr. George á móti gestum í Prestahúsinu, Hávallagötu 16, Reykjavík, í dag, laug- ardaginn 5.4., milli kl. 14.30 og 16.30. Þegar greidd voru atkvæði um það í Kaupmanna- höfn hvort afhenda skyldi íslensk handrit úr Árna- safni til íslands féllu atkvæði eins og Jón Helgason i Hafnarfirði greinir frá í skemmtilegri vísu: Afhendingu inntu bót 110. Þrjóskir snerust þar í mót 39. Á hagyrðingamóti á Selfossi í desember sl. var stjórnin í höndum Ómars Ragnarssonar. í palladóm- um Ólafs Stefánssonar um þátttakendur á þessu móti segir um Ómar: Ómar stjórnar óöar flœði Árborgar í sveit. Yrkir sjálfur ágœt kvœöi, alþjóö þetta veit. Kappinn varla kann sér lœti, keikurfettir bak. Úti í salnum ymur kœti og ákaft lófatak. Næsta vísa er eftir Rögnvald Þórðarson: Fann ég eigi oröin þá, er ég segja vildi. Varö þó feginn eftir á aö ég þegja skyldi. Þegar fréttir bárust af nýafstöðnum landsfundi jjálfstæðisflokksins orti Hjálmar Freysteinsson: Undrun mín er endalaus alltaf fœrist skörin, dauöar lýs mér detta úr haus; Davíö endurkjörinn!! Guðbrandur Guðbrandsson bætti við: Er nú loksins orðalaus Akureyrarfirinn. Því yfirgefa Hjálmars haus helstu gæludýrin. Umsjón %
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.