Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2003, Síða 6
6
FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2003
DV
Fréttir
Kjörsókn í alþingiskosningum frá 1944 lengst af í kringum 90 prósent:
Kjörsókn hefur snap-
minnkað á tóll árun
Kjörsókn hefur snarminnkað í
alþingiskosningum síðustu ár,
hefur minnkað um ríflega 7 pró-
sent frá 1987. Kjörsókn í alþingis-
kosningum var lengi vel mjög
mikil hér á landi, meiri en í flest-
um ríkjum með frjálsar kosning-
ar. En í síðustu kosningum var
kjörsóknin minni en hún hafði
verið í heila öld. Þessi þróun
kemur mjög skýrt fram á með-
fylgjandi grafi.
Frá fyrstu alþingiskosningum
eftir stofnun lýðveldisins 1944,
en þær fóru fram 1946, hefur
kjörsókn í alþingiskosningum
verið í kringum 90 prósent. í 7 al-
þingiskosningum af 17 á þessum
tíma var kjörsóknin yfir 90 pró-
sent. Mest var hún í kosningun-
um 1956 eða 92,1 prósent. í kosn-
ingunum 1987 greiddu 90,1 pró-
sent atkvæðisbærra manna at-
kvæði en síðan hefur þróunin
verið niður á við. Vorið 1991 var
kjörsóknin 87,6 prósent, 87,4 pró-
sent 1995 og 84,1 prósent í alþing-
Kjörsókn í alþingiskosningum frá lýðveldisstofnun
Kjörsókn í sex áratugi
Grafiö sýnir þróun kjörsóknar í alþingiskosningum frá lýöveldisstofnun 1944.
Kjörsókn hefur veriö aö minnka frá því í kosningunum 1987 og var komin
niöur í 84,1 prósent 1999.
iskosningunum 1999. Er það þingiskosningum á íslandi frá
minnsta kosningaþátttaka í al- því í seinni heimsstyrjöldinni.
Á Norðurlöndum og í einstaka
Evrópulöndum, þar sem frjálsar
kosningar eru viðhafðar, hefur
kjörsókn ekki verið mjög langt
undir þeirri sem hér er. En víða
hefur minnkandi kjörsóknar orð-
ið vart á undanfómum árum,
einkum þar sem kosningar eru
mjög tíðar.
Árin 1874-1903 var kosninga-
réttur einungis bundinn við
karla eldri en 25 ára. 19. júní 1915
fengu konur fyrst kosningarétt.
Þá miðaðist kosningaréttur við
40 ára aldurstakmark en það fór
lækkandi með hverju ári. Árið
1934 var aldurstakmark vegna
kosningaréttar kvenna alveg
afnumið. Var kosningaréttur síð-
an miðaður við 21 árs aldur.
Árið 1971 var kosningaréttur
miðaður við 20 ára aldur en sam-
kvæmt núgildandi kosningalög-
um er aldurstakmark vegna
kosningaréttar 18 ár.
-hlh
Þyrla Landhelgisgæslunnar sóttl veikan sjómann um borð í Þerney RE
TF-Llf, þyrla Landhelgisgæslunnar, var kölluð út í sjúkraflug í togarann Þerney RE í gærkvöld þar sem veikur sjómaöur
var um borö. Togarinn var á veiöum á karfamiöum viö tvö hundruö sjómílna mörk efnahagslögsögunnar en sigldi til
móts viö þyrluna. Sjúklingurinn var híföur um borð í þyrluna tvö hundruö og fimmtán sjómílur suövestur af Reykjavík.
Þrír lögreglu-
menn sýknaðir
Hæstiréttur sýknaði í gær ís-
lenska ríkið og þrjá lögreglumenn af
skaðabótakröfu manns vegna lík-
amstjóns sem hann varð fyrir í lög-
reglubíl á ferð í kjölfar handtöku.
Höfðu lögreglumennirnir beðið
hann að sýna innihald vasa sinna
en hann var í annarlegu ástandi af
völdum amfetamínneyslu. Hann
brást ókvæða við þeirri bón og
hrópaði að lögreglumönnunum að
þeir yrðu að handjárna sig.
Til stympinga kom áður en til
slíkrar leitar gat komið sem maður-
inn stofnaði til með mótþróa sínum
og lauk þeim á þann veg að smellur
heyrðist í öörum handlegg hans og
reyndist um að ræða brot á vinstri
upphandlegg hans. Lögreglumenn-
irnir eru ekki taldir hafa sýnt af sér
ógætni eða gengið harkalegar fram
gagnvart manninum en nauðsynlegt
var til að vinna bug á mótþróa hans
gegn lögmætum aðgerðum, þótt svo
illa hafi til tekist að hann slasaðist í
átökunum. -EKÁ
lceland Express:
Veruleg
fjölgun farþega
Lággjaldafélagið Iceland Express
flutti 12.600 farþega í apríl og er það
töluvert meira en í febrúar og mars.
Að sögn forráðamanna félagsins er
sætanýting góð og um 40% farþeg-
anna koma erlendis frá.
Samkvæmt skráningu á ferða-
mönnum í Leifsstöð varð 35% aukn-
ing ferðamanna til og frá landinu í
apríl miðað viö sama tíma fyrir ári
og gætir þar áhrifa Iceland Express.
Hlutur félagsins í heildarfjölda far-
þega í apríl var 13,5% og er það ívið
hærra en áætlanir gerðu ráð fyrir.
Þá segja forráðamenn Iceland Ex-
press að reksturinn hafi gengið mjög
verl þessa fyrstu tvo mánuði frá því
flugstarfsemin hófst. Farþegar séu
töluvert fleiri en ráð var fyrir gert.
Um 75% af farmiðasölu félagsins fer
fram á Netinu, en önnur sala fer
fram á söluskrifstofum félagsins í
Reykjavík, Kaupmannahöfn og
London.
Iceland Express flýgur daglega til
London og Kaupmannahafnar. -aþ
Ríkið
semup við
Heypnaptækni
Heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytið hefur gert samkomulag
við fyrirtækið Heyrnartækni um
þátttöku ríkisins í kostnaöi sjúkra-
tryggðra við kaup á heymartækjum
og nauðsynlegri þjónustu. Samning-
urinn er geröur á grundvelli laga
um heilbrigðisþjónustu og reglugerð-
ar um þátttöku ríkisins í kostnaði
við hjálpartæki fyrir þá sem eru
með heymarmein.
Viðskiptavinir fyrirtækisins
greiða umsamið heildarverð fyrir
heymartækin, að frádregnum til-
teknum hlut rikisins í heildarverð-
inu, sem er nú 28.000 kr. fyrir þá
sem rétt eiga á endurgreiðslu. -EKÁ
Sameinumst gegn bruöli og
sóun stjórnvalda. Hættum
vegabréfaskoðun fyrir
Efnahagsbandalagið.
Notum þœr þúsundir
milljóna fyrir ferða-
þjónustuna á íslandi.
Magnússon skipar 1. sæti í Reykjavík suður
Kj'ósum N-listann = Nýtt Afl
...stjómmálaflokkur fólksins
Auölindanefnd um áhrif 10% fyrningar:
Minnkap vepðmæti
um 59 ppósent
kvótans
Verðmæti varanlegra aflahlut-
deilda myndi minnka um 58,8% um
leið og ákveðið yrði að fyma 10%
kvótans á ári, að því er fram kemur í
skýrslu auðlindanefndar frá árinu
2000. Núvirt verðmæti varanlegra
aflahlutdeilda var þá áætlað alls 290
milljaröar króna en myndi sam-
kvæmt þessu lækka um 171 milljarð.
Áætlaðar tekjur ríkissjóðs af endur-
sölu kvótans (á uppboði eða markaði)
yrðu 12 milljarðar króna á ári, en til
að ná sömu tekjum þyrfti að leggja
20% gjald á verðmæti alls landaðs
afla. Útreikningamir vom gerðir af
Hagfræðistofnun Háskóla íslands.
Við núvirðisreikninginn var gert ráö
fyrir 7% ávöxtunarkröfú.
I skýrslunni kemur fram að ef
kvótinn yrði fymdur um 5% á ári
myndi heildarverðmæti hans
minnka um tæp 42% eða um 121
milljarð króna og árlegar tekjur
ríkissjóðs yrðu 8,5 milljarðar
króna. Ef hann yrði fymdur um 1%
á ári myndi verðmætið minnka um
12,5% eða 36 milljarða og árlegar
gjaldtekjur verða 2,5 milljaröar.
„Þar sem virði útgerðar sem á
aflaheimildir minnkar þegar auð-
lindagjald er lagt á, lækkar veðhæfi
hennar og það getur leitt til óróa
meðal lánardrottna,“ segir í skýrsl-
unni. „Þá rýmar verðmæti hvers
eignarhlutar í útgerðinni og sú
rýmun getur skfljanlega haft áhrif
á fjárhagsstöðu eigendanna."
Erlendur Magnússon, fram-
kvæmdastjóri á alþjóðasviði íslands-
banka, segist spurður um þessi áhrif
ekki hafa haft tækifæri til að reikna
þau nákvæmlega út. „En það er
nokkuð ljóst að ef menn tækju 10%
kvótans á ári hefði það mjög alvarleg-
ar afleiðingar fyrir flest fyrirtæki í
greininni. Greiðslugeta greinarinnar
til aö standa skil á sínum lánum
myndi án efa skerðast. Það liggur í
augum uppi að ef 10% af framleiðslu-
getu fyrirtækis er tekin af því þannig
að það þurfi að kaupa hana aftur, þá
hlýtur það að skerða greiðslugetu fýr-
irtækisins allverulega.“
-ÓTG