Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2003, Page 38

Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2003, Page 38
38 DVSPORT MIÐVIKURDAGUR 11.JÚNÍ2003 Newcastle vill Ronaldinho Knattspyrna: f síðustu viku var talið að Manchester United hefði svo gott sem tryggt sér ^ hinn brasilíska Ronaldinho. Það er öðru nær því Newcastle er komið í spilið og vill Robby Robson knattspyrnustjóri nú ólmurfá Ronaldhino. Efþetta gengið eftir myndi Lauren Ro- bert fara í skiptum til Paris St. Germain. Rustu til Barcelona? Knattspyrna: Spænska íþrótta- blöðin Marca og AS sögðu frá því í gær að flest benti til að Rustu Receber, landsliðsmark- vörðurTyrkja í knattspyrnu, væri á leiðtil Barcelona.Samn- ingaviðræður eru í höfn og sjálfur segir Receber að hann muni skrifa undir samning við Barcelona. Arsenal og Manchester United voru bæði á höttunum eftir Receber sem af mörgum ertalinn besti mark- vörður heims í dag. Hann hefur til þessa verið fráhverfur því að fara frá Fenerbache en laun hans munu margfaldast ef hann gengur í raðir Barcelona sem virðist ætla að sópa til sín leikmönnum fyrir næstu leiktíð eftir slakt gengi á þessari tíð. Van Gundy tekur við Houston Körfuknattleikur: Jeff Van Gundy verður næsti yfirþjálfari hjá Houston Rockets í NBA- deildinni. Hann mun taka við starfinu af RudyTomjanovich sem hætti hjá liðinu (maí eftir samfellt 12 ára störf.Gundy hefur getið sér gott orð sem þjálfari í gegnum árin en hann var áður hjá New York Knicks. Stjórn ensku meistaranna í Manchester United sendu frá sér yfirlýsingu í gær þess efn- is að félagið hefði samþykkt 30 milljóna punda tilboð í * David Beckham frá spænska liðinu Barcelona. Stíf fundar- höld á síðustu dögum urðu til þess að Manchester-liðið gekk að tilboði Börsunga í gær en þó með vissum for- merkjum. Sá sem fór fyrir Barcelona í þess- um kaupum var Johan Laporta en hann er í framboði til forseta félags- ins. Á sunnudaginn kemur verður forsetakosning hjá Barcelona en talið er að Laporta njóti stuðnings meirihluta fulltrúa sem hafa kosn- ingarétt í kjörinu, þótt tæpt standi. Síðan frá áramótum hefur setið stjórn sem aðeins er til bráðabirgða og hefur í raun ekkert vald. Nýrrar stjórnar bíður mikið verkefni í því að koma félaginu á hæsta stall á nýjan leik. Áður en kauptilboð Barcelona „ Beckham segist bera hlýjar tilfinningar tilAI- ex Fergusons, sem hafi reynst honum eins og * faðir frá því að hann hóf fyrst að æfa með Manchester United fyrir tíu árum." var gert opinbert í gær sagðist Dav- id Beckham alls ekki útiloka að fara frá Manchester United í sumar. Hann bæri þó hlýjar tilfinningar til félagsins og Alex Ferguson knatt- spyrnustjóri hefði reynst sér afar vel en auðvitað hefðu stundum komið upp misættir eins og gengur og ger- ist. 1 Yfirlýsing Manchester kom Beckham í opna skjöldu „Ferguson hefur reynst mér sem faðir og án hans væri ég ekki þessi leikmaður sem ég er orðinn í dag,“ sagði Beckham í samtali við blaðið Los Angeles Times en Beckham hefur dvalið í Bandaríkjunum í fríi með fjölskyldu sína í um vikutíma en er á heimleið. Fréttum fer ekki alveg saman í þessu máli því haft er eftir Beckham á BBC í gær að hon- um hafi komið þessi yfirlýsing frá Manchester United mjög í opna skjöldu og það væri alls ekki víst að hann samþykkti að fara til Barcelona. í einu blaðanna segir Beckham að hann verði leikmaður Manchest- er United eins lengi og þess verði óskað af hálfu félagsins. Hann er sagður ekki ánægður með að hafa fyrst heyrt af samþykki kauptil- /h boðsins í fjölmiðlum. Hins vegar hefur Manchester United marglýst því yfir að ef einhvern tímann bær- jífSÍIÍwltÍ'i *•«! i! Hrtlh,.,..: verk í samningsgerðinni ef David Beckham gengi í raðir Barcelona en hann lýtur að auglýsingasamningi hans við Adidas. Hann færir Beck- ham gríðarlegar tekjur en ef leik- maðurinn gengi í raðir Barcelona yrði honum stefnt í uppnám. Adi- das myndi aldrei lfða það að Beck- ham léki í skóm fyrirtækisins hjá Barcelona. Einn stærsti stuðnings- aðili Barcelona er Nike og leikmenn nota skó þaðan og leika í búningi frá sama íþróttavöruframleiðanda. Aðalfundur Barcelona gæti dregið dilk á eftir sér Aðalfundur Barcelona um helg- ina gæti dregið dilk á eftir sér en unnið hefur verið að því hörðum höndum á bak við tjöldin að Johan Laporta fái brautargengi og verði næsti forseti félagsins. Spænskir fjölmiðlar sögðu í gær að Laporta nyti nú þegar mikils stuðnings og yrði næsti forseti . félagsins. Barcelona er ekki eina félagið sem hefur verið á höttunum eftir David Beckham á síðustu vikum. Nafn Real Mádrid kom fyrst fram í sviðs- ljósið en spænska liðið hafði raunar engan áhuga á leikmanninum. Barcelona, AC Milan og fnter komu síðan inn í umræðuna og virðist sem spænska liðið hafi unnið kapp- hlaupið um þennan eftirsótta leik- mann. „Franz Beckenbauer, fyrrum leikmaður og þjálfari þýska lands- liðsins, sem tjáir sig ekki oft um leikmenn utan lands síns, sagði eitt sinn um Beckham að þar færi einn besti knattspyrnumaður í heiminum ídag" David Beckham lék sinn fyrsta leik með aðalliði Manchester United 1995, þá 19 ára gamall, en fyrsta alvörutímabilið með félaginu var 1995-96 en þá Iék hann með lið- inu 33 leiki. Hann lék sinn fyrsta A- landsleik með enska landsliðinu gegn Moldavíu í undankeppni heimsmeistaramótsins 1997. f mars 1999 eignaðist Beckham sitt fyrsta barn með Victoriu Adams og í júlí hið sama ár gengu þau í hjónaband. í maí 2002 skrifaði Beckham undir nýjan samning við Manchester United sem gildir til júní 2005. Franz Beckenbauer, fyrrum fyrir- liði þýska landsliðsins í knattspyrnu og þjálfari þess, sem ekki er vanur að hrósa leikmönnum utan Þýska- lands, sagði eitt sinn um David Beckham að þar færi einn besti knattspyrnumaður í heiminum í dag. Beckenbauer er mikils metinn í knattspyrnuheiminum og þóttu þetta stór orð sögð um Beckham fyrir þremur árum. jks.sport&dv.is Ein skærasta stjarna enskra knattspyrnu, David Beckham, er að öllum líkindum á leið til spænska stórliðsins Barcelona ist 30 milljóna tilboð í kappann yrði það skoðað alvarlegum augum. í dag er það reyndin en engu að síður ljóst að þetta mál á eftir að fá mikla umfjöilun næstu daga. Beckham segist vera í mikilli þakkarskuld við Alex Ferugson. „Hann gaf mér tækifæri þegar ég var aðeins 18 ára gamall. Maður hefur lesið í fréttum að við höfum átt í deilum en fréttaflutningur af því hefur verið orðurp aukinn í langfiestum tilfellum," segir Beckham. f kauptilboðinu sem Manchester United samþykkti í gær kemur fram að upphæðin gæti hækkað á samn- ingstímanum. Ekkert hefur verið opinberað hvað samningurinn við Barcelona verður langur ef hann á annað borð gengur í gegn. Beckham á sjálfur eftir að semja um kaup og kjör en eitt er víst að hann verður þar á engum sultarkjörum. Fjölmiðlar gerðu því skóna að hann myndi ekki hafa minna en 8 millj- ónir í vikulaun hjá Börsungum. Ekki þætti ólíklegt að sú upphæð gæti jafnvel orðið enn hærri. Eitt stórt atriði gætið leikið hlut- ÍÍÍ lí íf i ii Á leið til Spánar Manchester United samþykkti kauptilboð Barcelona í gær

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.