Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2003, Qupperneq 39
MIÐVIKUDAGUR 11.JÚNÍ2003 DVSPORT 39
lt“
»
HK í miklum ham
1 -0 Zoran Panic, víti............58.
2-0 Viilý Þór Ólafsson ...........89.
Nýliðar HK halda áfram að
koma á óvart í 1. deild karla
í knattspyrnu og að lokn-
um fimm umferðum er liðið
í fjórða sæti deildarinnar
en í gærkvöldi lagði það
Stjörnuna að velli, 2-0, í
Kópavogi. Stjarnan situr
hins vegar óvænt á botni
deildarinnar.
Leikurinn í gærkvöldi var ágætur
og talsvert um færi á báða bóga.
Stjömumenn voru meira með bolt-
ann í fyrri hálfleik og voru nálægt því
að komast yfir á 20. mínútu en þá
átti Vilhjálmur Vilhjálmsson skot í
stöng úr aukaspymu. Fjómm mín-
útum síðar fékk liðið svo tvö góð færi
í sömu sókninni en Gunnleifur
Gunnleifsson, markvörður HK, var
vel á verði. Stjömumenn fengu svo
vítaspymu á 39. mínútu sem Valdi-
mar Kristófersson fiskaði - Brynjar
Sverrisson tók spyrnuna en Gunn-
leifúr varði vel - Dragoslav Stoja-
novich fylgdi eftir en skot hans fór
rétt framhjá.
Seinni hálfleikur fór rólega af stað
en á 58. mínútu fékk HK vítaspymu
sem Zoran Panic nýtti tíl fullnustu.
Villý Þór Ólafsson, sem kom inn á
sem varamaður á 46. mínútu, féll þá
inni í teig eftír viðureign við Bene-
dikt Egil Árnason. Eftir markið vom
heimamenn mun hættulegri og þeir
fengu nokkur góð færi til að gera út
um leikinn og oftast var það áður-
nefndur Villý sem átti þar stærstan
þátt. Stjömumenn reyndu að sækja
en vom máttlausir og það var líkt og
lánleysið héngi yfir þeim. Brynjar
Sverrisson vill líklega gleyma þess-
um leik sem allra fyrst - fýrst var það
vítið og svo komst hann aleinn inn-
fyrir á 68. mínútu en Gunnleifur átti
ekki f miklum erfiðleikum með að
verja slakt skot hans. Það var síðan
Villý sem gulltryggði sigur HK með
stórglæsilegu skoti í blálokin og
undirstrikaði frábæra innkomu.
Gunnleifur var öflugur í markinu en
annars var liðsheild HK sterk. Sveinn
Magnússon var bestur í Stjömulið-
inu og Besim Haxhiajdini hressti
upp á sóknarleik liðsins á síðustu tíu
mínútunum
Maður leiksins: Villý Þór Ólafs-
son, HK -SMS
Varnarleikur
í fyrirrúmi
Njarðvík og Víkingur gerðu
markalaust jafntefli á Njarðvík-
urvelli í gærkvöld. Það var ekki
mikið um færi í leiknum og voru
bæði lið að leika vel varnarlega
en heldur vantaði upp á sóknar-
leikinn.
Víkingur var sterkari aðilinn framan
af og eftir háfltíma leik kom besta færi
leiksins þegar Víkingar komust upp að
endamörkum vinstra megin eftir mis-
skilning í vörn Njarðvíkur og eftir fyrir-
gjöf var Egill Atlason á auðum sjó rétt
utan markteigs en Sigurður Sigurðs-
son varði vel í marki Njarðvíkur. Vík-
ingar héldu áfram að sækja út hálfleik-
inn en án þess að skapa sér færi og var
varnarlína Njarðvíkinga sterk.
Njarðvíkingar ógnuðu ekki mikið
fram á við. Þeirra besta færi kom á 60.
mínútu þegar Eyþór Guðnason átti
skot af markteig úr þröngu færi en ög-
mundur, markvörður Víkinga, sló
knöttínn í hliðametið. Síðasti hálf-
tíminn var heldur tfðindalítill þó gest-
imir væm heldur meira með boltann.
Arjen Kats var sterkur í hægri bak-
verðinum hjá Njarðvíkingum og 4
manna aftasta lfna þeirra steig vart
feilspor að þessu sinni. Þeir Bjami
Sæmundsson og Guðni Erlendsson
voru einnig duglegir á miðjunni.
Víkingarnir vom mjög sterkir til
baka og Sölvi Geir Ottesen og Sigurjón
Þorri ðlafsson vom mjög sterkir í
hjarta varnarinnar. En í sóknarleikinn
vantaði ógn og náði liðið í raun ekki að
búa sér til mörg færi.
Sigurður Jónsson, þjálfari Víkings,
var eilítið vonsvikinn með að ná ekki í
stiginþrjú. „Éger ánægður með vam-
arleikinn enda höfum við aðeins feng-
ið 2 mörk á okkur í 5 leikjum en það *
vantaði eitthvað upp á í sóknarleikn-
um í dag. Miðað við að Njarðvík á í
raun aðeins eitt skot á markið hefði
maður viljað fara héðan með þrjú
stig."
Helgi Bogason, þjálfari Njarðvík-
inga, var nokkuð sáttur með niður-
stöðuna. „Víkingarnir eru sterkir til
baka og svona miðað við hvernig þetta
þróaðist þá getur maður verið nokkuð
sáttur með stigið. Þegar við mættum
Þórsumm í síðasta leik voru þeir á
toppnum og í dag mætum við Víking-
um sem sitja á toppnum og maður
getur ekki verið annað en sáttur við
niðurstöðuna úr þessum leikjum."
Maður leiksins: Atjen Kats, Njarð-
vfk. -EÁJ ♦
KNATTSPYRNA 1.DEILD KARLA
Staðan:
Víkingur 5 3 2 0 7-2 11
Þór, Ak. 5 3 t 1 12-9 10
Keflavík 4 3 0 11-6 9
HK 5 2 2 1 8-3 8
Njarðvík 5 2 ' 1 2 9-8 7
Haukar 4 1 2 1 4-6 5
Aftureld. 5 1 2 2 4-8 S
Leift/Oal. 5 H 1 Hi 5-8 4
Breiðabllk 5 i 1 3 4-7 4
Stjarnan 5 0 2 MB 5-10 2
Veiðiskapurinn
byrjaði mjög rólega
Tveir laxar sluppu á fyrstu þremur tímum veiðitímans í Laxá í Kjós
„Laxinn var á stutta stund en fór
síðan af, hann hefur líklega ekki tekið
maðkinn nema að litlum hluta og
sleppt þegar ég togaði í,“ sagði Páll
Magnússon sem settí í fyrsta lax sum-
arins í Laxá í Kjós en hann slapp eftir
stutta baráttu í Kvíslarfossinum.
Með Páli á stöng var Bolli Kristins-
son og hann reyndi á eftir Páli í Kvísl-
arfossinum en veiðiskapurinn gekk
rólega.
„Það em laxar þama í Kvíslarfossin-
um,“ sagði Páll og færði sig ofar í ána
með Bolla.
Ekki mikill fiskur
„Laxinn tók fluguna smástund í
Laxfossinum en fór af,“ sagði Gylfi
Gautur Pétursson sem veiddi Laxfoss-
inn með Ásgeiri Þór Ámasyni, það
vom ekki margir laxar í fossinum,
einn og einn fiskur.
„Ég var að reyna frá Holunni og
niður að Kvíslarfossinum en varð ekki
var við fisk þarna,“ sagði Árni Baldurs-
son sem reyndi maðkinn víða á svæð-
inu, hver hola var skoðuð vel.
„Það er enginn lax kominn á land
ennþá og við verðum með urriðasúpu
í hádeginu. Ég fór áðan og veiddi 13
urriða sem Siggi Hall matreiddi fyrir
veiðimenn," sagði Ásgeir Heiðar er við
heyrðum stöðuna um hádegið í gær.
„I morgun sluppu tveir laxar, ann-
„Urríðasúpa var í mat-
inn hjá veiðimönnum í
Laxá í Kjós"
ars var þetta frekar rólegt," sagði Ás-
geir Heiðar í lokin.
Veiðimenn ætlu að færa sig ofar í
ána eftir hádegi, laxinn gæti verið
kominn þangað, vatnið er lítíð og fisk-
urinn er að flýta sér þessa dagana.
Laxinn kominn í Elliðaárnar
Fyrstu laxar sumarins em komnir í
Elliðaárnar en þeir voru í kistunni.
Tíðindamaður þóttist sjá laxa í fossin-
um en var ekki alveg viss, enda laxar
alltaf að verða sjaldséðari með hverju
árinu sem líður. Það er borgarstjóri
Þórólfur Árnason sem opnar Elliða-
árnar á sunnudaginn og þá opna líka
Laxá á Ásum og Víðidalsá í Húnvatns-
sýslu.
Laxveiðin byrjaði í Laxá f Aðaldal í
morgun og veiddist 14 punda í Bjarg-
strengnum en lítið sást af laxi á svæð-
inu.
í Laxárdal í Þingeyjarsýslu hafa
veiðimenn verið að fá góða veiði.
Veiðimaður sem var þarna fyrir fáum
dögum sagði að stærstu fiskamir
hefðu verið kringum 4 pund. Mikið
var af flugu og stór sá á sumum veiði-
mönnunum. Það rigndi og þá eykst
flugan mikið á svæðinu.
„Við fengum fína veiði en það var
hrikalega mikið af flugu, ógeðslega
mikið, en silungurinn er vel haldinn
og tók vel,“ sagði veiðimaður sem var
að koma af svæðinu fýrir fáum dög-
um.
-G.Bender
Páll Magnússon rennir fyrir lax en Bolli Kristinsson kannar stöðuna við Kvíslarfossinn
(Laxá (Kjós (gærmorgun. Enginn lax veiddist þarna fyrsta hálfa daginn. Skömmu
seinna setti Páll þó (lax en missti hann. DV-mynd G. Bender