Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2003, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2003, Page 6
6 FRÉTTIR LAUGARDACUR 14.JÚNÍ2003 Umfangsmiklu fíkniefnamáli lauk fyrír dómi í gær: Höfuðpaurinn hefur setið í gæsluvarðhaldi í eitt og hálft ár Mál sjömenninganna sem ákærðir eru fyrir fíkniefna- brot með því að hafa staðið að innflutningi á rúmum fimm kílóum af amfetamíni og 300 grömmum af kókaíni frá Þýskalandi hélt áfram fyr- ir Héraðsdómi Reykjaness í gær. Brotin eiga að hafa átt sér stað frá árinu 2001 til janúar 2002. Talið er að meintur höfuðpaur starfsem- innar hafi flutt efnin hingað til lands í þýskum niðursuðudósum sem annar maður tók við og seldi. Sá maður hefur játað á sig sakir frá Höfuðpaurínn hefur setið í gæsluvarðhaldi frá 14.desember 2002. upphafi rannsóknarinnar og krafð- ist lögmaður hans þess að litið yrði til þess við ákvörðun refsingar yfir honum. Höfuðpaurinn er einnig ákærður fyrir fleiri fíkniefnabrot sem framin voru árið 1998. Hann hefur setið f gæsluvarðhaldi frá 14. desember 2002 - þar af var hann í ellefú mánaða einangrun í Hollandi. Talið var að hann myndi e.t.v. annars reyna að komast úr landi eins og hann gerði í upphafi málsins. Hann hefur nú kært gæsluvarðhaldsvistina til Mannétt- indadómstóls Evrópu. Dráttur á málinu Verjandi höfuðpaursins krafðist þess í gær að hann yrði sýknaður af flestum ákærunum og að gæslu- varðhaldsvist hans kæmi til frá- dráttar refsingunni ef til þess kæmi. Hann benti á að fimm ár hefðu lið- ið frá því að hann var handtekinn fyrir sum brotanna þar til ákæra var gefin út og yrðu dómararnir að líta Maðurinn hefur neitað frá upphafi að vera viðriðinn smyglið og vildi ekkert við sölumanninn kannast. til þess við ákvörðun refsingarinn- ar. Maðurinn hefur neitað frá upp- hafi að hafa komið að innflutningi efnanna og sagðist ekki hafa haft nokkur samskipti við sölumanninn í mörg ár. Verjandinn sagði að sá eini sem hefði borið um að höfuð- paurinn hefði átt hlut að máli væri sölumaðurinn, hitt fólkið hefði ekkert kannast við að hann hefði komið þar við sögu. Sagði verjand- inn að eina ástæðan fyrir því að sölumaðurinn hefði borið á hann þær sakir væri sú að lögreglan hefði sagt að það gæti mildað refsingu yfir honum ef hann upplýsti um aðild annarra að brotunum. Verjandinn: Engin gögn Verjandinn taldi að engin gögn sýndu að höfuðpaurinn hefði flutt inn fíkniefnin eða átt nokkurn þátt „"W n Z7 OT 29 20 02 13 03 22 36 04 07 25 15 34 12 29 09 07 34 29 02 12 21 01 17 34 29 12 11 09 27 04 15 33 08 11 24002 13 20 23 17 06 21 24 14Æ& 09 23 11 27 31 29 20 02 1^03 22 36 04 07 25 15 34 12 29 09 07 34 29 02 12 21 01 17 15 33 08 06 21 24 29 20 02 15 34 12 LOOTO.IS 34 29 12 11 09 2 13 29 Oc 0£ 2 36 C'l i 7 7 34 2' ? J i:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.