Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2003, Side 12
72 FRÉTTtf, LAUGARDAGUR 14.JÚNÍ2003
Útlönd
Heknmám í hnotskum
Umsjón:Guðlaugur Bergmundsson og Kristinn Jón Arnarson
Netfang: gube@dv.is / kja@dv.is
Sími: 550 5829
Berlusconi í skattrannsókn
Ítalía: Silvio Berlusconi,for-
sætisráðherra Ítalíu, er undir
smásjá vegna meintra skatt- og
bókhaldssvika sem tengjast
viðskiptum fjölmiðlafyrirtækis
hans.Tvö ítölsk dagblöð
greindu frá þessu í gær.
Forráðamenn fyrirtækisins
svöruðu fullum hálsi og sögðu
að Berlusconi sætti rannsókn
vegna pólitískrar stöðu sinnar.
Lögmaður forsætisráðherrans
vísaði á bug að hann hefði
brotið af sér og sagði það
áhyggjuefni að fjölmiðlar
fengju að vita af málinu á und-
an málsaðilum.
Á sama tíma er verið að rétta
yfir Berlusconi í aðskildu spill-
ingarmáli í Mílanó.
Hvalir í netin
HAFIÐ: Um þrjú hundruð
þúsund hvalir, höfrungarog
hnísur drepast á hverju ári við
það að flækjast í netum fiski-
manna,að sögn náttúruvernd-
arsamtakanna WWF. Málið
verður tekið fyrir á ársfundi Al-
þjóðahvalveiðiráðsins í Berlín
eftir helgi og reynt verður að
finna leiðirtil að stöðva þetta.
ísraelsher hélt uppteknum hætti í gær eftir blóðug átök síðustu daga:
Enn ein flugskeytaárás
LlKIÐ BORIÐ TIL GRAFAR: Palestínumenn bera lík Afnan litlu Taha til grafar í Jabalya-flóttamannabúðunum á Gaza í gær. Afnan
lét lífið þegar ísraelskt flugskeyti hæfði fjölskyldubílinn á fimmtudag en faðir hennar var leiðtogi í skæruliðasamtökunum Hamas.
„Ilmar eins og himnaríki, enda
þótt hún hafi brennst."
Þannig lýsir Ahmed Ali hinni
ársgömlu Afnan Taha sem lét
lífið þegar ísraelskt flugskeyti
sprengdi bíl föður hennar,
eins leiðtoga harðlínusamtak-
anna Hamas, í tætlur á Gaza á
fimmtudag. Afnan var borin
til grafar í gær, að viðstöddum
þúsundum syrgjenda, í mosk-
unni í Jabalya-flóttamanna-
búðunum á Gaza.
„Er þetta friður? Hvað gerði hún
til að þurfa að deyja svona?" spurði
kona ein sem komin var til að syrgja
litlu stúlkuna. „Þeir þurrkuðu út aila
fjölskylduna," sagði önnur.
Faðir Afnan og vanfær móðir
hennar týndu einnig lífi í árásinni.
fsraelsher hélt uppteknum hætti
síðdegis í gær og skutu þyrlur hans
tveimur flugskeytum á bfl í Gaza-
borg. Einn maður týndi lífi og
fimmtán særðust, að sögn starfs-
manna sjúkrahúsa.
Haldi aftur af sér
Colin Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði í gær að ráða-
mönnum í Washington væri mjög í
mun að ísraelar héldu aftur af sér
þegar kæmi að því að hefna fyrir
„Erþetta friður? Hvað
gerði hún til að þurfa
að deyja svona?"
spurði kona ein sem
komin var til að syrgja
litlu stúlkuna.„Þeir
þurrkuðu út alla fjöl-
skylduna," sagði önnur.
árásir Palestínumanna. Þá lagði
hann áherslu á a.ð árásum á ísrael
yrði að linna.
Með orðavali sínu í gær gekk
Powell lengra en embættismenn
vestra voru tilbúnir að gera á
fimmtudag, þegar þeir gagnrýndu
fsraela ekki fyrir flugskeytaárás
þeirra á Gaza sem varð sjö manns
að bana, daginn eftir mannskæða
sjálfsmorðsárás í strætisvagni í Jer-
úsalem.
Vegvísir í uppnámi
Ofbeldi undanfarinna daga hefur
sett svokallaðan Vegvísi að friði í
uppnám. Hann varðar leiðina að
stofnun sjálfstæðs rflds Palestínu-
manna árið 2005. Áður en það gerist
verða deilendur hins vegar að reyna
Evrópusambandið ætl-
ar að íhuga hvernig
það getur komið í veg
fyrir að Hamas, sem
bandarísk stjórnvöld
hafa kennt um ofbeld-
isölduna síðustu daga,
berist fé.
að byggja upp gagnkvæmt traust,
svo sem að Palestínumenn hætti
árásum sínum á ísrael og að ísrael-
ar leggi niður ólöglegar byggðir gyð-
inga á palestínsku landi.
Kofi Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, sagði að
senda ætti friðargæsluliða á vegum
SÞ til Mið-Austurlanda til að reyna
að rjúfa þann vítahring sívaxandi
ofbeldis sem þar ræður ríkjum.
Liðlega fimmtíu bandarískir eftir-
litsmenn eru væntanlegir til átaka-
svæðanna í næstu viku og sagði
Annan að það væri fyrsta skréfið.
Hins vegar dygði ekkert minna en
vopnaðir gæsluliðar til að koma í
veg fyrir stigmögnun ofbeldisins.
ESB skoðar Hamas
Evrópusambandið ætlar að íhuga
hvernig það getur komið í veg fyrir
að Hamas, sem bandarísk stjórn-
völd hafa kennt um ofbeldisölduna
síðustu daga, berist fé til að fjár-
magna starfsemi sína.
„Evrópusambandið mun ræða
þetta mál með það fýrir augum að
finna leiðir til að binda enda á utan-
aðkomandi stuðning við Hamas,"
sagði Javier Solana, utanríkismála-
stjóri ESB, í yfirlýsingu sem hann
sendi frá sér í gær.
Bandarísk stjórnvöld hafa lengi
barist fyrir því að komið verði í veg
fyrir að samtök á borð við Hamas,
sem eru á lista þeirra yfir hryðju-
verkahópa, geti fengið fé frá stuðn-
ingsmönnum erlendis. Hernaðar-
armur Hamas er á lista ESB yfir
hryðjuverkasamtök en ekki góð-
gerðardeild samtakanna.
4*
EFTIRLIT f ÍRAK: Bandariskur hermaður stöðvar bifreið við eftirlit nærri bænum
Balad, um 90 kilómetra norðvestur af írösku höfuðborginni Bagdad. Hermenn hafa
verið að leita að stuðningsmönnum Saddams Husseins.fyrrum forseta.
Bandarískir hermenn drepa 97
dygga stuðningsmenn Saddams
Nærri eitt hundrað írakar lágu
í valnum eftir hörð átök við
bandaríska hermenn í gær og
fyrradag. Átökin voru hin
blóðugustu frá því lýst var yf-
ir að stríðinu í írak væri form-
lega lokið.
Hermennirnir skutu tuttugu og
sjö vopnaða fraka til bana eftir að
þeir höfðu veitt’ bandarískri skrið-
drekasveit fyrirsát. Daginn áður
voru að minnsta kosti sjötíu menn
drepnir í árásum á þjáifúnarbúðir
hryðjuverkamanna.
Bandaríkski herinn hefur staðið í
ströngu á tvennum vígstöðvum
vestur og norður af írösku höfuð-
borginni Bagdad í vikunni til að
uppræta dygga stuðningsmenn
Saddams Husseins, fyrrum íraks-
forseta, sem sagðir eru hafa staðið
fyrir árásum á bandaríska hermenn
að undanförnu.
Bandarískir embættismenn segja
að aðeins einn hermaður úr þeirra
röðum hafi særst í aðgerðum síð-
ustu daga.
Liðsauki í leitina
Ákveðið hefur verið að herða
mjög leitina að Saddam en ekkert
hefur til hans spurst frá því Bagdad
féll fyrir tveimur mánuðum. Leitar-
mönnum bætist liðsauki á næstu
dögum og munu þá um 1.400
manns taka þátt í leitinni.
Bresk-bandarísk samtök sem
kalla sig Líkaleitina í írak skýrðu frá
því í gær að rannsóknir þeirra bentu
til að rúmlega 5.500 óbreyttir borg-
arar hefðu fallið í stríðinu í frak.
Hugsanlegt er að allt að sjö þúsund
borgarar hafi látið lífið.
Fjöldi látinna var fenginn með
því að rannsaka gögn ffá sjúkrahús-
um og lfkhúsum f írak.
Samtökin hafa veitt bandarískum
og breskum ráðamönnum ákúrur
fyrir að neita að áætla um mannfall
í röðum óbreyttra borgara íraskra,
þótt ekki væri nema lágmarks-
mannfall í þeirra röðum.