Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2003, Side 24
24 DV HELGARBLAÐ LAUGARDAGUR 14.JÚNÍ2003
Matur og vín
Umsjónarmenn:
Gunnþóra Gunnarsdóttir,gun@dv.is
Haukur Lárus Hauksson, hlh@dv.is
Pönnukökur eru þunnar kökur úr hveiti, eggjum, mjólk og dálítilli feiti, bakaðar báðum
megin á pönnu eða hellu. Þær hafa lengi notið vinsælda í Evrópu og líkast til hafa Frakkar
hvað lengsta reynslu af pönnukökubakstri. Þar tíðkast að borða þær sætar með sultu,
rjóma eða kremi sem kaffibrauð eða eftirrétt. Einnig eru þær gjarnan fylltar með ýmiss
konar grænmeti og kjöti, brugðið á pönnu aftur eða bakaðar í ofni og kallast crépes. Slík
hefð hefur breiðst út og crépes-staðir sprottið upp víða um heim.
Bandarískar pönnukökur eru þykkri, gjarnan bornar fram ístöflum ásamt hlynsírópi á
morgunverðarborð.
Hingað til lands barst pönnukökuhefðin frá Danmörku og er elsta uppskriftin sem fundist
hefur frá því um 1800. Pönnukökur með sultu og rjóma hafa verið hefðbundið meðlæti
með kaffi, einnig upprúllaðar pönnukökur með sykri. Þá hafa þær líka verið hafðar þykkri,
kallaðar lummur og bornar fram með sultu eða sykri. Crépes-kökurnar hafa einnig náð
fótfestu hér á landi og eru geysivinsælar þar sem þær eru á boðstólum.
Máltíð, eftirréttur eða
meðlæti með kaffi
Að hætti Örvars Birgissonar í Nýja kökuhúsinu
Pönnukökur
250 a hveiti
1 tsk. Ivftiduft
1/2 tsk. matarsódi
1/2 tsk. salt
6-7 dl miólk
35 a smiörliki
J.egg
Þurrefnin sett í skál, eggjunum og helmingnum af
mjólkinni bætt í og hrært saman. Restinni af mjólk-
inni bætt í og hrært. Smjörið brætt og hellt út í síðast.
Kirsuberja- og pistasíusósa
60 a smiör
60 a kirsuber
60 a pistasiuhnetur
Smjörið er hitað á pönnu, kirsuber og pistaníuhnet-
ur eru sett út í og steikt létt.
fs - Semi fredo
1 vanillustöna
55 q svkur
4 stór eaa
Örvar Birgisson, bakari hjá Nýja kökuhúsinu, er
manna flinkastur í pönnukökubakstri. Nýja kökuhús-
ið hefur haft pönnukökur á boðstólum í áratugi, bæði
sem kaffibrauð og einnig hafa crépes verið mjög vin-
sælar á matseðlum staðarins,
þá íylltar með einhverju mat-
arlegu, svo sem kjúklingi
eða skinku, hrísgrjónum
og alls kyns grænmeti.
Nýja kökuhúsið er með
veisluþjónustu og nú
hefur það opnað nýtt
konditoribakarí að
Auðbrekku 2 í
Kópavogi. Þar
hittum við Örv-
ar íyrir þar
sem hann
var að fylla
pönnukök-
ur með
ýmsu gúmmelaði.
Hann gaf okkur uppskriftir
að þrenns konar íyllingu. Tvær
þeirra eru öndvegiseftirréttir, annars vegar
ís með kirsuberja- og pistasíusósu og hins vegar
bakaðir bananar með súkkulaðisósu. Hin þriðja er létt
máltíð, crépes með kjúklingi og Hoi Sin sósu. En fyrst
er það grunnuppskriftin að pönnukökunum.
DV-myndir Teitur
LAUGARDAGUR 14.JÚNÍ2003 DVHELGARBLAÐ 25
Örvar bræðir smjörið á pönnu
og steikir kirsuberin og
pistasíuhneturnar létt í því.
þannig verður til einföld en
afar bragðgóð sósa sem fer
vel með heimagerða vanillu-
ísnum ofan á pönnsunni.
Eftir að ísnum og heitri kirsu-
berja- og pistasíusósunni hef-
ur verið komið fyrir ofan á
pönnukökunni er kökunni
rúllað upp sem kramarhúsi og
brotið upp á mjórri endann.
Síðan er rétturinn borinn fram
og hann borðaður strax.
Bakaðir bananar, sem hafa
verið penslaðir með bræddu
smjöri og púðursykri, eru sett-
ir á pönnuköku og kæld
súkkulaðisósa látin drjúpa yfir.
Síðan er kakan brotin saman
eins og gert er á myndinni hér
fyrir ofan.
5 dl riómi
salt á hnífsoddi
Eggin eru aðskilin. Fræin eru tekin úr vanillustöng-
inni og sykurinn þeyttur með rauðunum. Rjóminn er
þeyttur í annarri skál. Hvíturnar eru stífþeyttar í þriðju
skálinni með saltinu. Öllu er blandað varlega saman
með sleif, sett í form sem filma er sett yfir og stungið í
frysti.
ísinn er settur á pönnukökuna og kirsuberja- og
pistasíusósunni hellt yfir. Kakan brotin saman og bor-
in strax fram.
Bakaðir bananar
2 bananar
70 q brætt smiör
50 a púðursvkur
Bananarnir eru skornir í ca 2 sm bita, penslaðir með
bræddu smjör og púðursykri stráð yfir. Bakað í tíu
mínútur við 180 gráða hita.
Súkkulaðisósa
600 q riómi
100 a hunanaslíki
470 g Valhrona Araguani 72% eða annað dökkt
súkkulaði
Súkkulaðið er saxað smátt. Rjómi og hunangslíki
soðið og hellt yfír súkkulaðið. Hrært saman með sleif
og látið kólna í um það bil klukkutíma.
Bananarnir og súkkulaðisósan sett á pönnukökuna
og hún broún saman.
Crépes með kjúklingi og Hoi Sin sósu
Kjúklingakjöt rifið niður. Pönnukakan smurð með
Hoi Sin sósu. Kjúklingurinn settur ofan á og síðan nið-
urskorinn vorlaukur yfir. Pönnukakan brotin saman í
fernt, hituð á pönnu og gúrkustrimlar bornir fram
með.
MildurMommessin
og Þjóðvegur 66
- frá Ólafi H. Ingasyni, Heildverslun Alberts Guðmundssonar
í þessum dálki er öðrum þræði
lögð áhersla á að kynna vín, óháð
matreiðslunni hér til hliðar. Enda
ekki meiningin að hafa þetta alveg
niðurnjörvað. Þess vegna bregð-
um við aðeins út af vananum í
þetta skipti og kynnum til sögunn-
ar milt og notalegt rauðvín sem
hentar vel með hvers kyns kjöti og
sterkur drykkur sem blanda má á
ýmsa vegu til að gera svalandi og
ljúffenga sumardrykki. Ólafur H.
Ingason hjá Heildverslun Alberts
Guðmundssonar sýslar með rauðvín
dag hvern og þar á meðal er
Mommessin Cotes Du Rhone.
Mommessin Cotes Du Rhone er
mjög vel þekkt meðal íslendinga,
hefur lengi verið til sölu í verslun-
um ÁTVR. Fyrirtækið Mommessin
var stofnað árið 1865 af Jean Marie
Mommessin og hefúr það verið í eigu fjöl-
skyldunnar allar götur síðan. Gæðakröfur
hjá Mommessin eru afar strangar og kem-
ur fjöldi gamafreyndra víngerðarmanna
og sérfræðinga að vínframleiðslunni. Það
þarf því ekki að koma á óvart að unnendur
góðra vína séu hrifnir af Mommessin.
Hafa Mommessin-vínin unnið fjölda vín-
keppna og hlotið ótal verðlaun og viður-
kenningar í gegnum tfðina. Mommessin-
vínin fást í yfír 70 löndum í fimm heimsálf-
um.
Mommessin er virt fyrirtæki í Frakk-
landi. Mommessin Cotes Du Rhone er
milt rauðvín með léttum kryddkeim og dá-
litlu tanníni. Fyrir utan að henta vel með
öllu kjöti þá er Mommessin Cotes Du Rho-
ne einnig tilvalið með ostum eða bara eitt
og sér. Þannig hentar Cotes Du Rhone frá
Mommessin einstaklega vel þegar róman-
tíkin liggur í loftinu á björtu sumarkvöldi.
Mommessin Cotes Du Rhone kostar 1.220
krónur í vínbúðum ÁTVR.
Og úr mildu rauðvíni yfír í mildan
viskílíkjör, Route 66 Classic, sem fæst í
Heiðrúnu og ÁTVR Kringlunni og kostar
3.100 krónur. Route 66 er kennt við sam-
nefndan þjóðveg í Bandaríkjunum sem
tengdi Chicago í Illinois við Los Angeles í
Kaliforníu. Þessi þjóðbraut má muna fífil
sinn fegri en hefur þó verið gerð ódauðleg
í söngvum og einnig í með tilkomu þessa
milda drykkjar. Route 66 er blanda ýmissa
sterkra víntegunda auk safa úr kryddjurt-
um og ávöxtum sem finna má í grennd
þjóðbrautarinnar frægu. Nægir að nefna
appelsínur, appelsínubörk, sítrónur,
aprikósur, kóríander og lofnarblóm. Þenn-
an drykk má drekka einan sér, með ísmol-
um eða muldum ís. Einnig má gera blönd-
ur með kóki, sódavatni, engiferöli eða
espressokaffi og rjóma. Síðastnefndi
drykkurinn þykir einmitt tilvalinn eftir
góða máltíð.