Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2003, Page 27

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2003, Page 27
LAUGARDAGUR H.JÚNÍ2003 OV HtlGARBLAV 27 HANDBRAGÐ KYNSLÓÐANNA: Vegur- inn um Svínaskarð var aflagður sem bíl- vegur um 1930 og þessi vandaða hleðsla ber handbragði vegagerðarmanna fagurt vitni og hefur ekkert bilað. jólanóttina. Árið 1890 fór sænskur vegfræðingur um landið og horfði eftir hentugum vegarstæðum fyrir nýjan tíma sem þá var að renna upp á íslandi. Hann spáði því að í framtíðinni lægi aðalvegurinn um Svínaskarð og taldi sig sjá þar af- bragðs vegarstæði. Má ég ganga? Ekki erum við aiveg sammáia Svíanum þegar ferðin hefst á ný niður í Svínadalinn. Leiðin liggur niður snarbratta skriðu í kröppum sneiðingum og fararskjóti okkar af gerðinni Land Rover skrunar und- an eigin þunga niður á köflum. Síð- an sveigir slóðin og liggur eftir klettasyllu inn í krappt gil og eftir öðrum eins sneiðingi upp úr því aftur. Slóðin er svo mjó að það leif- ir ekki af því að Roverinn rúmist á syliunni og aukinheldur hallar fram af brúninni og á einum stað þarf að brölta yflr talsverða grjóthrúgu sem hefur verið hlaðin ofan úr úr- rennsli. Hér verður samkomulag um það í vorum leiðangri að hluti farþega vill frekar ganga niður en að sitja þeim megin í bílnum sem þeim finnst eiginlega slúta fram af klettabrúninni. Þetta er ágætt og allt gengur okkar ferðalag vel enda Rover nýskæddur og til í tuskið og þótt hann renni aðeins undan hall- anum er best að fara bara varlega. Þegar komið er niður í dalbotn- inn liggur leiðin fljótlega um grón- ara land. Við sjáum tvo hjólreiða- menn sem lagt hafa leið sína yfír skarðið þennan góðvirðisdag en mætum einnig hópum hesta- manna en Svínaskarð mun vera vinsæl reiðleið og kannski ættum við jeppamenn að leyfa þeim að hafa þessa leið fyrir sig. Slóðin út dalinn er sæmilega greiðfær þótt aurbleyta geri aðeins vart við sig í mýrarslökkum og Land Rover krefst þvottar þegar heim er komið eftir brölt í pyttum sem þó valda engum landspjöllum. Við komum niður á þjóðveginn við skilarétt sem stendur á eyri rétt á móti Vindáshlíð en fyrst niður veg heim að nokkrum sumarbústöðum sem þar standa í holti. Sjáðu skarðið, þarna fór ég I það heila tekið var þetta skemmtilegur ökutúr. Svínaskarð er augljóslega fært íjailabflum en varla óbreyttum smájeppum. Það er nógu bratt niður að norðanverðu til þess að ekki verður talið ráðlegt að fara þar upp og ailra síst ef ein- hver bleyta er í slóðinni. Því er betra að koma að sunnan. Af Svína- skarði er örstutt að skreppa upp á Móskarðshnúkana en sá innsti og hæsti heitir Trana. Við ökum síðan sem leið liggur fram Kjós og inn á Mosfelisheiðar- veg við Stíflisdal. í efstu drögum Mosfellsdals rýnum við út í súldina upp í skarðið og segjum líkt og Tómas Guðmundsson skáld forð- um daga: „Sjáið tindinn! þarna fór ég.“ polli&dv.is mns ■ _ 340 gr TEN-CATE BÓMULLARDUKUR ■ • -■ —V"-- ■ •: v.••■•:“■ TVOFOLD EINANGRUN GEYMSLUHOLF UNDIR RÚMI 1 3" DEKK OG UPPHÆKKAÐUR 740 Kg FLEXITOR EINFALDUR OG LETTUR TJALDVAGNINN ÆGIR ER EINFALDUR OG LÉTTUR Verið velkomin I 90 ára afmæli Seglagerðarinnar sem við höldum hátíðlegt þessa helgi. Af því tilefni bjóðum við tjaldvagninn Ægi á einstöku tilboðsverði. Ægir er einstaklega léttur og þægilegur í meðförum. Það er mjög fljótlegt að tjalda honum, auðvelt að ferðast með hann og svo er hann líka svo rúmgóður. (Ægi er þægileg 4-6 manna svefnaðstaða. SEGLAGERÐIN ÆGIR EYJARSLÓÐ 7 101 REYKJAVlK SÍMI 5II 2203 FORTJALD

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.