Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2003, Blaðsíða 31
LAUGARDAQUR 14.JÚNÍ2003 DVHELGARBLAÐ 35
fréttir í Keflavík frétt þess efnis að maðurinn
hefði starfað á útvarpsstöðinni Bros í Keflavík
fyrir um 10 árum en verið rekinn eftir að í ljós
kom 100 þúsund króna símareikningur sem
var til kominn vegna klámlína sem hann
hringdi stöðugt í á næturnar en hann var
einmitt með næturvaktir í útvarpinu.
„Vinnur á daginn sem skrif-
stofumaður og býr einn (ef
það skiptir nú nokkru).
Helstu áhugamál:
Tónlist (að sjálfsögðu - og
alæta), mannleg samskipti,
söngur, ferðalög, tv-video,
íþróttir og fleira."
Sextán ára ferill
Áður mun maðurinn hafa komið fram
undir nafni í „diskóbransanum" en kunnugir
segja að hann hafi gripið til dulnefnis þar
sem „hann hefur mörg ár þurft að fara huldu
höfði“. Það er staðhæfing sem er áhugavert
að skoða aðeins nánar.
Ljóst er af framanskráðu að athæfi manns-
ins var þekkt allt frá árinu 1987 svo hér er um
nærri 16 ára feril að ræða. Hann er hvergi
skráður með síma í opinberri símaskrá og
þótt hann sé skráður með lögheimili á heim-
ili foreldra sinna er það ekki raunverulegur
dvalarstaður hans. Þótt útvarpsstöðvar sem
hann hefur unnið hjá hafi sent kynningar-
efni, þar með taldar ljósmyndir af starfs-
mönnum, til fjölmiðla árum saman virðist
ómögulegt að hafa uppi á mynd af honum.
Allt þetta bendir í sömu átt. Þarna fer maður
sem vill ekki vera sýnilegur.
Vildi fá að syngja
Félagsstarf mannsins innan kirkjunnar var
ekki einskorðað við ásókn í æskulýðsstarf.
Hann hefur sungið í kirkjukórum árum sam-
an og syngur bassa. Fyrst var hann lengi við-
loðandi kirkjukór Breiðholtskirkju, aðallega
þó í íhlaupum á stórhátíðum. Fyrir hálfu ári
gekk hann til liðs við kirkjukór Grafarvogs-
kirkju og það var með þeim kór sem hann fór
af landi brott til Englands í upphafi vikunnar
en kórinn er á söngför í Bretlandi. Þessi utan-
för var sögð með vitund og leyfi lögreglunnar
þótt rannsókn málsins væri ekki lokið og
hann ekki í farbanni. Eftir einn dag í förinni
með kórnum sneri maðurinn heim aftur og
er því samkvæmt bestu heimildum blaðsins
staddur á fslandi og prestar í Grafarvogi segja
DV að litið sé svo á að hann sé hættur í kórn-
um.
Áðurmun maðurinn hafa
komið fram undir nafni í
„diskóbransanum" en kunn-
ugir segja að hann hafi gripið
til dulnefnis þar sem„hann
hefur mörg ár þurft að fara
huldu höfði".
Hann mun hafa mætt samviskusamlega á
kóræfingar og verið vel kynntur en látlaus í
þeim hópi. Hann mun hafa sæmilega söng-
rödd en ekki vera sérlega lagviss og þarf því
öfluga söngmenn með sér ef hann á að nýtast
í kór.
Síðastliðið haust reyndi þessi maður að
komast inn í raðir karlakórsins Fóstbræðra
og var einn fjölmargra sem teknir voru í
söngpróf og vakti athygli fyrir mikinn áhuga
og tíðar skeytasendingar til formanns kórsins
þar sem sönghæfileikar hans voru tíundaðir.
Hann var ekki samþykktur því hann þótti
ekki nógu góður.
Faðirinn gefur sig fram
Það vakti talsverða athygli útvarpshlust-
enda á fimmtudag þegar Arnþrúður Karls-
dóttir íjallaði um þetta mál og afleiðingar
þess í þætti sínum á Útvarpi Sögu. Þar kom
fram talsmaður Barnaheilla sem upplýsti að
erlendir barnaklámhringir væru svo varir um
sig að þeir sem þar sæktust eftir inngöngu
þyrftu yfirleitt að leggja fram efni sem þeir
hefðu sjálfir framleitt.
Faðir mannsins hringdi inn í þáttinn og
Arnþrúður átti athyglisverðar samræður við
hann um sekt eða sakleysi sonarins. Hún
spurði meðal annars hvort hann hefði játað
fýrir foreldrum sínum að hafa framleitt
barnaklámefni á íslandi. Faðirinn svaraði því
til að hann vissi það ekki en móðir hans heyr-
ist játa því í bakgrunni samtalsins skýrt og
greinilega. 1 lok samtalsins spyr Arnþrúður
föðurinn aftur að þessu sama og þá neitar
hann ekki þvert heldur segist ekkert hafa tal-
að um þetta við son sinn.
Faðirinn sagði að heimilið
hefði verið þungt og erfitt þeg-
ar maðurinn var að alast upp
og hann hefði sjálfur verið
mikið að heiman á sjó en full-
yrti jafnframt að sonurinn
hefði átt erfitt uppdráttar í
skóla og verið lagður í einelti.
„En konan þín hefur gert það,“ segir þá
Arnþrúður.
„Ég veit það ekki, hún er svo utan við sig út
af öllu þessu," segir faðirinn.
Bæði faðirinn og móðirin átöldu fjölmiðla
harðlega fyrir aðgangshörku og tíða umfjöll-
un um málið og faðirinn sagði meðal annars:
„Það er svívirðilegt hvernig gengið er að
honum. Það er eins og þið óskið eftir því að
hann fyrirfari sér.“
Og seinna í samtalinu heyrist móðirin
segja:
„Hvenær fær hann nóg og hvenær sviptir
hann sig lífi?“
DV ræddi við föðurinn í síma á fimmtudag.
Hann sagði þá að sonur sinn væri heiðarleg-
ur maður.
„Ég sagði honum að segja satt og rétt frá
öllu sem hann hefði gert og það hefur hann
gert.“
Faðirinn sagði að heimilið hefði verið
þungt og erfitt þegar maðurinn var að alast
upp og hann hefði sjálfur verið mikið að
heiman á sjó en fullyrti jafnframt að
sonurinn hefði átt erfitt uppdráttar í skóla og
verið lagður í einelti. Hann sagði einnig að
kona sín væri rugluð og ekkert að marka sem
hún segði um þetta mál og var þá að vísa til
ummæla hennar í útvarpinu.
Hvernig persóna?
En hvernig persóna er þessi maður sem
hefur nú orðið uppvís að því að vera stærsti
eigandi barnakláms á fslandi? Hér er hægt að
vísa í fyrrgreinda lýsingu hans á sjálfum sér
af heimasíðu DJ-OK. Allir sem DV hefur talað
við og hafa unnið með honum eða haft af
honum einhver kynni lýsa honum sem frekar
brosmildum, óáleitnum manni sem var dag-
farsprúður og hafði stundum gamanmái á
hraðbergi. í úthringingum er honum lýst sem
röskum starfsmanni, prestar segja hann
áhugasaman en ekki leiðtogaefni en KFUM-
menn telja hann ekki góðan starfsmann.
Hann er fæddur í merki Krabbans og í lýs-
ingu á persónuleika hans samkvæmt þeim
fræðum segir:
„Þú ert rekinn áfram af tvenns konar löng-
un. Þú vilt njóta velgengni og þú leitar nautn-
ar en forðast sársauka. Þú ert sveigjanlegur,
undirgefinn og iðinn í samstarfi en feiminn
og hlédrægur. Þú vilt vera heiðarlegur í sam-
skiptum við aðra og hreinskilinn en vinir þín-
ir sjá þig sem einfalda og á köflum yfirborðs-
kennda persónu.“
Hvað sem rannsóknin á eftir að leiða í ljós
er augljóst að maðurinn hefur aldrei látið af
ásókn sinni í félagsskap og starf með börnum
og unglingum í sextán ár þrátt fyrir aðvaranir
og einhvers konar ofsóknir. Faðir hans segir
að hann iðrist sárlega og muni leita sér með-
ferðar en slík loforð hafa augljóslega verið
gefin áður og ekki haldin. polli@dv.is