Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2003, Page 36
40 DV HELGARBLAÐ LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ2003
Ætlum í umspil
íslenska kvennalandsliðið leikur sinn fyrsta leik í undankeppni EM í dag
í dag eigast við klukkan 16.00 lið ís-
lands og Ungverjalands í und-
ankeppni EM kvennalandsliða á Laug-
ardalsvellinum. Viðureignin er fyrsti
leikur íslands í undankeppninni og
jafnframt fyrsti leikur liðsins undir
stjórn Helenu Ólafsdóttur sem tók við
í haust af Jörundi Áka Sveinssyni sem
þjálfað hafði íslenska liðið síðustu ár.
Helena segir leikinn leggjast vel í sig
og muni íslenska liðið leggja allt í söl-
urnar til að innbyrða sigur í þessum
fyrsta leik.
„Við eigum góða möguleika á að vinna
þenna leik. Við rennum voðalega blint í sjó-
inn með þær-við höfum lítið fengið upplýs-
ingar um þær og vitum lítið um þeirra getu en
auðvitað verður þetta barátta upp á líf og
dauða. Við ætlum okkur að vinna þennan
leik,“ segir Helena ákveðin.
Ungverjar eru nokkrum sætum fyrir neðan
íslenska liðið á styrkleikalista FIFA og fyrir-
fram má telja lið fslands sigurstranglegra.
Eins og áður segir er þetta er fyrsti leikur ís-
lenska liðsins í keppninni en Ungverjar hafa
þegar leikið tvo. Þær ungversku töpuðu fyrir
Frökkum 4-0 en unnu Pólland með tveimur
mörkum gegn engu og hafa þvf þrjú stig. Auk
þessara liða eru það Rússar sem skipa riðil-
inn, en þar er einnig á ferð mjög sterkt
. kvennalandslið. Franska liðið er hins vegar
„Katrín Jónsdóttir og Margrét
Ólafsdóttir gefa ekki kost á sér
og þá á Rósa Júlía Steinþórs-
dóttir við meiðsli að stríða.
Allt hafa þetta verið algjörir
lykilmenn ísíðustu verkefnum
landsliðsins og Ijóst að þessi
áðurnefndu skörð verða ekki
auðfyllt"
talið það sterkasta á pappírnum en íslenska
liðið á að eiga góða möguleika á þriðja sæti
riðilsins og jafnvel enn ofar.
Undankeppninni fýrir lokakeppni EM hjá
konunum er hagað svipað og hjá körlunum.
Það lið, sem endar í fyrsta sæti riðilsins, fer
sjálfkrafa áfram í lokakeppnina en liðið í öðru
sæti fer í umspil þar sem mótherjarnir verða
einhver liðanna sem lentu í öðru sæti annarra
riðla. Þá fara þau tvö lið, sem bestum árangri
hafa náð af þeim sem lentu í þriðja sæti síns
riðils, einnig í umspilið.
Nokkuð ljóst liggur fyrir að baráttan um
umspilið stendur fyrst og fremst á milli fs-
lendinga og Rússa, þó svo að alls ekki megi af-
skrifa Ungverja, sem eru sýnd veiði en ekki
gefin.
Helena kveðst ákveðin í að ná sæti í um-
spilinu.
. „Við ætlum okkur í það umspil og stefnum
á það. En svo verður tíminn náttúrlega að
leiða það í ljós hvort það tekst," segir Helena
en bætir við að nú sé hún fyrst og fremst að
einbeita sér að leiknum við Ungverja.
„Við viljum ná hagstæðum úrslitum úr
þessum leik og svo sjá hvert framhaldið verð-
ur. Við erum með mikla endurnýjun í hópn-
um og það á eftir að sjá hvernig þetta púslast
saman," segir Helena, en eins og margir vita
hafa djúp skörð verið höggvin í kvennalands-
liðið á árinu. Katrín lónsdóttir og Margrét
Ólafsdóttir gefa ekki kost á sér og þá á Rósa
Júlía Steinþórsdóttir við meiðsli að stríða. Allt
hafa þetta verið algjörir lykilmenn í síðustu
H verkefnum landsliðsins og ljóst að þessi áður-
nefndu skörð verða ekki auðfyllt.
„Ég treysti hins vegar hópnum, sem ég er
með í dag, fullkomnlega í verkefnið. Þetta eru
ungar stelpur og það eru kannski ákveðin
kynslóðaskipti að verða en þær eru tilbúnar -
ég efast ekki um að þær vilji sýna sig og
sanna.
GÓÐAR SAMAN: Það fór vel á með þeim Helenu Ólafsdóttir, landsliðsþjálfara kvenna í knattspyrnu, og Ásthildi Helgadóttur, fyrirliða íslenska liðsins, í
gær þegar Ijósmyndara DV bar að garði. (dag
Ekki miklar breytingar
„Við ætlum okkur sigur og ég legg leikinn
upp með því til hliðsjónar. En eins og ég sagði
áður þá vitum við lítið um þær. Við ætlum
okkur að nýta okkar styrkleika til fullnustu -
við ætlum að keyra svolítið á þær, nýta hrað-
ann á köntunum og sækja á þær.“
- Muntu koma til með að gera einhverjar
róttækar breytingar a' leikskipulaginu frá því
að Jörundur Áki hætti með liðið?
„Það held ég ekki. Við munum spila leik-
kerfið 4-5-1 til að byrja með og það er það
sama og liðið hefur verið að spila. Það verða
ekki miklar áherslubreytingar, enda var það
kannski ekkert meiningin."
Undirbúningur fyrir leikinn hefur staðið yf-
ir frá því á þriðjudaginn og segir Helena hann
hafa gengið mjög vel.
„Við tókum létta æfingu á þriðjudaginn,
daginn eftir umferð og svo aðra góða æfrngu
á miðvikudaginn. Á fimmtudaginn gaf ég frí
„Stuðningurinn skiptir gríðar-
lega miklu máli og við vonum
að þetta skili sér. Það er von-
andi að sérstaklega litlar
stelpur í yngri flokkunum
komi á völlinn. Og auðvitað
náttúrlega allir sem vettlingi
geta valdið einnig. Það er ekki
spurning að áhorfendur eru
okkar tólfti maður í þessu. "
frá æfingum en við hittumst í mat og höfðum
það gott," segir Helena, en lokaæfingin fór
r hins vegar alvaran við - leikur gegn Ungverjum ,
fram í gærdag. Eftir hana var haldið á Hótel
Loftleiðir þar sem íslenska liðið dvaldi í nótt.
Konurnar engir eftirbátar
íslenska karlalandsliðið er búið að vera mik-
ið í sviðsljósinu síðustu vikuna vegna leikjanna
í undankeppni EM fýrst gegn Færeyingum og
síðan Litháum. í báðum leikjunum unnust
góðir sigrar og segir Helena að kvennaliðið ætli
sér ekki að vera neinn eftirbátur þeirra.
„Við ætlum að standa okkur einnig. En
auðvitað eru þetta tvö aðskilin lið, það er
gaman að sjá hvað strákunum hefur gengið
vel og það er vonandi að það verði framhald á
hjá okkur. Við verðum líka að vera tilbúnar og
með hausinn í lagi,“ segir Helena sem kveðst
ekki finna fyrir neinni aukinni pressu í kjölfar
sigra karlalandsliðsins í vikunni.
„Ég held að það skipti nú litlu máli gagnvart
okkur sjálfum. Ég held að stelpumar setji
pressuna frekar á sig sjálfar. Þær em eingöngu
að hugsa um sjálfar sig og að klára leikinn."
- Þetta er fyrsti leikur liðsins undir þinni
stjórn. Hvernig er tilfinningin?
„Ég er orðin spennt og hlakka mikið til. En
þetta er náttúrlega bara eins og hver annar
leikur," segir Helena en viðurkennir þó að
þetta sé nokkuð frábmgðið því að fara í leik
með lið Vals í Esso-deild kvenna, en Helena
þjálfar sem kunnugt er kvennalið Vals sam-
hliða landsliðsþjálfarastarfmu.
„Þetta er að sjálfsögðu öðmvísi tilfinning.
En þegar maður setur dæmið fyrir sig þá er
þetta bara einn af þessum leikjum sem farið
er í. Og maður fer alltaf með sama hugarfari -
að gera sitt besta og reyna að vinna. Svo að
því leyti er þetta ekkert frábmgðið," segir Hel-
ena sem af spjalli okkar að dæma er augljós-
lega með sigurviljann í blóðinu.
Vona að sem flestir komi á völlinn
Leikir íslenska kvennalandsliðsins hafa átt
síauknum vinsældum að fagna á meðal al-
mennings í landinu undafarin misseri. Aug-
Laugardalsvelli sem er liður í undankeppni EM.
DV-mynd ÞÖK
lýsingaherferðir liðsins hafa vakið mikla at-
hygli, en þar hafa þær stúlkur, sem em í
hópnum hverju sinni, komið fram á heilsíðu
„Við eigum góða möguleika á
að vinna þenna leik. Við renn-
um voðalega blint í sjóinn
með þær - við höfum lítið
fengið upplýsingar um þær og
vitum lítið um þeirra getu en
auðvitað verður þetta barátta
upp á líf og dauða. Við ætlum
okkur sigur."
auglýsingu dagblaða, klæddar á mismunandi
vegu. Fyrst þegar uppátækið var í hávegum
haft komu þær fram á sundfötunum einum
klæða, þá sem nautabanar og loks sem sjólið-
ar sem vom á leið í boltastríð við Breta. Aug-
lýsingin fyrir leikinn gegn Ungverjum sást
fýrst í gær og vakti hún mikla athygli. Þá er
látið sem svo að stelpumar sitji til borðs í
stjórnarráðinu og myndinni fýlgir fýrirsögn-
in: STELPURNAR STJÓRNA.
Helena brosir að uppátækinu en segir jafn-
framt að stuðningurinn aukist í kjölfarið.
„Stuðningurinn skiptir gríðarlega miklu
máli og við vonum að þetta skili sér. Það er
vonandi að sérstaklega litlar stelpur í yngri
flokkunum komi á völlinn. Og auðvitað nátt-
úrlega allir sem vettlingi geta valdið einnig.
Það er ekki spuming að áhorfendur em okkar
tólfti maður í þessu.“
Leikurinn hefst kl 16. eins og áður segir og
fer hann fram á Laugardalsvellinum. Aðgang-
ur er að sjálfsögðu ókeypis og em landsmenn
hér með hvattir til að styðja við bakið á stúlk-
unum okkar. vignir@dv.is