Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.2003, Side 2
2 FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 10. SEPTEMBER 2003
ÚTGÁFUFÉLAG: Útgáfufélagið DV ehf.
FRAMKVÆMDASTJÓRl: Örn Valdimarsson
AÐALRITSTJÓRI: Óli Björn Kárason
AÐSTOÐARRÍTSTJÓRI: Jónas Haraldsson
DV: Skaftahllð 24,105 Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Rltstjórn: 550
5020 - AÐRAR DEILDIR: 550 5749
Ritstjóm: ritstjorn@dvJs - Auglýsingar. auglys-
ingar@dv.is. - Drelfing: dreifing@dv.is
Akureyri: Hafnarstræti 94, sími: 462 5000,
fax: 462 5001
Setning og umbrot Útgáfufálagið DV ehf.
Plötugerð og prentun: Árvakur hf.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í
stafrænu formi og í gagnabönkum án endur-
gjalds. DV greiðir ekki viömælendum fyrir viðtöl
við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim.
Efni blaðsins
Ungir ránsmenn ákærðir
- frétt bls. 4
Mínútúrnar sem
breyttu heiminum
- Fréttir bls. 10-11 og 12-13
Hefnukjöt vinsælt
-frétt bls. 14
KR í úrslit?
- DV Sport bls. 36
Hundurinn át
föisku tennurnar
George Rijke, 73 ára S.-Afríku-
maður á eftirlaunum, uppgötvaði
sér til mikillar skelfingar á sunnu-
dagsmorguninn að hundurinn
hans hafði étið bæði fölsku tenn-
urnar hans og heyrnartækið. Ekki
nóg með það því að húfan hans
var líka horfrn, skómir, axlabönd-
in og eitthvað af fötunum hans.
Hundurinn hans, Jakkal, er
reyndar haldinn þeirri áráttu að
þurfa alltaf að vera að naga eitt-
hvað en aldrei áður lagt sér per-
sónulega muni Rijkes til munns.
Rijkes gamli fann helminginn af
neðri gómnum undir rúminu og
leifarnar af húfunni og hálfétnum
skónum úti í garði. Ekkert hefur
hins vegar spurst til heymartækis-
ins og segir Rijke það bagalegt þar
sem heyrnin sé orðin slæm.
Gengi deCODE styrkist
Ræðir við ríkið
SAMGÖNGUR: Borgarráð hef-
ur samþykkt að óska eftir við-
ræðum við ríkið um leiðir til
að fjármagna og tryggja fram-
gang þeirra brýnu verkefna
sem framundan eru í sam-
göngumálum höfuðborgar-
svæðisins. Fagnar borgarráð
áhuga sem ráðherrar hafa að
undanförnu sýnt fjármögnun
mikilvægra samgöngumann-
virkja á höfuðborgarsvæðinu.
Nýlega samþykkti borgarráð
að taka á öllum þáttum sam-
göngumála borgarinnar - um-
ferðar- og gatnamálum, al-
menningssamgöngum, um-
ferð gangandi og hjólandi.
Forsenda þeirra séfjármögn-
un þessara verkefna og þess
vegna verði farið í fyrrnefndar
viðræður við ríkið.
BATI: Hlutabréf í deCODE
genetics Inc. héldu áfram
að stíga í gær og eru nú að
nálgast svipað gengi og í
maí. Við lokun markaða í
gær var hluturinn skráður
á 3,71 dollarog hafði þá
hækkað um 4,51% frá deg-
inum áður. Var þetta í við-
skiptum með 337.294
hluti, en hæst fór gengið
innan dagsins í 3,75 doll-
ara á hlut. Er þetta mun
betri staða en á sama tíma
í fyrra þegar gengið var
um 2,2 dollarar og hrapaði
síðan í 1,6 dollara á hlut
undir lok september.
Tveir lögreglumenn ákærðir fyrir brot í opinberu starfi í fimm skipti:
Olöglegar handtokur, notk-
un táragass og röng skýrsla
Tveir lögreglumenn í Reykjavík
hafa verið ákærðir fyrir fimm
saknæm brot í starfi. Öðrum
þeirra er gefið að sök að hafa
fjórum sinnum átt þátt í brotun-
um en í það fimmta er hinn m.a.
ákærður fyrir að skrá ranglega
að „mikil múgæsing hafi mynd-
ast á vettvangi" til að réttlæta
að nauðsynlegt hefði verið að
nota úðavopn (mace) til þess að
lögregla kæmist af vettvangi.
Annar lögreglumannanna lýsti
því yfir fyrir dómi í gær að um
300 lögreglumenn biðu niður-
stöðu í þessu dómsmáli - þvf
mætti búast við að fjöldi lög-
reglumanna myndi mæta þegar
réttað yrði með viðeigandi yfir-
heyrslum. Var látið í það skína,
þegar málið var tekið fyrir í gær,
að ekki yrði nægilegt rými fyrir
tilheyrendur í komandi réttar-
höldum sem fara fram þann 7.
október.
„Ofnotkun" táragass
Ríkissaksóknaraembættið hefur
haft mál lögreglumannanna til
rannsóknar undanfarna mánuði en
nú liggur fyrir að þeim eru gefnar
að sök ólöglegar handtökur, röng
skýrslugerð og brot í opinberu
starfi. Yfirlögregluþjónn hjá sýslu-
mannsembættinu í Stykkishólmi sá
um yfirheyrslur.
Einn þriggja brotaþola fer fram á
að lögreglumennirnir tveir greiði
honum 600 þúsund krónur í miska-
bætur. Lögreglumönnunum var
Þar hafi hann skráð að
mikil múgæsing hafi
myndast á vettvangi,
ástandið verið mjög
eldfimt og að notkun
úðavopns hafi verið
nauðsynleg til að lög-
regla kæmist af vett-
vangi án þess að til
frekari átaka kæmi.
gert að víkja úr starfi eftir að ákveð-
ið var að opinber rannsókn færi
fram.
Fyrsta meint brot átti sér stað
þegar annar lögreglumannanna -
sá sem oftar er ákærður - var
kvaddur á veitingastaðinn Nonna-
bita í Hafnarstræti 18 aðfaranótt
laugardagsins 8. mars. Þar gefur
ríkissaksóknari honum einfaldlega
að sök að hafa fært 23 ára karlmann
á lögreglustöðina við Hverfisgötu
án nægilegra ástæðna eða tilefnis.
Nóttina eftir voru báðir lögreglu-
mennirnir á ferð í Tryggvagötu
framan við veitingastaðinn Café
Amsterdam. Þar eru þeir ákærðir
fyrir að hafa handtekið 32 ára karl-
mann og fært hann án nægilegra
ástæðna eða tilefnis á lögreglustöð-
ina.
Eldfimt ástand
Þriðja brotið er með þeim hætti
að þar er öðrum lögreglumannin-
HARKALEGT:Tveir lögreglumenn hafa
verið ákærðir fyrir að handtaka mann fýrir
framan veitingastaðinn Caf'é Amsterdam í
mars síðastliðnum án þess að hafa tilefni
til þess.
um gefin að sök röng skýrslugerð
þar sem fjallað var um handtöku
framangreinds manns fyrir framan
Café Amsterdam. Þar hafi hann
skráð að mikil múgæsing hafi
myndast á vettvangi, ástandið verið
mjög eldfimt og að notkun úða-
vopns hafi verið nauðsynleg til að
lögregla kæmist af vettvangi án
þess að til frekari átaka kæmi.
í fjórða lagi ákærir ríkissaksókn-
ari annan lögreglumanninn fyrir
brot í opinberu starfi með því að
hafa notað úðavopnið í tilgreint
skipti - notað það gegn 31 árs karl-
manni og það án nægilegra
ástæðna eða tilefnis.
Að síðustu er sama lögreglu-
manni gefið að sök að hafa lýst
ranglega forsendum þess að úða-
vopnið var notað. Hann hefði skráð
í skýrsluna að múgæsing hefði
brotist út eftir handtökuna við Cáfé
jAmsterdam. Múgurinn hefði verið
um og yfir 10 manns og að maður-
inn sem varð fyrir táragasúðanum
úr brúsa lögreglumannsins hefði
ætlað að ráðast að lögreglubíl
þeirra félaga og með því móti ætlað
að fá múginn með sér.
ottar@dv.is
Luo Gan naut friðhelgi, segir ríkissaksóknari:
Kom hingað í opinberum er-
indagjörðum, segir ráðuneytið
Ríkissaksóknari komst í gær að
þeirri niðurstöðu að Luo Gan,
yfirmaður öryggismála í Kína,
nyti friðhelgi hér á landi og því
væri ekki tilefni til að kanna
nánar efnisatriði í kæru sem
Ragnar Aðalsteinsson lagði
fram fyrir hönd kínverskra um-
bjóðenda sinna.
Ríkissaksóknari vísar til þess að
Gan hafi verið hér í opinberri heim-
sókn og njóti því ffiðhelgi samkvæmt
alþjóðasamningum. Þetta hefur vak-
ið spurningar, þar sem Gan var ekki
hér í boði íslenskra stjómvalda eins
og til dæmis kollegar hans Li Peng og
Jian Zemin á sínum tíma.
Gunnar Snorri Gunnarsson, ráðu-
neytisstjóri í utanríkisráðuneytinu,
segir að Gan hafi verið hér sem gest-
ur. „Þeir [Kfnverjarj hafa samband við
íslensk stjórnvöld í gegnum utanríkis-
ráðuneytið og segja að þessi háttsetti
maður í Kína sé á leið til Finnlands og
hafi áhuga á að koma til Islands og
hitta íslenska ráðamenn. Þannig að
það er ljóst að hann er hér í opinber-
um erindagjörðum og er þá hér sem
gestur. Hann er ekki hér sem einka-
aðili heldur kynnir sig á vegum kín-
verskra stjórnvalda og er að sinna hér
athugun á ríkjum sem hann telur
áhugaverð."
í kæmnni sem Ragnar Aðalsteins-
son lagði fram fór hann fram á að
krafist yrði gæsíuvarðhalds yfir Gan
eða hann yrði settur í farbann á
meðan kannað yrði hvort ástæða
væri til að ákæra hann fyrir að bera
ábyrgð á pyntingum í Kína. í
kæmnni var meðal annars vísað í al-
þjóðasamninga um bann við pynt-
ingum sem Island hefur fest T al-
menn hegningarlög. Taldi Ragnar
ljóst að lögin kvæðu á um lögsögu ís-
lenskra dómstóla yfir mönnum óháð
þjóðerni þeirra og því hvar glæpirnir
vom framdir.
í almennum hegningarlögum eru
talin upp ýmis brot sem refsa skuli
fyrir samkvæmt íslenskum hegning-
arlögum óháð því hver framdi þau
og þótt þau séu framin utan íslenska
ríkisins. Brot gegn alþjóðlegum
samningi um bann gegn pyntingum
em þar á meðal en þó segir að mál
vegna þeirra skuli aðeins höfða eftir
fyrirskipun dómsmálaráðherra.
olafur@dv.is