Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.2003, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIK MIÐVIKUDAGUR 10. SEPTEMBER 2003
Fundur LÍÚ og sjávarútvegsnefndar að frumkvæði nefndarinnar
Tveir þingmenn í sjávarútvegs-
nefnd, fulltrúar Samfylkingar og
Frjálslynda flokksins, hafa gagn-
rýnt fund nefndarinnar með LÍÚ
og heimsókn í sjávarútvegsfyrir-
tæki, m.a. á Hornafirði. Þeir segja
gagnrýnisvert að ekki skuli rætt
við smábátasjómenn, sjómenn
eða fiskvinnslufólk og segja m.a.
að engu líkara sé en að dagskrá-
in sé skipulögð á skrifstofu L(Ú.
Friðrik Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri LÍÚ, segir það fjarri
öllu lagi. LlÚ haldi alltaf einn
stjórnarfund á ári úti á lands-
byggðinni. f fyrra hafi þeir verið
á Hellissandi en nú á Hornafirði.
Fyrir löngu hafi verið svo ákveð-
ið eftir samtal við formann sjáv-
arútvegsnefndar að sjávarút-
vegsnefnd mundi hitta stjórnar-
menn LlÚ í tengslum við stjórn-
arfundinn, ekkert sé eðlilegra né
sjálfsagðara. Friðrik segir að
gagnrýni Magnúsar Þórs Haf-
steinssonar og Jóhanns Ársæls-
sonar komi ekki á óvart, þeir fari
sífellt með tilhæfulausar stað-
hæfingar svo þetta upphlaup
þeirra komi síst á óvart. Ekkert sé
eðlilegra en að hitta forystu-
menn útgerða þegar rætt sé um
sjávarútvegsmál á Islandi.
Andlit hulin, stúlku hald-
ið og maður lokaður inni
Tveir Reykvíkingar, 42 og 23
ára, hafa verið ákærðir fyrir rán
framin 19. og 22. nóvember
2002. f bæði skiptin sýndu þeir
af sér ógnandi framkomu - ým-
ist lokuðu fólk inni, huldu and-
BRIDGET
4J0NES
&armi
tðUOl
áfalls
Nýjar kiljur í nsstu verslun
dyrðlxgt
fJOLDAS^t-rSMOHOj
lit sitt eða héldu afgreiðslufólki
meðan þeir voru að ræna pen-
ingum.
Fyrra ránið átti sér stað þriðju-
dagskvöldið 19. nóvember í bens-
ínstöð Olís við Skúlagötu. Þar voru
maður og kona við afgreiðslu. Eldri
ránsmaðurinn lokaði þá manninn
inni á lager bensínstöðvarinnar en
sá yngri veittist að konunni. Var
hann með andlitið hulið og skipaði
henni að opna peningakassa.
Hrifsaði hann úr honum 22.500
krónur áður en mennirnir tveir
höfðu sig á brott.
Síðari atburðurinn átti sér stað
að kvöldi föstudagsins 22. nóvem-
ber í versluninni 11-11. Ekki færðu
ræningjarnir sig þó langt því að sú
verslun er einnig við Skúlagötu, rétt
hjá Olís. Þar voru tvær stúlkur við
afgreiðslu. Eldri maðurinn veittist
Síðarí atburðurínn átti
sérstað að kvöldi
föstudagsins 22. nóv-
emberí versluninni 11-
11. Ræningjarnir færðu
sig þó ekki langt því að
sú verslun er einnig við
Skúlagötu, rétt hjá Olís.
þá að annarri stúlkunni og hélt
henni meðan sá yngri veittist að
hinni stúlkunni. Skipaði hann
henni að opna peningakassa versl-
unarinnar. Við svo búið hrifsaði
hann úr honum 113 þúsund krón-
ur. Slepptu þeir síðan stúlkunum
og kömu sér í burtu. Báðir menn-
irnir huldu andlit sitt, segir í ákæru
ríkissaksóknara.
Meðan ránsmálin voru í meðferð
hjá lögreglu og ákæruvaldi var
yngri maðurinn handtekinn með
tæp 10 grömm af amfetamíni í fór-
um sfnum. Er honum í ránsmálinu
einnig gefið að sök að hafa verið
með efnin í fórum sínum en hann
var þá farþegi í bfl á mótum Háa-
leitisbrautar og Fellsmúla.
Kaupás og Olís fara fram á sam-
tals 135 þúsund krónur í bætur frá
ræningjunum tveimur. ottar@dv.is
Þungaskattsfrumvarp
lagt fram í ríkisstjórn
Geir H. Haarde fjármálaráð-
herra lagði fram á ríkisstjórnar-
fundi í gær frumvarp til laga um
olíugjald, kílómetragjald og
fleira.
Samkvæmt heimildum DV er
það að mestu samhljóða frumvarpi
sem lagt var fram í fyrra en fékk
ekki afgreiðslu. Lítils háttar lagfær-
ingar hafa þó verið gerðar á því í
samræmi við athugasemdir sem
bornar hafa verið fram af hags-
munaaðilum.
í frumvarpi ríkisstjórnarinnar,
sem Geir H. Haarde fjármálaráð-
herra lagði fram um olíugjald og
kilómetragjald þann 30. apríl 2002,
var gert ráð fyrir að olíugjald yrði
36,50 krónur á lítra og kæmi í stað
núverandi innheimtukerfis þunga-
skatts. Það er miðað við að verð á
olíu frá dælu yrði nálægt 76,60
krónum frá dælu f dag í stað 40,10
króna.
Fleiri gjaldaliðir koma þar líka til
viðbótar og út frá því gerir FÍB ráð
fyrir að verðið á dísilolíulítra yrði í
dag 95,40 krónur miðað við fulla
þjónustu.
ítarlega hefur verið ijallað um
þessi mál í DV að undanförnu.
Samkvæmt lauslegum útreikningi
FÍB og samanburði á eldsneyt-
iseyðslu á VW Passat-bensínbíl
annars vegar og Passat-dísilbíl hins
vegar geta almennir bíleigendur
sparað umtalsverða fjármuni ef
frumvarpið verður að lögum. Elds-
neytiskostnaður á bensínbílnum á
hverja 20 þúsund kílómetra er
230.230 krónur en dísilbílseigand-
inn væri þá að borga 148.824 krón-
ur fyrir sömu vegalengd. Rétt er að
tíðari skipta á olíusíum og öðru við-
haldi á dísilbílum. hkr@dv.is
Geir H. Haarde fjármálaráðherra.
taka fram að einhver aukakostnað-
ur fellur þó til að mati FÍB vegna