Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.2003, Qupperneq 9
MIÐVIKUDAGUR 10. SEPTEMBER 2003 FRÉTTIR 9
'Sí.
Ráðstefna
VÍSINDI: Alþjóðleg ráðstefna um
gildi vísinda- og tæknigarða fyrir
atvinnuuppbyggingu og nýsköp-
un verður haldin hér á landi dag-
ana 11. og 12. september. Fjöl-
margir sérfræðingar á þessu sviði
eru þátttakendur í ráðstefnunni
en að henni standa Iðntækni-
stofnun, Aflvaki, Nýherji, Háskóli
íslands, Frumkvöðlasetur Norður-
lands og Nýsköpunarsjóður.
Gremja yfir úthlutun ostkvóta
OSTAR: Mikil óánægja er innan
dagvöruverslunarinnar með
fyrirkomulag á innflutningi og
sölu osta.Telja margirað þeir
búi við skerta samkeppnis-
stöðu gagnvart Osta- og smjör-
sölunni sem hefur um nokkurt
skeið fengið langstærstan
hluta tollakvóta til innflutnings
á ostum. Nú síðast veitti land-
búnaðarráðuneytið Osta- og
smjörsölunni um 35 prósent
þess tollakvóta sem í boði var
fyrir tímabilið 2003-2004. Því
sem eftir stóð var dreift á sjö
innflutningsaðila. Osta- og
smjörsalan er einkasöluaðili á
öllum innlendum ostum. Þykir
því fulllangt gengið í einokun-
artilburðum að fyrirtækið hafi
einnig keypt upp stærstan
hluta tollakvóta á ostum.
Sameining
VIÐSKIPTI: Nýja Kaffibrennslan
ehf. á Akureyri, Akra ehf. smjör-
líkis- og safagerð og Búbót ehf.
sultu- og sósugerð á Húsavík
hafa sameinað 100% eignar-
hald félaganna undir merkjum
Akra ehf.Tók sameiningin gildi
1. september. Verður þarna til
ein stærsta fýrirtækjasamstæða
landsins í matvælaiðnaði með
um 400 milljóna króna ársveltu.
900 milljóna fjárfesting í Stoke
Hlutur Lífeyríssjóðs Austuríands 12,4% af66% hlut íslendinga
í bók um Stoke, þar sem rakin er
innkoma og eignarhald íslend-
inga á félaginu, segir að yfirtak-
an hafi átt sér stað 15. nóvem-
ber 1999 með kaupum á 66% í
félaginu undir forystu Kaup-
þings.
Hugmyndin að kaupunum hafi
komið frá Guðjóni Þórðarsyni sem
hafi sett sig í samband við Kaup-
þing. Eignarhaldsfélagið Stoke City
Holding S.A. varð síðan til og var
skráð í Lúxemborg. f stjóm þess
sátu þá Magnús Kristinsson í Vest-
Mótmæla
Laxness-
þætti
Hannesar
Hólmsteins
„Fullkomlega óeðlilegt er að
Ríkisútvarpið taki afstöðu í deil-
um eða samkeppni sem fyrirsjá-
anleg er fyrir jólin með sýningu
sjónvarpsþáttar Hannesar
Hólmsteins Gissurarsonar um
Halldór Laxness."
Fulltrúar Sam-
fylkingar í út-
varpsráði létu
bóka þetta á fundi
þess í gær. Sjón-
varpið mun sýna
þátt Hannesar um
nóbelsskáldið tíu
; dögum fyrir jól.
I bókun fulltrúa
Samfylkingar segir
að fyrir jól séu
væntanlegar tvær
útgáfúr af ævisögu Halldórs Laxness.
„Miðað við þá umræðu sem þegar
hefur átt sér stað í fjölmiðlum vegna
útkomu bókanna má vænta harðrar
baráttu, bæði milli höfundanna og
forlaganna, um sölu bókanna," segir
í bókuninni. Segir enn fremur að
Ríkisútvarpið sé að blanda sér með
beinum hætti í samkeppni jólabóka-
flóðsins.
„Þetta er Ríkisútvarpinu ekki sam-
boðið og ljóst að stofnunin mun bíða
verulegan álitshnekki verði þetta að
veruleika," segir í bókunni. Þar óska
fulltrúarnir eftir að þetta verði „leið-
rétt hið fyrsta og þáttur viðkomandi
rithöfundar í það minnsta sýndur á
I öðrum tíma en hápunkti samkeppn-
innar fyrir jólin," eins og það er orð-
® að.
Útvarpsstjóri og framkvæmda-
stjóri Sjónvarpsins kváðust á fundin-
um í gær mundu svara bókun þessari
á næsta fundi útvarpsráðs. Fulltrúar
stjómarflokkanna í útvarpsráði létu
bóka að dagskrárrammi Sjónvarps-
ins fyrir veturinn hefði verið ákveð-
inn fyrir nokkru. Á síðasta fundi
hefði orðið umræða um heimilda-
mynd þessa og þá hefðu komið fram
skýringar Rúnars Gunnarssonar,
deildarstjóra innlendrar dagskrár-
deildar, á sýningu hennar.
Hannes Hólm-
stelnn Glssurar-
son.
mannaeyjum, eigandi Bergs-Hug-
ins ehf., Hafliði Þórsson, sem rak
Njörð hf. í Sandgerði, og Júlíus
Bjarnason, forstjóri Stillingar hf. í
Reykjavík. I varastjórn félagsins
sátu Þorsteinn Vilhelmsson, sem
var löngum kenndur við Samherja á
Akureyri, og Þorvaldur Jónsson
skipamiðlari. Fyrir hönd eignar-
haldsfélagsins tóku þrír íslendingar
sæti í stjórn Stoke. Það vom Gunn-
ar Þór Gíslason, framkvæmdastjóri
Mata ehf., sem var stjórnarformað-
ur, Elfar Aðalsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Fiskimiða ehf., ogÁs-
geir Sigurvinsson, fótboltakappi úr
Vestmannaeyjum. Tveir fyrmm
hæstráðendur í Stoke sátu þá einnig
í stjórninni með æviráðingu, þeir
Keith Humphreys og Peter Coats.
900 milljóna ævintýri
Þar er einnig greint frá hernaðar-
áætlun íslensku fjárfestanna. Við
kaupin hafi þeir lagt fram átta millj-
ónir punda, eða níu hundmð millj-
ónir króna á þávirði. Fjórar milljón-
ir punda (450 milljónir króna) vom
greiddar fyrir 66% Jilut í félaginu og
jafnmikið var lánað til þess. Það lán
var veitt gegn þeirri samþykkt að
hægt væri að breyta láninu í hlutafé
Fyrír hönd eignarhalds-
félagsins tóku þrír ís-
lendingar sæti í stjórn
Stoke.
síðar „sem auðvitað verður gert ef
liðið kemst upp í 1. deild". - Hlutur
Lífeyrissjóðs Austurlands upp á 56
milljónir króna var þvf um 12,4% af
66% hlut íslendinga í Stoke.
Draumurinn um að koma liðinu í
fyrstu deild var undirrót kaupanna
á Stoke. Markaðsverðmæti félags-
ins var talið myndu tvöfaldast við
það eitt að komast upp í 1. deild „og
jafnvel þrefaldast eftir tveggja til
þriggja ára vem þar, svo fremi að
ekkert óþarfa bmðl eigi sér stað og
félagið skili hagnaði". - Áhorfend-
um myndi fjölga og sjónvarpstekjur
margfaldast miðað við það sem var
í 2. deild; fæm úr 400 þúsund pund-
um á ári í 1,2 milljónir punda. Þessi
fallega mynd hmndi hins vegar
þegar ljóst varð að sjónvarpsleyfts-
hafinn var gjaldþrota. hkr@dv.i%
Fagfólkið velur
alma
einnota hanska
þar sem gæði, mýkt
og ending fer saman.
Nitrile - Latex - Vinyl
NITRILE BLÁIR PÚÐURLAUSJR
KiTHIll bl\K POWOCRf N£t
___ LATEX FREÉ
BLUEBERRY
' ’.
C€ LATEX FREE
■VINYL BLÁIR PÚDRAÐIR
' Í6ó ....
' t- MAJU ■
Verndum hendur - gætum hreinlætis
n/i ILIDCD/^
UMNtStzKÍJ EHF
Skúlagötu 61,105 Reykjavík - Sími: 562 6470 - Fax: 562 6471 - Netfang: danberg@heimsnet.is