Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.2003, Síða 10
70 FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 10. SEPTEMBER 2003
Á morgun eru liðin tvö ár frá mestu hryðjuverkaárás sögunnar:
' ■
VSjgfr
Mínúturnar sem
breyttu heimsmyndinni
HEIMSUÓS
OddurÓlafsson
oddur@dv.is
Að morgni 11. september 2001
breyttist heimsmyndin í einu
vetfangi. Flogið var á Tvíbura-
turnana í New York og þeir jafn-
aðir við jörðu og þriðju flugvél-
inni var beint að Pentagon fyrir
utan Washington, en þar eru
hjarta og heili bandaríska her-
veldisins. Þetta var í fyrsta sinn
sem bandariskar borgir urðu
fyrir stórfelldum árásum með
miklu mannfalli. Þarna voru
hryðjuverkamenn að verki en
erfitt var að svara í sömu mynt
því að það voru samtök en ekki
ríki sem stóðu að baki árásinni.
Þá sagði risaveldið öllum
hryðjuverkum stríð á hendur og
hefur lagt undir sig tvö fjarlæg
lönd en hvergi sér fyrir endann
á hryðjuverkastarfsemi og
stríðið, sem hófst með vel
skipulögðum árásum á helg vé
Bandaríkjamanna, breiðist út
með ófyrirsjáanlegum afleið-
ingum.
Morguninn 11. september 2001
rann upp bjartur dagur og fagur á
austurströnd Bandaríkjanna. Svo
var það kl. 8.40 að staðartíma að yf-
irstjórn loftvarna fékk tilkynningu
um að farþegaþotu hefði verið
rænt. Þrem mínútum síðar barst
tilkynning um að annarri þotu, sem
var nýlögð af stað frá Boston, hefði
einnig verið rænt. Tvær F-15 orr-
ustuþotur voru sendar á loft frá
hervelli norðan New York.
Um það bil sem morgunninn var
að hefjast á Manhattan flaug far-
þegaþota á norðurturn Miðstöðvar
heimsviðskipta. Þá var klukkan
8.46. Fjölda sjónvarpsvéla var beint
að brennandi turninum kl. 9.03
þegar önnur farþegaþota flaug rak-
leitt inn í syðri turninn og sprakk
þar. Sú þota var nýlögð af stað frá
Boston og var í áætlunarflugi til Los
Angeles.
Báðum vélunum var rænt rétt eftir
flugtak og voru geymar þeirra fullir
af eldsneyti þegar þeim var flogið á
turnana sem voru hinir hæstu í
New York og tákn hins mikla við-
skiptaveldis sem stjórnað er frá
Manhattan. Að öllu jöfnu voru
turnarnir vinnustaðir 50 þúsund
manna en nær 3 þúsund fórust í
árásunum.
Þegar síðari flugvélinni var beint að
syðri turninum varð öllum ljóst að
ekki var um slys að ræða. Árásirnar
voru vel skipulagðar sjálfsmorðs-
aðgerðir og var ætlunin að valda
eins miklu tjóni og mannfalli og
frekast var unnt. Þoturnar sprungu
báðar inni í byggingunum og log-
andi eldsneytið flæddi um margar
hæðir mestu mannvirkja á Man-
hattan.
Klukkan 9.10 var Bush forseti að
lesa upp fyrir börn í skóla í Flórída
þegar starfsmannastjóri hans kom
inn og skýrði frá árásunum á Mið-
stöð heimsviðskipta. Tíu mínútum
síðar tilkynnti FBI að verið væri að
rannsaka tilkynningar um flugrán.
Þegar klukkan var orðin 9.29 voru
björgunarsveitir og slökkvilið kom-
En hver var óvinurinn?
Það er vandamál sem
risaveldið er enn að
ráða fram úr, réttum
tveim árum eftir
örlagadaginn
11. september 2001.
ið að Tvíburaturnunum en efri
hæðirnar loguðu. Var fjöldi manns
lokaður inni og var engin leið að ná
til þess fólks sem beið í örvæntingu
úti í gluggum. Stukku margir út í
opinn dauðann en aðrir biðu
björgunar sem aldrei barst til efri
hæðanna og krömdust þúsundir til
dauða þegar burðarvirki 106 hæða
bygginganna gáfu sig vegna ofsa-
hita. Hæstu byggingar Ameríku
hrundu eins og spilaborgir á
nokkrum sekúndum.
Harmleikur hefur átt sér stað
Klukkan 9.30 ávarpaði Bush for-
seti þjóðina og tilkynnti að mikill
harmleikur ætti sér stað. Tvær flug-
vélar hefðu flogið inn í Miðstöð
heimsviðskiptanna og væri greini-
lega um að ræða hryðjuverkaárás á
landið.
Nákvæmlega tíu mínútum síðar
var farþegarflugvél flogið á Penta-
gon, miðstöð bandaríska hersins.
Þeirri vél var rænt rétt eftir flugtak
frá Washington og var hún á leið til
Los Angeles með fulla eldsneytis-
geyma. Ein álma hinnar miklu
byggingar varð að logandi víti.
F-16 orrustuþotur voru enn í 100
mflna ijarlægð frá Washington og
Pentagon var óvarið fyrir árás sem
þessari. Forsetinn gaf út fyrirskip-
un um að hver sú flugvél sem ógn-
aði höfuðborginni og stofnunum
sem þar eru skyldi umsvifalaust
skotin niður.
Klukkan 9.45 var Hvíta húsið og
þinghúsið rýmt af ótta við frekari
árásir. Fimm mínútum síðar var
öllum flugvöllum landsins lokað og
flugvélum skipað að lenda og hafði
flugherinn einn leyfi til að fljúga í
bandarískri lofthelgi.
Klukkan 9.58 nam starfsmaður
neyðarlínu í Pennsylvaníu-rfki far-
sfmahringingu frá farþega í áætl-
unarvél á leið frá Newark í New
Jersey til San Francisco þar sem
endurtekin voru tvívegis skilaboð
um að flugræningjar hefðu náð
þotunni á sitt vald. Nokkrir farþeg-
ar í sömu vél hringdu í ættingja
sína og tilkynntu hvernig komið
væri en sögðu að til stæði að gera
tilraun tii að yfirbuga ræningjana.
Þegar klukkan var orðin 10.03
hrapaði flugvélin í skóglendi suður
af borginni Pittsburgh og fórust all-
ir sem með henni voru. Álitið er að
hlutverk hryðjuverkamannanna
sem rændu þeirri vél hafi verið að
fljúga henni á Hvíta húsið í Wash-
ington eða þinghúsið. En áður en
það gat orðið réðust farþegar á
flugræningjana með fyrrgreindum
afleiðingum.
Klukkan 10.05 hrundi syðri tum
Miðstöðvar heimsverslunarinnar
skyndilega og mikið ryk- og reykj-
arský lagðist yfir Manhattan. Fjöldi
björgunarmanna og slökkviliðs-
manna fórst og allir þeir sem vom
innilokaðir í byggingunni.
Enn liðu 24 mínútur þar til nyrðri
turninn hmndi einnig til gmnna og
rykmökkurinn þakti meginhluta
miðborgarinnar. Mannfallið var
ógnvekjandi.
Breyttur heimur
Þegar síðari turninn hmndi var
aðeins liðin ein klukkustund og 43
mínútur frá því árásin hófst. Hún
var sýnd í beinni útsendingu um
allan heim því að sjónvarpsmynda-
vélar og fréttaskýrendur vom
komnir á staðinn skömmu eftir að
fyrsta flugvélin lenti á hæstu bygg-
ingu Bandaríkjanna. Þótt flestir
þeirra sæju og heyrðu hvað fram