Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.2003, Síða 12
12 FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 10. SEPTEMBER 2003
Á morgun eru liðin tvö ár frá mestu hryðjuverkaárás sögunnar:
Rosalegt
að sjá turn-
ana loga
FORSlÐUEFNI UM ALLAN HEIM: Árásirnar áTvíburaturnana í New York voru forsíðuefni
allra dagblaða heims. Hér má sjá forsíður DV12., 13., og 14. september 2001. Sú fyrsta
endurspeglar hryllingin, önnur hefndarhuginn, sem gagntók marga Bandarlkjamenn með
Geroge Bush í broddi fylkingar, og sú þriðja sorgina þegar alvara þessa atburðar fór að ná
tökum á fólki, ekki síst þeim sem misstu aettingja og vini í hamförunum.
Einar Örn Ólafsson, starfsmað-
ur íslandsbanka, var nýbyrjað-
ur í námi í New York þegar
árásin var gerð á Tvíburaturn-
ana að morgni 11. september
2001. Hann man atburði þessa
dags eins og þeir hefðu gerst í
gær en þeir eru engu að síðu
svolítið óraunverulegir enda
Einar staddur á framandi stað
og þekkti engan í stórborginni.
„Rétt áður en skólinn byrjaði
þennan morgun bárust fréttir af
því að flugvél hefði flogið á annan
turnanna. Fólk var frekar rólegt,
hélt að þetta væri bara lítil rella
enda fréttir afar óljósar og ekkert
sjónvarp nálægt. Kennslustundin
hófst klukkan níu en hafði ekki
staðið nema í um tíu til fimmtán
mínútur þegar fréttíst að flugvél
hefði flogið inn í hinn turninn. Þá
gerði fólk sér grein fyrir að eitt-
hvað afar undarlegt væri á seyði.
Kennslustundinni var reyndar að
ljúka en fólk var órólegt og margir
fóru út áður en henni lauk," sagði
Einar þegar DV ræddi við hann í
gær.
Kennslustundin hófst
klukkan níu en hafði
ekki staðið nema í um
tíu til fimmtán mínútur
þegar fréttist að flug-
vél hefði flogið inn í
hinn turninn. Þá gerði
fólk sér grein fyrir að
eitthvað afar undar-
legt væri á seyði.
Einar stundaði mastersnám í
viðskiptum við NYU-skólann sem
er norðar á Manhattan en turnarn-
ir en þó tiltölulega nálægt. Hann
segir að þegar hann hafi komið út
á torgið við skólann hafi efri hæðir
turnanna staðið í ljósum logum og
mikinn reykjarmökk lagt upp af
þeim eins og fjölmargar myndir
frá þessum atburðum sýna.
„Ég fór inn og hringdi í mína
nánustu, konuna, sem var heima í
SPECIAL EDmON
1a N r * A N c i # c
\ SChelxammcr*
UPPHRÓPANIR: Á forsiðum blaða um allan
heim mátti sjá myndir af árásunum á
turnana tvo og gjarnan upphrópanir eins
og þá hér að ofan úrThe Examiner sem
getur útlagst svo: „Helvítin ykkar!"
Efst er forsíða AUSA Today í sorgarbúningi
sem segir árásina jafngilda stríði.
íbúðinni okkar enn norðar á Man-
hattan, og móður mína til að láta
vita að ekkert amaði að mér. Þegar
ég kom út aftur var annar turninn
BASTARDS!
IA CHANGED AMERiCA I
■'Æú
tt _« , S
'
NÆRRIATBURÐUNUM: Einar Örn Ólafsson, nú starfsmaður [slandsbanka, var nýbyrjaður í námi í New York þegar árásin var gerð á Tví-
buraturnana að morgni 11. september2001.
ÁHRIFAMIKIÐ: Franska blaðið Liberation lét alla útsíðu blaðsins, forsíðu og baksíðu, undir áhrifamikla mynd sem sýnir vel stærðargráðu
hryðjuverkanna.
hruninn (kl. 10.05). Hinn turninn
hrundi skömmu síðar (kl. 10.05).
Það var rosalegt að sjá turnana
loga en um leið ofboðslega skrýtið.
Fréttir voru í fyrstu á reiki um hvað
væri að gerast og það var ekki fyrr
en við fórum inn á bar í nágrenn-
inu og sáum fréttir CNN að það
rann almennilega upp fyrir okkur
hvað væri að gerast."
Götur fullar af fólki
Milljónir mana stunda vinnu
sína á Manhattan. Einar Örn segir
að öll hús hafi fljótlega tæmst.
Göturnar fylltust af gangandi fólki
en nær engin bílaumferð var á göt-
um þar sem öllum akstursleiðum
til Manhattan hafði verið lokað.
„Fólk gekk um í von um að
rekast á vini eða ættingja. Barir og
veitingahús fylltust og þar fylgdist
fólk agndofa með fréttum af
hryðjuverkunum. Ég fór niður eft-
ir, nær turnunum, en kom fljótlega
að hindrunum sem settar höfðu
verið upp."
Skóli Éinars var á svæði sem var
lokað vegna atburðanna og skól-
inn var ekki starfræktur í viku eftir
11. september. Höfuðstöðvar
Federal Express fengu á meðan af-
not af skólanum fyrir aðalstöðvar
sínar. Einar mætti reyndar í skól-
ann daginn eftir en hefði ekki
fengið að fara inn á svæðið nema
af þvf að hann var með skólaskír-
teini á sér.
„Daginn eftir og næstu daga
ríkti afar sérkennilegt andrúmsloft
í borginni en henni var lokað í
nokkra daga. Fólk var mjög slegið"
Skólinn var við hliðina
Margar sögur eru til um fólk sem
starfaði í turnunum en slapp af
einhverri ástæðu við þessar hörm-
ungar. Þannig er eftirminnileg
sagan af starfsmanni á efri hæðum
annars turnanna sem hafði fengið
forljóta skyrtu í afmælisgjöf frá
móður sinni daginn áður og fór í
búðina að skila henni áður en
hann mætti í vinnuna. Hann var