Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.2003, Blaðsíða 14
74 FKÉmt MIÐVIKUDAGUR 10. SEPTEMBER 2003
Geðheilsa aldraðra landsmanna til umræðu
Breiðholtsdagurinn
Seldur
SJÁVARÚTVEGUR: Hrað-
frystistöðvar Þórshafnar hef-
ur keypt fjölveiðiskipið Þor-
stein EA af Samherja. Fylgir
1,25 prósenta aflahlutdeild í
loðnu, 2 prósenta hlutdeild í
kolmunna og 1,1 prósents
hlutdeild í íslenskri síld.
Söluverð er 1.360 milljónir
króna.Ý Skipið verður afhent
30. nóvember.
GEÐHEILSA: Geðrækt efnir til
þemamánaðar um geðheilsu eldri
landsmanna í samvinnu við Félag
eldri borgara í Reykjavík, Félags-
þjónustuna, Félagsstarf í Gerðu-
bergi, Geðhjálp, Landlæknisem-
bættið, Landssamband eldri borg-
ara, Rauða kross íslands,Trygg-
ingastofnun, þjóðkirkjuna og Öldr-
unarsvið LSH. Margir einangrast
mikið þegar þeir koma á efri árin
og þá geta fjölmiðlar verið eina
tenging þeirra við samfélagið. Slík
einangrun getur verið skaðleg
heilsunni og því er mikilvægt að
reyna að ná til sem flestra. Mark-
mið þemamánaðarins er að opna
umræðu um geðheilsu eldri lands-
manna og benda m.a. á að þung-
lyndi er ekki eðlilegur fylgikvilli
þess að eldast, hvetja aldraða til að
leita sér viðeigandi aðstoðar við
vanlíðan, hvetja aldraða lands-
menn til að vera virkir í þjóðfélag-
inu og gera sýnilega þá aðstoð og
þau verkefni sem eldri landsmönn-
um stendur til boða, skoða stöðu
aldraðra í íslensku samfélagi og
stuðla að meiri vellíðan fólks á efri
árum. Hádegisverðarfundir, þar
sem fjallað verður um þetta mál-
efni, verða næstu fjóra miðviku-
daga í Grensáskirkju kl. 12-13.
HÁTfÐAHÖLD: Breiðholts-
dagurinn var haldinn hátíð-
legur síðastliðinn föstudag.
Byrjaði dagurinn á kynningu
félagssamtaka úr hverfinu og
(TR á fjölbreyttu félagsstarfi
sínu. Einnig voru skemmtiat-
riði eins og söngur og dans.
Töframaður kom í heimsókn
og hljómsveitir spiluðu. For-
maður hverfaráðs Breiðholts,
Alfreð Þorsteinsson, afhenti
Guðrúnu Jónsdóttur, for-
stöðumanni félagsstarfsins í
Gerðubergi, hvatningarverð-
laun vegna góðs árangurs í
því starfi. Um kvöldið var síð-
an haldinn dansleikur fyrir
hverfisbúa í íþróttahúsi Selja-
skóla sem um 2000 gestir
sóttu. Verður Breiðholtsdag-
urinn haldinn árlega.
Hrefnukjötið rennur enn
út eins og heitar lummur
Tuttugu hrefnur hafa veiðst af
þeim þremur bátum sem
stunda þær á vegum Hafrann-
sóknastofnunar, liðlega helm-
ingur þess fjölda sem fyrirhug-
að er að veiða í vísindaskyni,
eða 38 hrefnur. í gær voru Hall-
dór Sigurðsson (S og Sigurbjörg
ST á sjó en Njörður KÓ hélt á
hrefnuslóðir síðdegis.
í samræmi við rannsóknaráætl-
un hafa verið gerðar mælingar og
sýni tekin til margvíslegra rann-
sókna. Auk athugana á magainni-
haldi og orkubúskap sem tengjast
fæðuvistfræði hrefnu á íslandsmið-
um fer fram umfangsmikil sýna-
taka vegna rannsókna á viðkomu
hrefnustofnsins, erfðafræði,
sníkjudýra- og meinafræði ásamt
rannsóknum á magni lífrænna og
ólífrænna mengunarefna í ýmsum
veíjum hrefnunnar.
Fyrst var hrefnukjötið
boðið ferskt en núna er
einnig boðið upp á
frosið kjöt. Það er
nokkuð misjafnt hversu
mikið kjöt kemur af
hverri skepnu, svona
frá einu upp íþrjú tonn
afkjöti og rengi.
Hrefnukjötið erkeypt af Ferskum
kjötvörum í Reykjavík. Ingimundur
Björgvinsson, verkefnastjóri
Ferskra afurða, segir að kjötið selj-
ist vel, allt seljist jöfnum höndum
svo að eftirspumin hafi ekki bara
verið stundarfyrirbrigði þeirra sem
vildu smakka kjötið rneðan forvitn-
in hafi verið mest vegna nýhafmna
hrefnuveiða.
„Fyrst var hrefnukjötið boðið
ferskt en núna er einnig boðið upp
á frosið kjöt. Það er nokkuð misjafnt
hversu mikið kjöt kemur af hverri
skepnu, svona frá einu upp f þrjú
tonn af kjöti og rengi. Það verða ör-
ugglega engin vandræði að selja allt
kjötið af þessum 38 hrefnum þegar
þær hafa verið veiddar þótt það
seljist ekki allt strax, það geymist vel
frosið. Ekkert af þessu kjöti verður
unnið frekar en rengið verður súrs-
að og verður væntanlega á matar-
diskum landsmanna á þorranum.
Sennilega verður þá eitthvað til af
hvalkjöti," segir Ingimundur Björg-
vinsson. gg@dv.is
Nýjarreglur um farþega til Bandaríkjanna taka gildi 1. október:
Öll vegabréf verða að vera véltæk
BROTTFÖR: Áríðandi er að íslenskir farþegar á leið til Bandaríkjanna eftir 1. október verði sér úti um ný vegabréf með segulrönd. Hafi menn eldri vegabréf verður að fylgja þeim vega-
bréfsáritun til Bandarikjanna.
Farþegar sem hyggjast ferðast til
Bandaríkjanna eftir 1. október
verða að hafa í gildi ný véltæk
vegabréf með segulrönd. Þá
verður lífsýna krafist af farþeg-
um til Bandaríkjanna eftir 26.
október 2004.
Allir útíendingar frá löndum sem
undirgangast svokallað VWP-kerfi
(Visa Waiver Program) og hyggjast
ferðast til Bandaríkjanna eftir 1. okó-
ber verða að hafa í gildi ný vegabréf
sem hægt er að lesa með vélum. Að
öðrum kosti verða farþegar að sækja
um vegabréfsáritun (visa). íslend-
ingar eru þátttakendur í VWP-kerf-
inu þar sem ekki er þörf á að sækja
sérstaklega um vegabréfsáritun. Hér
hafa um nokkurt skeið verið gefin út
véltæk vegabréf með segulrönd með
ýmsum upplýsingum um viðkom-
Eldri vegabréf hafa
ekki slíka segulrönd
og hafi menn ekki
endurnýjað þau þurfa
handhafar þeirra
að vera með sérstaka
vegabréfsáritun
í ferðum sínum til
Bandaríkjanna.
andi. Eldri vegabréf hafa ekki slíka
segulrönd og hafi menn ekki endur-
nýjað þau þurfa handhafar þeirra að
vera með sérstaka vegabréfsáritun í
ferðum sínum til Bandaríkjanna. Að
öðmm kosti geta menn búist við að
vera vísað frá landinu.
Alls eru 27 þátttakendur í Visa
Waiver Program. Farþegar frá þess-
um löndum þurfa ekki vegabréfs-
áritun til Bandaríkjanna en undir-
gangast ströng skilyrði og mega mest
dvelja án vegabréfsáritunar 90 daga í
landinu.
Þessi ríki eru: Andorra, Ástralía,
Austurríki, Belgía, Bretland, Brunei,
Danmörk, Finnland, Frakkland',
Holland, ísland, frland, Ítalía, Japan,
Liechtenstein, Lúxemborg, Mónakó,
Nýja-Sjáland, Noregur, Portúgal,
San Maríno, Singapúr, Slóvenía,
Spánn, Svíþjóð, Sviss og Þýskaland.
Argentína var VWP- þátttakandi frá
1996 til febrúar 2002 þegar ríkið var
tekið út úr kerfinu vegna efnahag-
skreppunnar þar í landi. Ungverja-
land, sem hafði verið þátttakandi í
VWP síðan 1998, var líka tekið úr
kerfinu af efnahagsástæðum 15 apr-
íl 2003.
Auk véltæks vegabréfs verður þess
krafist af farþegum eftir 26. október
2004 að vegabréf þeirra innihaldi líf-
sýni. Ekki liggur enn íyrir af hvaða
toga slík lífssýni eiga að vera en um-
ræður um það eru nú í gangi. Þar að
auki verða VWP-lönd að sýna fram á
að þau búi við öflugt öryggiseftirlit til
að koma í veg fyrir vegabréfasvik.
hkr@dv.is