Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.2003, Page 16
16 Ffltrrifi MIÐVIKUDAGUR 10. SEPTEMBER 2003
Útlönd
Umsjón: Guðlaugur Bergmundsson, Erlingur Kristensson
Netfang: gube@dv.is, erlingur@dv.is
Sími: 550 5829
Giscard ánægður með sig
EVRÓPUSAMBANDHD: Valéry
Giscard d'Estaing, formaður
stjórnarskrárnefndar Evrópu-
sambandsins, telur næsta víst
að kjósendur myndu sam-
þykkja nýja stjórnarskrá ESB ef
kosið yrði um hana nú.
Giscard sagði á fundi með
fréttamönnum í Berlín að
stjórnarskráin nýja hefði verið
vandlega undirbúin og að höf-
undar hennar hefðu haft þarfir
þegnanna efst í huga við
samningu hennar. Frakklands-
forsetinn fyrrverandi var í
Berlín tii að ræða við Gerhard
Schröder Þýskalandskanslara.
Þessari fyrstu stjórnarskrá ESB
er ætlað að hrista upp í stofn-
unum sambandsins sem hafa
verið gagnrýndar fyrir að vera
ósveigjanlegar.
Smitleiðin
SINGAPORE: Stjórnvöld í
Singapore sögðu í morgun að
starfsmaður rannsóknarstofu á
stærsta sjúkrahúsi landsins
hefði sennilega smitast af
bráðalungnabólgu á vinnu-
staðnum. Aðstoðarheilbrigðis-
ráðherrann sagði að um ein-
angrað fyrirbæri væri að ræða.
Tuttugu og fimm manns hafa
verið settir í sóttkví.
Stund hefndarínnar runnin upp fyrir botni Miðjarðarhafs:
13 féllu ísjálfs-
morðsárásum
Að minnsta kosti þrettán ísra-
elskir borgarar létu lífið og
tugir slösuðust í tveimur sjálfs-
morðsárásum í nágrenni Tel
Aviv og í Jerúsalem í gær.
Fyrri árásin var gerð á strætis-
vagnabiðstöð utan við Tsrifin-her-
stöðina í Rishon Letsion-hverfi í út-
jaðri Tel Aviv um klukkan 18 að
staðartíma í gær og fórust þar sjö
ísraelskir hermenn sem biðu eftir
strætisvagni á biðstöðinni auk þess
sem að minnsta kosti þrjátfu slös-
uðust, þar af fimmtán mjög alvar-
lega.
Að sögn sjónarvotts, sem var á
leið yfir götuna á móts við bið-
stöðina þegar sprengjan sprakk,
heyrði hann fólk hrópa „sprengja,
sprengja". „Ég heyrði annan hrópa,
„hryðjuverkaárás" og fólkið kom
hlaupandi yfir götuna. Um leið
sprakk sprengjan sem var gríðar-
lega öflug. Fólkið hrópaði og grét
og þetta var skelfilegt," sagði Ayal
Schneider liðþjálfi, sem var á heim-
leið eftir æfingu á herstöðinni.
Seinni árásin í Jerúsalem
Seinni árásin var gerð á Hillel-
kaffihúsið í þýska hverfínu í Jerú-
salem rétt fyrir miðnætti að staðar-
tíma í gær og sprengdi sjálfsmorðs-
liðinn sig upp fyrir utan kaffihúsið
eftir að öryggisvörður hafði stöðvað
hann við innganginn. Að minnsta
kosti sex manns fórust í sprenging-
unni auk þess sem á annan tug
slösuðust.
Að sögn sjónarvotts, sem fylgdist
með atburðinum, hrópaði sjálfs-
morðsliðinn, „Allahu Akbar“, sem
þýðir „guð er máttugur" rétt áður
en hann sprengdi sig, meðan
öryggisvörður reyndi að ýta honum
frá kaffihúsinu en fjöldi fólks sat
einnig utan við kaffihúsið.
Gideon Cohen, sem vinnur á
nálægum veitingastað, sagði að
sprengingin hefði verið svo öflug
að framhlið kaffihússins hefði
sprungið í tætlur. „Glerbrotin voru
um allt og ég sá fólk hlaupa
hrópandi í allar áttir. Borð og stólar
lágu eins og hráviði um allt og
glerbrotin þöktu gólfið og gang-
stéttina," sagði Gideon.
Hamas lýsa ábyrgð
Vopnaður armur Hamas-sam-
takanna hefur þegar lýst ábyrgð á
báðum árásunum og sagði í yfir-
lýsingu frá samtökunum að tími
hefndarinnar væri runninn upp.
„Það er kominn tími til að þeir
gjaldi glæpa sinna,“ sagði í yfir-
lýsingunni.
Að sögn sjónarvotts,
sem fylgdist með
atburðinum, hrópaði
sjálfsmorðsliðinn,
„Allahu Akbar", sem
þýðir„guð er
máttugur" rétt áður en
hann sprengdi sig,
meðan öryggisvörður
reyndi að ýta honum
frá kaffihúsinu.
Leiðtogar Hamas-samtakanna
lofuðu árásina en ræddu lítið um
hver bæri ábyrgðina. „Árásin, hver
svo sem stóð á bak við hana, er
eðlileg viðbrögð við blóðugum
árásum á fólkið okkar að undan-
förnu. Það hlaut að koma að því,“
sagði Abdel Aziz Rantisi, talsmaður
Hamas, sem slapp naumlega þegar
ísraelskir útsendarar reyndu að
drepa hann fyrr í sumar.
ísraelska útvarpið sagði í morgun
að báðir sjálfsmorðsliðarnir hefðu
verið félagar í Hamas-samtökun-
um og væru frá þorpinu Rantis
vestur af Ramallah á Vesturbakk-
anum.
Avi Pazner, talsmaður ísraelsku
ríkisstjórnarinnar, sagði í morgun í
fjarveru Ariels Sharons, sem er í
opinberri heimsókn í Indlandi,
sagði að samtökin sem stóðu fyrir
árásinni deildu ábyrgðinni með
palestínskum sgórnvöldum því
þau hefðu ekkert gert til þess að
koma í veg fyrir hana. „Við munum
grípa til viðeigandi aðgerða til þess
að stöðva hryðjuverkin, því lofa
ég,“ sagði Pazner.
Annar talsmaður ísraelsku ríkis-
stjórnarinnar, David Seaman, sagði
að ísraelar myndu þrátt fyrir árás-
irnar halda áfram að leita friðar.
„En á sama tíma munum við reyna
að koma í veg fyrir að fólkið okkar
verði rnyrt," sagði Seaman.
Neyðarfundur íTel Aviv
Yfirmenn öryggismála voru kall-
aðir til neyðarfundar í ísraelska
varnarmálaráðuneytinu í Tel Aviv í
morgun til þess að ræða hugsanleg
viðbrögð og búist var við að Sharon
stytti heimsókn sína til Indlands
um einn dag og kæmi heim í dag.
Sharon sagði í viðtali eftir fyrri árás-
ina í gær að hún sannaði að halda
yrði áfram baráttunni gegn hryðju-
verkunum með fullum þunga.
ísraelar voru fljótir til hefnda og í
morgun gerðu þeir eldflaugaárás á
heimili Hams-foringjans Mahm-
ouds al-Zahars með þeim afleið-
ingum að húsið var lagt í rúst. Að
sögn palestínskra yfirvalda féilu
tveir í árásinni auk þess sem að
minnsta kosti tuttugu lágu særðir
en Al-Zahar mun hafa sloppið
lifandi.
SLASAÐIR FLUTTIR A BROTT: Mikil skelfing
greip um sig eftir árásirnar.
Sprengjuárás á bækistöð
Bandaríkjamanna í Irbil
Einn íraskur öryggisvörður og
að minnsta kosti 47 aðrir slös-
uðust þegar bílsprengja sprakk
utan við bækistöðvar banda-
ríska hersins í borginni Irbil í
Kúrdahéruðum fraks í nótt.
Að sögn talsmanns Bandaríkja-
hers á svæðinu voru sex starfs-
menn bandaríska varnarmála-
ráðuneytisins meðal hinna slös-
uðu en ekki kom fram hvort þar
var um að ræða embættis- eða
hermenn.
Að sögn sjónarvotta var spreng-
ingin svo öflug að framhlið bygg-
ingarinnar hrundi. Eldur kviknaði í
nokkrum bilum í nágrenninu en
auk þess logaði glatt í rústum
byggingarinnar. Bandarísk þyrlu-
sveit var kölluð til aðstoðar og var
svæðið umkringt með hjálp kúrd-
ískra hersveita sem leituðu tilræð-
ismannanna.
Irbil er stærsta borgin í Kúrda-
héruðum fraks en höfuðstöðvar
stærstu stjórnmálahreyfingar
Kúrda, Lýðræðisflokks Mazzouds
Barzanis, KDP, er þó í fjallabænum
Salahuddin rétt norður af Irbil.
Þetta er fyrsta meiriháttar
sprengjuárásin sem gerð er í
Kúrdahéruðunum íraks.
í öðru tilfelli í gærkvöldi féll einn
bandarfskur hermaður og annar
særðist þegar bandarísk eftirlits-
sveit varð fyrir árás norðaustur af
höfuðborginni Bagdad. Fyrr um
daginn slösuðust fimm
bandarískir hermenn í tveimur
sprengjuárásum í bæjunum Ram-
adi og Fallujah, vestur af Bagdad.
Þar með hafa 68 bandarfskir
hermenn fallið í skæruárásum síð-
an Bush Bandaríkjaforseti til-1
kynnti þann 1. maí sl. að meiri
háttar átökum væri lokið en alls
hafa 288 bandarfskir hermenn
fallið í átökum eða af slysförum
síðan hernaðaraðgerðir hófust í
mars.
ÁFRAMHALDANDI SKÆRUÁRÁSIR í ÍRAK: Alls 288 bandarískir hermenn eru fallnir í
átökum eða af slysförum í (rak síðan hernaðaraðgerðirnar hófust í mars.