Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.2003, Qupperneq 17
MIÐVIKUDAGUR 10. SEPTEMBER 2003 FRÉTTIR 17
Leni Riefenstahl látin
ANDLÁT: Þýska kvikmynda-
gerðarkonan Leni Riefenstahl,
frægust fyrir kvikmyndir sínar
til dýrðar Adolf Hitler og nas-
ismanum, lést á mánudags-
kvöld, aðeins nokkrum vikum
eftir að hún varð 101 árs.
Riefenstahl fékk verðlaun á
kvikmyndahátíðunum í Fen-
eyjum og París á fjórða áratug
síðustu aldar fyrir myndina
Sigur viljans, heimildarmynd
um fund þýska nasistaflokks-
ins í Niirnberg 1934. Hún var
síðan fengin til að gera mynd
um Ólympíuleikana í Berlín
1936. Myndir þessar þykja
ákaflega áhrifamiklar en
Riefenstahl hefur verið mikið
gagnrýnd fyrir. Hún hefur
alltaf sagt að list en ekki
stjómmál hafi ráðiðferðinni.
kannski satt
írakar sögðu
GJÖREYÐINGARVOPN: Hans
Blix, fyrrum yfirmaður vopna-
eftirlits Sameinuðu þjóðanna í
frak, telur vel hugsanlegt að
stjórnvöld í (rak hafi sagt satt
þegar þau héldu því fram á
sínum tíma að ekki væru nein
gjöreyðingarvopn til í landinu.
Bandaríkjamenn og banda-
menn þeirra hafa nú í fjóra
mánuði haft tækifæri til að yf-
irheyra fjölda íraskra vísinda-
manna en engin gjöreyðingar-
vopn hafa fundist enn sem
komið er.
„Eftir svona langan tíma hall-
ast ég að því að írakar hafi
sagt satt þegar þeir sögðust
hafa eyðilagt öll sýkla- og
efnavopn sem þeir áttu sum-
arið 1991," sagði Blix í viðtali
við sjónvarpsstöðina CNN.
Vandræðagangur á Grænlandi:
Stjórnin fallin
Stjórnarkreppa er nú á Græn-
landi eftir að heimastjórnin féll
í gær vegna innbyrðis deilna,
aðeins átta mánuðum eftir að
hún tók við völdum.
Það sem varð stjórn jafnaðar-
mannaflokksins Siumut og hins
borgaralega Atassut að falli voru
eftirmál reikningsskekkju við gerð
kjarasamninga opinberra starfs-
manna í sumar. Skekkjan hljóðaði
upp á um milljarð íslenskra króna
og varð þess valdandi að samning-
arnir hefðu kostað ríkið tvöfalt
meira en talað var um, ef viðsemj-
endur hefðu náð að skrifa undir þá.
Síðan hefur verið deilt um hve al-
varleg mistökin hefðu verið og
hvort einhver ætti að taka á þeim
pólitíska ábyrgð. Innan stjórnar-
innar vildu menn að Augusta Sall-
ing, formaður Atassut, tæki á sig
ábyrgðina en hún hafnaði því. Og
þar sem hætta var á að þingið
myndi samþykkja vantraust á
stjórnina var ákveðið að leysa hana
upp.
Líklegt þykir að vinstriflokkurinn
Inuit Ataqatigiit (IA) muni taka þátt
í myndun nýrrar stjórnar méð Si-
umut, að sögn Pouls Krarups, rit-
stjóra vikublaðsins Sermitsiaq.
Nýja stjórn verður að mynda innan
viku ef tímarammar fjárlaga eiga að
halda.
IA er andvígur því að bandaríski
herinn fái leyfi til að uppfæra rat-
sjárstöðina í Thule vegna eld-
flaugavarnarkerfis Bush forseta.
Heimsviðskiptastofnunin fundarí Cancun:
Stórpopparar minna
hina ríku á þá fátæku
POPPARAR GERA KRÖFUR: Bresku poppararnir Chris Martin og Jon Buckland, úr íslands-
vinasveitinni Coldplay, eru (Cancun í Mexíkó til að leggja áherslu á kröfur um að fátækar
þjóðir beri meira úr býtum í samningum Heimsviðskiptastofnunarinnar.
Breska rokkhljómsveitin Cold-
play fór fram á það við samn-
inganefndir á fundi Heimsvið-
skiptastofnunarinnar (WTO) að
þær hefðu þarfir fátæku ríkj-
anna í huga þegar þær reyndu
að berja saman samkomulag
um aukið frelsi í milliríkjavið-
skiptum.
Chris Martin forsöngvari og gít-
arleikarinn Jon Buckland afhentu
Supachai Panitchpakdi, forstjóra
WTO, lista með undirskriftum 3,5
milljóna manna sem krefjast þess
að tekið verði meira tillit til fátækra.
„Við erum hingað komnir til að
hitta þennan mikilvæga gæja, mjög
valdamikinn mann,“ sagði Islands-
vinurinn Chris Martin við frétta-
menn áður en þeir félagar gengu á
fund forstjórans. „Við viljum vekja
athygli á nauðsyn þess að sanngirni
sé gætt í viðskiptum í heiminum."
Þróunarlöndin, þar sem meira
en helmingur jarðarbúa býr, gáfu
tóninn fyrir viðræðurnar sem hefj-
ast í dag þegar þau fóru fram á það
við hina ríku í gær að þeir hættu
niðurgreiðslum til bænda.
Krafan endurspeglar þá staðfestu
þróunarríkjanna að færa völdin
innan WTO frá Bandaríkjunum,
Evrópusambandinu og öðrum rík-
um þjóðum. Það má því búast við
að jafnheitt verði í kolunum næstu
fímm dagana inni í fundarsölunum
í Cancun og er utandyra í brenn-
heitri sólinni.
Tugir þúsunda mótmælenda eru
komnir tO Cancun.
Forsprakki tilræðisins á Balí í fyrra:
Dæmdurtil dauða
Indónesískur dómstóll dæmdi
í morgun harðlínumúslíma til
dauða fyrir að skipuleggja
sprengjuárásir á ferðamanna-
staði á Balí, í þeim tilgangi að
láta hvíta manninn þjást og til
að ná fram hefndum á Banda-
ríkjunum.
Imam Samudra, 33 ára gamall
tölvusérfræðingur, hrópaði Alla-
hu Akbar, eða guð er mestur, og
steytti hnefann þegar dómurinn
var kveðinn upp í réttarsal á Balí.
örfáum mínútum síðar til-
kynntu verjendur Samudra að
þeir myndu áfrýja dómnum.
Fyrir hafði einn maður verið
dæmdur til dauða fyrir tilræðin
sem urðu 202 að bana, aðallega
vestrænum ferðamönnum sem
voru að skemmta sér í nætur-
klúbbi þegar sprengjurnar
sprungu í október í fyrra.
Einn dómaranna fimm sagði
réttinum að Samudra hefði unnið
á bak við tjöldin við að skipu-
leggja tilræðin.
„Með þessu vildi hann hefna
sín á Bandaríkjunum fyrir það
sem þau gerðu í Afganistan,"
sagði dómarinn.
Samudra hefur sagt að hann
muni fagna dauðanum. Hann
viðurkenndi íyrir réttinum að
hann hefði átt þátt í sprengjutil-
ræðunum en neitaði að hann
hefði gegnt þar lykilhlutverki.
Áströlsk stjórnvöld munu ekki
leggjast gegn dauðadóminum yfír
sakborningnum, að því er tals-
maður þeirra sagði í morgun eftir
að dómur var fallinn. Áttatíu og
átta ástralskir borgarar voru með-
al þeirra sem fórust.
LEIDDUR BURT: Harðlínumúslíminn Imam Samudra hrópar þegar hann er leiddur á brott eftir að dómstóll á Balí dæmdi hann til
dauða fyrir sprengjutilræðin í fyrrahaust þar sem 202 menn fórust.