Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.2003, Qupperneq 26
26 TÍLVBRA MIÐVIKUDAGUR 10. SEPTEMBER 2003
Ræktun lýðs og lands
Umsjón: Páll Guðmundsson
Netfang: palli@umfi.is
Sími: 568 2929
ÁRSÞING Á SAUÐÁRKRÓKI: Helga Guðjónsdóttir, varaformaður UMF(. Stjórnarfundir UMFÍ eru haldnir
fimm til sex sinnum á ári og taka yfirleitt tvo til þrjá daga. Fulltrúar sjö héraðssambanda skipa stjórn, auk
fjögurra varafulltrúa, og eru stjórnarmenn kosnir á ársþingi til tveggja ára.
MÖRG MÁL Á DAGSKRÁ: Björn Bjarndal Jónsson, formaður Ungmennafélags fslands, segist ekki muna
eftir að jafnmörg mál hafi legið fyrir stjórnarfundi áður. „Það eru óvenjumörg og stór mál sem liggja fyrir
stjórnarfundi að þessu sinni.
Meðal verkefna sem lögð
verða fyrir stjórnarfund UMFÍ í
næstu viku er að ákveða
haust- og vetrarstarfið, fara
yfir verkefni ársins og líta í eig-
in barm.
Bjöm Bjarndal Jónsson, for-
maður Ungmennafélags fslands,
segist ekki muna eftir að jafnmörg
mál hafi legið fyrir stjórnarfundi
áður. „Það eru óvenjumörg og stór
mál sem liggja fyrir fundinum að
þessu sinni. Skipulagsnefndin
hefur lokið störfum og fyrir liggur
skýrsla þar sem meðal annars er
teícið á því hvort við viljum taka
íþróttabandalögin í hreyfinguna.
Framtíðarnefnd er að störfum en
samhliða störfum hennar höfum
við verið að líta í eigin barm með
fulltrúa frá IGM og ætlum að skiia
niðurstöðum af því starfi fyrir
þing. Við erum líka að fara í gegn-
um lög UMFÍ, til dæmis reglu-
gerðina um landsmótin. Á stjórn-
arfundinum verður einnig farið
yfir verkefni ársins, línur lagðar
fyrir haust- og vetrarstarfið og
samdar tillögur fyrir ársþingið
sem haldið verður í október."
Við erum líka að fara í
gegnum lög UMFÍ, til
dæmis reglugerðina
um landsmótin.
Björn segir að Ungmennafélag-
ið sé að ráðast í byggingarfram-
kvæmdir í Þrastaskógi og að það
sé mál sem einnig þurfi að ræða á
fundinum.
Ársþing í október
Það er því ljóst að mörg stór mál
verða tekin fýrir á stjórnarfundin-
um og ýmislegt sem þarf að fjalla
STJÓRN UMFÍ: Hildur Aðalsteinsdóttir
UMSE, Kristín Gísladóttir, HSK, Anna R.
Möller, UMSK, Helga Guðjónsdóttir,
HSK, Ásdís Helga Bjarnadóttir, UMSB.
Efri röð frá vinstri: Sæmundur Runólfs-
son, framkvæmdastjóri UMF(, Sigurður
Viggósson, HHF, Kjartan Páll Einarsson,
HSH, Björn B. Jónsson, formaður UMFl,
Svanur Gestsson, UMSK, Birgir Gunn-
laugsson, Fjölni, og Sigurbjörn Gunn-
arsson, Keflavík, íþrótta- og ungmenna-
félagi.
um fyrir ársþingið sem haldið
verður á Sauðárkróki 18.-19. októ-
ber næstkomandi.
„Þetta eru allt mikilvæg mál fyr-
ir hreyfinguna og að sama skapi
skemmtilegt að takast á við þau.
Það hefur verið mjög ánægjulegt
vinna að undanfarið og fara yfir
starfsemi félagsins og vonandi á
það eftir að skila sér í betra starfið.
Til að halda betur utan um öll
þessi stóru mál mun ég heimsækja
héraðssambönd vfðs vegar um
landið á næstu tveimur vikum og
heyra hljóðið í félagsmönnum. Ég
veit að þar á margt eftir að bera á
góma, enda af nógu af taka varð-
andi starfsemi hreyfingarinnar."
Undirbúningur fyrir
landsmót hafinn
Stjórnarfundir UMFÍ eru haldn-
ir fimm til sex sinnum á ári og taka
yfirleitt tvo til þrjá daga í senn.
Stjórnin er skipuð sjö mönnum,
auk fjögurra varafulltrúa, og eru
stjórnarmenn kosnir á ársþingi til
tveggja ára.
Björn segir að ársþingið verði
haldið á Sauðárkróki að þessu
sinni og að þar ætli heimamenn
að kynna þingfulltrúum fram-
kvæmdir og undirbúning lands-
mótsins sem haldið verður á
Það á sér stað mikil
uppbygging á íþrótta-
mannvirkjum á Sauð-
árkróki í tengslum við
landsmótið.
Króknum á næsta ári. „Það á sér
stað mikii uppbygging á fþrótta-
mannvirkjum á Sauðárkróki í
tengslum við landsmótið.“ Björn
segir að frestur til að sækja um að
halda landsmótin 2007 og 2009
renni út nú í haust og séu fjölmörg
héraðssambönd og sveitarfélög að
fara yfir málin með umsókn í
huga.
*
fliigfelng.is
Alltaf ódýrast
á www.flugfelag.is
FLUGFÉIAG ÍSLANDS