Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.2003, Qupperneq 35
MIÐVIKUDAGUR 10. SEPTEMBER 2003
35
SAMBiO
KRINGLAN
ALFABAKKI
*
Synd kl. 4,6,8 og 10. B.i. 10 ara
wrad í luam W 415, 8ÍL15
Sýnd kl. 3.50,5.50, 8og 10.10. B.i.12ára.
STÓRMYND GRISLA:
Sýnd kl. 4 og 6. m/isl. tali
Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 16. ára. ÁSTRÍKUR: Sýnd m. ísl.tali kl. 3.50
BASIC
Sýnd kl. 6,7,8,9 og 10. B.i. 12 ára.
Sýnd kl. 5. Með íslensku tali.
I.A, Tinruís
■ 7*»*
kvíðcmyndir.is
fT
Fullkomið ran
Svik
Uppgjör
mtíleoasta
ynd ársms
KRINGLAN 588 0800
ÁLFABAKKI tS 587 8900
SWEET SIXTEEN: Sýnd kl.8. ALL OR NOTHING: Sýndkl.8.
BLOODY SUNDAY: Sýndkl.5.50og 10. PLOTS WITH A VIEW: Sýnd kl. 8.
THE MAGÐALENE SlSTERS:Sýnd kl.5.45 og 10.05. PURE: Sýndkl.8.
Sýnd kl.5.45,8 og 10.15. B.i.lO.ára Sýnd kl.10. B.i. 12. ára.
PIRATES OF THE CARRIBEAN: Sýnd kl. 5.30 og 10.30. B.i. 10 ára.
NÓI ALBfNÓI: Sýnd kl. 6. Enskur texti.
V. t — ★ JM \ t V X * Breskir Bíódagar
SINBAD: Sýnd m.ensku.tali kl. 8.
PIRATES OF THE CARRIBEAN:
Sýnd kl. 5.30 og 8.15. B.i. 10 ára.
SINBAD:
Sýnd m. ísl.tali kl. 4 og 6.
Ofurskutlan Angelina
er mætt aftur, öflugri en
nokkru sinni fyrr, í
svakalegustu hasarmynd
sumarsins!
Snæfriður Ingadóttir
skrifar um fjölmiðla
Öfugsnúin ást
Ég verð upptekin næstu
nítján fimmtudagskvöld. Al-
veg sama hversu freistandi til-
boð kunna að berast mér svík
ég ekki vinkonur mínar í Beð-
málum í borginni á RÚV. Hef
saknað þeirra mikið í sumar
en nú eru þær komnar aftur á
skjáinn og allt að gerast hjá
þeim eins og fyrri daginn.
Fyrsti þátturinn í nýju serí-
unni lofar góðu en þó ekki fyr-
ir Míröndu sem er nú loksins
orðin ástfangin af barnsföður
sínum, Steve. Hann hefur
lengi verið að eltast við hana
en þegar hún ætlaði loksins að
játa honum ást sína er hann
bara kominn með aðra! Svona
er ástin nú oft erfið og flókin.
Einmitt þegar maður vill eitt-
hvað þá vill sá sem maður vill
eitthvað með ekkert og svo öf-
ugt. Alveg óþolandi. Fór á
leikritið Ráðlausir menn í vik-
unni, sem sýnt er í Tjarnar-
bíói, en því hefur verið líkt við
karlmannlegu útgáfuna af
Beðmálum í borginni. Þar er
einmitt verið að Qalla um öf-
ugsnúninginn í ástinni og
hina endalausu leit. Skemmti-
legt leikrit og snilldarvel leikið.
Skemmti mér vel við að heyra
sjónarmið strákanna um þessi
mál og kom fróðari út en við-
urkenni þó að sjálf hef ég
reyndar heyrt marga af þeirra
frösum í mínum vinkvenna-
hópi - og jafnvel notað þá sjálf
- þannig að eftir allt erum við
kynin líklega ekki svo ólík þeg-
ar kemur að eltingaleiknum
við ástina.
Bloody Sunday 'k'k'k'L.
Sweet Sixteen 'k'k'k'k
Nói albínói 'k'k'kk
28DaysLater 'k'k'k
Pirates of the Caribbean 'k'k'k
Terminator 3 ★★★
Croupier ★★★
HULK ★★★
Sindbað sæfari ★ ★i
Basic ★ ★
LucyBreak 'k'k'i.
Bruce Almighty ★★
Hollywood Homicide ★★
Charlie's Angels: Full Throttle ★ ★
Legally Blonde 2 'k’i.
Lara Croft.... ★
Mikið af ítölsku
Sif Gunnarsdóttir
sif@dv.is
Það er vandi að gera góða rán-
mynd þar þar sem plottið geng-
ur fyrst og fremst út á að einhver
stelur einhverju verðmætu frá
einhverjum öðrum - og það vit-
um við, þannig að höfuðsögu-
þráðurinn kemur síst á óvart.
Bestar eru þær ránmyndir þegar
ránið er orðið svolítið flókið, svikum
er beitt í hvívetna og menn plataðir
upp úr skónúm. Þessi tegund kvik-
mynda er vinsæl og reglulega dúkka
upp myndir með ofangreindri upp-
byggingu. Sumar þeirra ganga mikið
út á ofurflott tæki, flóknar tímasetn-
ingar og smart fólk - eins og í Oceans
eleven. Aðrar leggja meira upp úr
svikamyllunni sjálfri eins og Con-
fidence sem frumsýnd var fyrr í ár og
hin frábæra Heist sem var skrifuð og
leikstýrt af snillingnum David
Mamet - í henni fór allt saman:
margsnúin flétta, drepfyndin samtöl
og frábær leikur. Fáar komast með
tæmar þar sem hún hafði hælana og
The Italian Job er í allt öðmm
skófatnaði.
The Italian Job er endurgerð á
samnefndri mynd frá árinu 1969 þar
sem Michael Caine lék aðalhlutverk-
ið. Fátt er líkt með myndunum nema
í báðum er mikið af ítölsku gulli
stolið og í báðum er langur eltinga-
leikur á marglitum minibílum. The
Italian Job hefst í Feneyjum þar sem
bífræfnir bófar ætla að stela gull-
farmi að verðmæti 35 milljónum
dollara án þess nokkum tímann að
LEITAÐ HEFNDA Mark Wahlberg,
CharlizeTheron og Jason Statham snúa
bökum saman til að hafa uppi á ránsfeng.
Sambíóin/Háskólabíó
The Italian Job
★★
veifa skotvopni framan í nokkurn
mann. Bófamir em Charlie (Wahl-
berg), sem er að stjóma sínu fyrsta
ráni; John (Sutherland) sá gamli í
hettunni sem er búinn að opna fleiri
peningaskápa en hann man eftir;
Lyle (Green) tölvuséníið í hópnum;
Handsome Rob (Statham) bílstjór-
inn glannalegi; Half Ear (Def)
sprengjusérfræðingurinn og Steve
(Norton) sem virðist ekki hafa neina
sérstaka hæfileika og þeir hefðu bet-
ur sleppt að hafa hann með þvi hann
svflcur þá illilega þannig að félagarn-
ir standa eftir slyppir og snauðir -
þeir sem fengu að halda lífi. Næsti
einn og hálfur tími lýsir síðan undir-
búningi þeirra félaga við að ná gull-
inu aftur af Steve og fá þeir sér til að-
stoðar hina fögm Stellu (Theron),
dóttur Johns, sem hefur erft hæfi-
gulli
leika föður síns til að opna læsta
skápa.
Eftir skemmtilegt og spennandi
upphaf í Feneyjum er sett í hæga-
gang meðan sagan flytur sig til Los
Angeles og undirbúningur ráns nr. 2
fer fram. Þá skiptir vemlegu máli að
samskipti persónanna þróist, samtöl
séu vel slaifuð og að framgangur
mála sé athyglisverður. Þessir þættir
gengu ekki nægilega vel upp og verð-
ur það að skrifast frekar á slappt
handrit og úrvinnslu en gæði leiks.
Lokabrellan er fín en þá er maður
orðin helst til of áhugalaus um með-
limi hópsins til að fá fiðring yfir af-
drifum þeirra og alls gullsins. Enda
er nokkuð ljóst í myndum sem þess-
um hver endar uppréttur og ríkur.
Leikstjórinn F. Gary hefur bæði
gert betur og verr á sfnum frekar
stuttum ferli, betur með The Negoti-
ator fyrir nokkmm ámm og talsvert
verr með A man apart þar sem Vin
Diesel drap mann og annan í óstöðv-
andi blóðbaði. Leikurinn í The Itali-
an Job er í flestum tilfellum í fínu
lagi, Wahlberg er sjarmerandi á
áreynslulausan hátt, Norton fínn í
hlutverki svikarans og Green,
Statham og Def halda úti bakgrunns-
músíkinni með glensi og grfni. Verst
er að Sutherland er skotinn úr mynd
eftir korter og í stað hans fáum við
Theron sem þrátt fyrir óneitanlegan
glæsileik er litlaus viðbót.
The Italian Job er fagmannlega
unnin og handverkið er gott en það
vantar í hana neistann sem myndi
fleyta henni yfir meðalmennskuna.
Leikstjóri: F. Gary Grey. Handrit Donna
Powers og Wayne Powers. Kvikmyndataka:
Wally Pfister. Tónlist John Powell. Aöalleikar-
an Mark Wahlberg, Charlize Theron, Edward
Norton, Jason Statham og Donald Suther-
land.
Mikki bláskjárá Stöð 2 kl. 0.10:
Englendingur í New York
MIKKIOG MAFlAN: Hugh Grant í hlutverki
Mikka bláskjás reynir að verjast mafíunni.
I kvikmynd kvöldsins leikur Hug
Grant Mickey Felgate, enskan séntil-
mann sem hefur gamaldags hug-
sjónir og starfar sem listaverkasali í
New York. Hann hefur kynnst glæsi-
legri New York-stúlku, Ginu (Jeanne
Tripplehorn) og þegar myndin hefst
heftir hann undirbúið rómantískt
bónorð. Það er ekki nóg með að
bónorðið fari í vaskinn í skondnu at-
riði heldur hleypur sú útvalda grát-
andi út af veitingastað og skilur
Mikka eftir með eitt stórt spuming-
armerki á andlitinu.
Þegar að er gáð þá er faðir Ginu,
Frank Vitale (James Caan) í stórri
maffufjölskyldu og telur Gina vænt-
anlegan eiginmann vera auðvelda
bráð fyrir mafíuna. Faðir hennar vill
þó óður og uppvægur gifta dóttur
sína og lofar að skipta sér ekki af
hjónabandinu. Gina játast því
Mikka. Það sem tilvonandi tengda-
faðir sá ekki fyrir er að vinir hans í
mafíunni em ekki á sama máli og
hann og brátt er Mikki kominn með
fangið fullt af vandamálum sem
hann er ekki maður til að leysa.
Norræna húsið: Finnska lista-
konan Sari Maarit Cedergren
opnar sýningu f anddyri Nor-
ræna hússins í dag kl. 17. Þar
sýnir hún lágmyndir úr stein-
steypu og gifsi. Hugmyndin er að
endurspegla hið hversdagslega
veður sem við upplifum daglega
í umhverfi okkar og þann mikla
fjölbreytileika og hreyfingu sem
býr f veðrabrigðunum. Sýningin
nefnist Súldduld.
Gaukurirm: Sænska hljóm-
sveitin Evergrey heldur tónleika
á Gauknum í kvöld kl. 21.30.
Ásamt henni koma fram Dr.
Spock og Envy of Nona. Aldurs-
takmark er 18 ár.
Akureyri: „Forysta grasrótar-
samtaka á tímum hnattvæðing-
ar“ nefnist fyrirlestur á Félags-
vísindatorgi Háskólans á Akur-
eyri. Kate Botham heldur hann í
dag kl. 16.30 að Þingvallastræti
23, stofu 14 (salnum). Kate Bot-
ham hefur kennt á námskeiðum
um „hnattvæðingu og mannleg
gildi" við Harvardháskóla.
Salurinn: Ástríður Alda Sig-
urðardóttir píanóleikari heldur
debúttónleika í Salnum í Kópa-
vogi í kvöld og hefjast þeir kl. 20.
Hún leikur verk eftir Beethoven,
Bartók og Chopin.
Komhlaðan: Evran verður að-
alumræðuefni á fundi Evrópu-
samtakanna á hádegisfundi í
Kornhlöðunni (Lækjarbrekku-
húsinu í Bernhöftstorfu) milli kl.
12 og 13 á morgun, fimmtudag-
inn 11.9. Þar verður rætt um
kosti og ókosti evrunnar fyrir ís-
lenskt efnahagslíf og um hvað er
að gerast í Svíþjóð. Dr. Jón Þór
Sturluson hagfræðingur flytur
inngangserindi.
Norræna húsið: Lundabíó
kynnir stuttmyndir alls staðar að
úr heiminum í Norræna húsinu
kl. 20. Einnig verður sérstök sýn-
ing á klassískri kvikmynd í fullri
lengd frá 7. áratugnum.