Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.2003, Qupperneq 36
36 DVSPOftr MIÐVIKUDAGUR 10. SEPTEMBER 2003
DV Sport
Keppni í hverju orði
Netfang: dvsport@dv.is
Sími: 550 5885 • 550 5887 • 550 5889
Elísabet að taka við Valsstúlkum?
KNATTSPYRNA: Elísabet
Gunnarsdóttir verður að öllum
líkindum næsti þjálfari meist-
araflokks kvenna hjá Val að því
er heimildir DV Sports herma
en eins og kunnugt er sagði
Helena Ólafsdóttir starfinu
lausu á dögunum. Jörundi Áka
Sveinssyni var boðið starfið og
varð hann að gefa Völsurum
svar á mánudag.
„Ég hafði mikinn áhuga á starf-
inu en einhverra hluta vegna lá
þeim mikið á að fá svar frá mér
og ég var einfaldlega ekki klár
til að svara á mánudag sem er
miður. Ég þurfti meiri tíma,"
sagði Jörundur Áki við DV
Sport í gær.
DV Sport setti sig í samband
við Elísabetu í gær og er hún
var spurð að því hvort hún
væri að taka við Valsliðinu var
fátt um svör og kaus hún að
segja pass við spurningunni.
Hún sagðist hafa sagt upp
samningi sínum við Breiðablik í
ágúst og að hún myndi Ijúka
störfum hjá félaginu á fimmtu-
dag. Eftir þann tíma kæmi í Ijós
hvað hún myndi taka sér fyrir
hendur.
Á LEIÐ TIL VALS?: Elísabet vænt-
anlega að taka við Valsstúlkum.
Fyrrí undanúrslitaleikur VISA-bikarsins ferfram á Laugardalsvelli í kvöld:
KR kemst í úrslit
íslandsmeistararnir ekki orðnir saddir, segir Þorlákur Árnason, þjálfari Vals
FYRSTI LEIKUR FH OG KR
KR og FH leika í kvöld fyrsta bikar-
leik sinn frá upphafi en KR sló
reyndar B-lið FH-inga út úr 16 liða
úrslitunum fyrir 34 árum. Þetta er
21. undanúrslitaleikur KR en sá ní-
undi hjá FH-ingum sem eru í und-
anúrslitum bikarsins í þriðja sinn á
fjórum árum en hafa ekki komist í
úrslitaleikinn síðan 1991. KR var
síðast í úrslitaleiknum 1999.
leita að. Að búa til stóra leiki fyrir
leikmenn og stuðningsmenn þar
sem allt félagið tekur þátt í að gera
þetta að skemmtilegum degi. Ég
held að þessi leikur í dag geti orðið
þess eðlis að allir KR-ingar geti not-
ið hans," sagði Willum sem er hóf-
lega bjartsýnn fyrir leikinn.
„Ég er alltaf mátulega bjartsýnn
og alls ekkert á neinu flugi í ein-
hverju bjartsýniskasti. FH-liðið er
allt of sterkt lið til þess að maður
geti leyft sér að vera of bjartsýnn.
Við þurfum að ná okkar besta leik
til þess að leggja þá að velli."
Ekkert hræddir við KR
„Það eru allir klárir í slaginn
nema að sjálfsögðu Jón Stefánsson
sem verður ekki meira með okkur í
sumar og svo er Guðmundur Sæv-
arsson í leikbanni," sagði Heimir
Guðjónsson, fyrirliði FH-inga,
brattur þegar DV Sport náði tali af
honum en hann var á fullu í vinn-
unni í stað þess að spara orkuna
fyrir leikinn.
„Það er mikil stemning fyrir
þessum leik. Úrslitaleikur bikarsins
er stærsti leikur sumarsins og
þangað vilja allir komast og við er-
um ekkert undanskildir í því. Við
erum ekkert hræddir við að mæta
KR-ingunum og ef við værum það
gætum við alveg eins sleppt því að
mæta á svæðið. Hins vegar berum
við virðingu fyrir KR-liðinu því að
það er virkilega gott og okkur er
það alveg ljóst að við verðum að
eiga mjög góðan leik til þess að
leggja KR að velli."
Heimir er uppalinn KR-ingur og
hann segir alltaf sérstakt að mæta
KR f leik. „Það er alltaf gaman að
HEF 'ANN: Daði Lárusson, markvörður FH-inga, sést hér ná til boltans á undan Garðari
Jóhannssyni á KR-vellinum fyrr í sumar. DV-mynd E. Ól.
leika gegn KR en maður er reyndar
orðinn vanur því þar sem það er
nokkuð síðan ég lék með félaginu.
En vissulega er það alltaf sérstakt
og þetta verður mikið fjör á morg-
un," sagði Heimir og bætti við að
undirbúningur liðsins yrði ekki
með hefðbundnum hætti að þessu
sinni.
„Mér skilst að menn ætli að hitt-
ast í hádegismat sem er hlutur sem
við gerum ekki venjulega. Það ætti
að þjappa hópnum enn frekar sam-
an og við mætum svo grimmir í
leikinn um kvöldið.
KR-ingar hungraðir
Þorlákur Árnason, þjálfari Vals,
er á því að KR-ingar mæti hungrað-
ir í leikinn og fari með sigur af
hólmi.
„FH-ingarnir eru með mjög vel
spilandi lið en ef KR-ingunum tekst
að stöðva Allan Borgvardt þá vinna
þeir leikinn svo verða þeir líka að
loka á Heimi Guðjónsson. KR er
með þá sérstöðu hér á landi að hafa
marga leikmenn sem geta klárað
leiki. Svo held ég líka að KR-ingar
séu mjög hungraðir og að þeir vilji
vinna tvöfalt í ár. Ég held það verði
ekki mikið mál að ná leikmönnum
liðsins niður á jörðina og það kæmi
mér verulega á óvart ef leikmenn
liðsins væru saddir. Þeir eru með
langbesta liðið í deildinni, best
mannaða liðið, og svo voru Veigar
og Kristján í leikbanni í Grindavfk.
Þeir hljóta að vilja sanna sig í þess-
um leik. Þótt FH sé með gott lið og
vel spilandi þá eru KR-ingar ein-
faldlega með langbesta liðið í deild-
inni og ég held að þeir vinni þenn-
an leik, 3-1." henry@dv.is
Fyrri undanúrslitaleikur VISA-
bikars karla fer fram á Laugar-
dalsvelli í dag þegar KR og FH
mætast klukkan 19.40. DV
Sport tók þjálfara KR, Willum
Þór Þórsson, og fyrirliða FH,
Heimi Guðjónsson, tali og
spurði þá út í leikinn ásamt því
sem við fengum Þorlák Árna-
son, þjálfara Vals, til þess að spá
í leikinn fyrir okkur.
„Það eru allir heilir hjá okkur,"
sagði Willum Þór, þjálfari KR, sem
hefur örlitlar áhyggjur af því að
leikmenn hans séu ekki komnir
niður á jörðina eftir að þeir tryggðu
sér íslandsmeistaratitilinn en það
var síðasti leikur liðsins.
„Það er eitthvað sem kemur ekki
í ljós fyrr en í dag. Það er kannski
það sem er hvað erfiðast viðureign-
ar í þessu hjá okkur. Ég hef reyndar
ekki allar áhyggjur heimsins af því
en það gæti orðið okkur fjötur um
fót. Þrátt fyrir það að menn tali um
hlutina þá er undirmeðvitundin oft
sterk en við höfum gert okkar í æf-
ingunum til þess að vera í standi
fyrir leikinn."
Ekkert óskalið
FH-ingar hafa reynst KR-ingum
óþægur ljár í þúfu undanfarin ár en
Willum finnst ekkert verra að mæta
FH en einhverju öðru liði í þessum
leik.
„Það er ekki til neitt óskalið þeg-
ar svona langt er liðið á keppnina.
Hins vegar er FH með geysisterkt
lið og sennilega eitt sterkasta lið
sem þeir hafa teflt fram undanfarin
ár. Ég held að það dugi ekki til að
stöðva Allan Borgvardt og Heimi
Guðjónsson þótt þeir séu vissulega
mjög áberandi í leik FH-liðsins. Við
leggjum fyrst og fremst áherslu á að
spila okkar leik og halda okkur við
okkar skipulag. Við munum leika
eins og venjulega en vissulega eru
ákveðnar áherslur í hverjum leik
sem þarf að laga sig að og í þessum
leik þarf til að mynda að huga að
þeim tveim mönnum sem rætt var
um hér á undan."
Báðir úrslitaleikirnir fara nú í
fyrsta skipti fram á Laugardalsvelli
og Willum líst ágætlega á þá tilhög-
un.
„Ég var mjög hrifinn af þessu fyr-
irkomulagi þegar það var sett á. Ég
hafði trú á því að með þessu væri
búið að setja á þrjá stóra leiki. Þá
fer maður fyrr inn í stóran leik og
það er það sem maður er alltaf að
Leið KR í undanúrslitin:
32 liða úrslit
HK-KR 2-3
Garðar 2,Veigar Páll.
16 liða úrslit
KR-ÍA (u-23) 2-0
Veigar Páll, Sigurvin
8 liöa úrsllt
KR-Fram 2-0
Bjarki, Sölvi.
Mörk KR: Garðar Jóhannsson,
Veigar Páll Gunnarsson 2, Sigurvin
Ólafsson, Bjarki Gunnlaugsson og
Sölvi Davíðsson.
Leið FH í undanúrslitin:
32 liða úrslit
Höttur-FH 0-3
Jónas Grani 3.
16 liða úrslit
FH-Þróttur 2-1
Jónas Grani, Nielsen (víti).
8 liöa úrslit
FH-Valur 1-0
Magnús Ingi.
Mörk FH: Jónas Grani Garðarsson
3,Tommy Nielsen og Magnús Ingi
Einarsson. oojsport@dv.is