Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.2003, Side 37
F
MIÐVIKUDAGUR 10. SEPTEMBER 2003 DVSPORT 37
Heiðar frá í 6-8 mánuði
KR
KNATTSPYRNA: (slenski
landsliðsmaðurinn Heiðar
Helguson varð fyrir miklu áfalli
í gær er hann meiddist alvar-
lega.Talið er að hann hafi slitið
krossbönd í hné og ef rétt
reynist verður hann frá knatt-
spyrnuiðkun næstu 6-8 mán-
uði. Þetta er mikið áfall fyrir
Watford og íslenska landsliðið
en Heiðar átti frábæran leik
gegn Þjóðverjum um síðustu
helgi og miðað við frammi-
stöðu hans þar verður skarð
hans vandfyllt í seinni leiknum
úti í Þýskalandi 11. október.
Heiðar hefur einnig verið að
leika mjög vel með Watford
það sem af er vetri og varð
annar í kjöri á besta manni
liðsins í ágúst. Frá þessu var
greint í Olíssporti á Sýn í gær.
8 á hættusvæði
KNATTSPYRNA: Átta leik-
menn þýska landsliðsins eiga
það á hættu að verða í leik-
banni þegar Þjóðverjar taka á
móti (slendingum 10. október
næstkomandi. Meðal þeirra
sem hafa fengið gult spjald eru
Michael Ballack, Christian
Wörns og Miroslav Klose en
þeir fara í bann ef þeir fá gult
spjald gegn Skotum í kvöld.
67 stiga sigur
KÖRFUKNATTLEIKUR: KR-
ingar byrjuðu Reykjavíkurmót-
ið í körfuknattleik af krafti í
gærkvöld þegar þeirtóku á
móti Valsmönnum.
KR-ingarsigruðu í leiknum
með 67 stiga mun, 130-63, eft-
ir að hafa leitt í hálfleik, 67-42.
Arnar Kárason var stigahæstur
hjá KR með 21 stig, Steinar Páll
Magnússon skoraði 19 stig á
sjö mínútum og nýi Banda-
ríkjamaðurinn hjá KR, Gregory
Grey, skoraði 18 stig, tók 10
fráköst, stal 8 boltum og tap-
aði jafnmörgum í sínum fýrsta
leik fyrir félagið.
Ragnar Steinsson skoraði 20
stig fyrir Val, Rúnar Sveinsson
skoraði 12 stig og tók 8 fráköst
og Gylfi Geirsson skoraði 10
stig.
HSÍ-námskeið
HANDKNATTLEIKUR: Hand
knattleikssamband fslands
stendur fýrir fyrri hluta C-stigs
þjálfaranámskeiðs fyrir þjálfara
í efstu deild karla og kvenna í
íþróttahúsinu í Digranesi í
Kópavogi um næstu helgi.
Frestur til skráningar rennur út
í dag en hægt er að senda
tölvupóst á oskar@hsi.is.
HEIMSYFIRRÁÐ EÐA DAUÐI: Það er engu Ifkara en Roman Abramovich sé hér að kveðja
keppinautana. Hann ætlar sér að gera Chelsea að stærsta liði heims. Reuters
Ekki að grínast
Abramovich undirstrikaði metnað sinn með því að kaupa Kenyon
ÍÞRÓTTAUÓS
Henry Birgir Gunnarsson
henry&dv.is
Þeir voru margir sem biðu
spenntir eftir því hvað rúss-
neski auðjöfurinn Roman
Abramovich, eigandi Chelsea,
myndi gera af sér þegar leik-
mannamarkaðnum var lokað
um síðustu mánaðamót. Svarið
fengu menn á mánudag þegar
Abramovich gerði sér lítið fyrir
og hrifsaði stjórnarformann
Manchester United, Peter
Kenyon, frá meisturunum. Sér-
fræðingar vilja meina að þetta
hafi verið bestu kaup
Abramovich það sem af er og
með þessu snilldarbragði hafi
hann sýnt öllum efasemda-
mönnum það að honum er full
alvara með því að gera Chelsea
að stórveldi í heimsknattspyrn-
unni.
Abramovich fór mikinn í sumar
og keypti leikmenn fyrir 111 millj-
ónir punda, tæpa 15 milljarða ís-
lenskra króna, en þrátt fyrir það var
hann ekki tekinn alvarlega þar sem
margir töldu hann eingöngu vera
að leika sér og að hann hefði ekki
þá hæflleika né þekkingu sem
þyrfti til þess að gera Chelsea að
stórveldi á heimsvísu.
Hinir sömu fengu að éta hatt
sinn á mánudag þegar Rússinn ríki
fékk Kenyon til þess að koma yfir til
Chelsea en Kenyon er að stórum
hluta þökkuð velgengni United á
alþjóðamarkaði undanfarin ár.
Hann er maðurinn á bak við samn-
inga United við Nike, Vodafone og
New York Yankees. Einnig er hann
hugmyndasmiðurinn á bak við út-
þenslu félagsins í Asíu sem hefur
skapað því gríðarlegar tekjur og
orðið þess valdandi að Manchester
United er ríkasta félag heims í dag.
Ómetanleg kunnátta
Ágóðinn sem Abramovich sér í
því að hafa Kenyon í sínu liði er að
fyrir utan að vera augljóslega frá-
bær kaupsýslumaður þá þekkir
hann alla innviði Manchester
United. Hvernig launakerfið er,
hver stefna félagsins er í auglýs-
ingamálum sem og allt annað sem
hefur gert það að verkum að
Manchester United er eins vel rek-
ið fyrirtæki og raun ber vitni.
Þessa þekkingu fær Abramovich
nú inn í Chelsea og skilaboðin til
annarra félaga eru skýr. Passið ykk-
ur því að ég er ekki að grínast held-
Kenyon er maðurinn á
bak við alla þá samn-
inga sem United hefur
gert á undanförnum ár-
um og orðið þess vald-
andi að United er rík-
asta knattspyrnufélag
heims
ur ætla ég mér alla leið. Það er deg-
inum ljósara að með Kenyon inn-
anborðs eru öll tól og tæki til staðar
svo að það geti gengið eftir.
Það er einnig deginum Ijósara að
slík þekking er ekki ókeypis og er
talað um að Abramovich hafl að
minnsta kosti boðið Kenyon tvöfalt
hærri laun en hann hafði hjá Man.
Utd en þar þénaði hann 700 þús-
und pund á ári eða tæpar 100 millj-
ónir íslenskra króna - slíkir aurar
eru reyndar eins og vasapeningar
fyrir Abramovich.
Stuðningsmenn United hafa ekki
brugðist vel við þessum tíðindum
og segja að hollusta Kenyons, sem
hefúr verið stuðningsmaður Man.
Utd frá barnæsku, hafi ekki verið r -
dýru verði keypt og hafa sent hon-
um þau skilaboð að hann skuli
halda sig fjarri Old Trafford í fram-
tíðinni.
Þetta er enn fremur enn eitt
kjaftshöggið sem United fær frá því
síðasta tímabili lauk. Aðstoðar-
maður Alex Ferguson, Portúgalinn
Carlos Queiros, tók við liði Real
Madrid og fast á hæla honum fylgdi
David Beckham. Juan Sebastian
Veron fór sfðan til Chelsea og nú
hefur Kenyon fetað í sömu spor. ^
Er ekki nema von að stuðnings-
menn Man. Utd haíi áhyggjur þar
sem keppinautarnir styrkjast á
sama tíma og þeirra félag virðist
veikjast - innan vallar sem utan.
AFREK KENYONS
Auglýsingasamningar:
Nike 303 m. punda
Vodafone 30 m. punda
Leikmenn keyptir (helstu):
Ruud V. Nistelrooy 19 m. punda
Juan S. Veron 28 m. punda
Rio Ferdinand 30 m. punda
Stærsta sala:
David Beckham 25 m.punda
WKSk
mtm
Sölubann sett á rjúpur
Áætlað er að um 80 þúsund
rjúpur hafi veiðst í fyrra, sam-
kvæmt þeim upplýsingum
sem liggja fyrir, en þetta er
heldur minni veiði en fyrir ári
síðan og munar þónokkru.
Lokatölur liggja fyrir á allra
næstu vikum.
Skotveiðimenn funda víða
þessa dagana og Skotvís var með
fund í gærkvöld um stöðuna í
rjúpnaveiðinni. Ágæt aðsókn var
víst á fundinn, en skotveiðimenn
eru allt annað er hressir með að
það skuli skellt beint á nefið á
þeim og þeir fái ekkert að skjóta.
Mörgum finnst þetta alls ekki
sanngjarnt.
Reyndar hefúr það heyrst víða
síðustu daga að einhver rjúpna-
veiði verði leyfð, allavega í eina
tvær vikur, verði sölubann sett á.
Hinn almenni rjúpnaveiðimað-
ur er bara að skjóta sér í matinn, 5
til 10 fugla, en það eru þeir sem
„Það ætti að leyfa
mönnum að veiða
fimm til tíu fugla og
ekkert meira."
hafa verið með magnveiði í rjúp-
unni sem setja allt úr skorðum.
Veiðimenn sem skjóta á milli þús-
und, fimmtán hundruð fugla ári
og jafnvel meira, bara til að selja
fuglinn.
„Það ætti að leyfa mönnum að
veiða fimm til tíu fugla og ekkert
meira, það er alveg nóg,“ sagði
skotveiðimaður norðan heiða, og
annar fyrir sunnan sagði að það
ætti að friða miklu stærra svæði
eins og hérna í Reykjavík og leyfa
mönnum að veiða sér í matinn.
Það eru engin jól nema hafa rjúp-
ur á borðum.“
Það verður spennandi að fylgj-
ast með málinu næstu vikurnar,
máið er stórt og mikið, sölubann
myndi hreyfa verulega við öllu
málinu. En Alþingi kemur ekki
saman fýrr en í byrjun október og
þetta er örugglega ekki fyrsta mál-
ið á dagskránni þá.
C. Bender
Reynir Friðriksson með 9,5 kg. iax úr stórlaxaánni Ytri Rangá!
i
www.lax-a.is
Nýjar fréttir daglega!