Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2003, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2003, Page 2
2 FRÉTTIR FÖSTUDAGUR 10. OKTÚBER 2003 CrrGAFUFÉLAG: Útgáfufélagið DV ehf. FRAMKVÆMDASTJÓRI: örn Valdimarsson AÐALRITSTJÓRI: Óli Bjöm Kárason AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jónas Haraldsson DV: Skaftahlíð 24,105 Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Rítstjóm: 550 5020 - AÐRAR DEILDIR: 550 5749 Rltstjóm: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar auglys- ingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Akureyri: Hafnarstræti 94, sími: 462 5000, fax: 462 5001 Setnlng og umbrot Útgáfufélagið DV ehf. Plðtugerð og prentun: Árvakur hf. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins I stafrænu formi og í gagnabönkum án endur- gjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fýrir myndbirtingar af þeim. Efni blaðsins Nýr nauðasamningur Móa hugsanlegur - frétt bls. 4 Fyrrum Hafskipsstjóri stýrir Eimskip - frétt bls. 6 Heppinn að vera á lífi - fréttir bls. 8 Laxness talinn hættulegur - Frétt bls. TO „Okkar besta kannski ekki nóg" - Eiður Smári í viðtali við DV Sport bls. 38-39 Barinn til dauða fyrir limastuld Baba Jallow, 28 ára gamall Gambíubúi, var barinn til dauða í gær en honum var gefið að sök að hafa „stolið" limi manns með því að beita göldrum. Atburðurinn átti sér stað í bænum Serekunda, skammt frá höfuðborginni Banjil. Talsmaður lögreglunnar staðfesti dánaror- sök mannsins en ásakanir um „limastuld" munu ekki óalgeng- ar í Vestur-Afrfku. Hinir meintu galdramenn eru sagðir snerta fórnarlömb síns og við það minnkar limur viðkom- andi niður úr öilu valdi. Galdra- mennirnir bjóða síðan lækningu fyrir fúlgu fjár. Karlmenn í Ser- ekunda eru að sögn lögreglu óttaslegnir vegna málsins og veigra sér mjög við að heilsa fólki með handabandi. Ár í fangelsi fyrir tvö bankarán RÁN: Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt nítján ára pilt í eins árs fangelsi fyrir tvö bankarán. Pilturinn var dæmdur fýrir að ráðast inn í Sparisjóð Hafnar- fjarðar í apríl á þessu ári og hafa með sér á brott tæpar tvær millj- ónir. Seinna ránið átti sér stað í útibúi Landsbankans (Grindavík en þar hafði hann rúmar níu hundruð þúsund krónur upp úr krafsinu. I dómnum segir að pilt- urinn hafi sýnt mikla ófyrirleitni og bíræfni með brotunum og að þau væru stórfelld. Pilturinn kvaðst hafa framið brotin vegna peningaskorts en aðeins hluti peninganna komsttil skila aftur. Auk fangelsisdóms var honum gert að greiða Sjává-Almennum tryggingum hf. átta hundruð og tuttugu þúsund í bætur. Tvö ár fyrir kynferðisbrot DÓMUR: Maður á fertugsaldri var dæmdur í tveggja ára fang- elsi í Hæstarétti, fýrir kynferðis- brot gegn sextán ára stúlku árið 2001. Dómur Hæstaréttar er níu mánuðum þyngri en sá dómur sem maðurinn hlaut í héraðs- dómi. Auk fangelsisvistar er maðurinn dæmdur til að greiða stúlkunni sjö hundruð þúsund krónur í miskabætur. Brotið, sem átti sér stað á tjaldstæði, taldist gróft og hafði í för með sértalsverða líkamlega áverka á kynfærum, bjósti og hálsi stúlkunnar. Eftir atburðinn leit- aði stúlkan aðstoðar neyðar- móttöku og var maðurinn hand- tekinn í kjölfar þess. Hann neit- aði sakargiftum í fyrstu en DNA- rannsókn leiddi í Ijós að hann hafði ráðist á stúlkuna. Ríkisútgjöld á mann hafa hækkað samfellt frá 1997: Næstum meðalmánaðar- launá Á þessu ári stefnir í næstmestu raunhækkun ríkisútgjalda á mann sem orðið hefurfrá 1989. Útgjöldin eru nú að raungildi 181 þúsund krónum hærri á hvern einstakling á ári en árið 1997, eða 725 þúsund krónum hærri á hverja fjögurra manna fjölskyldu. Áætlanir benda til að ríkissjóður eyði - á verðlagi ársins 2002 - tæp- lega 882 þúsund krónum á hvern einstakling á þessu ári. Þetta er hvorki meira né minna en 25,9% raunhækkun frá 1997 en frá því ári hafa útgjöldin hækkað samfellt. Nærri lætur að hækkunin jafngildi meðalmánaðarlaunum á hvern einasta íslending en samkvæmt staðtölum Ríkisskattstjóra voru meðallaun í fyrra 192 þúsund krón- ur á mánuði. Fjöguraf tólf Frá 1991 hafa ríkisstjórnir undir forystu Sjálfstæðisflokksins fjórum sinnum lækkað ríkisútgjöld á mann á milli ára en átta sinnum hækkað þau. Mest varð hækkunin 1999, eða 7,1%. I ár stefnir í 5,6% hækkun. Leita þarf allt aftur til ársins 1988 til að finna meiri hækkun en varð þessi tvö ár. Þessar ríkisstjórnir hafa þó ekki náð jafn „glæsilegum" árangri og þær sem á undan fóru því að árið 1988 hækkuðu úgjöldin að raungildi um tæp 12% og árið 1986 um 13%. i hvern Islendinq Gjöld á mann á verðlagi 2002, kr. Tekjur á mann á verðlagi 2002, kr. Gjöld%afVLF MEIRA OG MEIRA OG MEIRA: Framan af 9. áratug skiptust stjórnvöld á að hækka og lækka raunútgjöld ríkissjóðs á milli ára en frá 1997 hafa þau hins vegar hækkað samfellt. -Tölur frá 1985-2002 eru frá Hagstofunni.Tölur um tekjur og gjöld 2003 (áætlun) og 2004 (fjárlaga- frumvarp) eru úr Þjóðarbúskapnum, riti fjármálaráðuneytisins, en DV færði þær yfir á verðlag ársins 2002 og deildi niður á mannfjölda samkvæmt spám Hagstofunnar. Samkvæmt frumvarpi til fjárlaga næsta árs, sem nýlega var lagt fram, verður raunlækkun í fyrsta sinn í sjö ár en sá árangur er vitanlega ekki í höfn. Athygli vekur að frá 1985 (sem hér er valið sem upphafsár af handahófi) höfðu raunútgjöld rík- isins á mann aldrei hækkað oftar en tvö ár í röð þar til samfelld bylgja hækkana fór af stað 1997. Samanburðarhæft Athygli skal vakin á því að hér er stuðst við aðferðafræði þjóðhags- reikninga, sem Hagstofan byggir á. Það þýðir að hagnaður af sölu eigna er ekki færður ríkissjóði til tekna. Á gjaldahliðinni er aðeins sá hluti lffeyrisskuldbindinga gjald- færður sem tengist launagreiðslum ársins, ekki uppreiknuð skuldbind- ing fram í tímann. Afskrifaðar skattakröfur eru heldur ekki gjald- færðar. Þetta þýðir að verulegur munur er á þjóðhagsreikningum og framsetningu í fjárlögum, en Hag- stofan fylgir þjóðhagsreikninga- staðli Evrópusambandsins. Þá skal áréttað að tölurnar eru á föstu verðlagi og leiðrétt er fyrir fólksfjölgun. Þær eiga því að vera fyllilega samanburðarhæfar. otafur@dv.is Hundrað þúsundasti farþeginn Tímamót urðu hjá lceland Ex- press um liðna helgi þegar hund- rað þúsundasti farþeginn kom með vél félagins frá London hingað til lands. Þarna reyndist á ferðinni Evelyn Davis sem var á leið hingað til lands ásamt Robert eiginmanni sínum. Hjónin ætla að dvelja hérlendis í vikutíma og skoða náttúru íslands. Sigurborg M. Guðmundsdóttir, þjónustustjóri Iceland Express, af- henti þeim hjónum blómvönd af þessu tilefni, svo og farmiða fyrir tvo hingað til lands. Robert og Evelyn sögðust ákveðin í að koma aftur í júní næstkomandi til að njóta ís- lenskrar náttúrufegurðar að sumar- lagi. Samkvæmt upplýsingum Iceland Express tók það félagið sjö mánuði og sex daga að flytja fyrstu 100 þús- und farþegana og segir félagið sæta- nýtingu hafa verið 78% að meðaltali; nýtingin fór hæst í rúm 93% í sumar. f september var sætanýtingin 72%. Þá segja forráðamenn Iceland Ex- press að farþegum sem fara um Keflavíkurflugvöll hafl fjölgað um 16% á árinu - og að frá því félagið hóf rekstur í lok febrúar hafi hlutdeild fé- lagsins í þessari fjölgun verið 84%. -aþ Helgarblað DV 100% kynlíf Helga Braga Jónsdóttir ætlar að sýna landsmönnum hvemig á að skemmta sér í rúminu í sérstæð- um kabarett sem er að fara af stað. Allt um málið í Helgarblaði DV. Trúnaðarbréf Hlínar Hlín Agnarsdóttir hefur skrifað bók sem hún kallar trúnaðarbréf til lesenda þar sem hún lýsir sext- án ára ástarsambandi sínu við Þorvald Ragnarsson lögfræðing sem lést fyrir fáum ámm. Hlín ræðir um fíkn og þjáningar við Helgarblað DV Þau misstu allt Baldur Svavarsson og Sóley Sævarsdóttir misstu einkadóttur sína Hrafn- hildi Líf úr bráðri heila- himnu- bólgu í maí í vor. Þau telja lækna hafa gert mistök og leita rétt- ar síns. Þau segja Helgarblaði DV sögu sína. Lífið í þögninni Sigurlín Margrét Sigurðardóttir er fýrsti heymarlausi þingmaðurinn sem situr á Alþingi fslendinga. Hún segir Helgarblaði DV ffá lffinu í þögninni. Handknúin tónlist Valgeir Guðjónsson hefur sent ffá sér nýja plötu. Hann ræðir við Helgar- blað DV um plötuna þar sem Diddú syngur lög Valgeirs og segir ff á draum- um sínum um skáldsögu, óþoli gagn- vart ffægðinni og hvers vegna hann hætti í Stuðmönnum fyrir 15 ámm.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.