Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2003, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR FÖSTUDAGUR 10. OKTÚBER 2003
CrrGAFUFÉLAG: Útgáfufélagið DV ehf.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: örn Valdimarsson
AÐALRITSTJÓRI: Óli Bjöm Kárason
AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jónas Haraldsson
DV: Skaftahlíð 24,105 Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Rítstjóm: 550
5020 - AÐRAR DEILDIR: 550 5749
Rltstjóm: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar auglys-
ingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is
Akureyri: Hafnarstræti 94, sími: 462 5000,
fax: 462 5001
Setnlng og umbrot Útgáfufélagið DV ehf.
Plðtugerð og prentun: Árvakur hf.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins I
stafrænu formi og í gagnabönkum án endur-
gjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl
við þá eða fýrir myndbirtingar af þeim.
Efni blaðsins
Nýr nauðasamningur
Móa hugsanlegur
- frétt bls. 4
Fyrrum Hafskipsstjóri
stýrir Eimskip
- frétt bls. 6
Heppinn að vera á lífi
- fréttir bls. 8
Laxness talinn
hættulegur
- Frétt bls. TO
„Okkar besta kannski
ekki nóg"
- Eiður Smári í viðtali við DV
Sport bls. 38-39
Barinn til dauða
fyrir limastuld
Baba Jallow, 28 ára gamall
Gambíubúi, var barinn til dauða
í gær en honum var gefið að sök
að hafa „stolið" limi manns með
því að beita göldrum.
Atburðurinn átti sér stað í
bænum Serekunda, skammt frá
höfuðborginni Banjil. Talsmaður
lögreglunnar staðfesti dánaror-
sök mannsins en ásakanir um
„limastuld" munu ekki óalgeng-
ar í Vestur-Afrfku.
Hinir meintu galdramenn eru
sagðir snerta fórnarlömb síns og
við það minnkar limur viðkom-
andi niður úr öilu valdi. Galdra-
mennirnir bjóða síðan lækningu
fyrir fúlgu fjár. Karlmenn í Ser-
ekunda eru að sögn lögreglu
óttaslegnir vegna málsins og
veigra sér mjög við að heilsa fólki
með handabandi.
Ár í fangelsi fyrir tvö bankarán
RÁN: Héraðsdómur Reykjaness
hefur dæmt nítján ára pilt í eins
árs fangelsi fyrir tvö bankarán.
Pilturinn var dæmdur fýrir að
ráðast inn í Sparisjóð Hafnar-
fjarðar í apríl á þessu ári og hafa
með sér á brott tæpar tvær millj-
ónir. Seinna ránið átti sér stað í
útibúi Landsbankans (Grindavík
en þar hafði hann rúmar níu
hundruð þúsund krónur upp úr
krafsinu. I dómnum segir að pilt-
urinn hafi sýnt mikla ófyrirleitni
og bíræfni með brotunum og að
þau væru stórfelld. Pilturinn
kvaðst hafa framið brotin vegna
peningaskorts en aðeins hluti
peninganna komsttil skila aftur.
Auk fangelsisdóms var honum
gert að greiða Sjává-Almennum
tryggingum hf. átta hundruð og
tuttugu þúsund í bætur.
Tvö ár fyrir kynferðisbrot
DÓMUR: Maður á fertugsaldri
var dæmdur í tveggja ára fang-
elsi í Hæstarétti, fýrir kynferðis-
brot gegn sextán ára stúlku árið
2001. Dómur Hæstaréttar er níu
mánuðum þyngri en sá dómur
sem maðurinn hlaut í héraðs-
dómi. Auk fangelsisvistar er
maðurinn dæmdur til að greiða
stúlkunni sjö hundruð þúsund
krónur í miskabætur. Brotið,
sem átti sér stað á tjaldstæði,
taldist gróft og hafði í för með
sértalsverða líkamlega áverka á
kynfærum, bjósti og hálsi
stúlkunnar. Eftir atburðinn leit-
aði stúlkan aðstoðar neyðar-
móttöku og var maðurinn hand-
tekinn í kjölfar þess. Hann neit-
aði sakargiftum í fyrstu en DNA-
rannsókn leiddi í Ijós að hann
hafði ráðist á stúlkuna.
Ríkisútgjöld á mann hafa hækkað samfellt frá 1997:
Næstum meðalmánaðar-
launá
Á þessu ári stefnir í næstmestu
raunhækkun ríkisútgjalda á
mann sem orðið hefurfrá 1989.
Útgjöldin eru nú að raungildi
181 þúsund krónum hærri á
hvern einstakling á ári en árið
1997, eða 725 þúsund krónum
hærri á hverja fjögurra manna
fjölskyldu.
Áætlanir benda til að ríkissjóður
eyði - á verðlagi ársins 2002 - tæp-
lega 882 þúsund krónum á hvern
einstakling á þessu ári. Þetta er
hvorki meira né minna en 25,9%
raunhækkun frá 1997 en frá því ári
hafa útgjöldin hækkað samfellt.
Nærri lætur að hækkunin jafngildi
meðalmánaðarlaunum á hvern
einasta íslending en samkvæmt
staðtölum Ríkisskattstjóra voru
meðallaun í fyrra 192 þúsund krón-
ur á mánuði.
Fjöguraf tólf
Frá 1991 hafa ríkisstjórnir undir
forystu Sjálfstæðisflokksins fjórum
sinnum lækkað ríkisútgjöld á mann
á milli ára en átta sinnum hækkað
þau. Mest varð hækkunin 1999, eða
7,1%. I ár stefnir í 5,6% hækkun.
Leita þarf allt aftur til ársins 1988 til
að finna meiri hækkun en varð
þessi tvö ár.
Þessar ríkisstjórnir hafa þó ekki
náð jafn „glæsilegum" árangri og
þær sem á undan fóru því að árið
1988 hækkuðu úgjöldin að raungildi
um tæp 12% og árið 1986 um 13%.
i hvern Islendinq
Gjöld á mann á verðlagi 2002, kr.
Tekjur á mann á verðlagi 2002, kr.
Gjöld%afVLF
MEIRA OG MEIRA OG MEIRA: Framan af 9. áratug skiptust stjórnvöld á að hækka og lækka raunútgjöld ríkissjóðs á milli ára en frá 1997
hafa þau hins vegar hækkað samfellt. -Tölur frá 1985-2002 eru frá Hagstofunni.Tölur um tekjur og gjöld 2003 (áætlun) og 2004 (fjárlaga-
frumvarp) eru úr Þjóðarbúskapnum, riti fjármálaráðuneytisins, en DV færði þær yfir á verðlag ársins 2002 og deildi niður á mannfjölda
samkvæmt spám Hagstofunnar.
Samkvæmt frumvarpi til fjárlaga
næsta árs, sem nýlega var lagt fram,
verður raunlækkun í fyrsta sinn í
sjö ár en sá árangur er vitanlega
ekki í höfn.
Athygli vekur að frá 1985 (sem
hér er valið sem upphafsár af
handahófi) höfðu raunútgjöld rík-
isins á mann aldrei hækkað oftar en
tvö ár í röð þar til samfelld bylgja
hækkana fór af stað 1997.
Samanburðarhæft
Athygli skal vakin á því að hér er
stuðst við aðferðafræði þjóðhags-
reikninga, sem Hagstofan byggir á.
Það þýðir að hagnaður af sölu
eigna er ekki færður ríkissjóði til
tekna. Á gjaldahliðinni er aðeins sá
hluti lffeyrisskuldbindinga gjald-
færður sem tengist launagreiðslum
ársins, ekki uppreiknuð skuldbind-
ing fram í tímann. Afskrifaðar
skattakröfur eru heldur ekki gjald-
færðar. Þetta þýðir að verulegur
munur er á þjóðhagsreikningum og
framsetningu í fjárlögum, en Hag-
stofan fylgir þjóðhagsreikninga-
staðli Evrópusambandsins.
Þá skal áréttað að tölurnar eru á
föstu verðlagi og leiðrétt er fyrir
fólksfjölgun. Þær eiga því að vera
fyllilega samanburðarhæfar.
otafur@dv.is
Hundrað þúsundasti farþeginn
Tímamót urðu hjá lceland Ex-
press um liðna helgi þegar hund-
rað þúsundasti farþeginn kom
með vél félagins frá London
hingað til lands.
Þarna reyndist á ferðinni Evelyn
Davis sem var á leið hingað til lands
ásamt Robert eiginmanni sínum.
Hjónin ætla að dvelja hérlendis í
vikutíma og skoða náttúru íslands.
Sigurborg M. Guðmundsdóttir,
þjónustustjóri Iceland Express, af-
henti þeim hjónum blómvönd af
þessu tilefni, svo og farmiða fyrir tvo
hingað til lands. Robert og Evelyn
sögðust ákveðin í að koma aftur í
júní næstkomandi til að njóta ís-
lenskrar náttúrufegurðar að sumar-
lagi.
Samkvæmt upplýsingum Iceland
Express tók það félagið sjö mánuði
og sex daga að flytja fyrstu 100 þús-
und farþegana og segir félagið sæta-
nýtingu hafa verið 78% að meðaltali;
nýtingin fór hæst í rúm 93% í sumar.
f september var sætanýtingin 72%.
Þá segja forráðamenn Iceland Ex-
press að farþegum sem fara um
Keflavíkurflugvöll hafl fjölgað um
16% á árinu - og að frá því félagið hóf
rekstur í lok febrúar hafi hlutdeild fé-
lagsins í þessari fjölgun verið 84%.
-aþ
Helgarblað DV
100% kynlíf
Helga Braga Jónsdóttir ætlar að
sýna landsmönnum hvemig á að
skemmta sér í rúminu í sérstæð-
um kabarett sem er að fara af stað.
Allt um málið í Helgarblaði DV.
Trúnaðarbréf Hlínar
Hlín Agnarsdóttir hefur skrifað
bók sem hún kallar trúnaðarbréf
til lesenda þar sem hún lýsir sext-
án ára ástarsambandi sínu við
Þorvald Ragnarsson lögfræðing
sem lést fyrir fáum ámm. Hlín
ræðir um fíkn og þjáningar við
Helgarblað DV
Þau misstu allt
Baldur Svavarsson og Sóley
Sævarsdóttir misstu einkadóttur
sína
Hrafn-
hildi Líf
úr bráðri
heila-
himnu-
bólgu í
maí í vor.
Þau telja
lækna
hafa gert
mistök og
leita rétt-
ar síns. Þau segja Helgarblaði DV
sögu sína.
Lífið í þögninni
Sigurlín Margrét Sigurðardóttir er
fýrsti heymarlausi þingmaðurinn sem
situr á Alþingi fslendinga. Hún segir
Helgarblaði DV ffá lffinu í þögninni.
Handknúin tónlist
Valgeir Guðjónsson hefur sent ffá
sér nýja plötu. Hann ræðir við Helgar-
blað DV um plötuna þar sem Diddú
syngur lög Valgeirs og segir ff á draum-
um sínum um skáldsögu, óþoli gagn-
vart ffægðinni og hvers vegna hann
hætti í Stuðmönnum fyrir 15 ámm.