Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2003, Page 4
4 FRÉTTIR FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 2003
*
fUf.LOl
Bernhard ehf. Vatnagarðar 24 - 26 Sími 520 1100
PEUGEOT
Ljón á veginum
Peugeot 206
1.4i, 75 hestöfl, X-line innrétting,
5 gíra, 5 d/ra, 4 loftpúðar.ABS,
fjarstýrðar samlxsingar, rafmagn f
rúðum, 5 þriggja punkta öryggisbelti,
fjarstýrt útvarp og geislaspilari.
Verð kr. L435.000
Rekstrarleiga* frá kr. 25.795
Peugeot 307
1,4i, 75 hestöfl, 5 gíra, 5 dyra,
6 loftpúðar.ABS, fjarstýrðar
samlæsingar, 5 þriggja punkta belti,
rafmagn í rúðum, fjarstýrt útvarp
og geislaspilari.
Verðkr. 1.619.000
Rekstrarleiga* frá kr. 26.820
Peugeot 406
1.8i, 117 hestöfl, 5 gira, 4 loftpúðar,
ABS, loftkæling, þokuljós, viðar-
innrétting, rafmagn í rúðum og
speglum, fjarstýrt útvarp og geisla-
spilari. Einstaklega þægilegur i akstri!
Verðkr. 1.959.000
Sjálfskiptur: 2.059.000
Rekstrarleiga* frá kr. 32.360
Peugeot 406 1.8i Station
117 hestöfl,5 gíra,4 loftpúpar, ABS,
loftkæling, þokuljós, viðarinnrétting,
rafmagn í rúðum og speglum.fjarstýrt
útvarp og geislaspilari. Einstaklega
þægilegur í akstri og með
mikið farangurspláss!
Verð kr. 2.059.000
Sjálfskiptur: 2.165.000
Rekstrarleiga* frá kr. 33.995
Peugeot 607
Þessi glæsilegi bfll er væntanlegur
í nóvember. Margar útfærslur í boði,
eftir þinum þörfum. Hafið samband
við sölumenn til að fá frekari
upplýsingar.
Peugeot 807
Öruggasti bíllinn í sínum flokki, fékk
5 stjörnur af 5 mögulegum í Euro
NCAP árekstrar-prófunum. Bíllinn
væntanlegur til landsins i nóvember.
ATH! Bíllinn er 7 manna.
3ja ára ábyrgð • 12 ára ryðvamarábyrgð • Útreikningur rekstrarleigu miðast við 36 mánuði.
I rekstrarleigu eru innifaldar smur- og þjónustuskoðanir. Rekstrarleiga er háð breytingum á gengi
erlendra mynta og vöxtum þeirra.
Umboðsaðllar:
Reykjanesbxr, Bilavik, slmi á2l 7800
Akranes, Bilver, slmi 431 1985
Akureyri, Höldur, slmi 461 6020
Vestmannaeyjar,Bragginn,slmi48l 1535
Peugeot 206 SW
Station 1.4i, 75 hestöfl, X-line
innrétting, 5 gíra, 4 loftpúðar, ABS,
þakbogar, fjarstýrðar samlæsingar,
rafmagn í rúðum, 5 þriggja punkta
öryggisbelti, fjarstýrt útvarp og
geislaspilari.
Verð kr. 1.565.000
Rekstrarleiga* frá kr. 25.965
Peugeot 307 Station
1,6i, 110 hestöfl, 5 gíra, 6 loftpúðar,
ABS, fjarstýrðar samlæsingar, rafmagn
í rúðum og speglum.fjarstýrt útvarp
og geislaspilari. Frábær fjölskyldubíil!
Verð kr. L779.000
Rekstrarleiga* frá kr. 29.800
Samkomulag
IMPREGILO: Samkomuiag
náðist í nótt milli ítalska verk-
takafyrirtækisins Impregilo
S.p.A. og landssambanda AS(
sem aðild eiga að samráðs-
nefnd virkjunarsamnings, að
því er fram kemur í fréttatil-
kynningu aðila. Markmið
þess er að skýra reglur og
leysa þau ágreiningsefni sem
uppi hafa verið um starfskjör
í nótt
erlendra starfsmanna sem
hafa verið ráðnir til starfa á
virkjunarsvæðið við Kára-
hnjúka. Það er sameiginlegt
markmið samningsaðila að
færa samskipti sín í eðlilegan
og jákvæðan farveg og leit-
ast við að finna lausn á úr-
lausnarefnum, sem fram-
kvæmdirnarvið Kárahnjúka
kalla á.
Nýr nauðasamn-
ingur hugsanlegur
aðmatistjórnarformannsMóa-Reykjagarðursagðurveraíkennitöluleik
„Við munum leita allra leiða til
að verja rekstur Móa til framtíð-
ar litið. Það eru miklir hags-
munir í húfi og mikil vonbrigði
að nauðasamningur hafi fallið í
Hæstarétti. Við teljum þó koma
sterklega til greina að óska eftir
nýjum nauðasamningi."
Þetta segir
Kristinn Gylfi
Jónsson, stjóm-
arformaður
Móa hf., en
Hæstiréttur
hnekkti á
þriðjudag dómi
Héraðsdóms
Reykjavíkur
með því að fall-
ast á kröfu lán-
Kristinn Gylfi
Jónsson.
ardrottna fuglabúsins Móa hf. um
að hafna staðfestingu nauðasamn-
ings Móa við lánardrottnana. Var
þetta gert að kröfu vélsmiðjunnar
Hamars ehf. og Reykjagarðs. Kári
Pálsson, annar framkvæmdastjóri
Hamars, hefur sagt að fyllilega komi
til greina að fara fram á gjaldþrot
Móa, skili aðrar leiðir ekki árangri,
en Móar skuldi vélsmiðjunni um 20
miljónir króna.
f nauðasamningnum var gert ráð
fyrir 70% eftirgjöf af samningskröf-
um. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði
áður staðfest nauðasamninginn en
Hæstiréttur taldi að frumvarp Móa
að nauðasamningi hefði í raun verið
fellt þegar það var borið upp á fundi
með kröfuhöfum í júnf. Þar hafi
30,5963% atkvæða verið andvíg en
70% atkvæða þurfti að samþykkja
frumvarpið. Þarna munar því tæp-
lega 0,6% atkvæða upp á að nauð-
ungarsamningar væru samþykktir,
að mati Hæstaréttar.
Gylfi segir dóm Hæstaréttar vissu-
lega vera áfall fyrir félagið en menn
séu þó ekkert á því að gefast upp.
„Hamar hlakkar yfir því að Móar
stefni í gjaldþrot en um leið eru þeir
að hlakka yfir því að almennir kröfu-
hafar tapi rúmum 200 milljónum
króna sem þeir hefðu annars fengið
við nauðasamninginn."
Kennitöluskipti
á Reykjagarði
Gylfi telur annarleg sjónarmið hjá
Reykjagarði f þessu máli. Þar sé
keppinautur í forsvari fyrir því að
koma Móum fráen það séu augljós-
ir hagsmunir Reykjagarðs. Þá bendir
KJÚKLINGASLÁTRUN: Eftir áralanga hatursfulla baráttu kjúklingaframleiðenda og ásakanir
á vfxl um offramleiðslu og offjárfestingar í kjúkllngasláturhúsum virðist sláturtíð vera
runnin upp í fyrirtækjarekstrinum sjálfum. Þannig hefur Reykjagarður m.a. komið í veg fyr-
ir Móar næðu fram nauðasamningum við sína kröfuhafa og gæti það leitt til gjaldþrots
Móa.
Gylfi á að Reykjagarður hafi sjálfur
farið í kennitöluskiptí um mánaða-
mótín.
„Þeir stofnuð nýtt félag sem heitir
Fjöður sem tók yfir valdar skuldir og
eignir Reykjagarðs. Nafninu Fjöður
ehf. var síðan breytt í Reykjagarð
ehf. og nafni gamla félagsins var
breytt í Túnfót ehf. Túnfótur var svo
skilinn eftír með ákveðnar eignir og
skuldir gamla Reykjagarðs. Síðan er
það spurning hvað verður um það
sem búið er að setja út í túnfótinn."
Horfir fram á gjaldþrot
Hjörtur Líndal, eigandi Háþrifs, er
einn þeirra kröfuhafa sem studdu
frumvarpið um nauðasamninga
Móa. Hann segir þetta mál snúast
um baráttuna um kjúklingamarkað-
inn. „Á sama tíma og þessu var áffýj-
að til Hæstaréttar, þá er SS, eigandi
Reykjagarðs, að selja sjálfú sér
Reykjagarð aftur og skilur skuldimar
eftír. Þama em á ferðinni kennitölu-
skipti sem er miklu meira siðleysi en
nauðasamningar. Kröfuhafar geta
ekkert gert og sitja eftir með sárt
ennið en í dæmi Móa vom okkur þó
boðin 30% af okkar kröfum."
- Ef Móar fara í þrot, hvað þýðir
það fyrir þig?
„Þá fæ ég og aðrir kröfuhafar ekk-
ert. Við áttum að fá 1 /3 af þessum
30% 1. október. Við þessa afgreiðslu
Hæstaréttar fáum við ekkert. Ég tapa
11 milljónum ef Móar fara í þrot og
verð þá gjaldþrota. Ég er með mjög
sérhæfða starfsemi við þrif og sótt-
hreinsun í sambandi við kjúklinga-
eldi og var um tíma að vinna fýrir
Reykjagarð en hef ekki gert það í um
ár. Með því að drepa Móa, drepa
þeir fullt af verktökum í leiðinni og
m.a. bændur sem eiga allt sitt undir
þessu."
Hjörtur segir allt þetta mál lykta
illa og ekki síst afskiptí Búnaðar-
bankans sem um tíma áttí og rak
Reykjagarð. Hann segir að málið
snúist einfaldlega um að SS nái í
framhaldinu einokunaraðstöðu á
markaðnum með Reykjagarð og
30% eignarhlut sínum 1' Isfugli sem
yrði eftír gjaldþrot Móa nánast eini
samkeppnisaðili Reykjagarðs.
Ekki hefur náðst í Steinþór Skúla-
son, forstjóra SS, þrátt fyrir ítrekaðar
tilraunir.
hkr&dv.is
Ársskýrsla Rannsóknarnefndar flugslysa2002,
Engin slys á mönnum
í skýrslu Rannsóknarnefndar
flugslysa kemur fram að árið 2002
skráði nefndin níutíu og þrjú atvik í
flugi íslenskra loftfara innan lands
og utan svo og í flugi erlendra loft-
fara á íslenska flugumferðasvæð-
inu. í þrjátíu og átta tilfella voru at-
vikin skilgreind sem flugslys eða al-
varleg flugatvik og fóru í sérstaka
rannsókn. Engin slys urðu á mönn-
um í flugi skráðra íslenskra loftfara
á árinu 2002.
í skýrslunni kemur fram að
Rannsóknamefnd flugslysa hafi átt
töluvert samstarf við erlenda rann-
sakendur vegna nokkurra atvika
sem hentu erlendar flugvélar hér á
landi á síðasta ári. Jafnframt því
sem nefndin tók þátt rannsókn er-
lendra aðila á átt atvikum sem
hentu íslenskar flugvélar erlendis.
Hægt er að nálgast skýrsluna í heild
sinni á vef Rannsóknarnefndar
flugslysa www.rnf.is. kip@dv.is
NÍUTfU OG ÞRJÚ SKRÁÐ ATVIK: f skýrslu
Rannsóknarnefndar flugslysa kemur fram
að árið 2002 skráði nefndin níutíu og þrjú
atvik iflugi fslenskra loftfara innan lands
og utan svo og f flugi erlendra loftfara á ís-
lenska flugumferðarsvæðinu.