Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2003, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2003, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIR FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 2003 * fUf.LOl Bernhard ehf. Vatnagarðar 24 - 26 Sími 520 1100 PEUGEOT Ljón á veginum Peugeot 206 1.4i, 75 hestöfl, X-line innrétting, 5 gíra, 5 d/ra, 4 loftpúðar.ABS, fjarstýrðar samlxsingar, rafmagn f rúðum, 5 þriggja punkta öryggisbelti, fjarstýrt útvarp og geislaspilari. Verð kr. L435.000 Rekstrarleiga* frá kr. 25.795 Peugeot 307 1,4i, 75 hestöfl, 5 gíra, 5 dyra, 6 loftpúðar.ABS, fjarstýrðar samlæsingar, 5 þriggja punkta belti, rafmagn í rúðum, fjarstýrt útvarp og geislaspilari. Verðkr. 1.619.000 Rekstrarleiga* frá kr. 26.820 Peugeot 406 1.8i, 117 hestöfl, 5 gira, 4 loftpúðar, ABS, loftkæling, þokuljós, viðar- innrétting, rafmagn í rúðum og speglum, fjarstýrt útvarp og geisla- spilari. Einstaklega þægilegur i akstri! Verðkr. 1.959.000 Sjálfskiptur: 2.059.000 Rekstrarleiga* frá kr. 32.360 Peugeot 406 1.8i Station 117 hestöfl,5 gíra,4 loftpúpar, ABS, loftkæling, þokuljós, viðarinnrétting, rafmagn í rúðum og speglum.fjarstýrt útvarp og geislaspilari. Einstaklega þægilegur í akstri og með mikið farangurspláss! Verð kr. 2.059.000 Sjálfskiptur: 2.165.000 Rekstrarleiga* frá kr. 33.995 Peugeot 607 Þessi glæsilegi bfll er væntanlegur í nóvember. Margar útfærslur í boði, eftir þinum þörfum. Hafið samband við sölumenn til að fá frekari upplýsingar. Peugeot 807 Öruggasti bíllinn í sínum flokki, fékk 5 stjörnur af 5 mögulegum í Euro NCAP árekstrar-prófunum. Bíllinn væntanlegur til landsins i nóvember. ATH! Bíllinn er 7 manna. 3ja ára ábyrgð • 12 ára ryðvamarábyrgð • Útreikningur rekstrarleigu miðast við 36 mánuði. I rekstrarleigu eru innifaldar smur- og þjónustuskoðanir. Rekstrarleiga er háð breytingum á gengi erlendra mynta og vöxtum þeirra. Umboðsaðllar: Reykjanesbxr, Bilavik, slmi á2l 7800 Akranes, Bilver, slmi 431 1985 Akureyri, Höldur, slmi 461 6020 Vestmannaeyjar,Bragginn,slmi48l 1535 Peugeot 206 SW Station 1.4i, 75 hestöfl, X-line innrétting, 5 gíra, 4 loftpúðar, ABS, þakbogar, fjarstýrðar samlæsingar, rafmagn í rúðum, 5 þriggja punkta öryggisbelti, fjarstýrt útvarp og geislaspilari. Verð kr. 1.565.000 Rekstrarleiga* frá kr. 25.965 Peugeot 307 Station 1,6i, 110 hestöfl, 5 gíra, 6 loftpúðar, ABS, fjarstýrðar samlæsingar, rafmagn í rúðum og speglum.fjarstýrt útvarp og geislaspilari. Frábær fjölskyldubíil! Verð kr. L779.000 Rekstrarleiga* frá kr. 29.800 Samkomulag IMPREGILO: Samkomuiag náðist í nótt milli ítalska verk- takafyrirtækisins Impregilo S.p.A. og landssambanda AS( sem aðild eiga að samráðs- nefnd virkjunarsamnings, að því er fram kemur í fréttatil- kynningu aðila. Markmið þess er að skýra reglur og leysa þau ágreiningsefni sem uppi hafa verið um starfskjör í nótt erlendra starfsmanna sem hafa verið ráðnir til starfa á virkjunarsvæðið við Kára- hnjúka. Það er sameiginlegt markmið samningsaðila að færa samskipti sín í eðlilegan og jákvæðan farveg og leit- ast við að finna lausn á úr- lausnarefnum, sem fram- kvæmdirnarvið Kárahnjúka kalla á. Nýr nauðasamn- ingur hugsanlegur aðmatistjórnarformannsMóa-Reykjagarðursagðurveraíkennitöluleik „Við munum leita allra leiða til að verja rekstur Móa til framtíð- ar litið. Það eru miklir hags- munir í húfi og mikil vonbrigði að nauðasamningur hafi fallið í Hæstarétti. Við teljum þó koma sterklega til greina að óska eftir nýjum nauðasamningi." Þetta segir Kristinn Gylfi Jónsson, stjóm- arformaður Móa hf., en Hæstiréttur hnekkti á þriðjudag dómi Héraðsdóms Reykjavíkur með því að fall- ast á kröfu lán- Kristinn Gylfi Jónsson. ardrottna fuglabúsins Móa hf. um að hafna staðfestingu nauðasamn- ings Móa við lánardrottnana. Var þetta gert að kröfu vélsmiðjunnar Hamars ehf. og Reykjagarðs. Kári Pálsson, annar framkvæmdastjóri Hamars, hefur sagt að fyllilega komi til greina að fara fram á gjaldþrot Móa, skili aðrar leiðir ekki árangri, en Móar skuldi vélsmiðjunni um 20 miljónir króna. f nauðasamningnum var gert ráð fyrir 70% eftirgjöf af samningskröf- um. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður staðfest nauðasamninginn en Hæstiréttur taldi að frumvarp Móa að nauðasamningi hefði í raun verið fellt þegar það var borið upp á fundi með kröfuhöfum í júnf. Þar hafi 30,5963% atkvæða verið andvíg en 70% atkvæða þurfti að samþykkja frumvarpið. Þarna munar því tæp- lega 0,6% atkvæða upp á að nauð- ungarsamningar væru samþykktir, að mati Hæstaréttar. Gylfi segir dóm Hæstaréttar vissu- lega vera áfall fyrir félagið en menn séu þó ekkert á því að gefast upp. „Hamar hlakkar yfir því að Móar stefni í gjaldþrot en um leið eru þeir að hlakka yfir því að almennir kröfu- hafar tapi rúmum 200 milljónum króna sem þeir hefðu annars fengið við nauðasamninginn." Kennitöluskipti á Reykjagarði Gylfi telur annarleg sjónarmið hjá Reykjagarði f þessu máli. Þar sé keppinautur í forsvari fyrir því að koma Móum fráen það séu augljós- ir hagsmunir Reykjagarðs. Þá bendir KJÚKLINGASLÁTRUN: Eftir áralanga hatursfulla baráttu kjúklingaframleiðenda og ásakanir á vfxl um offramleiðslu og offjárfestingar í kjúkllngasláturhúsum virðist sláturtíð vera runnin upp í fyrirtækjarekstrinum sjálfum. Þannig hefur Reykjagarður m.a. komið í veg fyr- ir Móar næðu fram nauðasamningum við sína kröfuhafa og gæti það leitt til gjaldþrots Móa. Gylfi á að Reykjagarður hafi sjálfur farið í kennitöluskiptí um mánaða- mótín. „Þeir stofnuð nýtt félag sem heitir Fjöður sem tók yfir valdar skuldir og eignir Reykjagarðs. Nafninu Fjöður ehf. var síðan breytt í Reykjagarð ehf. og nafni gamla félagsins var breytt í Túnfót ehf. Túnfótur var svo skilinn eftír með ákveðnar eignir og skuldir gamla Reykjagarðs. Síðan er það spurning hvað verður um það sem búið er að setja út í túnfótinn." Horfir fram á gjaldþrot Hjörtur Líndal, eigandi Háþrifs, er einn þeirra kröfuhafa sem studdu frumvarpið um nauðasamninga Móa. Hann segir þetta mál snúast um baráttuna um kjúklingamarkað- inn. „Á sama tíma og þessu var áffýj- að til Hæstaréttar, þá er SS, eigandi Reykjagarðs, að selja sjálfú sér Reykjagarð aftur og skilur skuldimar eftír. Þama em á ferðinni kennitölu- skipti sem er miklu meira siðleysi en nauðasamningar. Kröfuhafar geta ekkert gert og sitja eftir með sárt ennið en í dæmi Móa vom okkur þó boðin 30% af okkar kröfum." - Ef Móar fara í þrot, hvað þýðir það fyrir þig? „Þá fæ ég og aðrir kröfuhafar ekk- ert. Við áttum að fá 1 /3 af þessum 30% 1. október. Við þessa afgreiðslu Hæstaréttar fáum við ekkert. Ég tapa 11 milljónum ef Móar fara í þrot og verð þá gjaldþrota. Ég er með mjög sérhæfða starfsemi við þrif og sótt- hreinsun í sambandi við kjúklinga- eldi og var um tíma að vinna fýrir Reykjagarð en hef ekki gert það í um ár. Með því að drepa Móa, drepa þeir fullt af verktökum í leiðinni og m.a. bændur sem eiga allt sitt undir þessu." Hjörtur segir allt þetta mál lykta illa og ekki síst afskiptí Búnaðar- bankans sem um tíma áttí og rak Reykjagarð. Hann segir að málið snúist einfaldlega um að SS nái í framhaldinu einokunaraðstöðu á markaðnum með Reykjagarð og 30% eignarhlut sínum 1' Isfugli sem yrði eftír gjaldþrot Móa nánast eini samkeppnisaðili Reykjagarðs. Ekki hefur náðst í Steinþór Skúla- son, forstjóra SS, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. hkr&dv.is Ársskýrsla Rannsóknarnefndar flugslysa2002, Engin slys á mönnum í skýrslu Rannsóknarnefndar flugslysa kemur fram að árið 2002 skráði nefndin níutíu og þrjú atvik í flugi íslenskra loftfara innan lands og utan svo og í flugi erlendra loft- fara á íslenska flugumferðasvæð- inu. í þrjátíu og átta tilfella voru at- vikin skilgreind sem flugslys eða al- varleg flugatvik og fóru í sérstaka rannsókn. Engin slys urðu á mönn- um í flugi skráðra íslenskra loftfara á árinu 2002. í skýrslunni kemur fram að Rannsóknamefnd flugslysa hafi átt töluvert samstarf við erlenda rann- sakendur vegna nokkurra atvika sem hentu erlendar flugvélar hér á landi á síðasta ári. Jafnframt því sem nefndin tók þátt rannsókn er- lendra aðila á átt atvikum sem hentu íslenskar flugvélar erlendis. Hægt er að nálgast skýrsluna í heild sinni á vef Rannsóknarnefndar flugslysa www.rnf.is. kip@dv.is NÍUTfU OG ÞRJÚ SKRÁÐ ATVIK: f skýrslu Rannsóknarnefndar flugslysa kemur fram að árið 2002 skráði nefndin níutíu og þrjú atvik iflugi fslenskra loftfara innan lands og utan svo og f flugi erlendra loftfara á ís- lenska flugumferðarsvæðinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.