Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2003, Page 20
20 í-'óKUS FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 2003
Aðdáendur framsækinnar danstónlistar hafa eignast nýtt
heimili á Kapital í Hafnarstræti. Staðurinn var opnaður fyrir
mánuði síðan og hefur frá upphafi gengið vel enda hefur lítið
verið að gerast á þessum vettvangi undanfarin misseri. Ann-
að kvöld verður sannkölluð veisla á Kapital þegar plötusnúð-
urinn Margeir og söngvarinn Maggi Jóns taka höndum saman.
Sjó
ólgandi
þeit y
ansmúsík
Skemmtistaðurinn Kapital f Hafnarstræti
hefur farið vel af stað. Annað kvöld koma
fram plötusnúðurinn Margeir og
songvarinn Maggi Jóns. Maggi sést hér við
æfingar á staðnum. Eins og sjá má á
myndunum hefur staðurinn fengið
hressilega andlitslyftingu frá því
Spotlight var þar síðast.
Fokus
býðuró
Kapital
Klipptu út þennan
miða og mættu
með hann
laugardagskvöldið
11. október á
Kapital á milli
21og 24 og þú færð
frítt inn og
ókeypis bjór.
I
I
I
„Hugmyndin með Kapital er að þarna
er boðið upp á góða, öfluga og framsækna
danstónlist í þéttu sándi en samt vina-
legu umhverfi,11 segir plötusnúðurinn
Margeir sem er tónlistarstjóri á Kapital.
Nokkuð er um liðið síðan klúbburinn
Thomsen, sem var í sama húsnæði, lagði
upp laupana og hafa margir unnendur
því glaðst mjög yfir tilkomu Kapital sém
hefúr nú verið opinn í um mánuð.
„Við höfúm fram að þessu fengið til liðs
við okkur rjómann af góðum plötusnúðum
og tónlistarmönnum hér á landi og að
auki höíúm við fengið heimsóknir frá
nokkrum hetjum að utan. Ég held þvt að
það sé óhætt að segja að staðurirtn hafi far-
ið vel af stað,“ segir Margeir.
Annað kvöld kemur Margeir fram á
Kapital ásamt söngvaranum Magga Jóns
sem þekktur er fyrir störf sín í Gus Gus
en gaf nýlega út plötu undir nafninu Bla-
ke.
„Samstarf okkar Magga byrjaði þegar
hann söng með Tríói Margeirs Ingólfs-
sonar. Þetta samstarf lukkaðist svo rosa-
lega vel að við höfum unnið saman af og
til síðan þá, bæði hér heima og eins höf-
um við farið nokkrum sinnum út. Síðast
fórum við til Króatíu en áður höfðum við
meðal annars farið til Kaupmannahafnar
og víðar. Maggi er einn af örfáum Islend-
ingum sem geta sungið svona dansmúsík
og hann hefur reyndar líka pródúserað
mjög góða hluti. Mikið af þessum söngv-
urum hérlendis eru bara sveitaballa-
söngvarar, þeir skilja ekki alveg sálina
sem þarf í húsmúsíkinni."
Hvað ætlið þið svo bjóða fólkinu upp á
annað kvöld?
„Við höfúm skilgreint það þannig að við
ætlum að malla saman sjóðheitt sett af
ólgandi dansmúsík. Þetta er blanda af
dansmúsík, hústónlist og diskói. Svo
munum við líka væntanlega frumflytja
einhver ný lög með Blake og prufukeyra
þau á fólkinu."
Hvemig finnst þér hafa tekist til með
Kapital?
„Ég held að okkur sé að takast að búa til
mjög flottan klúbb. Það er líka þegar farið
að spyrjast út því ég hef verið að fá fyrir-
spumir frá plötusnúðum sem vilja koma
hingað til lands og spila. Annars verður
líka mikið að gerast hjá okkur í næstu
viku í kringum Airwaves, mögnuð dag-
skrá frá miðvikudegi til laugardags."
Nældu þér í miða á Fókus,
Skaftahlíð I dag.