Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2003, Síða 30
"* 30 TILVERA FÖSTUDAGUR 70. OKTÓBER 2003
íslendingar
Áttatfu ára
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
Netfang: aettir@dv.is
Sími: 550 5826
Ingólfur Aðalsteinsson
fyrrv. forstjóri Hitaveitu Suöurnesja
Ingólfur Aðalsteinsson, íyrrv. for-
stjóri Hitaveitu Suðurnesja, Kirkju-
sandi 3, Reykjavík, er áttatíu ára í
dag.
Starfsferill
Ingólfur fæddist á Hamraendum
í Miðdölum en ólst upp í Brautar-
holti í Dölum. Hann lauk stúdents-
prófi frá MA 1946, hóf nám í lækn-
isfræði og lauk cand. phil.-prófi frá
HÍ 1947, er veðurfræðingur frá
Sveriges Meterologiska och Hydro-
logiska Institut 1949 og stundaði
framhaldsnám við sama skóla
1964.
Ingólfur starfaði á Veðurstofu ís-
lands 1949-75, lengst af á spádeild
Veðurstofunnar á Keflavíkurflug-
velli. Hann var fyrsti framkvæmda-
stjóri og síðar forstjóri Hitaveitu
Suðurnesja 1975-92. Hann bjó í
Njarðvík frá 1958 en flutti til
Reykjavíkur 1998.
Ingólfur sat í hreppsnefnd og síð-
ar bæjarstjórn í Njarðvík frá 1962
og átti sæti í fjölda nefnda á vegum
bæjarfélagsins. Hann er félagi í
Lionshreyfmgunni frá 1962, var
umdæmisritari Lions á íslandi í eitt
ár, svæðisstjóri í eitt ár og formaður
í eitt ár og Melvin Jones félagi.
Hann átti lengi sæti í kjördæmis-
ráði Sjálfstæðisflokksins í Reykja-
neskjördæmi.
Fjölskylda
Ingólfur kvæntist 30.6.1949 Ingi-
björgu Ólafsdóttur, f. 9.2. 1926,
húsmóður. Hún er dóttir Ólafs
Methúsalemssonar, f. 17.6. 1877, d.
13.6. 1957, kaupfélagsstjóra á
Vopnafirði, og k.h., Ásrúnar Jörg-
ensdóttur, f. 11.9. 1892, d. 27.9.
1970, húsmóður.
Börn Ingólfs og Ingibjargar eru
Aðalsteinn, f. 7.3.1948, listfræðing-
ur, kvæntur Janet Shepherd og eiga
þau þrjár dætur; Ólafur Örn, f. 9.6.
1951, hagfræðingur, kvæntur Ingi-
björgu Guðmundsdóttur og eiga
þau eina dóttur; Birgir, f. 23.1.1953,
auglýsingatæknir, kvæntur Auði
Jónsdóttur félagsfræðingi og eiga
þau tvö börn; Ásrún, f. 21.10. 1955,
hjúkrunarfræðingur, gift Magnúsi
Snæbjörnssyni tæknifræðingi og
eiga þau tvö börn; Leifur, f. 6.9.
1960, í sambúð með Lilju Margréti
Möller kennara og eiga þau eina
dóttur; Atli, f. 21.8. 1962, tónskáld,
kvæntur Þuríði Jónsdóttur tón-
skáldi og eiga þau tvö börn.
Hálfsystir Ingólfs: Svava, f. 1922,
d. 1971, húsmóðir í Reykjavík.
Alsystkini Ingólfs: Guðrún, f.
1924, d. 1977, húsmóðiríKópavogi;
Gunnar, f. 1926, d. 2002, bóndi og
síðar deildarstjóri hjá Kaupfélagi
Borgfirðinga; Svanhildur, f. 1929,
húsmóðir í Reykjavík; Brynjólfur, f.
1931, bóndi og síðar múrari í
Garðabæ; Emelía Lilja, f. 1934, hús-
móðir í Kópavogi.
Foreldrar Ingólfs voru Aðalsteinn
Baldvinsson, f. 12.9. 1897, d. 21.9.
1980, kaupmaður í Brautarholti í
Haukadal í Dölum, og Ingileif Sig-
ríður Björnsdóttir, f. 15.6. 1899, d.
14.6. 1977, húsfreyja.
Ætt
Aðalsteinn var sonur Baldvins, b.
á Hamraendum, Baldvinssonar, b.
á Bugðustöðum, Haraldssonar.
Móðir Baldvins á Hamraendum var
Sæunn Jónsdóttir.
Móðir Aðalsteins var Halldóra
Guðmundsdóttir, b. á Fellsenda,
Daðasonar.
Ingileif var dóttir Björns, b. og
kaupmanns í Brautarholti, Jóns-
sonar.
Móðir Ingileifar var Guðrún
Ólafsdóttir, b. á Vatni, Brandssonar
og Katrínar, systur Skarphéðins,
föður Friðjóns, fyrrv. ráðherra, og
Pálma, föður Guðmundar jarðeðl-
isfræðings, og Ólafs, bókavarðar
Seðlabankans. Katrín var dóttir
Jóns, b. í Stóra-Galtardal, Þorgeirs-
sonar og Halldóru Jónsdóttir, b. á
Breiðabólstað á Fellsströnd, Jóns-
sonar. Systir Halldóru var Hólm-
fríður, langamma Ingibjargar,
ömmu Ingibjargar Haraldsdóttur
rithöfundar. Systir Halldóru var
einnig Steinunn, langamma Auðar
Eydal. Bróðir Halldóru var Þórður,
faðir Friðjóns Þórðarsonar, fyrrv.
ráðherra, og Gests, föður Svavars
sendiherra.
Ingólfur er að heiman á afmælis-
daginn.
Sextíu ára
Helgi Guðmundsson
rithöfundur á Akroensi
Helgi Guðmundsson rithöfund-
ur, Bakkatúni 20, Akranesi, varð
sextugur í gær.
Starfsferill
Helgi fæddist á Staðastað á Snæ-
fellsnesi þar sem faðir hans var
sóknarprestur en flutti nýfæddur
með fjölskyldu sinni til Neskaup-
staðar. Þegar Helgi var á níunda ári
lést faðir hans skyndilega. Var þá
heimilið leyst upp vegna veikinda
móðurinnar og fóru börnin fjögur
-g hvert í sfna áttina.
Helgi átti næstu tíu árin athvarf í
Skuggahlíð í Norðijarðarhreppi.
Hann er gagnfræðingur frá Gagn-
fræðaskóla verknáms í Reykjavík,
lauk sveinsprófi í húsasmíði frá
Iðnskólanum í Reykjavík 1967 og
varð húsasmíðameistari á Akureyri
1974.
Að loknu sveinsprófi Iá leiðin
norður, fyrst til Húsavíkur, en síðan
til Akureyrar 1971. Hann varð rit-
stjóri málgagns Alþýðubandalags-
ins á Norðurlandi eystra, starfs-
maður verkalýðsfélaganna, for-
maður Trésmiðafélags Akureyrar
og bæjarfulltrúi, og starfaði hjá ASÍ
um skeið.
Fjölskyldan flutti suður 1984 og
fór hann þá að sinna ritstörfum af
alvöru. Hann var um tíma blaða-
maður á Þjóðviljanum og ritstjóri
blaðsins, ásamt Árna Bergmann,
síðustu árin sem blaðið kom út,
1990-92.
Fyrstu bækur Helga: Þeir máluðu
bæinn rauðan, mannlífs- og stjórn-
málasaga Norðfjarðar, 1990, og
Markús Árelíus, barnabók, 1990.
Síðan hefur Helgi skrifað fimm
bækur. Auk þess hefur hann skrifað
mikinn fjölda blaðagreina um fjöl-
breytilegasta efni.
Helgi hóf afskipti af félags- og
stjórnmálum þegar á unglingsár-
um og var m.a. formaður Iðnnema-
sambands íslands og síðar í for-
ystusveit byggingarmanna. Hann
gegndi fjölmörgum trúnaðarstörf-
um fyrir samtök byggingarmanna á
landsvísu, sat í stjórn Menningar-
og fræðslusambands alþýðu tvo
áratugi og varformaður þess í átta
ár.
Fjölskylda
heiður Benediktsdóttir, f. 1942,
meinatæknir. Foreldrar hennar:
Benedikt Einarsson húsasmíða-
meistari, sem er látinn, og Margrét
Stefánsdóttir, húsmóðir og lækna-
ritari.
Seinni kona Helga frá 1992: Jó-
hanna G. Leópoldsdóttir, f. 1956,
guðfræðinemi. Foreldrar hennar
eru Leópold Jóhannesson, f. 1917,
fyrrv. veitingamaður í Hreðavatns-
skála, og Olga Sigurðardóttir, f.
1932, veitingakona.
Börn Helga: Þórunn, f. 1966;
Benedikt, f. 1969; Valgerður, f.
1993.
Þorbjörg, f. 1985.
Systkini: Baldur, f. 29.1.1938, sjó-
maður í Ólafsvík; Gylfi, f. 1.9. 1940,
skólastjóri í Keflavík; Kristín, f. 31.1.
1949, læknaritari,
Foreldrar Helga voru Guðmund-
ur Helgason, f. 6.1. 1909, d. 6.7.
1952, sóknarprestur á Staðastað og
á Norðfirði, og k.h., Þorvalda Hulda
Sveinsdóttir, f. 18.2. 1916, d. 16.12.
1983, húsmóðir og verslunarmaður.
Ætt
Guðmundur var sonur Helga, sjó-
manns í Melhúsum í Hafnarfirði,
Guðmundssonar, sjómanns á Hellu
í Hafnarfirði, Guðmundssonar.
Móðir Helga var Sigríður Helgadótt-
ir frá Hlíð í Garðahverfi.
Móðir Guðmundar var Guðrún
Þórarinsdótúr, b. og smiðs í Forna-
seli í Álftaneshreppi á Mýrum, Þór-
arinssonar, og Þorgerðar Oddsdótt-
ur.
Þorvalda Hulda var dóttir Sveins,
skólastjóra í Gerðum í Garði, Hall-
dórssonar, b. á Skeggjastöðum í
Garði, Halldórssonar, b. í Kjarnholt-
um í Biskupstungum, Halldórsson-
ar. Móðir Sveins var Ingunn Árna-
dóttir, b. í Bartakoti í Selvogi, Gísla-
sonar.
Móðir Þorvöldu Huldu var Guð-
rún, dóttir Pálma, b. á Meiri-Bakka í
Skálavík, Bjarnasonar og Krisú'nar
Friðbertsdóttur, b. í Vatnadal, Guð-
mundssonar, b. í Görðum í Önund-
arfirði, Jónssonar.
Fyrri kona Helga frá 1963: Ragn- Fósturbörn: Leópold, f. 1983, og
alltaf sambandi viö okkur!
Smáauglýslngar
Œ
mánudaga *ll flmmtudaga kl. 9 — 20
föatudaga kl. 9 — 18
aunnudaga Kl. 3-0 — 20
550 5000
smaauglyslngar@dv.is
hvenœr sólarhringslns sem er
Stórafmæli
80 ára
Þórður Guðjónsson,
skipstjóri og
útgerðarmaður,
Skólabraut 29,
Akranesi. Þórðurtekur
á móti gestum í sai
Fjölbrautaskólans á Vesturlandi,
Akranesi, ídag kl. 18.00-21.00.
Þorbjörg Guðmundsdóttir,
Tjarnarlundi lOb, Akureyri.
75 ára
Elín Jónsdóttir,
Mýrarvegi 111, Akureyri.
Hreinn Benediktsson,
Árskógum 2, Reykjavík.
Reynir Jónasson,
Álfhóli 5, Húsavík.
Sigurbjörn Bjarnason,
Stórholti 24, Reykjavík.
Þórdís J. Valdimarsdóttir,
Bræðraborgarstíg 4, Reykjavík.
70 ára
Grétar Geir Nikulásson,
Háaieitisbraut 14, Reykjavík.
Guðrún E. Thorarensen,
Keilufelli 23, Reykjavík.
Högni MarselKusson,
Aðalstræti 20, (safirði.
Jiguang Yan,
Laufrima 3, Reykjavík.
Jóhann Rósinkrans Sfmonarson,
Sætúni 1, (saflrði.
60 ára
Árni Hrafn Árnason,
Steinagerði 10, Reykjavík.
Dfs Guðbjörg Óskarsdóttir,
Bakkagerði 7, Reykjavík.
Helga Þórisdóttir,
Álmholti 11, Mosfellsbæ.
Málfríður Eggertsdóttir,
Sunnubraut 9, Vík.
Sigrfður Kr. Þorsteinsdóttir,
Litlagerði 5, Hvolsvelli.
Þuríður Jóna Antonsdóttir,
Marargrund 7, Garðabæ.
50 ára
Vilborg Pétursdóttir,
Ólafsgeisla 2,
Reykjavík, (Lyngholti,
Leirársveit), verður
fimmtug á sunnudag.
Maðurhennarer
Hafþór Harðarson. Þau taka á móti
gestum í Stélinu, Síðumúla 11,
laugard. 11.10. kl. 20.30.
Árni Stefánsson,
Raftahlíð 29, Sauðárkróki.
Hildur Guðmundsdóttir,
Blikahjalla 11, Kópavogi.
Sigrfður Guðbergsdóttir,
Blómahæð 5, Garðabæ.
Valur Harðarson,
Stillholti 14, Akranesi.
40 ára
Alda Jóhanna Jóhannsdóttir,
Birkihlíð 12, Vestmannaeyjum.
Anna Bjarnadóttir,
Holtsgötu 47, Sandgerði.
Elfn Gunnarsdóttir,
Hraunteigi 17, Reykjavík.
Gróa Steina Ævarr Erlingsdóttir,
Básahrauni 4, Þorlákshöfn.
Haraldur Árni Hjálmarsson,
Smáragrund 6, Sauðárkróki.
Júlfus Finnsson,
Bjarmahlíð 2, Hafnarfirði.
Sara Jónsdóttir,
Helgubraut 3, Kópavogi.
Jarðarfarir
Óli Sigurður Jónsson skipstjóri,
Hrafnistu, Hafnarfirði, verður jarð-
sunginn frá Vídalínskirkju í Garða-
bæföstud. 10.10. kl. 15.00.
Jarðarför Eriku Vilhelmsdóttur fer
fram frá Hafnarfjarðarkirkju föstud.
10.10. kl. 13.30.
Sigurður Pálsson, Digranesvegi 40,
Kópavogi, verður jarðsunginn frá
Árbæjarkirkju 10.10. kl. 15.00.
Þórhallur Árnason, fyrrum bóndi á
Veðramóti, verður jarðsunginn frá
Akureyrarkirkju 10.10. kl. 13.30.
Sigurbjörg Ingimundardóttir,
Dyngjuvegi 12, Reykjavík, verður
jarðsungin frá Áskirkju föstud.
10.10. kl. 13.30.
Hallbjörn Eðvarð Oddsson,
dvalarheimilinu Grund, áður til
heimilis á Lynghaga 6, verður
jarðsunginn frá Bústaðakirkju
föstud. 10.10. kl. 13.30.
Óli Magnús Þorsteinsson, Kárastíg
13, Hofsósi, verður jarðsunginn frá
Hofsóskirkju 11.10. kl. 11.00.