Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2003, Qupperneq 6
6 FRÉTTIR LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 2003
Bruni í Bolungarvik
SLÖKKVISTARF: Slökkvilið Bol-
ungarvíkur var kallað út um
klukkan hálfsex í gær til að
berjast við eld sem komið
hafði upp í gömlu trésmíða-
verkstæði í bænum en húsið er
timburklætt auk þess sem mik-
ill eldmatur var inni í húsinu.
Þegar DV fór í prentun í gær
var slökkvistarfi ekki enn lokið
en að sögn lögreglunnar í
Frá Bolungarvík.
Bolungarvík hafði hluti hússins
þá verið rifin en talin var hætta
á að eldurinn gæti borist í
næstu hús. Ljóst þykir að um
stórtjón sé að ræða.
Hefja eyðingu
SVEITARSTJÓRNARMAL Bæjar-
... stjórnJsafjarðarbæjarsam—
þykkti á fundi sínum á fimmtu-
dag að hefja á ný eyðingu
villikatta.Talsvert hefur verið
deilt um málið í bæjarfélaginu
síðustu vikur en fyrir skemmstu
var ákveðið að stöðva eyðingu
kattanna uns reglur um katta-
hald á (safirði hefðu verið sam-
þykktar í bæjarstjórn. Þrátt fyrir
villikatta á ný
það var ákveðið að halda að-
gerðunum áfram. Var tillagan á
fimmtudag samþykkt með sjö
atkvæðum gegn einu atkvæði
Magnúsar Reynis Guðmunds-
sonar. fulltrúa Frjálslynda
flokksins. Bæjarstjórnin mun
svo að öllum líkindum funda
aftur að tveimur viknum liðn-
um og þá taka fyrir tilögurnar
um kattahald í bæjarfélaginu.
Nagaði í sundur Ijósleiðara
FJARSKIPTI: Bilun varð á Ijós-
leiðarakerft-Símans á fimmtu-
dag og var nánast ekkert NMT-
og GSM-símasamband á norð-
anverðum Vestfjörðum um
tíma, auk þess sem fastlínu-
kerfið lá sums staðar niðri. Þá
sáust útsendingar sjónvarpsins
ekki á Þingeyri, Suðureyri, Flat-
eyri og í Bolungarvík og ein-
hver vandræði voru með út-
sendingar Stöðvar 2 og Sýnar
á (safirði. Viðgerðarmenn frá
línudeild Símans á (safirði
fundu bilunina þó fljótlega og
var bráðabirgðaviðgerðum
þeirra lokið snemma í gær-
morgun. Svo virðist sem mús
hafi nagað í sundur Ijósleiðar-
ann áTjaldanesi í Arnarfirðin-
um með fýrrgreindum afleið-
ingum.
Fjórir Portúgalar sem starfa við Kárahnjúka reknir og síðan ráðnir aftur:
Lögregla kölluð til
af ótta við ólæti
Mikið gekk á við virkjanasvæð-
ið við Kárahnjúka í gær. Um 100
portúgalskir starfmenn lögðu
niður vinnu á fimmtudag til að
mótmæla skorti á hlýjum ör-
yggisskóm en samkomulag um
málið náðist hins vegar þá um
nóttina. Einhverjir höfðu þó
ekki fengið hlífðarfatnað sinn í
gærmorgun og lögðu þá nokkr-
ir starfsmenn aftur niður vinnu.
Um 40 manna hópur Portúgala
hóf setuverkfall í gærmorgun og
neitaði að mæta til vinnu til þess að
mótmæla skorti á hlífðarfatnaði.
Þeir sögðu Impregilo ekki hafa
staðið við samkomulagið sem gert
Um miðjan dag varsvo
tilkynnt að fjórum
Portúgölum hefði verið
sagt upp vegna máls-
ins. Stuttseinna var
þetta hins vegar dregið
til baka.
hafði verið um nóttina og lögðu
mennirnir af þessu tilefni fram
fleiri kröfur í gærmorgun. Haft var
eftir trúnaðarmönnuin á svæðinu
KÁRAHNJÚKAR: Lögregla var kvödd á staðinn í gær vegna vinnudeilu erlendra starfsmanna á virkjanasvæðinu.
að þeir gætu ekki stutt þessar nýju
kröfúr Portúgalanna þar sem þær
væru töluvert umfram það sem
samningar kváðu á um. Talsverður
hiti var í mönnum í gærmorgun og
var því ákveðið að óska eftir aðstoð
lögreglunnar á Egilsstöðum af ótta
við hugsanleg ólæti.
Tilkynning barst svo frá ítalska
verktakafyrirtækinu Impregilo um
miðjan gærdaginn þar sem tilkynnt
var að fjórum Portúgölum hefði
verið sagt upp störfúm vegna máls-
ins. Voru uppsagnirnar sagðar
óhjákvæmilegar til þess að fá
vinnufrið á svæðinu. Stuttu síðar
barst hins vegar önnur tilkynning
frá fyrirtækinu þar sem fram kom
að mennirnir myndu halda vinnu
sinni, svo framarlega sem hinir
PortúgaJarnir sem þegar höfðu
fengið hlífðarföt en samt lagt niður
vinnu í gærmorgun mættu þegar til
starfa.
I tilkynningu Impreglio var tekið
fram að fyrirtækið væri ánægt með
þessa niðurstöðu og vonaði það að
þetta yrði síðasta málið af þessum
toga. Þá kom einnig fram að engir
eftirmál myndu verða í kjölfar
þessa máls og byggingu virkjunar-
innar yrði haldið áfram samkvæmt
áætlun.
agust@dv.is
Landstjóri Kanada í opinberri heimsókn
á íslandi í boði forsetans:
Aukin samvinna
Adrienne Clarkson, landstjóri
Kanada, kom hingað til lands í
gær ásamt eiginmanni sínum,
John Ralston, en þau eru hér á
landi í boði forseta íslands.
Megináherslur heimsóknar-
innar eru málefni norðurslóða
og samvinna ríkja í norðri, um-
hverfisvæn orka, sameiginleg-
ur menningararfur ríkjanna og
nýting sjávarauðlinda.
Heimsókn landstjórans hófst
með formlegri móttöku á Bessa-
stöðum í gær, þar sem ríkisstjórn
fslands var m.a. viðstödd. Eftir
stuttan fund landstjórans og for-
seta Islands var haldinn sameigin-
legur blaðamannafundur en um
kvöldið var síðan boðið til hátíðar-
kvöldverðar á Bessastöðum.
Halldór Ásgrímsson, utanríkis-
ráðherra og starfandi forsædsráð-
herra, mun svo í dag funda með
landstjóranum og þá verður orku-
verið á Nesjavöllum heimsótt áður
en haldið verður til hádegisverðar
á Þingvöllum. Síðdegis verður svo
starfsemi Hafrannsóknastofnunar
rækilega kynnt fyrir kanadíska
fylgdarliðinu, en í hópnum eru,
auk landstjórans, nokkrir þing-
menn, auk ráðherra umhverfis-
mála.
Hópurinn verður hér á landi
fram á miðvikudag og mun á þeim
tíma m.a. halda til Akureyrar og
Mývatns. Ætlunin er að kynnast
betur hinu margvíslega starfi «em
fram fer á íslandi. Einkum verða
málefni ríkja í norðri rædd, um-
hverfis- og sjávarútvegsmál, auk
menningarmála sem lúta að sam-
eiginlegum menningararfi íslands
og Kanada. agust@dv.is
FAGNAÐ MEÐ FÁNUM: Landstjóri Kanada, Adrienne Clarkson, er hér stödd í opinberri
heimsókn í boði forseta (slands ásamt eiginmanni sínum, John Ralston, og var þeim vel
tekið er þau komu að Bessastöðum í gær. Fjöldi barna hafði komið sér fyrir við forsetabú-
staðinn og fagnaði landstjóranum með því að veifa fánum landanna tveggja þegar hún
gaf sér tíma til að heilsa upp á þau.