Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2003, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2003, Blaðsíða 34
54 DV HELGARBLAD LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 2003 íslenska knattspymulandsliðið leikur mikilvægasta leik sinn tilþessa í dag: Draumur að veruleika? ÍÞRÓTTALJÓS Eiríkur Stefán Ásgeirsson eirikurst@dv.is DV, Hamborg: í dag verður háður einn mikil- vægasti íþróttaviðburður í sögu lands okkar, ef ekki sá allra mikilvægasti. í fyrsta sinn á íslenska liðið mögu- leika á að komast á úrslita- keppni stórmóts í knatt- spyrnu með því að vinna að- eins einn leik. En andstæðing- urinn í þessum eina leik er góður, sennilega það góður að allt annað en tap verður að teljast einn besti árangur ís- lenska landsliðsins frá upp- hafi. „Við getum bara látið okkur dreyma um að sigra í Þýskalandi," sagði Ásgeir Sigurvinsson, annar tveggja landsliðsþjálfara íslands, á blaðamannafundi íslenska liðsins í gær. Vissulega orð að sönnu. Allir eru landsliðsmennirnir var- kárir.í yfirlýsingum og enginn þeirra vill viðurkenna að það sé raunhæft að ætíast til þess að íslenska lands- liðið vinni þennan leik. En allir láta þeir sig dreyma og má búast við því að þeir muni nota sér það í leiknum til að ná upp baráttugleði og sam- stöðu í hópnum. Og er það af hinu góða. Gamla tuggan segir að íslenska landsliðið bregðist alltaf þegar á hólminn kemur. Til samanburðar má nefna 3 síðustu leiki í und- ankeppni HM 2002. Fyrst komu Tékkar í heimsókn og vann íslenska liðið þann leik, 3-1, og var þá hæstu hæðum náð. Næst komu tveir skell- ir, gegn Norður-írum og Dönum og var draumurinn endanlega úti. Árangurinn gegn Þjóðverjum heima í síðasta mánuði var ekkert Væru allir klárir, búnir að spila alla leiki með sínum félagsliðum, væri hætt við ofmetnað á eigin getu og liðið yrði væntanlega yfirspilað af Þjóðverjum. minni en sigurinn á Tékkum fyrir tveimur árum. Spurningin er hins vegar: Hafa landsliðsmennirnir lært af reynslunni og hefur landsliðs- þjálfurunum tekist að halda þeim á jörðinni? Ef Ásgeir og Logi hafa ekki komið í veg fyrir að menn fari á flug hafa meiðslavandræðin vissulega gert það. Strax er Ijóst að þrír menn úr fyrri leiknum verða ekki með. Lárus Orri Sigurðsson og Heiðar Helgu- son eru meiddir og Jóhannes Karl Guðjónsson í banni. Aðrir þrír lykil- menn eru í kapphlaupi við tímann, þeir Rúnar Kristinsson, Pétur Mart- einsson og Hermann Hreiðarsson. Menn eru þó bjartsýnir á að þeir verði klárir, en það verður ekki vitað fyrr en rétt fýrir leik. Svo er það leikformið margfræga. 17 af 20 landsliðsmönnum leika með félögum víðs vegar úr Evrópu og eru fæstir þeirra fastamenn í sín- um liðum. Allt þetta gerir það að verkum að menn verða að horfa með raunsæj- um augum á leikinn. Væru allir klárir, búnir að spila alla leiki með sínum félagsliðum, væri hætt við ofmetnað á eigin getu og liðið yrði væntanlega yfirspilað af Þjóðverj- um (eins og gerðist gegn Norður-Ir- um haustið 2001). En Þjóðverjar eiga líka í vandræð- um með sitt lið. Michael Ballack er meiddur en ætlar að spila og þótt svo að hann sé með rétt hugarfar breytir hann ekki líkamlegu ástandi sínu og það gæti komið honum í koll. Vinstri kanturinn er stærsti höfuðverkur Rudi Völlers landliðs- þjálfara, Tobias Rau er meiddur og mennirnir sem gætu tekið hans stöðu hafa verið harkalega gagn- rýndir fyrir lélega frammistöðu með félagsliðum sínum í Þýskalandi. Á hægri kantinum hjá íslandi er Þórður Guðjónsson sem hefur blómstrað síðan hann kom aftur inn í íslenska landsliðið. Hver veit nema hann geti fært sér þetta í nyt og skapað nokkur hættuleg' færi fyr- ir sóknarmenn okkar í leiknum. Allar þessar vangaveltur hafa þó lítið að segja þegar flautað verður til leiks í dag. Menn geta undirbúið sig af kostgæfni en það gæti haft lítið að segja ef dagsformið er lélegt. Ás- geir og Logi léku vissulega á Þjóð- verja í síðasta mánuði sem gerði Allir eru landsliðsmenn- irnir varkárir í yfirlýs- ingum og enginn þeirra vill viðurkenna að það sé raunhæft að ætlast til þess að íslenska landsliðið vinni þennan leik þýska landsliðið ansi vandræðalegt og eru þeir enn að súpa seyðið af því. Ef til vill tekst þeim Ásgeiri og Loga að endurtaka þann leik, hver veit? Sigur færir íslandi sæti á EM 2004. Jafntefli dugar ekki ef Skotar vinna sinn leik. Tap eða jafntefli dugar í 2. sætið og þar af leiðandi aukaleik um laust sæti í Portúgal ef Skotar vinna ekki Litháa í dag en sá leikur fer fram á sama tíma - svo einfalt er það. Komd’að leika! Leiklistarnámskeiðin hefjast í næstu viku Skráðu núna í síma 5517300 www. ■ • .IS Kennarar: Hlín Agnarsdóttir leikstjóri, Margrét Ákadóttir leikari og Stígur Steinþórsson leikmyndahönnuður 'rdmasmiof&n /ði£ur-j£öfrun - mujtnrœ^t / Skúlatúni 4 / 4.hæð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.