Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2003, Blaðsíða 41

Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2003, Blaðsíða 41
LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 2003 DVBÍLAR 61 í Eitt stig enn og Michael Schumacher er sexfaldur meistari EINBEITTIR: Allt Ferrari-liðið er ákveðið í að koma ökumanni sínum í sjötta sinn í heimsmeistarasætið og framlengja Ferrari- tímabilið um eitt ár í viðbót með því að vinna líka keppni framleiðenda. Michael Schumacher lagði traustan grunn að sjötta heims- meistaratitili sínum með glæst- um sigri á Indy-brautinni í Bandaríkjunum fyrir hálfum mánuði. Með því komst hann í níu stiga forystu í stigakeppn- inni og þarf nú einungis að klára í áttunda sæti til að verja titilinn sem hann hefur haldið síðustu þrjú árin. Ekkert er öruggt þegar kappakst- ur er annars vegar og allt getur gerst. McLaren ökumaðurinn og Finninn, Kimi Raikkonen, á enn möguleika á móti heimsmeistaran- um fimmfalda en lfkurnar eru af- skaplega litlar hjá hinum unga öku- manni. Sigur og von um bilanir hjá Schumacher er eina haldreipi Kimis og þarf hann á sannkallaðri meistaraheppni að halda. Arfaslak- ur árangur í síðustu keppni hefur sett Juan Pablo Montoya út úr myndinni og er hann ekki lengur með í baráttunni um meistaratitil- inn. Hann fór hnípinn heim frá keppnisstað og kvaddi hvorki kóng né prest. Rak trausta nagla í BNA Það var snilld að fylgjast með Michael Schumacher í bandaríska kappakstrinum fyrir hálfum mán- uði. Þar sannaðist enn og aftur að hann getur alltaf náð því besta út úr því sem hann hefur. Dekkin og veðráttan léku stórt hlutverk í tíð- indamiklum kappakstri og voru að- stæður ýmist Schumacher í hag eða óhag. Dekkin voru honum á tíma- bili til vandræða, en um leið og rigningin fór að sýna sig almenni- lega komu yfirburðir regndekkja Bridgestone sannarlega íljós. Hann spilaði rétt úr spilum sínum, hvort sem um hunda eða ása var að ræða. Hann varð fyrstur yflr endalínuna og rak nokkra trausta nagla í undir- stöðurnar fyrir enn einn meistara- titilinn. Sjötugasti sigur hans á ferl- inum varð staðreynd og hann fagn- aði eins og það væri hans fyrsti. Vörumerkið hans á verðlaunapall- inum: hnefinn og stökk í loft upp, vantaði ekki á Indy. Þá vissi hann strax að hann var nær takmarki sínu en hann hafði nokkurn tíma þorað að vona. Takist Schumacher ætlunarverk sitt í nótt á Suzuka slær hann met Juans Manuels Fangio sem á árunum 1949 til 1957 varð fimmfaldur meistari. Þar með er fátt eftir í metabókum Formúl- unnar sem Schumacher á eftir að bæta. Eitt met er þó eftir, og er und- irritaður nokkuð viss að mun draga hann áfram næstu tvö árin. Ayrton Senna, sem lést á hátindi ferils síns árið 1994, náði 61 ráspól og stendur það met hans enn. Schumacher er þó ekki langt frá því að bæta það, er kominn með 55 ráspóla í vasann. Ferrari stefnir á báða titla Þrátt fyrir sterka stöðu reynir Schumacher að vera hógvær og gerir ráð fyrir öllum hugsanlegum möguleikum. Hann hefur brennt sig á því að hafa margsinnis tapað titli í lokakeppni og segir allt geta gerst enn. „Þar sem það er stærð- fræðilegur möguleiki á að Kimi geti orðið meistari, er ekkert unnið enn," sagði Schumacher í vikunni, minnugur atburða frá fyrri árum. „Allir í Ferrari-liðinu eru meðvitað- ir um stöðu okkar og við erum því allir mjög einbeittir." Schumacher hefur áður verið í svipaðri stöðu á lokamóti harðra keppnistímabila. Hann barðist hatramlega á Jerez við Jacques Villeneuve árið 1997 og á Suzuka árið 1998 á móti Mika HákJdnen. I bæði skiptin tapaði hann titli sem var í augsýn. í nótt á ekki að taka neina áhættu og Ferr- ari mun tjalda öllu sem til er. „Á Suzuka komum við til með að berj- ast fyrir báðum titlunum. Það er vilji okkar að landa bæði liðs- og ökumannstitlinum til Maranello einu sinni í viðbót. I stuttu máli vilj- um við að þetta Ferrari-tímabil, eins og sumir hafa kallað sigurár okkar, vari eitt ár í viðbót. BMW Williams hefur enn góða mögu- leika á að hampa titli keppnisliða, en til þess þurfa þeir að vinna Ferr- ari með fjórum stigum og það væri „Allir í Ferrari-liðinu eru meðvitaðir um stöðu okkar og við erum því allir mjög ein- beittir" sárabót fyrir að missa Juan Pablo Montoya úr keppninni um öku- mannstitilinn." Kimi hefur engu að tapa Kimi Raildconen sýndi fljótlega á ferli sínum að hann er ökumaður í sérflokkJ og það fór sannarlega ekki milli mála í Indianapolis. Þrátt fyrir erfiðar aðstæður gerði hann allt rétt og hélt sér f baráttunni um titil- inn. „Þessi helgi, þegar bandaríski kappaksturinn fór fram, olli mér og mínu liði blendnum tilFinningum. Við gerðum allt sem við gátum og vorum með góða keppnisáætlun en veðrið spillti fyrir okkur," sagði Kimi í fréttatilkynningu frá Mc- Laren. „Það er enn möguleiki á að vinna meistaratitilinn, en það verð- ur ekki eins auðvelt og ef ég hefði unnið á Indy. Ég nýt áskorana og hef engu að tapa. Eg veit hvað ég þarf að gera og ætla eingöngu að einbeita mér að því.“ Hann á að- eins möguleika ef hann sigrar í keppninni í nótt og Schumacher lendir í níunda sæti eða neðar. Möguleikarnir eru ekki miklir, en eins og Michael Schumacher segir er ekkert búið fyrr en það er búið, og enginn verður krýndur meistari fyrr en keppninni í nótt er lokið. Útsending Sjónvarpsins frá loka- kappakstri keppnistímabilsins 2003 hefst á hæfilegum tíma fyrir algjöra morgunhana og hörðustu nátthrafna. Fimm í fyrramálið hefst veislan. fl@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.