Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2003, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2003, Síða 12
12 FRÉTTIR LAUGARDAGUR 11.0KTÓBER 2003 Útlönd Heimurinn i hnotskurn Umsjón: Guðlaugur Bergmundsson Netfang: gube@dv.is Sími: 550 5829 Smith ætlar að leiða Hjartað látið ráða för BRETLAND: lain Duncan Smith, leiðtogi breska (haldsflokksins, ítrekaði í gær að hann ætlaði að leiða flokkinn í næstu kosningum. Hann kallaði kröfur manna um afsögn hans bull og vitleysu sem myndi líða hjá. Smith viðurkenndi þó að innan flokksins væru óánægjuraddir en að tekið yrði á þeim. Leiðtoginn sagði við BBC að vikan hefði verið góð og vísaði á bug fullyrð- ingum samflokksmanns síns, Michaels Portillos, um að landsfundurinn, sem lauk á fimmtudag, hefði verið sá versti í manna minnum. HOLLAND: Hollenski prinsinn Johan Friso, annar í röðinni að kon- ungserfðum í Hollandi, hefur ákveðið að fórna þeim rétti sínum og gift- ast konunni sem hann elskar. Prinsinn tók þessa ákvörðun þegar Ijóst var að ríkisstjórn Hollands myndi ekki samþykkja ráðahaginn. Það hefur sem sé komið í Ijós að unnusta prinsins, Mabel Wisse Smit, átti í nánara og lengra sambandi við bófa einn en hún hafði áður látið uppi. Forsætis- ráðherra Hollands sagði þetta slæmt fyrir kon- ungsfjölskylduna. Bandaríski varaforsetinn í vígahug: Hótar hryðju- verkamönnum Dick Cheney, varaforseti Bandaríkjanna, var vígreifur mjög og hafði í hótunum við hryðjuverkamenn um allan heim í gærmorgun. „Hryðjuverkamenn hafa orðið fyrir miklu mannfalli og þeir munu verða fyrir meiru,“ sagði Cheney, einn af helstu harðlínumönnunum í stjórn Bandaríkjanna, í erindi í Heritage Foundation, íhaldssama rannsóknarstofnun, í Washington. Erindi varaforsetans var hluti ný- haFinnar herferðar stjórnvalda í Washington sem hefur það mark- mið að svara sívaxandi gagnrýni á stríðið í írak og eftirmál þess. Vinsældir Georges W. Bush for- seta hafa dalað mjög á undanförn- um vikum vegna aukins mannsfalis í röðum bandarískra hermanna. Þá hefur það ekki bætt úr skák að eng- in gjöreyðingarvopn hafa enn fund- ist í írak en stríðið var einmitt rétt- lætt með hættunni sem stafaði af meintri vopnaeign Saddams Husseins, fyrrum fraksforseta. Svara til saka Cheney sagði einnig í erindi sínu að Bandaríkin ættu enn í höggi við óvini sem gætu orðið hundruðum þúsunda Bandaríkjamanna að bana á einum og sama deginum og varði innrásina í írak sem nauðsyn- legan hlekk í baráttunni gegn slík- um ófögnuði. „Við gátum ekki sætt okkur við þá miklu hættu sem stafaði af því að Saddam Hussein og bandamenn hans beindu gjöreyðingarvopnum að okkur eða vinum okkar og bandamönnum," sagði Cheney. Þá ítrekaði hann það sem kallað hefur verið „Bush-kenningin“ og gengur út á það að hver sú ríkis- stjórn sem leggur hryðjuverkahóp- um lið verði látin svara til saka. Fordæmdu hryðjuverk BNA Austur í Irak fóru allt að tíu þús- und sítar í mótmælagöngu um göt- ur al-Sadr-hverfisins í Bagdad í gær þar sem þeir fordæmdu Bandaríkin fyrir hryðjuverk. Efnt var til mót- mælanna á sama tíma og tveir sítar, sem bandarískir hermenn felldu á fimmtudag, voru bornir til grafar. Bandaríski herinn segir að menn- irnir tveir hafi fallið í kjölfar fyrirsát- ar á bandarískan eftirlitsflokk á fimmtudag. Cheney sagði einnig í er- indi sínu að Bandaríkin ættu enn í höggi við óvini sem gætu orðið hundruðum þúsunda Bandaríkjamanna að bana á einum og sama deginum. fbúar hverfisins segja að menn- irnir tveir hafi verið lífverðir sítakferks og að þeir hafi fallið í skotbardaga eftir fýrirsátina. Engan rétt Allir helstu ráðamenn Bretlands sóttu minningarathöfn um fallna breska hermenn í frak sem haldin var í St. Paul’s dómkirkjunni í London í gær. Athöfninni var einnig ætlað að reyna að jafna þær miklu deilur sem eru í Bretlandi um stríð- ið í írak. Ýmsir ættingjar föllnu her- mannanna sögðu að Tony Blair for- sætisráðherra ætti engan siðferði- legan rétt á að sækja minningarat- höfnina þar sem stríðið sem hann háði hefði verið óréttlætanlegt. ÚTFÖR í BAGDAD: Mikill fjöldi sítamúslíma fylgdi tveimur mönnum, sem féllu í átökum við bandaríska hermenn, til grafar al- Sadr-úthverfinu í Bagdad í gær. Mennirnir tveir, sem voru lífverðir sítaklerks í hverfinu, féllu í átökum sem fylgdu í kjölfar fyrirsát- ar á bandarískan eftirlitsflokk á fimmtudagskvöld þar sem tveir bandarískir hermenn féllu. Al-Sadr hverfið er aðallega byggt sít- um sem eru í meirihluta í (rak. Hverfið var áður nefnt eftir Saddam Hussein. Atta ára drengur féll í árás á Gaza Friðarnóbelinn tillrans: Umbótasinnar fagna verðlaunaveitingu Átta ára drengur var í hópi sjö Palestínumanna sem féllu í árás ísraelska hersins á Rafah- flóttamannabúðirnar á landa- mærum Gaza og Egyptalands í gærdag. ísraelar sendu tugi skriðdreka, sem nutu fulltingis þungvopnaðra þyrlna, inn í flóttamannabúðirnar til að leita að jarðgöngum vopna- smyglara. Israelar hafa sakað Palestínumenn um að reyna að komast yfir loftvarnarflugskeyti. Yasser Arafat, forseti Palestínu- manna, tók þátt í bænahaldi í Ram- allah í gær, að því er virðist til að reyna að kveða niður orðróm um að hann hefði fengið hjartaáfall og þjáist af magakrabba. Arafat hafði þá ekki komið fram opinberlega í þrjá daga. Á vettvangi stjórnmálanna var mikill ys og þys þar sem embættis- Á BÆN: Yasser Arafat, forseti Palestínu- manna, tók þátt í bænahaldi í Ramallah. menn sögðust vera að reyna að sannfæra Ahmed Qurie, nýskipað- an forsætisráðherra palestínsku heimastjórnarinnar, um að hætta við að segja af sér. Bandaríkjaforseti ætlar að herða skrúfuna á Castro George W. Bush Bandaríkja- forseti hefur ákveðið að grípa til nýrra refsiaðgerða til að flýta fyrir falli kommúnistastjórnar Fidels Castros á Kúbu. „Kúba verður frjáls," lýsti Bush yfir í gær þegar hann hafði greint frá því að meðal annars yrði hert enn frekar á ferða- banninu til Kúbu og að tekið yrði á ólöglegum peningasend- ingum til landsins. Bush sagði að ákveðið hefði verið að grípa til þessara refsi- aðgerða vegna þess að Castro hefði hagað sér á „fyrirlitlegan hátt“ og gripið til nýrra ofsókna á hendur andófsmönnum. Ýmsir kúbverskir útlagar í Bandaríkjunum hafa gagnrýnt stjórnvöld f Washington fyrir að gera ekki meira til að koma stjórn Castros frá völdum. Colin Powell utanríkisráð- herra hefur reynt að fá önnur ríki til að þrýsta á að lýðræði verði komið á á Kúbu. íranskir umbótasinnar fögn- uðu mjög ákvörðun norsku nóbelsnefndarinnar að veita lögfræðingnum og mannrétt- indafrömuðinum Shirin Ebadi friðarverðlaun Nóbels í ár, fyrstri íslamskra kvenna. „Við verðum að óska írönsku þjóðinni, einkum þó konum, til hamingju með velgengni hennar og líta á þetta sem sigur fyrir alla þá sem eru að reyna að efla mannrétt- indi og kveða niður kúgun um heim ailan," sagði umbótasinnaða þingkonan Elahe Koulaei. Ebadi sagði á fundi með frétta- mönnum í París að brýnasta verk- efni klerkastjórnarinnar í Iran væri að efla tjáningarfrelsi í landinu og leysa úr haldi alla þá sem sitja á bak við lás og slá fyrir það eitt að tjá GLÖÐ: Shirin Ebadi var að vonum ánægð með að hljóta friðarverðlaun Nóbels, fyrst íslamskra kvenna. skoðanir sínar.„Ég vona að þetta muni hafa áhrif í íran,“ sagði hin 56 ára gamla Ebadi um friðarverð- launin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.