Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2003, Blaðsíða 37
—■
LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 2003 DVBlLAR 57
DV Bílar
Allt sem hreyfíst
Umsjón: Njáll Gunnlaugsson
Netfang: njall@dv.is
Sími: 550 5808
Mazda 3 bíll árs
ins í Danmörku
Síðastliðinn fimmtudag var til-
kynnt um bíl ársins í Danmörku
2004 en það þykir oft gefa góða
vísbendingu um valið á bíl árs-
ins í Evrópu sem fer fram seint í
nóvember.
Alls voru 24 bílar í valinu hjá
dönsku blaðamönnunum og var
það Mazda 3 sem varð efstur á und-
an Opel Meriva fjölnota smábfln-
um sem varð í öðru sæti. Þriðja
sætið vermdi svo nýr VW Golf,
fjórði varð Toyota Avensis fyrir
góða dísilvél og fimmti ný kynslóð
Fiat Panda. Blaðamannahópurinn
frá Danmörku samanstóð af 25
blaðamönnum og þótti Mazda 3 að
þeirra mati skara fram úr fyrir fal-
lega hönnun, góða aksturseigin-
leika og mikinn búnað miðað við
verð. Má þar til dæmis nefna að sex
öryggispúðar og ESP-skrikvörn eru
staðalbúnaður í bflnum. Mazda 3
fylgir þannig eftir góðum árangri
Mazda 6 í fyrra sem varð annar í
valinu á bfl ársins í Evrópu.
Mazda 3 þótti skara fram úr fyrir fallega hönnun, góða akst-
urseiginleika og mikinn búnað miðað við verð.
Mazda 3, bíll ársins í Danmörku 2004, kynntur af samtökum bíla-
blaðamanna þar í landi.
Erfið þriggja daga próf
Helstu forsendur sem dómararn-
ir gáfu sér við valið eru nýjungar,
aksturseiginleikar og ekki síst hag-
kvæmni, þ.e. hvað kaupandinn er
að fá fyrir peningana. Bflarnir eru
reyndir á ýmsa vegu í þrjá daga og
til marks um hvað þeir þurfa að
ganga í gegnum var það í þessu
prófi sem A-lína Mercedes-Benz
MyndHenning Bagger va^ 1 hinu fræga
elgsprófi. Ekki er
nóg að bfllinn sé með það sem kall-
að er andlitslyftingu heldur verður
hann að vera nýr eða af nýrri kyn-
slóð. Hann verður að vera kominn
á markað í Danmörku í síðasta lagi
í janúar 2004 og verð hans verður
að vera ákveðið svo ekki muni
meira en 5000 dkr.
Að sögn Guðmundar Bjarnason-
ar, sölustjóra hjá Ræsi, eiga þeir
von á fyrstu bflum í nóvember og
verður bfllinn frumsýndur upp úr
miðjum mánuðinum. „Verðið á bfl-
um með 1,6 lítra vélinni verður lík-
lega frá 1.825.000 kr. þótt það sé þó
ekki staðfest ennþá. I boði verða
bflar með 1,6 og 2, 0 lítra vélum
ásamt dísilvélum þegar eitthvað
gerist í þungaskattsmálum. Bflarnir
með tveggja lítra vélinni verða ein-
göngu beinskiptir," sagði Guð-
mundur.
Hér er svo listi yfir þá 24 bfla sem
voru í valinu að þessu sinni:
BÍLAR I FORVALI
Audi Á3
BMW 5-lína
Citroén C2
Daewoo Kalos
Daewoo Evanda
Daewoo Nubira
Fiat Panda
Ford Fusion
Ford C-Max
Honda Accord
Kia Magentis
Mazda 2
Mazda 3
Mitsubishi Lancer
Mitsubishi Outlander
Nissan Micra
Opel Meriva
Renault Mégane
Renault Scénic
Suzuki Alto
Suzuki Ignis
Toyota Avensis
VWGolf
VWTouran
t æ k n i
■ ■ ■ . .
.
y VARTA
ViSurkenndir rafgeymar
við allar aSstæöur
Vilt þú vera með öruggt start?
Einstök Silfur-tækni Varta rafgeyma er bæði í Bláu og frábæru
Silfur-línunni. Silfurinnihald gefur öflugt start og lengir líftíma
geymanna um 20% (u.þ.b. 1 ár) í samanburði við venjulega
rafgeyma. Rafgeymarnir eru algerlega viðhaldsfríir. Silfur-línan
hefur þar að auki 30% meiri startkraft. Vertu viss um að næsti
rafgeymirinn þinn sé Varta rafgeymir með silfri.
Við eigum rafgeymana á lager.
Skiptu tímanlega og forðastu vandræði í ræsingu.
Bestir í raun
Borgartúni, Reykjavík
Bildshöfða, Reykjavik
Dalshraunl, Hafnarfirði
Hrismýri, Selfossi
Dalbraut, Akureyri
Grófinni, Keflavík
Lyngási, Egilsstöðum
Smiðjuvegi, Kópavogi
Radíóþjónusta Bílanausts
Siðumúla, Reykjavík
Alaugarvogi, Hornafirði RSH.is, Dalvegi, Kópavogi