Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2003, Blaðsíða 25
LAUGARDAGUR 77. OKTÚBER 2003 DVHELGAH8LAÐ 25
Er val Hildar Harnar Daðadóttur hjá K. Karlssyni
Alsace, hið margrómaða vínhérað,
er í Norðaustur-Frakklandi og koma
þaðan afar fjölbreytt matarvín, t.d.
Gewiirztraminer. Það sem er einkenn-
andi fyrir Alsace-vínin er lagið á flösk-
unum en þær eru með mjóum búk og
löngum hálsi. Veðrið er venjulega
þurrt og sólríkt og má nefna að borgin
Colmar, í suðurhluta Alsace, er sú borg
í Frakklandi þar sem einna minnst
rignir. í Alsace eru rúmlega 9000 vín-
bændur sem deila með sér um 13 þús-
und hekturum sem leiðir til þess að
meðalvíngarður er einungis örfáir
hektarar. Margir víngarðar eiga rætur
að rekja til 17. aldar.
Alsace fékk gæðastaðalinn App-
ellation d’Origine Contrðlée, AC, árið
1962 og er meirihluti vínframleiðslu
Alsace undir AC. í Alsace eru sjö þrúg-
ur: Pinot Blanc, Pinot Gris (Tokay d’Al-
sace), Pinot Noir, Gewúrztraminer,
Riesling, Sylvaner og Muscat. Ef vínið
er blandað úr þessum þrúgum, einni
eða fleiri, er það kallað Edelzwicker.
Stöðug þróunarvinna er í Alsace.
Framkvæmdarstjóri víngerðarinnar
Dopff & Irion í Alsace var hér á landi í
fyrra og kynnti þá nokkur vín. Á þeim
bæ er trú manna að gæði vínsins batni
í vfngarðinum - með meiri gæðum
þrúgnanna. Fyrir nokkrum árum byrj-
aði Dopff & Irion þannig að planta
grasi á milli annars hvers vínrima til
þess að fá samkeppni milii rótanna
sem leiðir til beittara bragðs úr þrúg-
unum. Og árið 1994 byrjuðu þeir að
klippa til Grand Cru vínviðinn,
minnka nýtinguna en auka gæðin
Smávegis rigning, heilmikið sólskin
og þykkir veggir af bleikum sandsteini
sem dregur í sig hitann eru hin full-
komnu skilyrði fyrir vínviðinn í görð-
um Chateau Isenbourg en þaðan
koma vínin að þessu sinni. Hinn eigin-
legi kastali (chateau) var byggður fyrir
Merovignia og sögulegar arfleifðir vísa
til víngerðar þegar á tímum Róma-
veldis. Chateau Isenbourg er ekki ein-
göngu nafn fágaðra vína heldur er eitt
besta veitingahús héraðsins í þessum
kastala og á góðum degi má sjá sviss-
nesku Alpana.
Clos du Chateau Isenbourg Pinot
Blanc er vín þar sem víngerðarmeist-
arinn hefur lagt mikla áherslu á að
ferskleiki og ávöxtur þrúgunnar fái sín
best notið. Samspil ríkulegs ávaxtar og
ferskrar sýru gera það að verkum að
vínið hentar vel með kryddaðri mat,
eins og fiski og hvítu kjöti.
Clos du Chateau Isenbourg Pinot
Blanc fæst ÍÁTVR og kostar 1790 krón-
ur.
Clos du Chateau Isenbourg Riesling
er ólíkt hinu fyrra. Hinn kalkmikli jarð-
vegur búgarðsins gefur þessu víni
ákveðinn ferskleika. Sítrusávextir eru
áberandi en vínið opnast smám sam-
an eftir að tappinn hefur verið tekinn
úr og er þá helst að finna blómailm.
Vínið er einstakt með fersku sjávar-
fangi og bragðmiklum ostum. Clos du
Chateau Isenbourg Riesling fæst í
ÁTVR og kostar 1.990 krónur.