Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2003, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2003, Qupperneq 14
74 FRÉTTIR LAUOARDAGUR 11. OKTÓBER 2003 Mk FRÉTTAUÓS t' Guðlaugur Bergmundsson |w gube@dv.is Þótt óveðursskýin hrönnuðust upp yfir höfði hans, gaf lain Duncan Smith, leiðtogi breska íhaldsf lokksins, sér samt tíma til að laumast út af landsfundi flokks síns í Blackpool í vikunni og bregða sér á bændamarkað- inn með Betsy eiginkonu sinni. Flokksleiðtoginn hefur svo sann- arlega ekki átt sjö dagana sæla þessa síðustu daga í Blackpool, og sosum lengi áður. Fjölmiðlar hafa hann að háði og spotti og á knæp- unum í Blackpool er um fátt meira talað en hvenær IDS, eins og bresk- ir fjölmiðlar kalla íhaldsleiðtogann gjarnan, hrökklist úr leiðtogaemb- ættinu. Það ku víst ekki lengur vera spurning um hvort hann verður lát- inn fjúka eða þá að hann sjái sjálfur sitt óvænna og taki pokann sinn. Ræða úr gálganum „Ég er hrifinn af bragðsterku ávaxtamauki. Við ætlum að fá smá- vegis,“ sagði Duncan Smith þegar þau Betsy námu staðar við sölubás Jan Atkinson frá J&J Produce á bændamarkaðinum sem íhalds- menn halda sjálfír. Og krukku af Bændaávaxtamauki, eða chutney, frú Atkinson keypti hann og hélt áfram að næsta bás. Þar keypti leið- toginn greipaldinmarmelaði. Duncan Smith brosti út að eyrum og veifaði til fjöldans eins og sannur foringi. Ekki eins og maðursem þarfað var- ast rýtingana í bakið við hvert fótmál." „Það var annarhvort það eða hunang,“ sagði John Myerscough. „Hann virtist vilja hunangið en kon- an hans spurði hann hvort honum líkaði ekki greipaldinmarmelaði. Þau keyptu það því í staðinn." En ætli það skipti nokkru máli, úr því sem komið er, hvort Duncan Smith fær sér hunang eða mar- melaði ofan á ristaða brauðið sitt á morgnana. Dálkahöfundur breska DRAUGURINN: Andi MargaretarThatcher sveifyfirvötnum á landsflundi breska (haldsflokksins í vikunni. Enginn leiðtoga flokksins síðan hún fór frá hefur megnað að vekja áhuga og aðdáun, hvorki í eigin röðum né annars staðar. Á BÆNDAMARKAÐINUM: lain Duncan Smith, leiðtogi breska Ihaldsflokksins, og Betsy eiginkona hans brugðu sér á bændamarkað íhaldsmanna í Blackpool í vikunni og keyptu þar ýmis- legt gómsætt, svo sem kryddað ávaxtamauk og marmelaði. Þá fékk leiðtoginn einnig að smakka vin og líkaði vel. blaðsins The Guardian sagði á flmmtudagsmorgun að Duncan Smith ætti sér varla viðreisnar von og spáði því að ræða hans sfðar um morguninn, aðalræða landsfundar- ins, yrði ræða „dæmds manns úr gálganum". Fundarmenn risu úr sætum þeg- ar leiðtoginn steig fram á sviðið á fimmtudagsmorgun og klöppuðu honum óspart lof f lófa. Duncan Smith brosti út að eyrum og veifaði til fjöldans eins og sannur foringi. Ekki eins og maður sem þarf að var- ast rýtingana í bakið við hvert fót- mál, rýtinga þeirra sem á bak við tjöldin brugga pólitísk launráð. Annaðhvort ég eða Tony „Ég læt engan standa í vegi mín- um,“ sagði leiðtoginn um þá ætlan sína að fella stjórn Tonys Blairs og Verkamannaflokksins í næstu kosn- ingum. Og sendi stjórninni nokkur vel valin orð í leiðinni, kallaði for- ystumenn hennar meðal annars lygara og gjörspillta. „Annaðhvort viljið þið slást f för með mér eða þið viljið Tony Blair. Þriðja leiðin er ekki til,“ sagði Dunc- an Smith og bætti við: „Komið um borð eða farið þið frá því að við höf- um verk að vinna." Og allt ætlaði um koll að keyra. Sjálfur reyndi Duncan Smith að gera lítið úr öllu þessu samsæristali með því að benda á að ráðabruggið sem máli skipti snerist um að koma Tony Blair frá völdum. „Og ég fer fyrir því ráðabruggi," sagði hann. í neðsta sæti En eindrægnin hefur nú ekld alltaf verið svona mikil sem á þess- ari hátíðarstundu á fimmtudag þeg- ar kastljós fjölmiðlanna beindust að fundinum og ræðu leiðtogans var sjónvarpað um víða veröld. Um fátt var annað rætt á lands- fundinum en ráðabrugg um að bola Duncan Smith frá. fhaldsmenn hafa jú svo sannarlega ástæðu til að vera áhyggjufullir. Gengi leiðtoga þeirra í skoðanakönnunum hefur verið af- leitt og nú er svo komið að hann er í þriðja og neðsta sætinu þegar kjós- endur eru spurðir hvern þeir vilji hafa sem forsætisráðherra. Blair er enn í efsta sætinu, þrátt fyrir allar óvinsældirnar vegna stríðsins í Irak og hvernig að því var staðið. Sjálfur reyndi Duncan Smith að gera lítið úr öllu þessu samsæristali með því að benda á að ráðabruggið sem máli skipti snerist um að koma Tony Blair frá völdum. „Og ég fer fyrir því ráðabruggi," sagði hann. Vofa Thatcher Búist er við að næst verði kosið til þings í Bretlandi árið 2005. And- stæðingar Duncans Smiths vita sem er að þeir verða að hafa hraðar hendur ef þeim á að takast að snúa við taflinu. Orðrómur er á kreiki um að þingmenn séu að undirbúa að bera fram vantrauststillögu á leið- togann eftir að flokksþinginu lýkur. Duncan Smith var kjörinn til leið- togaembættisins á síðasta ári en á þeim tíma sem liðinn er hefur hon- um ekki tekist að vekja hrifningu, hvorki eigin liðsmanna né annarra. Það er því ekki furða þótt hann sé auðveldur skotspónn þeirra manna sem horfa með söknuði til leiðtoga eins og Winstons Churchills og Margaretar Thatcher sem stjórnuðu flokkinum, og landinu, með styrkri hendi á sínum tíma. Dálkahöfundur The Guardian segir að ekki sé nóg fyrir Ihalds- flokkinn að skipta um karlinn í brúnni. Vandi hans risti miklu dýpra en svo. Flokkinn skorti hug- myndir sem megni að sameina hann og að flokksmenn verði að átta sig á því langtímatjóni sem Thatcher hafi valdið þeim. „Hún (Thatcher) var kannski ekki í Blackpool. En hún var þar samt í andanum. Og á meðan svo er, verð- ur ávallt mjög erfitt að leiða nú- tímalegan Ihaldsflokk," segir dálka- höfundur The Guardian. Byggt á efni frá BBC, The Guardian og Reuters. Ólgan kraumar undir niðrí í breska íhaldsflokknum: Leiðtoginn vildi hun- ang en keypti mauk
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.